Fréttablaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 24.08.2002, Blaðsíða 16
Alamanak fyrirÍsland 2003 er komið út. Þor- steinn Sæmundsson, Ph. D. á Raunvísindastofnun Háskólans hefur reiknað almanakið og búið það til prentunar. Þetta er 167. árgangur almanaksins og er út- gefandinn Háskóli Íslands. Heimsendapestir nefnist ljóða-bók eftir Eirík Örn Norðdahl sem nýlega kom út. Bókin er 61 blaðsíða. Framleiðsluhúsið Nýhil gefur bókina út. 16 24. ágúst 2002 LAUGARDAGURHVAÐA BÓK ERT ÞÚ AÐ LESA? BÆKUR GANGA 10.00 Orkuveita Reykjavíkur efnir til göngu- og fræðsluferðar í Elliða- árdal í dag, undir leiðsögn Guð- mundar Halldórssonar skordýra- fræðings og Odds Sigurðssonar jarðfræðings. Hugað verður að skordýrum í dalnum í mismun- andi gróðurlendi. Gangan hefst við Minjasafn Orkuveitu Reykja- víkur. Þátttaka er ókeypis og öll- um heimil. Þátttakendur eru hvattir til að hafa með sér stækk- unargler. Gert er ráð fyrir að göngunni ljúki um kl. 12.30. 11.00 Jóhann Pálsson, fyrrverandi garð- yrkjustjóri Reykjavíkur fer í skoð- unarferð um Grasagarð Reykja- víkur. Mæting er í lystihúsinu sem stendur við garðskálann klukkan. Þátttaka er ókeypis og boðið er upp á te í lok ferðarinn- ar. FRÆÐSLUDAGSKRÁ 13.00 Foreldrafélag sykursjúkra barna og unglinga heldur upp á 10 ára afmæli sitt í dag við Reykjadal í Mosfellssveit. Sérstök fræðslu- dagskrá verður haldin. Þar munu þrír sérfræðingar í sykursýki fjalla um ýmsa þætti tengda sykursýki barna Öllum velunnurum félags- ins er velkomið að taka þátt í fræðsludeginum. OPIÐ HÚS 13.00 Kvikmyndaskóli Íslands býður gestum og gangandi að kynnast starfsemi skólans í dag. Skólinn er nýlega fluttur í gamla sjón- varpshúsið að Laugavegi 176 . Gestir ávarpa samkomuna, sýnis- horn úr myndum nemenda síð- ustu 10 árin verða sýnd og ný námskrá skólans kynnt. Húsið verður fært í hátíðarbúning og gestum verða boðnar kaffiveiting- ar. Dagskráin stendur til kl. 16. LEIKHÚS 20.00 Dansleikhúsið Ekka sýnir verkið Eva3 í kvöld í Tjarnarbíói. Í verk- inu er leikverk Guðmundar Steinssonar, Garðveislan, sett upp og túlkuð á nýjan máta. Miðapantanir eru í síma 896 0796. 20.30 Light Nights sýnir í Hlaðvarpan- um. Leikin eru atriði úr þekktum þjóðsögum. Má þar nefna Djákn- ann á Myrká, Sæmund fróða og Móður mína í kví kví. Leikið er á ensku. TÓNLEIKAR 16.00 Tríó bandaríska gítarleikarans Paul Weeden leikur á sumartón- leikaröð Jómfrúarinnar við Lækj- argötu í dag. Á tónleikunum leika með Paul Weeden þeir Sigurður Flosason saxófónleikari og Tómas R. Einarsson kontrabassa- leikari. Leikið verður utandyra á Jómfrúrtorginu ef veður leyfir, en annars inni á Jómfrúnni. Aðgang- ur er ókeypis. 23.59 ,,Keflvíska innrásin“ er yfirskrift tónleika sem haldnir verða í kvöld á Grand rokk. Þær hljóm- sveitir sem koma fram eru: Rúnar Júlíusson, Fálkar frá Keflavík, Gálan, KlassArt og Silf- urfálkinn. Aðgangseyrir er 500 LAUGARDAGURINN 24. ÁGÚST MYNDLIST „Þetta er alveg eins og þegar ég fór í magaspeglun. Það er samt rosalega margt búið að gerast síðan. Þetta er holan mín. Hún er í laginu eins og mér leið þá. Ég hef ekki hugmynd um hvernig allt þetta dót komst hing- að. En það skiptir heldur ekki máli úr þessu. Það er heldur ekki hægt að liggja á leyndarmálunum sínum endalaust,“ segir Jón Sæ- mundur Auðarson, listamaður, sem í dag klukkan fjögur opnar sýningu í Gallerí Hlemmi sem ber yfirskriftina „holan mín“. Gestir sýningarinnar fylgjast með á myndbandi hvernig Jón Sæmundur tekur veraldlega hluti sína og brýtur þá mélinu smærra. Afraksturinn sjá þeir síðan með berum augum í galleríinu. „Ég var að gera upp fortíðina. Inn- setningin er afsteypa af tilfinn- ingum mínum. Segja má að ég sé búinn að snúa plötunni við. Platan tók fimmtán ár í spilun. Sýningin nú eru endalok og um leið upphaf að hinni hliðinni.“ Jón Sæmundur segir að ekki sé um neitt heimilisofbeldi að ræða og gjörninginn í raun ekki koma neinu ofbeldi við. „Það meiddist enginn. Þetta var bara ákveðinn tjáningarmáti, visst rokk.“ Í innsetningunni sést glitta í alls kyns persónulega hluti. Ljós- myndir af gömlum kærustum, gamlar bækur, málverk, mynd- bönd, hauslausa tuskukanínu og gömul verk eftir Jón Sæmund sjálfan. „Um leið og sýningin end- urspeglar mínar tilfinningar get- um við í leiðinni kallað hana yfir- litssýningu á gömlum verkum,“ segir hann kíminn. Aðspurður hvort fólk fengi sýn á hann sjálf- an með því að rýna í rústirnar segir Jón Sæmundur það vissu- lega geta gerst. „Um leið getur það séð glitta í sjálfan sig ef það horfir nógu lengi.“ „Það er engin tilgerð í gangi og enginn leikur. Ég var ekki búin að plana hvernig hlutirnir kæmu út. Verkið er einn helmingur af mér, ein sneiðmynd. Ég er einfaldlega að snúa plötunni við. Vonandi hef- ur hin hliðin að geyma enn betri lög.“ kolbrun@frettabladid.is Plötunni snúið við eftir fimmtán ára spilun Jón Sæmundur Auðarson opnar í dag sýningu á Gallerí Hlemmi. Sýningin er gjörningur á myndbandi auk innsetningar. Yfirskriftin er „holan mín“. JÓN SÆMUNDUR AUÐARSON Jón Sæmundur hefur áður verið stórtækur. Skemmst er að minnast fossins sem hann varpaði á gamla Morgunblaðshúsið. Einar Þór Haraldsson Enga. Ég les eiginlega bara Andrésblöð. Gallerí Skuggi: Trufluð tilvera MYNDLIST Leikföng í sínu raunveru- lega umhverfi er viðfangsefni Berglindar Björnsdóttur, ljós- myndara. Í dag opnar hún sýningu á verkum sínum í aðalsal Gallerí Skugga á Hverfisgötu. Sýningin nefnist Trufluð tilvera. Í augum barnsins hafa leikföngin sál og eru lifandi á meðan þau eru ný eða spennandi. En þau eru líka fljót að deyja þegar nýjabrumið fer af þeim, og önnur ný og meira spennandi leikföng taka við. Í verkum sínum veltir Berglind því fyrir sér hvað sé raunverulegt í tilveru okkar og hvort endilega sé allt sem sýnist. Sýning Berglindar opnar klukkan 17 og í dag stendur til 8. september. Opnunartími Gallerí Skugga er kl. 13-17 alla daga nema mánudaga. Ókeypis aðgangur.  PÉTUR PAN Berglind setur leikföng í raunverulegt um- hverfi og veltir um leið fyrir sér hvað sé raunverulegt. krónur, léttar veitingar í boði. SKEMMTANIR 23.00 Hreðavatnsskáli er næsti áfanga- staður Sálarinnar. Þar hafa verið haldnar skemmtanir af ýmsu tagi í áranna rás, en nú er útlit fyrir að breyting verði á. Núverandi staðarhaldarar hyggjast breyta um áherslur og verða tónleikar Sálarinnar þeir hinstu í þessum fornfrægu híbýlum um óákveð- inn tíma. 23.00 Hljómsveitin Land og Synir verð- ur á Akureyri í kvöld. Undanfarn- ar vikur hafa staðið yfir miklar breytingar á Sjallanum Akureyri og ætla hljómsveitin að ríða á vaðið í nýjum og breyttum Sjalla. 23.00 Hljómsveitin Í svörtum fötum leikur í kvöld á Inghóli, Selfossi. 23.00 Á Players í Kópavogi leikur hljómsveitin Sixties í kvöld. 23.00 Hljómsveitin Saga Klass leikur í kvöld á Kaffi Reykjavík. Þessa landsfrægu hljómsveit þekkja allir, ekki síst söngkonuna Sig- rúnu Evu Ármannsdóttur. Hljóm- sveitin hefur skemmt lands- mönnum um árabil með frá- bærri danstónlist. SKOÐUNARFERÐ Jóhann Pálsson, fyrr- verandi garðyrkjustjóri Reykja- víkur ætlar í dag að leiða fólk í all- an sannleikann um einstakar rósa- tegundir og yrki þeirra. Þetta ger- ir hann í skoðunarferð um Grasa- garð Reykjavík. Jóhann mun fræða fólk um eiginleika ein- stakra rósategunda og ræktun þeirra. Jóhann þekkir vel til Grasa- garðsins og hefur lengi tekið virk- an þátt í að koma upp fjölbreyttu rósasafni í garðinum. Mæting er í lystihúsinu sem stendur við garðskálann klukkan 11. Aðgangur er ókeypis og boðið er upp á te í lok ferðarinnar.  EFTIRLÆTISRÓSIR Grasagarður Reykjavíkur hefur í sumar boðið upp á nokkrar skoðunar- og fræðsluferðir um garðinn. TÓNLEIKAR Það er ekki oft sem verk eftir Béla Bartók heyrast á org- eltónleikum því hann skrifaði engin orgelverk. Í dag verður úr því bætt þegar hinn heimsþekkti orgelleikari Christopher Herrick leikur í Hallgrímskirkju sex rúm- enska dansa sem hann hefur um- skrifað. Önnur lög á efnisskrá Herricks eru nokkuð ólík að uppruna og upplagi. Fyrst gefur að heyra Si- yahamba, sem er fyrsta verkið í Three Global Songs eftir John Behnke. Þá leikur Herrick Matin Provençal eftir franska tónskáld- ið Joseph Bonnet. Eitt þekktasta og virtasta tónskáld Walesbúa, William Mathias, skrifaði In- vocations. Það er af mörgum talið aðgengilegast fjölda orgelverka sem hann skrifaði á sjöunda ára- tug síðustu aldar. Christopher Herrick hélt yfir tvö hundruð tónleika sem org- anisti við Westminster Abbey auk skyldustarfa sinna við kirkjuna. Frá 1984 hefur Christopher Herrick starfað sem konsertorg- elleikari og hefur leikið á tónleik- um og í útsendingum fyrir út- varpsstöðvar og sjónvarp, í tón- leikasölum og kirkjum víðs vegar um Evrópu, Norður-Ameríku og í Eyjaálfu.  Heimsþekktur orgelleikari í Hallgrímskirkju: Umskrifuð lög eftir Béla Bartók 1 METSÖLULISTI 2 3 4 5 6 7 8 9 10 TÍU VINSÆLUSTU BARNA- BÆKURNAR HJÁ EYMUNDS- SON/PENNANUM Árni Árnas. og Halldór Bjarnarss. GEITUNGURINN Þórarinn Eldjárn íslenskaði MOLDVARPAN SEM VILDI . . . Árni Árnas. og Halldór Baldurss. GEITUNGURINN 2 Vilbergur Júlíusson íslenskaði SNÚÐUR OG SNÆLDA Bergljót Arnalds STAFAKARLARNIR Vaka Helgafell BUBBI BYGGIR, SELMA . . . Setberg ÉG ÆTLA AÐ LÆRA NÝ ORÐ J.K. Rowling HARRY POTTER OG LEYNI . . Árni Árnas. og Halldór Baldurss. GEITUNGURINN 4 Árni Árnas. og Halldór Baldurss. GEITUNGURINN 3 Grasagarður Reykjavíkur: Eftirlætisrósir Jóhanns Pálssonar HALLGRÍMSKIRKJA Tónleikarnir í dag hefjast klukkan 12. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Barnabækur: Listi sem ber keim af hausti BÆKUR Á lista Pennans yfir vinsæl- ustu barnabækurnar eru í fjórum sætum af tíu bækurnar Geitung- urinn 1, 2, 3, og 4 eftir Árna Árna- son og Halldór Bjarnarson. Ingi- gerður Bjarnadóttir sem hefur umsjón með barnabókadeild Pennans Eymundsson segir list- ann nú bera keim af hausti. „Geit- ungurinn er í fjórum heftum sem innihalda námsefni,“ segir hún. „Leiðbeiningar fyrir foreldra eru í bókunum, en ætlast er til að for- eldrar séu með börnum sínum við lesturinn. Með aðstoð bókanna og foreldranna læra krakkarnir staf- ina, svo og að lita, líma og klippa.“ Geitungurinn 1 og 2 hafa verið notaðar í leikskólum, en 3 og 4 eru fyrir börn sem eru farin að tengja stafina og sjá mun á stórum og litlum staf. Í þeim bókum eru líka brandarar.“ 

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.