Fréttablaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 12
12 24. ágúst 2002 LAUGARDAGURKNATTSPYRNA
FERENC PUSKÁS
Ferenc Puskás, frægasti knattspyrnumaður
Ungverja fyrr og síðar, var hylltur á þjóðar-
leikvanginum í Búdapest á miðvikudaginn
þegar ungverska landsliðið gerði 1-1 jafn-
tefli við Spánverja. Völlurinn hefur verið
nefndur í höfuðið á Puskas, sem lék með
Honved og Real Madrid, og heitir nú
Puskás Ference Stadion.
MOLAR
ÍÞRÓTTIR Í DAG
Laugardagur
12.35 RÚV
Markaregn
13.25 RÚV (bein)
Þýski fótboltinn
13.45 Stöð 2 (bein)
West Ham-Arsenal
14.00 Símadeild karla:
ÍBV-Þór
14.00 Símadeild kvenna:
Þór/KA/KS-FH
14.00 1. deild karla:
Sindri-Breiðablik
Afturelding-Haukar
15.15 Sýn
Gillette sportpakkinn
15.30 RÚV
Íþróttaþátturinn
15.45 Sýn
Heimsfótbolti með West Union
16.00 1. deild karla:
Víkingur-Leiftur/Dalvík
16.05 Stöð 2
Alltaf í boltanum
16.15 Sýn (bein)
WBA-Leeds
16.30 1. deild kvenna úrslit:
Tindastóll-Þróttur
18.30 Sýn (toppleikir)
Man. Utd.-Parma
23.05 Sýn
Lewis-Tyson
Sunnudagur
13.55 Stöð 2
Mótorsport
17.00 RÚV
Markaregn
18.00 Símadeild karla:
Grindavík-Fylkir (Sýn)
KA-FH
Keflavík-ÍA
20.00 Sýn
Golf (Buick Open)
21.30 RÚV
Helgarsportið
21.45 RÚV
Fótboltakvöld
22.50 Sýn
Íslensku mörkin
AP
/M
YN
D
KNATTSPYRNA Austuríski landsliðs-
markvörðurinn Alex Manninger
hefur óvænt yfirgefið herbúðir
spænska fyrstudeildarliðsins
Espanyol eftir aðeins fárra vikna
dvöl þar syðra.
Espanyol mun hafa dregið til
baka bankaábyrgðir vegna kau-
panna á Manninger frá ensku úr-
valsdeildarliðinu Arsenal.
Spænska liðið segir það hafa ver-
ið gert þar sem Arsenal hafi ekki
sent tilskilda félagsskiptapappíra.
Þegar síðan Arsenal krafðist þess
að tryggingarfé vegna kaupanna
yrði greitt að nýju inn á banka-
reikning valdi Espanyol að hætta
við allt saman.
Manninger segist ekki botna
neitt í neinu.
ALEX MANNINGER
Austurríkismaðurinn segist ekki botna neitt
í neinu.
Félagskiptafarsi:
Manninger
frá Espanyol
Ford hefur engan áhuga seljakeppnislið Jagúar í Formúlu 1
til Red Bull, en það er fyrirtæki
sem selur orkudrykki. Richard
Parry-Jones, aðstoðarforseti
Ford, sagði í gær að Ford hygðist
halda áfram í Formúlu 1 og frétt-
ir um að það ætti að selja liðið til
Red Bull væru ekki á rökum
reistar.
Man. Utd. hefur enn áhuga áað kaupa franska varnar-
manninn Julien Escude frá Renn-
es. Talið var að enska liðið hefði
misst áhugann eftir að Escude
meiddist á hné þegar hann var
úti að ganga með hundinn sinn.
Man. Utd. hefur boðið 2 milljónir
punda á leikmanninn en Rennes
vill fá tvöfalt hærri upphæð.
Lýbíski einræðisherrannMoammar Gaddafi mun vilja
kaupa hlut í gríska knattspyrnufé-
laginu PAOK Thessaloniki. Fjár-
festingarsjóður í eigu lýbíska rík-
isins á nú þegar 7,5% í ítalska
stórliðinu Juventus. PAOK er í
miklum rekstrarvanda. Forseti fé-
lagsins segir það ekki rétt að þeg-
ar hafi verið ákveðinn fundur með
syni Gaddafis um málið. Það sé þó
allt á réttri leið og að fundurinn
verði örugglega haldinn síðar. Að-
dáendaklúbbur PAOK er á móti
sölunni til Gaddafis. Klúbburinn
segist ekki vilja að hlutur í félag-
inu verði yfirhöfuð seldur til
manna sem ekki játa kristna trú.
KNATTSPYRNA Önnur umferð í ensku
úrvalsdeildinni hófst í gærkvöld
með leik Chelsea og Manchester
United. Leikurinn hófst um það
leyti sem blaðið fór í prentun.
Í dag er níu leikir á dagskrá.
Þeir hefjast allir klukkan 14.00
utan leikur Manchester City og
Newcastle sem hefst 11.15.
Englandsmeistarar Arsenal
leika á útivelli á móti West Ham.
Dennis Bergkamp og Sylvain
Wiltord eru meiddir og því hvorug-
ir í liði meistaranna.
Guðni Bergsson og félagar í
Bolton taka á móti Charlton. Í gær
var vonast til að Guðni yrði klár í
slaginn þrátt fyrir lítilsháttar
meiðsl.
Lárus Orri Sigurðsson verður í
liði WBA gegn Leeds.
Liverpool leikur gegn Sout-
hampton. Helstu lykilmenn eru
leikfærir nema Dietmar Hamann
hjá Liverpool.
Newcastle heimsækir
Manchester City. Heimamenn
verða enn um sinn að vera án ný-
liðans Peter Schmeichel sem er
meiddur.
Í Birmingham leika heimamenn
gegn Blackburn. Birmingham er
án Paul Devlin og Robbie Savage
sem eru í leikbanni. Búist er við að
Garry Flitcroft, fyrirliði Black-
burn, hafi náð sér eftir meiðsl.
Kantmaðurinn Keith Gillespie er
hins vegar að fara að taka út þrig-
gja leika bann.
Önnur umferð ensku úrvalsdeildarinnar er hafin:
Meistararnir leika án Bergkamp og Wiltford
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
Leikir helgarinnar
Chelsea-Man. Utd föstud. 19.00
Man. City-Newcastle laugard. 14.00
Birmingham-Blackburn laugard. 14.00
Bolton-Charlton laugard. 14.00
Liverpool-Southampton laugard. 14.00
Middlesbro-Fulham laugard. 14.00
Sunderland-Everton laugard. 14.00
Tottenham-Aston Villa laugard. 14.00
West Ham-Arsenal laugard. 14.00
WBA-Leeds laugard. 14.00
FÓTBOLTI Forsvarsmenn Real Ma-
drid sögðu á heimasíðu liðsins í
gær að Ronaldo myndi ekki ganga
til liðs við liðið fyrir komandi leik-
tímabil. Massimo Moratti, forseti
Inter, átti í fyrradag fund með
Florentino Perez, forseta Real Ma-
drid, á snekkju þess síðarnefnda í
Miðjarðarhafinu. Ræddu mennirn-
ir saman um hugsanleg kaup á hin-
um 25 ára gamla brasilíska lands-
liðsmanni, en nú virðist sem ekk-
ert verði úr þeim.
Ronaldo hefur sett mikla pressu
á Inter enda vill hann ólmur kom-
ast til Spánar. Reinaldo Pitta, um-
boðsmaður brasilíska framherj-
ans, sagði í vikunni að leikmaður-
inn hefði þegar komist að sam-
komulagi við spænska stórveldið.
Hann myndi ekki leika aftur fyrir
Inter Milan jafnvel þótt forráða-
menn liðsins leyfðu honum ekki að
ganga til liðs við Real Madrid.
Moratti sagði í byrjun vikunnar
að Ronaldo yrði hjá liðinu að
minnsta kosti eitt tímabil í viðbót,
þrátt fyrir að hann hefði lýst því
yfir að hann vildi fara til Real Ma-
drid.
„Ef Moratti neyðir hann til að
vera áfram í Mílanó þá verður
hann þar, en eitt er víst og það að
er hann mun ekki leika aftur fyrir
liðið,“ sagði Pitta í viðtali við
spænska blaðið Marca. „Við viljum
fara til Madrídar og höfum þegar
náð samkomulagi við Real. Við
gætum verið búnir að undirrita
samning eftir nokkrar mínútur ef
þessi hnútur myndi leysast.“
Moratti setti upphaflega 8 millj-
arða króna verðmiða á Ronaldo en
síðustu daga héldu fjölmiðlar því
fram að líklegt kaupverð yrði á bil-
inu 4 til 5 milljarðar. Real Madrid
vildi skipta á Ronaldo og Fernando
Morientes og Flavio Conceicao, en
Inter hafnaði því boði. Talið er að
Inter hafi viljað fá argentínska
leikmanninn Santiago Solari og
einhverja peninga í skiptum fyrir
Ronaldo, en Real var ekki tilbúið
til þess.
Ef Ronaldo hefði gengið til liðs
við Real Madrid hefði hann orðið
þriðja stórstjarnan, sem hefði
komið til liðsins frá því Perez tók
við völdum. Árið 2000 keypti hann
Luis Figo frá Barcelona og í fyrra
keypti hann Zinedine Zidane frá
Juventus.
trausti@frettabladid.is
ÓSÁTTUR Á ÍTALÍU
Ronaldo vill fara frá Mílanó ólíkt félaga sínum í brasilíska landsliðinu Rivaldo, sem nýlega gekk til liðs við AC Milan. Hector Cuper, þjálfari
Inter, verður því að öllum líkindum að horfa á eftir sínum besta leikmanni.
Alger óvissa ríkir
um framtíð Ronaldo
Knattspyrnustórveldin Inter Milan og Real Madrid hafa bitist um einn besta framherja heims.
Forsetar félaganna ræddu saman á snekkju í Miðjarðarhafinu í fyrradag. Forsvarsmenn spænska
liðsins sögðu í gær að ekkert yrði úr kaupunum.
FÓTBOLTI Tottenham, sem hefur
leitað logandi ljósi að nýjum
framherja, hefur boðist að fá
argentínska landsliðsmanninn
Hernan Jorge Crespo að láni frá
Lazio. Ítalska liðið á í miklum
fjárhagserfiðleikum og hefur
ekki efni á að halda leikmannin-
um, sem er á svimandi háum laun-
um. Lazio hefur ekki enn greitt
Man. Utd. 12 milljónir punda fyr-
ir Jaap Stam.
Ef Crespo, sem keyptur var til
Lazio fyrir 35 milljónir punda frá
Parma, nær samkomulagi við
Tottenham, mun enska liðið
greiða honum laun og eiga mögu-
leika á að kaupa hann þegar láns-
tímabilinu lýkur.
Glenn Hoddle, framkvæmda-
stjóra Tottenham, hefur þegar
mistekist að kaupa Kevin Philips
frá Sunderland og Robbie Kean
frá Leeds.
HERNAN JORGE CRESPO
Argentínski landsliðsmaðurinn hefur tvis-
var orðið markahæstur á Ítalíu. Síðast árið
2000 þegar Lazio varð ítalskur meistari.
Leikmannamál:
Crespo til Tottenham?