Fréttablaðið - 14.09.2002, Page 2
2 14. september 2002 LAUGARDAGURLÖGGUFRÉTTIR
INNLENT
WASHINGTON, BERLÍN, AP Gerhard
Schröder, kanslari Þýskalands, er
jafn andsnúinn því sem fyrr að
ráðist verði á Írak til þess að
koma Saddam Hussein frá völd-
um. Hann segir að George W.
Bush Bandaríkjaforseti hafi látið
mörgum spurningum ósvarað.
„Enn er alveg ljóst, að Þýska-
land tekur ekki þátt í hernaðarað-
gerðum undir minni forystu,“
sagði Schröder.
Almennt hafa þjóðarleiðtogar
fagnað því, að Bush hafi í ræðu
sinni lagt áherslu á nauðsyn þess
að Sameinuðu þjóðirnar standi að
aðgerðum gegn Írak. Meira að
segja arabaríki hafa sum hver
sagt að með þessu hafi Bush opn-
að Írökum leið út úr ógöngum sín-
um.
„Ég skora á Íraksstjórn að
grípa tækifærið,“ sagði Hosni
Mubarak, forseti Egyptalands,
„og forðast alvarleg eftirköst.“
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, ráðgaðist í gær við
leiðtoga þeirra ríkja, sem neitun-
arvald hafa í Öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna. Af fastafulltrúunum
fimm í Öryggisráðinu hafa einung-
is Bretar lýst afdráttarlausum
stuðningi við fyrirhugaðar hernað-
araðgerðir gegn Írak.
Gerhard Schröder enn á móti hernaði:
Powell reynir að sannfæra Öryggisráðið
REYNA AÐ AFLA FYLGIS
Bush Bandaríkjaforseti og Powell utanríkisráðherra hafa staðið í ströngu við að sannfæra
þjóðarleiðtoga um nauðsyn þess að ráðast gegn Írak.
AP
/D
O
U
G
M
IL
LS
NÝ STJÓRN
Kaupþing vill skipta um stjórn í JP Nor-
diska í Svíþjóð. Sænskir sparifjáreigendur
gagnrýna tímasetninguna.
Sænskir hlutabréfaspar-
endur órólegir:
Kvarta und-
an stjórnar-
breytingu
Kaupþings
VIÐSKIPTI Félag sænskra hluta-
bréfaeigenda gagnrýnir Kaup-
þing fyrir að boða til hlutahafa-
fundar í JP Nordiska eftir að yfir-
tökutilboð hefur verið lagt fram.
Tilgangur Kaupþings er að skipta
um stjórn, en félagið hefur eign-
ast stóran hlut í fyrirtækinu og
hyggur á yfirtöku. Lars Millberg
talsmaður samtakanna segir að
það sé óeðlilegt að Kaupþing vilji
skipta um stjórn þegar það sé
hlutverks stjórnarinnar að fjalla
um yfirtökutilboð Kaupþings og
mæla með því við hluthafa.
Sigurður Einarsson, forstjóri
Kaupþings segir tilganginn með
stjórnarskiptunum vera þann að
breyta um áherslur í fyrirtækinu.
Lars Millberg segir hins vegar að
hann efist ekki um þann tilgang.
Hins vegar veki tímasetningin
tortryggni í ljósi yfirtökutilboðs-
ins.
Sigurður segir ákveðinn mis-
skilning hér á ferðinni. Það hafi
alltaf verið hugmyndin að gamla
stjórnin fjalli um yfirtökutilboðið.
Hann segist fagna því að úrskurð-
arnefnd fjalli um málið. Það sé
ekkert nema eðlilegt.
Samkeppnisstofnun hefurstefnt Skífunni til greiðslu 12
milljóna króna sektar sem sam-
keppnisráð dæmdi fyrirtækið til
að greiða fyrir að hafa misnotað
markaðsráðandi stöðu við sölu á
geisladiskum í verslunum Baugs.
Skífan hefur á móti höfðað dóms-
mál vegna sektarinnar.
Kaldbakur EA, ísfisktogariÚA, er í slipp á Akureyri.
Verið er að setja andveltigeymi
fyrir framan brú skipsins til að
gera það stöðugra. Áður hefur
samskonar geymir verið settur á
Harðbak sem einnig er í eigu ÚA.
Kostnaður er áætlaður 30 til 40
milljónir.
Breskur ferðamaður sem áttileið um Vatnshorn í Vestur
Húnavatnssýslu þótti sleppa vel
þegar hann féll af mótorhjóli í
gær. Litlu munaði að hann lenti
undir vörubíl sem átti leið hjá.
Lánið lék þó við manninn sem
hriflaðist nokkuð við fallið.
Harður árekstur varð á mótumGlerárgötu og Þórunnarstræt-
is upp úr klukkan þrjú í gær. Ann-
ar ökumaðurinn kvartaði undan
eymslum í háls og baki. Hann var
fluttur á sjúkrahús ásamt tíu ára
stúlku sem reyndist ómeidd. Bíl-
arnir voru báðir óökufærir.
Fjögurra bíla árekstur varð íÞingvallastræti á Akureyri á
fjórða tímanum í gær. Þrír frem-
stu bílarnir höfðu staðnæmst en
aftasti bíllinn ók aftan á þá.
Skemmdir voru litlar.
Keflavíkurflugvöllur:
Lagt hald á um þrjátíu vopn á dag
LÖGREGLUMÁL Lagt er hald á um
þrjátíu vopn að meðaltali á dag
við vopnaleit á Keflavíkurflug-
velli. Langstærsti hlutinn eru
skæri en hnífar, stunguvopn aðrir
oddhvassir hlutir fylgja í kjölfar-
ið.
Vopnaleit var hert á Keflavík-
urflugvelli eftir hryðjuverkin í
Bandaríkjunum. Var Sýslumanns-
embættinu meðal annars gert af
bandarísku flugmálastjórninni að
framfylgja ströngu vopnaeftirliti
þar sem skýrar reglur gilda um
hvað flugfarþegum er óheimilt að
taka um borð í flugfar. Vegna
þessara ráðstafana hefur gríðar-
legt magn hluta verið tekið af
flugfarþegum við vopnaleit síðan
11. september á síðasta ári eða
samtals 11.206 stykki.
Skæri eru langalgengasti hlut-
urinn sem tekinn er af farþegum
eða 5.266 stykki. Þá hefur verið
lagt hald á 3.167 hnífa, 2.532
stunguvopn eða aðra oddhvassa
hluti, fjögur úðatæki og 199 ann-
ars konar hluti, meðal annars eft-
irlíkingar af byssum.
Sýslumannsembættið á Kefla-
víkurflugvelli segir að flugfar-
þegar hafi sýnt þessum aðgerðum
mikinn skilning sem auðveldað
hafi starfsmönnum tollgæslunnar
að sinna þessu mikilvæga starfi.
LEIFSSTÖÐ
Stærstur hluti vopna sem finnst þar eru skæri en hnífar, stunguvopn og aðrir oddhvassir
hlutir finnast líka oft.
HEILSA Stjórnarmenn Heilsugæsl-
unnar í Reykjavík áttu í gær fund
með Jóni Kristjánssyni heilbrigð-
isráðherra vegna deilna ríkisins
og heilsugæslu-
lækna um kjara-
og réttindamál. Á
fundinum voru
lagðar fram tillög-
ur framkvæmda-
stjórnar og yfir-
lækna Heilsugæsl-
unnar í Reykjavík,
Kópavogi, Mos-
fellsbæ og Sel-
tjarnarnesi. Miða þær að bættri
þjónustu Heilsugæslunnar og er
helsta markmiðið að allir sem
þurfa, geti fengið þjónustu heim-
ilislæknis samdægurs.
Tillögur læknanna miða að því
að markmiðinu verði náð með
nokkrum bráðaaðgerðum, en
langtímaaðgerðin er að komið
verði á launakerfi sem grundvall-
ist á samningi við Læknafélag Ís-
lands.
Heilsugæslulæknar vilja að
strax fyrir næstu mánaðarmót
verði komið á nýju launakerfi
lækna, sem þjónar markmiðum
Heilsugæslunnar um bætta þjón-
ustu. Launakerfið á að vera þan-
nig upp byggt að læknar geti val-
ið milli þess að vera að hluta á
föstum launum og að hluta á verk-
greiðslum.
Til þess að unnt verði að bæta
þjónustu Heilsugæslunnar telja
læknarnir að koma verði á öflugri
bráðaþjónustu lækna á heilsu-
gæslustöðvum á dagtíma og vakt-
þjónustu eftir klukkan 16. Þá sé
einnig nauðsynlegt að opna
heilsugæslustöðvar í Voga- og
Heimahverfi og í Salahverfi í
Kópavogi á næsta ári með tilheyr-
andi stöðufjölda lækna. Á árinu
2004 verði síðan tvær heilsu-
gæslustöðvar í viðbót opnaðar í
Árbæ og Borgum í Kópavogi.
Tillögurnar miða ennfremur að
því að fjölga námsstöðum í heim-
ilislækningum í Heilsugæslunni,
þannig að 6 til 10 stöður verði aug-
lýstar strax. Þá vilja heilsugæslu-
læknar að komið verði á fót mið-
lægri, faglegri símaráðgjöf
heilsugæslulækna fyrir almenn-
ing á landsvísu. Einnig vilja þeir
að sjálfstæði stjórnenda Heilsu-
gæslunnar verði aukið.
trausti@frettabladid.is
Læknar vilja nýtt launa-
kerfi fyrir mánaðamót
Framkvæmdastjórn og yfirlæknar Heilsugæslunnar lögðu fram tillögur
á fundi með heilbrigðisráðherra í gær. Markmiðið er að allir sem þurfa,
geti fengið þjónustu heimilislæknis samdægurs.
HEILSUGÆSLAN Í REYKJAVÍK
Stjórnarmenn Heilsugæslunnar í Reykjavík funduðu með Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráð-
herra í gær.
Á árinu 2004
verði síðan
tvær heilsu-
gæslustöðvar í
viðbót opnað-
ar í Árbæ og
Borgum í
Kópavogi.
Ísfirskur ofbeldismaður:
Lamdi
fjögurra
ára dreng
DÓMSMÁL Maður hefur verið
dæmdur til fjögurra ára skilorðs-
bundinnar fangelsisvistar fyrir
ýmsar líkamsárásir á Ísafirði.
Meðal afbrota mannsins var
að ráðast í janúar 2001 inn á
heimili unnustu sinnar og móður
hennar og slá þar unnustu sína og
fjögurra ára gamlan dreng á
heimilinu. Unnustan mun hafa
hringt til mannsins fyrr um
kvöldið og kvartað undan rifrildi
við móður sína. Hann fór strax á
vettvang til að „berja“ móðurina
en sú læsti sig inn í herbergi.
Hann barði þá kærustuna og
barnið í staðinn auk þess að vinna
skemmdir á innanstokksmunum.
Barnið var hruflað og grátandi
þegar lögreglu bar að garði.
Þá var maðurinn meðal annars
einnig fundinn sekur um að hafa
ráðist með hnefahöggum að
stúlku sem fermst hafði með hon-
um og var ásamt fleiri ferming-
arsystkinum í útilegu í Dýrafirði.
Þetta var í júlí 2001.
Héraðsdómur Vestfjarða
komst að þeirri niðurstöðu að
virða bæri manninum það til vor-
kunnar að hann hefði síðan bætt
hegðun sína. „Við ákvörðun refs-
ingar verður horft til þess að
ákærði hefur sýnt af sér bætta
hegðun og náð fullum sáttum við
móður unnustu sinnar,“ segir í
dóminum.
Ríkisendurskoðun:
Sjúklingum
heilsugæslu
fækkar
HEILBRIGÐISMÁL Ríkisendurskoðun
segir að í fyrra hafi hver heilsu-
gæslulæknir í Reykjavík sinnt að
jafnaði fimmtungi færri sjúk-
lingum en hann gerði árið 1997.
Ríkisendurskoðun segir í
nýrri skýrslu að ein möguleg
ástæða þessa felist í breytingum
sem gerðar voru á launakerfi
læknanna árið 1997. Þá var
Kjaranefnd falið að úrskurða um
kjör þeirra.
„Í stað kerfis þar sem þar sem
greiðslur miðuðust fyrst og
fremst við fjölda unninna verka,
svokallaðar verkagreiðslur, var
innleitt kerfi þar sem laun lækn-
is áttu að miklu leyti að ráðast af
stærð þess sjúklingahóps sem
hjá honum væri skráður, svokall-
aðar höfðatölugreiðslur,“ segir
Ríkisendurskoðun.
Þetta telur Ríkisendurskoðun
umhugsunarefni í ljósi þess að
erlendar rannsóknir sýni að fast-
launakerfi skili minni afköstum
og skapi biðlista.