Fréttablaðið - 24.08.2002, Side 24
Tvo bræður þekki ég, annar er níuhinn sjö. Þeir voru saman í sum-
arbúðum. Sá eldri vann til verðlauna
- hafði staðið sig vel og fékk medalí-
ur fyrir. Hinn fékk fjögur refsistig
af fimm mögulegum. Hefði hann
brotið af sér í eitt sinn til viðbótar þá
hefði vistinni lokið og hann sendur
heim með skömm. Vissulega gerðist
hann ekki afbrotamaður - braut ekki
lög - hann fór ekki að settum reglum
- reglum sem þeir fullorðnu settu.
BÖRN EIGA STUNDUM erfitt
með að lifa í einu og öllu eftir skiln-
ingi þeirra eldri á réttu og röngu.
Sjálfur varð ég að sæta því að vera
sendur til skólastjóra nokkuð oft á
mínum skólaárum. Ég man líka hver-
su erfitt var að sitja inni í skólastofu
og geta ekki verið úti í fótbolta þeg-
ar veður leyfði. Nú reynir á börn
landsins. Skólarnir komnir í gang og
þar með glás af nýjum reglum sem
verður að fara eftir. Sumar eru ekki
merkilegar.
KENNARI SONAR MÍNS sagði
einu sinni við mig að hún vissi bara
ekki hvað gengi að drengnum. Ein-
kennilegt orðalag miðað við það sem
á eftir kom. Vandinn var sá að strák-
skömmin hljóp eftir skólagöngunum.
Ég sá strax fyrir mér átta ára strák
horfa inn eftir stífbónuðum skóla-
ganginum. Það er alltof freistandi til
að láta ekki eftir sér að hlaupa eins
hratt og hugsast getur og láta sig svo
renna með ógnarhraða. Kennslukon-
an hafði annan smekk en ég - og son-
ur minn. Það mátti sem sagt ekki
hlaupa eftir göngum - bara ganga.
Það var ástæða til umkvörtunar.
ÉG VAR EINU SINNI sendur í
sumarbúðir. Þar voru skýrar reglur.
Ein var sú að það mátti ekki kúka úti
- við urðu að koma inn og kúka þar.
Svo kom að því að dugnaðurinn var
að drepa mig í einhverjum leiknum.
Mér var mál - kúkaði bak við klett og
skeindi mig með mosa. Kúkurinn
fannst og yfirheyrslur hófust. Hóp-
urinn stóð í beinni röð og fyrir fram-
an okkur var kúkur á spjaldi. Sá seki
skyldi finnast. Ég sá fyrir mér langa
refsingu - dag innanhúss - ef upp um
mig kæmist. Til að reyna að draga
athyglina frá mér - rauf ég þögnina
og sagðist vita að stelpa hefði kúkaði
kúknum. Ég sagðist sjá að þetta væri
stelpukúkur. Þar með taldist sannað
að ég væri sá seki. Ég sat inni í heil-
an dag þar sem ég hafði ekki farið
eftir reglum þeirra fullorðnu - sem
kúkuðu ekki úti.
Ný og glæsileg
Íþróttamiðstöð
að Haukahrauni 1, Hafnarfirði
Fimleikafélagið Björk
www.fbjork.is– OPIÐ HÚS –
sunnudaginn 25. ágúst
frá kl. 14-16
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Reglur þeirra
fullorðnu
Bakþankar
Sigurjóns M. Egilssonar