Fréttablaðið - 11.09.2002, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 11. september 2002
FÓTBOLTI Berti Vogts, landsliðs-
þjálfari Skotlands, ætlar að halda
áfram að stýra liðinu þrátt fyrir 2-
2 jafntefli gegn Færeyjum í und-
ankeppni Evrópumótsins. Skoskir
fjölmiðlar eru æfir yfir frammi-
stöðu liðsins á Tóftum-vellinum í
Færeyjum. Heimamenn komust
tveimur mörkum yfir áður en
gestirnir náðu að jafna.
„Ég varð dofinn yfir frammi-
stöðu liðsins í Færeyjum en er
staðráðinn í að koma því á réttan
kjöl,“ sagði Vogts, sem eitt sinn
þjálfaði þýska landsliðið. „Ég kom
ekki til Skotlands til að láta mér
mistakast. Ég kom því ég tel að
það búi meira í liðinu þrátt fyrir
allt sem gengið hefur á hjá því á
síðustu árum.“
Skotar og Færeyingar eru með
Íslendingum í riðli í Evrópu-
keppninni.
KÖRFUBOLTI Leikmönnum argent-
ínska landsliðsins í körfuknattleik
var fagnað sem þjóðhetjum þegar
þeir komu til Buenos Aires, höfuð-
borgar landsins, í gær eftir að
hafa tryggt sér sigurverðlaun á
heimsmeistaramótinu í Banda-
ríkjunum. Þúsundir manna tóku á
móti hetjunum þegar þeir gengu
út úr flugvélinni og veifuðu þjóð-
arfánanum.
Þrátt fyrir móttökurnar segj-
ast leikmenn liðsins svekktir með
að hafa ekki náð í gullverðlaunin
en þeir töpuðu fyrir Júgóslavíu í
úrslitaleik eftir að hafa átta stiga
forystu þegar skammt var til leik-
sloka.
„Við erum sannfærðir um að
við höfum haft besta liðið,“ sagði
Emanuel Ginobili, leikmaður San
Antonio Spurs, á blaðamanna-
fundi. „Í dag erum við svekktir að
hafa ekki gullið um hálsinn eins
og við áttum skilið.“
Argentínska landsliðið gagn-
rýndi dómarana að leik loknum og
töldu að það hefði átt að fá víta-
skot þegar sex sekúndur voru eft-
ir af venjulegum leiktíma og stað-
an jöfn. Dómarinn létu hins vegar
leikinn halda áfram.
TILSÖGN
Berti Vogts, landsliðsþjálfari Skota, segir
hér Steven Thompson til í leiknum gegn
Færeyingum.
Berti Vogts:
Staðráðinn
í að halda
áfram
SÁRT AÐ TAPA
Emanuel Ginobili grætur hér eftir að Argentína tapaði fyrir Júgóslövum í úrslitaleik á
heimsmeistaramótinu í körfubolta.
Argentínska landsliðið komið heim:
Svekktar þjóðhetjur
FRJÁLSAR Jón Arnar Magnússon,
tugþrautamaður úr Breiðabliki,
er í öðru sæti í Grand Prix móta-
röðinni í tugþraut þegar eitt mót
er eftir. Jón Arnar hefur hlotið
24.732 stig úr þremur þrautum og
er tæpum 2.600 stigum á eftir
Roma Sebrle frá Tékklandi.
Jaakko Ojaniemi frá Finnlandi er
í þriðja sæti með 24.401 stig og
Mike Maczey frá Þýskalandi er í
því fjórða með 24.328 stig.
Í Grand Prix mótaröðinni eru
stig einstaklinga úr þremur bestu
þrautunum, í fjórum stærstu mót-
um ársins, reiknuð saman. Mótin
sem um ræði eru Götzis, Rat-
ingen, Evrópumótið og Talence.
Auk þess sem meistaramót innan-
lands eru talinn með. Vegleg verð-
laun eru veitt fyrir átta efstu sæt-
in. Næsta mót verður í Decastar í
Talence daganna 21.-22. septem-
ber.
Erki Nool og Tomas Dvorak,
tveir af bestu tugþrauta mönnum
heims, eiga ekki möguleika á því
að blanda sér í baráttuna þar sem
þeir hafa aðeins lokið einni tug-
þraut á árinu.
JÓN ARNAR MAGNÚSSON
Jón Arnar er sem stendur í 6. sæti heimslistans með 8390 stig og í öðru sæti á Grand-Prix
mótaröðinni.
Jón Arnar Magnússon:
Annar í Grand
Prix mótaröðinni
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI