Fréttablaðið - 11.09.2002, Qupperneq 23
23MIÐVIKUDAGUR 11. september 2002
Leikarinn Christopher
Reeve:
Getur nú
hreyft fingur
og tær
FÓLK Leikarinn Christopher Reeve,
sem helst var þekktur fyrir að
leika hlutverk Súpermanns í sam-
nefndum kvikmyndum, getur nú
hreyft fingur og tær örlítið og and-
að án öndunarvélar í 90 mínútur í
senn. Reeve lamaðist upp að hálsi
þegar hann féll af hestbaki árið
1995 og hefur ekki getað hreyft sig
síðan. Nú finnur leikarinn mun á
heitu og köldu og hefur tilfinningu
í skrokknum og læknirinn hans
segir von til að hann muni með
tímanum ná fullum bata.
Reeve, sem hefur sýnt fádæma
stillingu í veikindum sínum, hefur
alltaf trúað því að einn góðan veð-
urdag gæti hann gengið á ný.
Draumur leikarans var að komast
á fætur fyrir fimmtugsafmælið
sitt sem er síðar í þessum mánuði,
en hann hefur sætt sig við að það
verði ekki að veruleika.
En hann er bjartsýnn á framtíð-
ina. „Bara það að geta fundið fyrir
faðmlögum eiginkonu minnar og
barna er stórkostlegt,“ segir hann.
„Þótt líkaminn sé lamaður eru hug-
ur og hjarta virk og maður verður
að trúa á framtíðina. Svo einfalt er
það,“ sagði leikarinn í samtali við
People Magazine.
11. SEPTEMBER
Frumsýningin er í Vín, en söngleikurinn
verður sýndur í Washington síðar á árinu.
Frumsýning í Vín í dag:
Söngleikur
um 11. sept-
ember
VÍN Söngleikur, sem fjallar um
hryðjuverkaárásirnar 11. septem-
ber, verður frumsýndur í
Metropol Theatre í Vín í dag. Höf-
undur söngleiksins er Rússinn
Sergei Dreznin, en hann var
staddur í New York daginn sem
árásin var gerð. Söngleikurinn
fjallar um unga söngkonu,
Suzanne, sem fær óskahlutverk á
Broadway sama dag og hörmung-
arnar dynja yfir. Dreznin segist
vera heillaður af því hvernig
mannsandinn getur hafið sig yfir
hið óbærilega og haldið ótrauður
áfram. „Við erum vön hörmung-
um í Rússlandi og það skrítna var
að mér leið eins og heima hjá mér
í New York 11. september.“
REGNHLÍFASALA Það fór víst ekki
fram hjá mörgum að það rigndi
eins og hellt væri úr fötu í gær.
Flestum væntanlega til lítillar
ánægju. Einn var þó sá maður
sem gat ekki annað en fagnað
veðrinu enda sjaldan jafn mikið
að gera hjá honum og þá daga sem
rignir.
„Mest af mínum viðskiptum
geri ég þegar rignir svona mikið.
Þá set ég skilti út í glugga og aug-
lýsi að ég sé með regnhlífar til
sölu,“ segir Sigurjón Jónsson,
verslunarmaður í Meyjaskemm-
unni á Laugavegi. Sigurjón eign-
aðist búðina fyrir fimm árum. Þá
hafði hún verið í eigu sömu kon-
unnar frá upphafi eða í 45 ár. „Ég
sá strax að það væri hægt að hafa
gott upp úr því að hafa regnhlífar
til sölu.“ Hann segir að regnhlífa-
salan sé í skorpum og fylgi veðr-
inu. Þegar rigni seljist mikið af
regnhlífum. Fólk sem á leið hjá og
sér skiltið og regnhlífarnar í
glugganum líti inn og kaupi sér
regnhlíf. Mest hafi viðskiptin ver-
ið þegar rigndi á 17. júní og menn-
ingarnótt. „Það átti að vera lokað
en þegar byrjaði að rigna skellti
ég mér hingað og opnaði búðina.
Allur regnhlífalagerinn seldist
upp á menningarnótt.“
Regnhlífasala í miðbænum:
Rigningardagar
bestu dagarnir
SIGURJÓN Í MEYJASKEMMUNNI
Sigurjón getur ekki kvartað undan sölunni á rigningardögum eins og þeim sem
við fengum í gær.
TÍSKA TILEINKUÐ 11. SEPTEMBER
Þessi sérkennilegi fatnaður var á meðal
þeira sem rússnesku hönnuðurnir Yekater-
ina Yevmenyeva og Tatyana Beloborodova
sýndu á skólasýningu Vladivostok Háskól-
ans. Yfirskrift sýningarinnar var „New York
11. september“.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
CRISTOPHER
REEVE
Leikarinn hefur
tekið miklum
framförum að
sögn lækna, en
hann hefur verið
lamaður síðan
hann féll af hest-
baki árið 1995.