Fréttablaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 8
8 24. ágúst 2002 LAUGARDAGURORÐRÉTT
Létust í umferðarslysi:
Voru allar
ljósmæður
og vinkonur
ANDLÁT Konurnar þrjár sem létu
lífið í hörðum
árekstri á gatna-
mótum Suður-
landsvegar og
Landvegar á mið-
vikudag voru allar
ljósmæður og vin-
konur. Þær hétu:
Margrét Hin-
riksdóttir, fædd
25. maí 1922, til
heimilis í Hamra-
borg 34, Kópa-
vogi. Margrét var
ógift og barnlaus.
S i g u r b j ö r g
Guðmundsdóttir,
fædd 27. júlí 1929,
til heimilis á
Bergþórugötu 3 í
Reykjavík. Sigur-
björg var ógift og
barnlaus.
Sólveig Matthí-
asdóttir, fædd 20.
maí 1937, til heim-
ilis í Efstahjalla
11, Kópavogi. Sól-
veig var ekkja og
lætur eftir sig
tvær uppkomnar
dætur..
HJÁLPARSAMTÖK „Græni krossinn
eru velferðarsamtök sem hafa
það að markmiði að aðstoða þar
sem þess er þörf einkum vegna
stríðs eða náttúruhamfara. Við
teljum að með því að fá hin Norð-
urlöndin til samstarfs verði sam-
tökin sterkari og meiri líkur verði
á að geta komið til hjálpar,“ segir
Poul Jörgen Nielsen varaformað-
ur samtakanna.
Poul Jörgen Nielsen hefur ver-
ið hér á landi ásamt Torben C. Nil-
son í þeim tilgangi að kynna ný-
stofnuð samtök sem hafa hlotið
nafnið, Græni krossinn. Þeir hafa
meðal annars rætt við fulltrúa Al-
þingis, Samtaka atvinnulífsins,
ASÍ, Landsbjargar og Bandalags
skáta í með það í huga að Íslend-
ingar gerist aðilar að samtökun-
um. Poul Jörgen segir viðbrögð
Íslendinga mjög góð og þegar hafi
verð komið á undirbúningsnefnd.
„Ég tel að með sameiginlegum
styrk landanna verði til öflug
samtök sem hafi yfir þeirri þekk-
ingu að ráða sem sé nauðsynleg
undir slíkum kringumstæðum. Ef
allt gengur að óskum reiknum við
með að geta tekið að fullu til star-
fa í ársbyrjun 2003,“ segir hann.
WASHINGTON, AP Helmingur Banda-
ríkjamanna telur að Írakar búi
yfir gjöreyðingarvopnum. Heldur
hefur dregið úr stuðningi Banda-
ríkjamanna við að senda hermenn
til Íraks til að koma Saddam
Hussein, forseta Íraks, frá völd-
um. Samkvæmt könnun sem
bandarísku fjölmiðlarnir CNN og
USA Today gerðu, vilja 53%
Bandaríkjamanna að ráðist verði
inn í Írak. Í júní var talan 61%.
Fjórir af hverjum tíu voru fylgj-
andi því að senda
inn herlið jafnvel
þótt það myndi
berjast í landinu í
að minnsta kosti
eitt ár. Tveir af
hverjum tíu vilja að
sendur verði her til
Íraks þrátt fyrir að
Bandaríkin fái eng-
an stuðning frá
bandamönnum sínum á Vestur-
löndum.
Mikil umræða hefur verið uppi
um hvort Bandaríkin ætli að ráð-
ast inn í Írak. George W. Bush,
fundaði nýverið með Donald
Rumsfeld, varnarmálaráðherra
landsins, á búgarði sínum í Texas.
Að sögn Bush báru málefni Íraks
ekki á góma á fundinum. Sagði
Bush að þrátt fyrir að vilji væri
fyrir því að koma Saddam frá
völdum þá væri hann þolinmóður
maður og þyrfti að ráðfæra sig
við marga aðila áður en ákvörðun
í málinu yrði tekin.
Hugmyndir um að ráðast inn í
Írak hafa víðast hvar mætt and-
stöðu á meðal annarra vestrænna
ríkja. Að sögn Jack Straw, utan-
ríkisráðherra Bretlands, vilja
stjórnvöld í landinu einbeita sér
að því að beita Saddam þrýstingi
um að vopnaeftirlit Sameinuðu
þjóðanna hefjist aftur í landinu.
Hafa þau ekki tekið ákvörðun um
hvort senda eigi herlið til lands-
ins. Gerhard Shroeder, kanslari
Þýskalands, hefur látið hafa eftir
sér að hann ætli ekki að senda
hermenn sína í eitthvert „ævin-
týri“ í Írak.
Bush hefur einnig mætt and-
stöðu heima fyrir vegna utanrík-
isstefnu sinnar. Í gær átti upp-
þotalögregla fullt í fangi með að
halda aftur af hundruðum mót-
mælenda sem safnast höfðu sam-
an á svæði skammt frá hóteli í
Portland þar sem Bush var við-
staddur góðgerðarsamkomu.
Höfðu þeir uppi hávær mótmæli
og hrópuðu ítrekað „látið Bush
falla, ekki sprengju.“
Madeleine Albright, fyrrver-
andi utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, telur að umræða um
málefni Íraks sé afar mikilvæg.
„Bandaríkjunum stafar ekki bein
ógn af Írak og þess vegna tel ég
að við þurfum að ræða það hvort
við verðum betur sett heldur en
nú ef við ákveðum að ráðast á
Írak,“ sagði hún í nýlegu sjón-
varpsviðtali.
SAMRUNI Verðmat endurskoðunar-
fyrirtækisins Deloitte&Touch á
Orkubúi Vestfjarða hefur vakið at-
hygli.
Endurskoðunarfyrirtækið verð-
mat Orkubúið fyrir iðnaðarráðu-
neytið vegna hugsanlegarar sam-
einingar við Rarik og Norðurorku.
Í fyrra þegar sveitarfélög á Vest-
fjörðum seldu ríkinu meirihluta í
Orkubúi Vestfjarða var fyrirtækið
metið á 4,6 milljarða króna.
Deloitte&Touch telur það verð hins
vegar vera þrefalt raunvirði; rétt
verð sé aðeins 1,5 milljarðar
króna.
Hið nýja og lága verðmat þýðir
að Orkubú Vestfjarða er aðeins
talið munu leggja til 20% af heild-
arverðmæti sameinaða fyrirtækis-
ins. Rarik og Norðurorku er hins
vegar metin á 3 milljarða króna
hvort félag. Þau verði því hvort
um sig 40% heildarverðmætis
nýja félagsins ef af verður.
Þess má geta að þegar ríkið
keypt 60% hlut í Orkubú Vest-
fjarða var skilyrði af hálfu ríkisins
að sveitarfélögin settu söluverðið
til tryggingar á greiðslu skulda við
félagslega húsnæðiskerfisins í
kjördæminu við Íbúðalánasjóð.
ALÞINGI
Græni krossinn hefur meðal annars rætt
við fulltrúa Alþingis um aðild Íslands.
Græni Krossinn:
Ný norræn
hjálparsamtök
VESTFIRÐIR
Orkubúið er verðminna en talið var.
Orkubú Vestfjarða:
Þrefalt verðminna en fyrir einu ári
SADDAM
Saddam Hussein, Íraksforseti, veifar til íbúa Saddam borgar í Bagdad í heimsókn sinni árið 1998. Bush, Bandaríkjaforseti, segir Saddam
vera illan mann auk þess sem Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur líkt Saddam við Hitler. Mikil áróðursherferð
hefur staðið yfir á meðal bandarískra yfirvalda gagnvart Saddam.
Hugmyndir
um að ráðast
inn í Írak hafa
víðast hvar
mætt and-
stöðu á meðal
annarra vest-
rænna ríkja.
Helmingur Bandaríkja-
manna vill ráðast á Írak
Stuðningur við innrás í Írak hefur dvínað samkvæmt bandarískri skoðanakönnun. Helmingur
telur að Írakar búi yfir gjöreyðingarvopnum.
AP
/M
YN
D
ÖÐRUVÍSI MÉR
ÁÐUR BRÁ
„Það er mjög
auðvelt að hver-
fa í fjöldann á
þessari ráð-
stefnu.“
Kristján Pálsson
alþingismaður í
Fréttablaðinu.
ALLIR VITA
HVER ÞAU ERU
„Það eru margir
sem telja rétt að
þau frjálsyndu
sjónarmið sem
ég hef staðið
fyrir fái að njóta
sín í framvarð-
arsveit flokks-
ins.“
Heimir Már Pétursson sem hyggst
sækjast eftir þingsetu fyrir hönd
Samfylkingarinnar.
MARGRÉT HIN-
RIKSDÓTTIR
SIGURBJÖRG
GUÐMUNDS-
DÓTTIR
SÓLVEIG
MATTHÍAS-
DÓTTIR
Bandarískt ferðapar varð fyrirheldur óskemmtilegri lífs-
reynslu á tjaldsvæði Grindavíkur
í fyrrakvöld, þegar varamanna-
skýli frá knattspyrnuvellinum í
bænum fauk upp í hávaðaroki og
lenti á tjaldinu þeirra, en tjald-
svæðið er aðeins nokkrum metr-
um frá vellinum. Þurfti að flytja
þau með sjúkrabíl til Reykjavík-
ur til aðhlynningar. Maðurinn rot-
aðist við höggið. vf.is
INNLENT
Erfiður sjúkraflutningur:
Sjúkrabíll
í árekstri
LÖGREGLA Sjúkrabíll sem var að
flytja sjúkling frá Heilsuhælinu í
Hveragerði lenti í gærmorgun í
árekstri í Reykjavík á leið sinni á
sjúkrahús. Bílstjóri sjúkrabílsins
fékk hnykk á bakið og var lagður
inn á sjúkrahús til skoðunar. Sjúk-
lingurinn og fylgdarmaður hans
komust hins vegar ómeiddir á
áfangastað.
Þá var maður fluttur slasaður í
bæinn eftir að bíl sem hann var í
var á fjórða tímanum í gær ekið á
staur á mótum Skeiðavegar og
Suðurlandsvegar. Hann var ekki
alvarlega slasaður. Tvennt var í
bílnum.
Smástirni rakst á jörðina
fyrir langa löngu:
Stærra en
það sem út-
rýmdi risa-
eðlum
VÍSINDI Vísindamenn segjast hafa
fundið sannanir fyrir því að risa-
vaxið smástirni, tvöfalt stærra en
það sem talið er að hafi útrýmt
risaeðlunum fyrir 65 milljónum
ára, hafi rekist á jörðina fyrir 3,4
milljörðum ára. Að því er sagði í
tímaritinu Science hafa fundist
brot úr smástirninu í Suður-Afr-
íku og í Ástralíu. Talið er að það
hafi verið 20 kílómetar í þvermál.
Ekki er enn vitað nákvæmlega
hvar smástirnið lenti á jörðinni.
Flokkur Fortuyns:
Velur þriðja
formanninn
á stuttum
tíma
HOLLAND Stjórnmálaflokkur hins
umdeilda Pim Fortuyns, sem
myrtur var skömmu fyrir kosn-
ingar í Hollandi í vor, hefur valið
sér þriðja leiðtogann á skömmum
tíma. Talið er að formannskiptin
geti ráðið úrslitum um framtíð
nýrrar ríkisstjórnar Hollands, en
eftir mikil átök og valdabaráttu
innan flokksins er Harry Wi-
jnschenk orðinn formaður. Hann
er 38 ára gamall, fyrrum útgef-
andi mótorhjólablaða, og hyggst
koma aftur með þann sjarma sem
þótti einkenna Fortuyn og binda
um leið enda á deilur innan
flokksins.