Fréttablaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 22
Það stefnir í slag um fyrstasætið Samfylkingarinnar í
Suðurkjördæminu. Bæði Margrét
Frímannsdóttir og
Lúðvík Bergvins-
son hafa lýst yfir
að þau sækist eft-
ir sætinu. Líklegt
er að mikil harka
hlaupi í átökin því
Margrét hefur
sagt að fái hún
ekki fyrsta sætið
muni hún íhuga stöðu sína, en
það túlka stuðningsmenn Lúðvíks
sem hótun. Þeir leggja allt kapp á
opið prófkjör, og líklegt er að
harkalega verði tekist á um það
milli stuðningsmanna Margrétar
og Lúðvíks á fundi í kjördæma-
ráði flokksins í næsta mánuði.
Talið er líklegt að bæði Björgvin
G. Sigurðsson og Jón Gunnarsson
af Suðurnesjum muni sækja fast
í annað sætið þannig að nái Lúð-
vík ekki fyrsta sætinu af Mar-
gréti gæti hann átt á hættu að
rúlla niður listann.
22 24. ágúst 2002 LAUGARDAGUR
RISTAÐ brauð og kaffi áSúfistanum í Máli og menn-
ingu á Laugavegi er fyrirtaks-
byrjun á laugardegi. Sofa út og
kíkja þangað undir hádegi. Ná
sér í nokkur góð tímarit og skoða
hausttískuna.
LABBA síðanLaugaveginn og
líta inn í nokkrar
búðir. Það svíkur
engan að skoða
skó í Kron og 38
þrep. Fallegir
skór eru hreinasta
list og fjárfesting í
skópari dásamleg
skemmtan.
SKOÐA „holuna“ hans Jóns Sæ-mundar Auðarsonar sem opn-
ar sýningu í Gallerí Hlemmi
klukkan fjögur.
FARA heim í eigin holu ogtaka því rólega. Vakna snem-
ma og fara í göngutúr um mið-
bæ Reykjavíkur, ekkert jafnast
á við sunnudagsmorgna í borg-
inni, enginn á ferli og upplagður
tími til að skoða húsin. Enda í
Sundhöll Reykjavíkur, falleg-
ustu sundlaug borgarinnar,
teiknuð af Guðjóni Samúelssyni
eins og margar byggingar borg-
arinnar.
Það er hægt að koma boðskapn-um áleiðis án þess að vera að
skammast. Það skilar betri ár-
angri. Í starfi mínu hef ég lært að
tala vitrænt við börn, þau eru
ekki vitlaus. Þau skynja þegar
talað er niður til þeirra og taka
þá ekkert mark á mér. Maður er
alltaf að læra og það gerir starf-
ið skemmtilegt,“ segir Viðar
Norðfjörð Sigurðsson, gang-
brautarvörður við Langholts-
skóla og skólaliði.
Viðar hefur sinnt starfi sínu á
sjöunda ár. „Ég verð að viður-
kenna að fyrstu mánuðina í starfi
voru samskiptin ansi stormasöm.
Ég taldi mér trú um að þetta væri
börnunum að kenna. Síðan fór ég
að skoða þetta betur og kanna
hvort vandamálið lægi ekki hjá
sjálfum mér, hvort einhverju
þyrfti ekki að breyta. Ég komst
að því að þvergyrðingsháttur og
stífni var ekki að koma mér
áleiðis. Um leið og ég tók á þeim
þáttum varð gjörbylting. Óvætt-
urinn á horninu breyttist,“ segir
Viðar og hlær.
Viðar segir ökumenn því mið-
ur ekki gæta nógu vel að sér í ná-
grenni skólans. Reyndar séu þeir
sem búi í hverfinu mun skárri en
þeir sem sjaldan leggi leið sína
um hverfið. „Ég veit aldrei hver
er bak við stýrið. Það gæti alveg
eins verið Bakkus. Í sjálfu sér
getur maður engum treyst og
öllu verður að taka með fyrir-
vara. Þetta eru í raun fjögur horn
sem ég þarf að hafa yfirsýn yfir
á sama tíma. Ég þarf að hafa í
hendi mér hvert straumurinn
liggur, það er ekki nóg að ein-
blína á gangbrautina. Það verður
að taka starfið alvarlega.“
Ásamt því að sinna starfi
gangbrautavarðar starfar Viðar
sem skólaliði. „Ég er ekki að gera
lítið úr öðru sem ég starfa við í
Langholtsskóla þegar ég segi að
starf gangbrautavarðar sé ljós-
asti punkturinn. Það gefur mér
tækifæri til að móta samskipti
mín við börnin. Að mínu mati er
ákaflega mikilsvert að sami aðil-
inn sinni starfinu og ekki síst að
sá aðili sé þroskaður. Börn eru
vanaföst og vilja ganga að sínu
vísu.“
Viðar er að verða 58 ára gam-
all. „Meðan ég tel mér trú um að
ég verði aldrei fullnuma í starfi
er ég í góðum málum. Um leið og
ég finn að ég sé búinn að nema
þetta allt og geti ekki lært meira
hætti ég,“ segir þessi viðkunna-
legi maður að lokum.
kolbrun@frettabladid.is
SAGA DAGSINS
24. ÁGÚST
FÓLK Í FRÉTTUM
PERSÓNAN
Ég skorast ekkert undan því aðvera afmælisbarn dagsins,“
segir Ólafur Haukur Símonarson,
rithöfundur, þegar blaðamaður
slær á þráðinn til hans. „Helst
langar mig vestur á Snæfellsnes í
Staðarsveitina þar sem ég hef að-
gang að eyðibýli. Ég tæki kunn-
ingjana með, konan er á nám-
stefnu eins og hálf þjóðin þessa
dagana, og ég myndi huga að net-
um og renna fyrir fiski,“ segir
hann. „Annars má ég víst ekki
hafa netin úti um helgar,“ segir
hann hlæjandi og kemst að sam-
komulagi við blaðamann um að
setja þetta með netin í ósýnilegt
letur. „Við tökum bara með okkur
nestisboxið upp á gamla mátann
og erum ekkert að standa í því að
grilla eða svoleiðis. Sjóðum
kannski silung ef hann bítur á.“
Ólafur Haukur hefur verið
heima við í sumar og skrifað. „Ég
skrifaði leikrit sem verður frum-
sýnt í Þjóðleikhúsinu um miðjan
september. Hádramatískt verk
um þekktar sögulegar persónur,
sænsku skáldkonuna Victoriu
Benediktson og ástmann hennar
George Brandes. Ég hef verið
mjög áhugasamur um þetta mál í
fjörutíu ár. Þá er ég að skrifa fyr-
ir sjónvarpsstöð og eins fyrir er-
lenda aðila.“ En hentar dramatík-
in rithöfundinum betur en
kómedían? „Þetta fer náttúrlega
ágætlega saman í blöndu, það er
stuttur þráðurinn á milli þessara
þátta, mannkindin brosir meðan
hún engist.“ Í september ætlar
Ólafur Haukur á leiklistarhátíð í
Dublin. „Nei, þar er ekki verið að
sýna neitt eftir mig,“ segir hann.
„Ég fer bara til að skoða það sem
er að gerast, sýna mig og sjá
aðra.“
Ólafur Haukur Símonarson er 54 ára í dag,
að því er hann minnir. Helst langar hann að
eyða deginum á Snæfellsnesi.
Afmæli
Mannkindin brosir meðan hún engist
Símskeytasamband við útlöndvar opnað árið 1906. Sæsím-
inn frá Skotlandi um Hjaltland
og Færeyjar til Seyðisfjarðar
var 534 sjómílur.
Norræna húsið í Reykjavíkvar vígt árið 1968. Það var
byggt eftir teikningum Alvars
Aalto. Fyrsti forstöðumaður
hússins var Norðmaðurinn Ivar
Eskeland.
Uppþot hófst í fangelsinu áLitla Hrauni árið 1993 og
stóð í tæpan sólarhring. Um
fjörutíu fangar voru að mót-
mæla hertum öryggisráðstöfun-
um í kjölfar tíðra stroka.
Mikael Gorbatsjov sagði afsér sem forseti Sovétríkj-
anna árið 1991.
TÍMAMÓTMENNINGARSKOKK
VIÐAR NORÐFJÖRÐ SIGURÐSSON
„Í starfi gangbrautavarðar er nauðsynlegt að muna eftir barninu í sjálfum sér, annars
verða samskiptin erfið.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að
fjallalömb eru ekki liðin í hálendi
höfuðborgarinnar.
Leiðrétting
HRESSIR STRÁKAR Það er alltaf sérstök stemning að koma aftur í skólann á haustin og það var greinilega ekki leiðinlegt hjá þessum
strákum sem spiluðu fótbolta við Hlíðaskóla í vikunni.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT
Maður kom inn á bar og pant-aði sér 12 staup af brenni-
víni og byrjaði um leið að hvolfa
þeim í sig.
„Hvers vegna í ósköpunum
drekkurðu svona hratt?“ spurði
barþjónninn.
„Þú myndir líka drekka svona
hratt ef þú ættir það sem ég á,“
svaraði maðurinn.
„Hvað áttu?“ spurði þá bar-
þjónninn.
„Hundraðkall.“
JARÐAFARIR
10.30 Ágúst S. Guðmundsson, bygging-
armeistari, Ísafirði, verður jarð-
sunginn frá Ísafjarðarkirkju.
11.00 Jóhannes Magnússon, Ægissíðu,
Vatnsnesi, verður jarðsunginn frá
Breiðabólsstaðarkirkju.
13.30 Fanney Júdit Jónasdóttir frá Sléttu
í Sléttuhreppi, verður jarðsungin
frá Ísafjarðarkirkju.
13.30 Helga Björnsdóttir, ljósmóðir,
Brunnavöllum, Suðursveit, verður
jarðsungin frá Kálfafellstaðar-
kirkju.
14.00 Ási Markús Þórðarson, Garðabæ,
Eyrarbakka,verður jarðsunginn frá
Eyrarbakkakirkju.
14.00 Karl Haukur Kjartansson, Miðholti
5, Þórshöfn, verður jarðsunginn
frá Þórshafnarkirkju.
14.00 Marta Sigurðardóttir, Fossöldu 3,
Hellu, verður jarðsungin frá Odda-
kirkju.
14.00 Sigurjón Geirsson Sigurjónsson,
Bakkagerði 1, Stöðvarfirði, verður
jarðsunginn frá Stöðvarfjarðar-
kirkju.
14.00 Unnur Helga Bjarnadóttir, Borgar-
vík 12, Borgarnesi, verður jarð-
sungin frá Borgarneskirkju.
AFMÆLI
Halldór Blöndal, forseti alþingis, er 64
ára.
Ólafur Haukur Símonarson, rithöfundur
er 55 ára.
Leikkonan, Elva Ósk Ólafsdóttir, er 38
ára.
ANDLÁT
Aðalbjörg Stefánsdóttir, áður til heimilis
Kirkjuvegi 10, Keflavík, lést 21. ágúst.
Ásgeir Höskuldsson, fyrrverandi póst-
varðstjóri frá Tungu, lést 21. ágúst.
Sigríður G. Jónsdóttir, Rauðagerði 39,
Reykjavík, lést 20. ágúst
Bryndís Brynjólfsdóttir Áskelsson, lést í
Torontó í Kanada 19. ágúst.
Guðrún Sigurðardóttir, Sólvöllum 4a,
Stokkseyri, lést 19. ágúst
Ég veit aldrei hver
er bak við stýrið
Viðar Norðfjörð Sigurðsson sinnir starfi gangbrautavarðar
við Langholtsskóla. Hann segir starfið gefandi og að hans
mati verði að taka það alvarlega.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
ÓLAFUR HAUKUR SÍMONARSON
Ólafur Haukur hefur setið við skriftir
í allt sumar en ætlar að bregða sér til
Dyflinnar í september.