Fréttablaðið - 11.09.2002, Page 24
Ídag er eitt ár liðið síðan liðsmennÓsóma Bin Ladens gerðu hinar
hræðilegu sjálfsmorðsárásir á Tví-
buraturna í Nýju Jórvík og Fimm-
hyrninginn í Washington. Þau voða-
verk leiddu til styrjaldar Banda-
ríkjamanna við talíbanastjórnina í
Afganistan og nú er í uppsiglingu
annað stríð í Írak til að losa veröld-
ina við þá ógn sem stafar af Saddam
Hússein og hyski hans.
Í SKOÐANAKÖNNUN á vef-
setri Fréttablaðsins, frett.is, kom í
ljós að 42% þeirra sem tóku þátt í
könnuninni telja það heillaráð að
Bandaríkjamenn og Bretar ráðist á
Íraka til að koma Saddam fyrir katt-
arnef. 58% voru hins vegar á móti
þeirri styrjöld. (Næst var svo spurt
um öllu hversdagslegra mál: „Eiga
Íslendingar að skipta um landsliðs-
þjálfara í knattspyrnu?“). Það var
athyglisvert að sjá hversu margir
Íslendingar eru nógu herskáir til að
vilja bombardera Írak.
HRYÐJUVERKAÁRÁSIRNAR á
Bandaríkin vöktu hneykslan, við-
bjóð, sorg og samúð, og nú einu ári
og einni styrjöld síðar liggur ennþá
ógn í loftinu, ótti við sefasjúka
hefndarverkamenn sem vega úr
launsátri að almennum borgurum
með hryllilegum blóðsúthellingum.
Þessi ógn hvílir einnig yfir hvers-
dagslegri tilveru okkar hérna fjarst
í eilífðar útsæ og truflar okkur frá
heimilislegum bollaleggingum um
hvort ráðlegt sé að skipta um lands-
liðsþjálfara í fótbolta, ellegar hvort
borgarstjórinn í Reykjavík eigi að
bæta á sig þingmannsstarfi, eða
hvaða burgeisum við ætlum að selja
Landsbankann.
HVORT SEM herförin gegn Írak
hefst vikunni fyrr eða síðar og hvort
heldur sem fleiri þjóðir eða færri
taka þátt í henni er það víst að ekki
sér fyrir endann á þeim blóðsúthell-
ingum sem hófust 11. september síð-
astliðinn. Kannski byrjuðu vandræð-
in þegar Saddam hertók alheims-
bensínstöðina í Kúvæt og var hrak-
inn burt. Kannski þegar Abd al-Asís
al Saúd Arabakóngur hóf viðskipti
fyrir sína hönd og fjölskyldu sinnar
við ameríska olíukaupmenn árið
1936. Kannski á þessi ófriður sér
ennþá lengri aðdraganda. Og kannski
er endirinn á ófriðnum jafnfjarlæg-
ur og upptök hans hvað svo sem Ís-
lendingum kann að finnast um stríð
eða frið í skoðanakönnun á frett.is.
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
11. september
Bakþankar
Þráins Bertelssonar