Fréttablaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 9
9LAUGARDAGUR 24. ágúst 2002
NOREGUR Yfir helmingur þeirra
sem leggur samnemendur sína í
gagnfræðaskóla í einelti fær að
minnsta kosti einn fangelsisdóm
áður en 24 ára aldri er náð. Þetta
kemur fram í nýrri norskri
rannsókn sem greint er frá í Af-
tenposten.
Helsti sérfræðingur Norð-
manna í einelti bendir á að þó
séu það margir úr hópnum sem
spjari sig vel. Í rannsókninni
kemur fram að sjálfsmynd þeir-
ra sem leggja í einelti sé mjög
sterk. Þeir sem lagðir eru í ein-
elti þjást hins vegar af veikri
sjálfsmynd og eru oftar í sjálfs-
morðshugleiðingum en venju-
legir unglingar. 15% unglinga í
Osló eru lagðir í einelti að því er
fram hefur komið í norskum
rannsóknum.
Villingar í skóla:
Helmingur á glapstigum
ISLAMABAD, AP. Pakistanar sökuðu
Indverja um það í gær að hafa
ráðist á herstöð Pakistana í
Kasmír. Meint árás átti sér stað
rétt áður en erindreki Bandaríkja-
stjórnar kom til landsins til að
miðla málum á milli ríkjanna.
Pakistanar sögðu að fjölmargir
Indverjar hefðu fallið í árásinni
en engir Pakistanar. Indverskir
embættismenn segja fréttina upp-
spuna frá rótum.
Í yfirlýsingu pakistanska hers-
ins kom fram að árásin hefði átt
sér stað aðfaranótt föstudags.
Indverska varnarmálaráðu-
neytið þvertók hins vegar fyrir
það að flugvélar indverska hers-
ins hefðu komið nálægt Kasmír.
„Fullyrðingar Pakistana eru al-
gerlega ósannar,“ sagði Nirupama
Rao, talsmaður utanríkisráðu-
neytisins. Richard Armitage, að-
stoðarutanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, kom til Indlands í gær.
Hann mun reyna að draga úr
spennu á milli ríkjanna, sem deila
um Kasmír. Armitage fer til
Pakistan í dag.
SATT EÐA
LOGIÐ?
Talsmaður pakist-
anska hersins sýnir
hvar meint árás átti
sér stað. Fullyrðing-
ar Pakistana eru
ekki sannar segja
indverskir ráða-
menn.
Stjórn Pakistan:
Saka Indland um
árás á Kasmír
PARÍS, AP Franskt par reyndi að
myrða börnin sín fimm og stytta
sér aldur vegna slæmrar fjár-
hagsstöðu. Yngsta barnið, eins
árs, er enn í gjörgæslu, en eldri
börnunum var leyft að fara heim í
gær. Að sögn lögreglunnar gáfu
foreldrarnir þeim insúlín síðast-
liðinn mánudag. Föðurnum sner-
ist hugur eftir að hann var búinn
að sprauta sig og kallaði á lögregl-
una. Hann og kona hans eru í
fangelsi núna, en ættingjarnir líta
eftir börnunum.
Franskir foreldrar:
Reyndu
að myrða
börnin sín
EFTIR NÁTTÚRUHAMFARIR
Íbúar í þorpinu Thapru í Nepal virða fyrir sér ummerki aurskriðu sem féll á bæinn. Skriðan
lagði þorpið í rúst. 41 er saknað og einungis 13 lík eru fundin. Hamfarirnar eru þær verstu
hafa gerst á monsún tímabilinu sem nú gengur yfir Suður-Asíu.