Fréttablaðið - 14.09.2002, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 14.09.2002, Blaðsíða 24
Skrýtið með minningar. Hvernigþær geta greypst í hugann og bundist ákveðnum stað og tíma. Nú vita allir hvar þeir voru 11. septem- ber í fyrra þegar þoturnar flugu á Tvíburaturnana. Margir muna líka upp á hár hvar þeir voru þegar Kennedy var skotinn í Dallas. Svo ekki sé minnst á morðið á John Lennon. Eða Marilyn Monroe. Eða Jane Mansfield. HVAÐA Jane Mansfield? Jú, hún var stærri útgáfan af Marilyn Mon- roe með sílíkonbrjóst löngu fyrir daga sílíkonsins. Eftirlæti allra ungra drengja á kynþroskaaldri. Ég man nákvæmlega hvar ég var þegar tilkynnt var um dauða hennar í út- varpinu. Betur en stað og stund þeg- ar Kennedy, Lennon, Monroe og Tví- buraturnarnir hurfu. LÍKLEGA verið tíu ára. Að borða ávaxtagraut í timburhúsi í litlu þorpi úti á landi. Það var mikið matarlím í grautnum. Gerði það að leik mínum að rétta félaga skeið með graut út um eldhúsgluggann. Grauturinn límdur við skeiðina og beintengdur við grautarskálina. Félaginn gekk af stað með skeiðina og alltaf teygðist á grautunum í skálinni. Var kominn hálfa leið niður á bryggju, fyrir hornið hjá kaupfélaginu án þess að grauturinn slitnaði. Sleppti svo tak- inu og grauturinn endasentist í gegn- um hálft þorpið, í gegnum opin eld- húsgluggann og aftur ofan í skálina. Þetta þótti okkur skemmtilegt. ÞAÐ var einmitt þegar grauturinn small aftur á sinn stað í skálina sem það gerðist. Þulurinn í útvarpinu sagði að Jane Mansfield væri öll. Hefði farist í bílslysi vestur í Kali- forníu í gærkvöldi. Ekið undir vöru- bílspall. Höfuðið af. Leikurinn með grautinn féll í skuggann en hefur þó síðan verið samtvinnaður því áfalli sem ungur drengur varð fyrir þegar dís drauma hans hvarf úr þessum heimi. Ég var lengi að finna aðra í hennar stað. SLEÐAFERÐ niður brekku í aust- urbæ Reykjavíkur þegar fréttir bár- ust af morði Kennedys kemst ekki í hálfkvist við ávaxtagrautinn og Jane Mansfield. Né heldur þegar John Lennons var skotinn. Þá var ég að skúra danska fjárlagaráðuneytið í Kristjánsborgarhöll. Þetta með 11. september er bara eins og gerst hafi í gær. Hins vegar man ég ekki hvar ég var þegar Marilyn Monroe dó. Er alltaf að reyna að muna það.  SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Staðfastar minningar Bakþankar Eiríks Jónssonar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.