Fréttablaðið - 11.09.2002, Síða 17
17MIÐVIKUDAGUR 11. september 2002
MEN IN BLACK 2 kl. 8
MINORITY REPORT kl. 8
SWEETEST THING kl. 6 og 10
STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 6
Sýnd kl. 7 og 10 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.10
SÍMI 553 2075
STUART LITTLE 2 kl. 6Sýnd kl. 6, 8 og 10.10
Sýnd kl. 8 og 10.10LILO OG STITCH m/ísl. tali 4 og 5 VIT429 SLAP HER SHÉS FRENCH kl. 6, 8 og 10
VIT
426
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 VIT 432Sýnd kl. 6.45 og 9 VIT 427
FYRIRLESTUR
16.15 Peter Schmidt kennari við Århus
Dag- og Aftenseminarium heldur
fyrirlesturinn Að segja sögu á
vegum Rannsóknarstofnunar
Kennaraháskóla Íslands í sal 2 í
nýbyggingu skólans við Stakka-
hlíð. Í fyrirlestrinum fjallar hann
um mælt mál og eflingu þess í
móðurmálskennslu. Fyrirlesturinn
er öllum opinn og fer fram á dön-
sku.
FRIÐARSTUND
12.00 Kyrrðarstund verðir í Grafarvogs-
kirkju þar sem fórnarlamba
hryðjuverkaárásanna í Bandaríkj-
unum fyrir einu ári verður minnst
og beðið fyrir ástvinum þeirra. Að
athöfn lokinni verður boðið upp á
léttan hádegisverð.
MYNDLIST OG SÝNINGAR
Gullsmíðavinnustofan og verslunin
Maríella, Skólavörðustíg 12, hefur
hleypt af stokkunum sýningarverkefni í
versluninni. Þar er eitt verk eftir þekktan
íslenskan listamann hengt upp í mánað-
artíma í senn. Fyrsta verk á dagskrá er
olíumálverk eftir Eirík Smith,
„Abstraktion“ frá 2001.
Ólöf Björg myndlistarmaður sýnir í Gall-
eríi Sævars Karls, málverk, hluti, hljóð og
lykt.
Sýning á verkum Eero Lintusaari skart-
gripahönnuðar og Harri Syrjanen gull-
smiðs og leðursmiðs sýnir í Listhúsi Ófeigs
við Skólavörðustíg. Sýningin verður opin
mánudaga til föstudaga frá 10 til 18 og
laugardaga frá 11 til 16. Sýningunni lýkur
25. september.
Ásdís Spano sýnir olíuverk á Kaffi Sólon.
Sýningin stendur til 27. september.
Sumarlok nefnist gluggasýning í Samlag-
inu/Listhúsi, Gilinu á Akureyri. Þar sýnir
Halldóra Helgadóttir nokkur af þeim
málverkum sem hún hefur unnið að á
þessu ári. Sýningin stendur til 15. septem-
ber.
Í Rauða Húsinu á Eyrarbakka sýnir
Hafliði Magnússon, rithöfundur og teikn-
ari, sýningu á lituðum teikningum með
götumyndum frá Eyrarbakka, Stokkseyri
og Selfossi.
Harpa Rún Ólafsdóttir sýnir í Gallerí Tukt
í Hinu húsinu.
Í Listasafni ASÍ, Freyjugötu 41 sýnir Guð-
rún Hrönn Ragnarsdóttir ljósmyndir og
skúlptúr. Í Gryfjunni sýnir Kristveig Hall-
dórsdóttir , myndverk gerð úr rabbarara
sem hún hefur búið til papyrus úr. Einnig
sýnir hún ljósmyndir. Listasafn ASÍ er opið
alla daga nema mánudaga frá kl. 14 til 18.
Aðgangur er ókeypis. Sýningunum lýkur
22. september.
Afmælissýning Myndhöggvarafélag Ís-
lands stendur yfir í Listasafni Reykjavík-
ur, Hafnarhúsi. Fjórtán myndhöggvarar
sýna. Félagið fagnar nú 30 ára afmæli
sínu. Sýningin stendur til 6. október.
Helgi Þorgils Friðjónsson og Kristinn G.
Harðarson sýna í i8, Klapparstíg 33. Krist-
inn sýnir vatnslitaverk og útsaumaðar
myndir og Helgi leirskúlptúra. Að auki
sýna þeir myndbandsverk sem þeir unnu í
sameiningu ásamt Sverri Guðjónssyni .
Sýningin stendur til 12. október. i8 er opið
þriðjudaga til laugardaga frá kl. 13 til 17.
Í Gerðarsafni stendur sýningin Stefnu-
mót. Á henni eru málverk eftir Jóhannes
Jóhannesson listmálara og höggmyndir
og glergluggar Gerðar Helgadóttur
myndhöggvara.
Listin meðal fólksins er yfirskrift sýningar
Listasafns Reykjavíkur í Ásmundarsafni. Á
sýningunni eru verk Ásmundar Sveinsson-
ar myndhöggvara skoðuð út frá þeirri
hugsjón hans að myndlistin ætti að vera
hluti af daglegu umhverfi fólks en ekki
lokuð inni á söfnum. Sýningin stendur til
ársloka.
MIÐVIKUDAGURINN
11. SPETEMBER