Fréttablaðið - 11.09.2002, Blaðsíða 8
Þremur árum eftir að múrinnféll og þjóðir Austur-Evrópu
losnuðu undan oki Sovétsins var
varla til ríkisbanki austan járn-
tjalds. Það tók þessar þjóðir ekki
lengri tíma en svo að einkavæða
bankakerfið.
Íslendingar lifðu lengst af síð-
ustu öld við sovétkerfi. Flokkur-
inn var reyndar ekki einn heldur
fjórir. Þrír þeirra, Sjálfstæðis-
flokkur, Framsóknarflokkur og
Alþýðuflokkur, voru hinn eiginlegi
Flokkur og skiptu með sér ríkis-
kerfinu og markaðnum. Þegar
Rússum, og þeim þjóðum sem þeir
kúguðu, dugði einn bankastjóri
þurftu Íslendingar af þessum sök-
um að bera þrjá ríkisbankastjóra;
einn frá hverjum flokki. Og Flokk-
urinn hafði líka undirtök í fyrir-
tækjum sem litu út fyrir að vera
einkafyrirtæki. Þannig var Olís
Alþýðuflokkur, Shell Sjálfstæðis-
menn og Esso Framsókn. Sjálf-
stæðisflokkurinn var Ríó og
Framsókn Braga-kaffi. Kratar
áttu ekki kaffi en þeir áttu Alþýðu-
brauðgerðina, Alþýðuprentsmiðj-
una og Alþýðuhitt og Alþýðuþetta.
Sjálfstæðismenn borðuðu SS-pyls-
ur en Framsóknarmenn Goða. Hin
dauða hönd Flokksins lá yfir öllu.
Umbúðir undir íslenskan mat og
aðrar neytendavörur frá síðustu
öld eru óþekkjanlegar frá sams-
konar umbúðum frá Sovétríkjun-
um og leppríkjum þeirra. Þær
segja okkur að framleiðendurnir
höfðu sérstakt leyfi stjórnvalda til
að troða vöru sinni upp á neytend-
ur og voru varðir fyrir minnstu
samkeppni. Vara og þjónusta voru
ígildi léna sem Flokkurinn úthlut-
aði.
Múrinn á Íslandi féll ekki á
einni nóttu. Það komu brestir í
hann seint á áttunda áratugnum
og síðan hefur hann verið að
molna. En múrinn stendur enn.
Múrinn sem hélt þjóðum Austur-
Evrópu innan Sovétsins er hins
vegar kominn á söfn.
Íslenski Flokkurinn getur ekki
selt ríkisbanka eins og kommún-
istaflokkar Austur Evrópu af því
hann er ekki einn. Þess vegna sel-
ur hann fyrst einum armi trygg-
ingarhluta banka og síðan öðrum
armi restina. 13 árum eftir að
járntjaldið féll í Austur-Evrópu og
kvartöld eftir að íslenski múrinn
fór að bresta eru hagsmunir
Flokksins enn æðri hagsmunum
þjóðarinnar.
Við frelsisvæðingu fyrrum
Sovétlýðvelda óttuðust margir að
of hratt væri farið. Reynslan frá
Íslandi sýnir að svo var ekki. Á
meðan þjóðir Austur-Evrópu eru
óðum að ná tökum á frelsinu bend-
ir flest til að við verðum tjóðruð
við sovétið í nokkra áratugi til við-
bótar.
8 11. september 2002 MIÐVIKUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja hf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili
á höfuðborgarsvæðinu. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
skrifar um hægaganginn í
einkavæðingu bankakerfisins.
Mín skoðun
Gunnar Smári Egilsson
BRÉF TIL BLAÐSINS
Sovét Ísland – hvenær hverfur þú?
Látið heyra
frá ykkur
Steinunn Geirsdóttir skrifar
Hér með lýsi ég eftir Sigríði fráBrattholti númer tvö. Sú
mæta kona er löngu komin í dýr-
lingatölu hjá íslensku þjóðinni (og
þótt víða væri leitað) fyrir vask-
lega baráttu sína móti virkjun
Gullfoss á sínum tíma.
Nú vantar okkur aðra, henni
líka, aðra sem getur tekið um ís-
lenska fánann og barist með hon-
um gegn Kárahnjúkavirkjun.
Látið heyra frá ykkur. „Fljót-
um ekki sofandi að feigðarósi.“
Lifi áfram óspillt náttúra Íslands.
Hugsum til framtíðar.
ERLENT
Arabíska sjónvarpsstöðin al-Jazeera hefur sýnt mynd-
bandsupptöku þar sem hún segir
að Osama bin Laden heyrist tala
um flugræningjana sem tóku þátt
í árásinni á Bandaríkin þann 11.
september. Bin Laden, sem grun-
aður er um að hafa staðið fyrir
árásunum, sést ekki á myndband-
inu.
Að minnsta kosti 10 mannshafa látið lífið í miklum flóð-
um sem gengið hafa yfir suður-
hluta Frakklands. Um þúsund
manns hafa þurft að yfirgefa
heimili sín og hefur rafmagn far-
ið af um 40 þúsund heimilum.
Svisslendingar hafa lýst eftir lí-bönskum manni sem dæmdur
var í lífstíðarfangelsi í landinu
árið 1987 fyrir að ræna flugvél á
leið frá Kongó til Parísar og
myrða einn farþeganna. Maður-
inn, Hussein Hariri, hafði fengið
leyfi til að ferðast utan fangelsis-
ins en lét ekki sjá sig er hann átti
að snúa þangað aftur. Hariri átti
að fá reynslulausn úr fangelsinu
eftir tvö ár.
Samkvæmt brasilískri rannsókner fleira ungt fólk undir 18 ára
aldri skotið til bana á hverju á í
Rio de Janeiro heldur en á mörg-
um öðrum svæðum í heiminum
þar sem styrjöld hefur geisað. Í
niðurstöðum rannsóknarinnar
kemur fram að margt sé líkt með
þeim börnum sem taka þátt í eit-
urlyfjastríði í fátækrahverfum
Rio og hermönnum á barnsaldri
annars staðar í heiminum.
BEIJING, AP Kínverskur embættis-
maður sagði í gær að búið sé að
stíflugerðin við Gljúfrin þrjú í
fljótinu Yangtse sé langt á veg
komin. Búið sé að dæla í stífluna
um það bil 70% af þeirri stein-
steypu sem á að fara í hana.
Hann hafnaði um leið öllum
ásökunum um spillingu og mis-
notkun á fé í tengslum við stíflu-
gerðina.
Búið er að reisa þrettán nýja
bæi handa fólki sem þarf að yfir-
gefa heimili sitt vegna stíflulóns-
ins. Alls þurfa meira en milljón
manns að flytja búferlum áður en
stíflulónið fyllist af vatni. Nú þeg-
ar hafa 650 þúsund manns flutt bú-
ferlum vegna framkvæmdanna.
140 þúsund þeirra hafa hins vegar
ekki flutt til nýju byggðarlaganna,
heldur farið til annarra svæða í
Kína.
Umhverfisverndarsinnar, forn-
leifafræðingar og fjölmargir vís-
indamenn eru á einu máli um að
stíflugerðin sé ekkert annað en
rándýr mistök. Hún valdi gífurleg-
um umhverfisspjöllum, eyðileggi
fornminjar og menningarverð-
mæti auk þess að sjúga til sín fé.
Í nýju byggðarlögunum er að
finna stórar og vandaðar stjórn-
sýslubyggingar ásamt glæsiíbúð-
um fyrir embættismennina, sem
eiga að starfa þar. Hins vegar er
víða enn ekki búið að reisa íbúðar-
húsnæði fyrir bændur og þorps-
búa sem eiga að flytja þangað.
Fólk, sem þarf að flytja búferl-
um, kvartar undan því að spilltir
embættismenn notfæri sér neyð
sína auk þess sem það hafi aldrei
séð peningastyrki, sem lofað var
til þess að standa straum af flutn-
ingunum.
Guo Shuyan, sem yfir bygging-
arnefnd stíflunnar, hafnar því al-
gjörlega að misnotkun fjármuna
hafi verið mikil í kringum stíflu-
gerðina. Einungis hafi orðið upp-
víst um 234 dæmi slíks.
Stíflan við Gljúfrin þrjú verður
stærsta stífla í heimi. Hún á að
byrja að framleiða rafmagn strax
á næsta ári, en nær ekki fullum af-
köstum fyrr en árið 2009 þegar
stíflulónið hefur náð fullri stærð.
Þá nær það yfir 634 ferkílómetra
svæði.
Kínversk stjórnvöld segja að
auk rafmagnsframleiðslunnar
komi stíflugerðin í veg fyrir árleg
flóð í ánni Yangtse og skipaferðir
verði öruggari.
Stíflugerðin í Kína
langt á veg komin
Margar ásakanir um spillingu og misnotkun fjár í tengslum við stíflu-
gerðina í Yangtse fljóti. Fólk, sem neyðist til að flytja búferlum, fær
hvorki húsnæði né fjárstuðning eins og lofað var.
NEYÐIST TIL AÐ FLYTJA
Wang Mingying er 83 ára. Hún hefur búið
á því svæði, sem fer undir stíflulón
virkjunarinnar í Yangtse ánni. Henni er hér
hjálpað um borð í skip sem flytur hana
til nýrra heimkynna.
Bankasala og gangagerð:
Óvíst með
áhrif á sam-
göngur
SAMGÖNGUR Sturla Böðvarsson,
samgönguráðherra, vildi í gær lít-
ið segja um hvort hann teldi fyrir-
hugaða sölu á hlut ríkisins í Lands-
banka og Búnaðarbanka verða til
þess að flýta fyrir
framkvæmdum í
vegagerð. „Ég get
ekkert sagt um
þetta áður en fjár-
lögin verða af-
greidd,“ sagði
hann þegar hann
hélt á brott af rík-
isstjórnarfundi í
gær. Fyrirhugaðar
s ö l u v i ð r æ ð u r
vegna hlutar ríkis-
ins í Landsbankan-
um voru ræddar á fundinum í gær.
Fyrirhugað var að hluti af sölu-
tekjum síðasta árs yrðu notaðar í
vega- og jarðgangaframkvæmdir.
Þegar þær söluáætlanir gengu
ekki eftir og samdráttur varð í
þjóðfélaginu hafði það áhrif til
seinkunar á framkvæmdir í sam-
göngumálum.
Lagaumhverfi framkvæmda í
samgöngumálum var breytt á síð-
asta þingi. Ný áætlun um fram-
kvæmdir í samgöngumálum verð-
ur lögð fyrir á haustþingi.
STURLA BÖÐV-
ARSSON
Þetta er allt sam-
an á beinu braut-
inni.
L’espion,
stafræn myndavél
fylgir öllum fartölvum!
2 MB minni 0,1 mega pixel
HP OmniBook xe4100
Fartölva
1,13 GHz Celeron örgjörvi
256 MB SDRAM vinnsluminni
20 GB harður diskur
DVD-CDRW combo drif (með skrifara)
Disklingadrif
56 K módem
10/100 netkort
15“ TFT XGA skjár
Allt að 32 MB skjáminni
Windows XP home
Tveggja ára ábyrgð
Vörunúmer: F5642HS
Verð:
189.900,-
HP OmniBook xt6050
Fartölva
1,13 GHz Celeron örgjörvi
256 MB SDRAM vinnsluminni
20 GB harður diskur
8x DVD drif
56 K módem
10/100 netkort
14“ TFT XGA skjár
Windows XP home
Tveggja ára ábyrgð
Vörunúmer: F5365HS
Verð:
149.900,-
Oddi söludeild • Verslun Höfðabakka 3 • Pantanasími 515 5100 • netfang sala@oddi.is
OD
DI
H
F
I7
58
1
Vandaðar og traustar fartölvur! Fyrir námsmenn, heimili og fyrirtæki.
Lesendur geta skrifað bréf íblaðið. Æskilegt er að hvert
bréf sé ekki lengra en sem nemur
hálfri A4-blaðsíðu. Hægt er að
senda bréfin í tölvupósti, rit-
stjorn@frettabladid.is, hringja í
síma 515 7500, faxa í síma 515 7506
eða senda bréf á Fréttablaðið,
Þverholti 9, 105 Reykjavík.
LESENDABRÉF