Fréttablaðið - 11.09.2002, Side 16
16 11. september 2002 MIÐVIKUDAGUR
FRÉTTIR AF FÓLKI
Smári Tarfur, sem leikið hefurá gítar með Quarashi á heims-
reisu þeirra síðustu mánuði, hef-
ur ákveðið að segja skilið við
bandið til að ganga til liðs við am-
erísku hardcoresveitina Buried
Alive. Sú sveit starfar undir
merkjum Victory Records, sama
fyrirtæki og Mínus er á, og ætlar
að leggjast í plötuupptökur bráð-
lega. Tónleikarnir í Laugardals-
höll verða því síðustu tónleikar
Smára með Quarashi í bili.
Gamanleikarinn Jerry Lewis erá leið heim til Bandaríkjanna
eftir að hafa hnigið niður áður en
hann átti að koma fram í London
Palladium leikhúsinu á sunnudag.
Talsmenn hans hafa reyndar
dregið úr því að liðið hafi yfir
leikarann og segja að hann hafi
aðeins fengið svimakast. Þeir
segja að hann sé í fullu fjöri þrátt
fyrir atburðinn og að hann hafi
notað síðustu daga í að slappa af.
Lewis er 76 ára og sýndi læknis-
skoðun að gamla stellið væri enn
í góðu lagi.
Rafdúettinn Unkle hefur kláraðstuttmynd sem gagnrýnir
stríð í heiminum. Gerð myndar-
innar hófst töluvert fyrir 11.sept-
ember í fyrra en myndin verður
frumsýnd á BBC Channel 4 í
Bretlandi í kvöld. Í myndinni má
meðal annars sjá málverk eftir
3D, liðsmann Massive Attack.
Tónlist myndarinnar er samin af
Unkle og blanda þeir saman tón-
um sínum við klassísku tónana
sem notaðir voru í Walt Disney
myndinni Fantasíu.
Enn kemst ástarlíf leikkonunn-ar Gwyneth Paltrow í fréttirn-
ar. Hún hefur verið orðuð við
hina ýmsu poppara og leikara síð-
ustu mánuði. Nú á hún hins vegar
að vera að slá sér upp með krón-
prinsi Spánar. Paltrow yfirgaf
kvikmyndahátíðina í Feneyjum
snemma til þess að eyða tíma
með piltinum.
TÓNLIST Tugir nýrra íslenskra plat-
na mun skella á landann í jólaflóð-
inu. Rapptónlist virðist vera falla í
náðina hjá útgáfufyrirtækjum og
munu í það minnsta fimm slíkar
plötur líta dagsins ljós.
X Rottweilerhundar gefa út
aðra plötu sína en fyrsta skífa
þeirra varð ein sú vinsælasta í
fyrra. Erpur Þórólfur Eyvindar-
son, einn forsprakka hundanna, er
iðinn við kolann í ár en hann kem-
ur einnig við sögu á plötunni Rím-
um og rappi þar sem hann rappar
með kvæðamanninum Steindóri
Andersen. Ágúst Bent, sem einnig
er meðlimur Rottweiler, gefur út
breiðskífu ásamt félaga sínum
7berg . Ein athyglisverðasta rapp-
sveit landsins, Afkvæmi guðanna,
mun koma frumburði sínum frá
sér sem og Kritikal Mazz.
Af sveitaballahljómsveitunum
bera hæst nýjar plötur frá Írafári,
Í svörtum fötum og Landi og son-
um. Sú síðastnefnda hefur verið
að reyna fyrir sér í Bandaríkjun-
um og sendir frá sér plötuna
Happy Endings.
Sigur Rós sendir frá sér nýja
plötu sem ber hið þjála nafn ( ) og
Múm sömuleiðis, plötuna Loksins
erum við engin.
Búdrýgindi sigraði Músiktil-
raunir Tónabæjar á eftirminnileg-
an hátt fyrr á þessu ári. Þrátt fyr-
ir ungan aldur eru þeir félagar
búnir að berja saman plötu sem
inniheldur væntanlega lagið
Spilafíkill sem notið hefur tölu-
verða vinsælda. Hljómsveitin
Daysleeper, með Sverri Berg-
mann í fararbroddi, sendir einnig
frá sér fyrstu plötu sína.
Maus hefur ekki gefið út skífu
í þrjú ár en ætlar að gera bragar-
bót á. Platan hefur ekki enn feng-
ið nafn en hún verður öll sungin á
ensku. Hljómsveitin Ske, sem
áður hét Skárr’en ekkert, sendir
frá sér Life, Death, Happiness and
stuff.
Bubbi Morthens sendir frá sér
nýja skífu, Sól að morgni, eins og
KK og Bjarni Ara. Páll Rósin-
kranz hefur selt mest allra tónlist-
armanna síðustu ár og hann lætur
sitt ekki eftir liggja. Sömu sögu er
að segja af skagfirska sveiflu-
kónginum Geirmundi Valtýssyni
sem sendir frá sér skífuna Alltaf
eitthvað nýtt.
kristjan@frettabladid.is
THE SWEETEST THING kl. 8 og 10
MAN IN BLACK 2 kl. 6 og 8
LITLA LIRFAN - Stutt kl. 4 og 4.30
STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 4 og 6
Sýnd kl. 5, 8 og 11
Sýnd kl. 6.30 og 9.30
Sýnd kl. 5, 8, 10 og 11
kl. 8 LILO OG STITCH kl. 6, 8 og 10MAÐUR EINS OG ÉG
THE SUM OF ALL FEARS kl. 10LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 6
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20
VILLTI FOLINN m/ísl. tali kl. 4 VIT410
LILO OG STITCH 4, 6, 8 og 10.10 VIT430
LILO OG STITCH ísl. tali kl. 4 VIT429
MAÐUR EINS OG ÉG 8.15 og 10.20 VIT422
FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl. tali kl. 4 VIT418
24 HOHUR PARTY... 8.15 og 10.20 VIT431
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 VIT 432
Sýnd kl. 8 og 10.20 VIT 427
Sýnd kl. 8 og 10.20 VIT 428
Útgáfa úr
öllum áttum
BÚDRÝGINDI
Sigurvegarar Músiktilrauna árið 2002 munu senda frá sér sínu fyrstu skífu þrátt fyrir
ungan aldur. Tugur nýrra platna mun koma út fyrir jól.
Nú eru línur farnar að skýrast í tónlistarútgáfu landans í haust.
Nýjar sem eldri sveitir gefa út breiðskífur. Maus með nýja plötu.
TÓNLIST Mikill vinskapur virðist
vera á milli bandarísku sveitanna
The White Stripes og The
Strokes. Báðar sveitir eiga það
sameiginlegt að eiga meiri vin-
sældum að fagna í Bretlandi en í
heimalandi sínu. Þær leika báðar
hrátt rokk sem styðst ekki við nú-
tímatækni.
Nú hyggjast sveitirnar gefa út
sameiginlega smáskífu með nýj-
um lögum. Sveitirnar hafa oft
leikið saman á tónleikum og liðs-
menn jafnvel hoppað upp á svið
hver hjá öðrum og tekið lagið.
Ekki hefur verið ákveðið
hvenær smáskífan mun koma út
en báðar sveitir eru að hefja upp-
tökur á næstu breiðskífum sín-
um.
The Strokes og White Stripes:
Gefa út smáskífu saman
TÓNLIST
Ólíkt Eminem elskar Rappar-inn Sage Francis mömmu
sína og er ekki feiminn að láta
hlustendur sína vita af því. Ef
hann kallar stúlkur „tíkur“ þá
biðst hann afsökunar á því síðar
meir. Ljóðrænir textar hans
taka á persónulegum vandamál-
um og lausnum þeirra. Hann
segir frá erfiðu uppeldi sínu og
systur sinnar, dauða föður síns
og blómstrandi ástarmálum sín-
um. Eitt laganna, hið magnaða
„Inherited Scars“, fjallar um
það hvernig hann uppgötvaði
vanlíðan systur sinnar á æsku-
árum sínum þegar hún sýndi
honum skurði á líkama sínum
sem hún hafði sjálf gert.
Undirleikurinn er listavel
gerður og oftast á bláu nótun-
um. Harðir taktar við einföld
gítar-, djass- eða strengjasörp
sem yfirleitt eru í moll. Svipað
og íslensku rappararnir Móri og
Mezzías virðast heillast af á
Rímnamín safndiskinum.
Rímnaflæði Francis er óaðfinn-
anlegt. Tilfinningarþrungið,
skýrt, melódískt og hraðara en
straumhraði Skeiðarár á há-
flóði.
„Personal Journals“ er ótrú-
leg frumraun. Gæði plötunnar
birtast best í því að mér fannst
hún allt of stutt. Þrátt fyrir það
er hún 18 laga og rétt tæpur
klukkutími að lengd. Hip-hop
verður ekki mikið betra en
þetta. Fullt hús, og ekki orð um
það meir.
Birgir Örn Steinarsson
Mögnuð frumraun
SAGE FRANCIS:
PERSONAL JOURNALS
FAB & JULIAN
Jamm, þeir eru myndarlegir strokustrákarnir.
ÚTGÁFUR
Rokk:
Daysleeper
Búdrýgindi
KK
Maus
Popp:
Land og synir-Happy Endings
Írafár-ný
Í svörtum fötum
Bjarni Ara
Geirmundur-Alltaf eitthvað nýtt
Bubbi-Sól að morgni
Páll Rósinkrans
Rapp:
X Rottweiler hundar
Afkvæmi guðanna
Rímur og rapp
Bent og 7berg
Kritikal Mazz
Annað:
Sigur Rós- ( )
Múm- Loksins erum við engin
Ske: Life, Death, Happiness and stuff
Listi þessi er ekki tæmandi þar sem
ekki er búið að ganga frá útgáfumálum
hjá öllum listamönnum.
DAGUR Í SVEIT
Námskeið hefjast 17. sept. fyrir
pínulítið hrædda byrjendur,
lengra komna og fatlaða.
Kennt er þriðjudaga,
fimmtudaga og um helgar.
Kennsla fer fram í reiðhöll
Sigurbjörns Bárðarsonar
C tröð 4 Víðidal
Upplýsingar og skráning í síma 575 1566
Reiðskólinn Þyrill – Reiðhöllinni Víðidal.