Fréttablaðið - 14.09.2002, Blaðsíða 14
14 14. september 2002 LAUGARDAGUR
FRÉTTIR AF FÓLKI
TÓNLIST Íslenskir sjónvarpsá-
horfendur voru líklegast margir
byrjaðir að raula eitt laganna af
nýútkominni breiðskífu Ske,
„Life, Death, Happiness &
Stuff“, áður en hún kom út. Og
það án þess að hafa hugmynd að
þeir væru að raula íslenskt lag.
Ástæðan er sú að eitt laganna,
sem sungið er af japanskri
myndlistarkonu að nafni Juri
Hasimoto, hefur verið notað í
auglýsingu fyrir Landsbankann.
Söngmelódía þess límist betur
innan í heilabú fólks en fluga á
flugnapappír.
Ske, er fyrir þá sem ekki vita,
sami hópur og myndar sveitina
Skárr’en Ekkert en nýja nafnið
var tekið upp eftir að fleiri liðs-
menn bættust í hópinn en við
fjölgunina komu einnig nýjar
áherslur.
„Áherslurnar breyttust þegar
við gerðum saman tónlist fyrir
Íslenska Dansflokkinn árið
1999,“ segir Hrannar Ingimund-
arson sem starfað hefur með Ske
síðan þá. „Þá bættust el-
ektrónískir tónar inn í tónlistina.
Núna vildum við svo gera plötu
sem væri ekki fyrir neitt verk-
efni. Við ákváðum að hafa þann
stíl á þessu að styðjast við lif-
andi hljóðfæri og forrita með.“
Sami þriggja manna kjarninn
hefur verið í Ske síðan 1994 þeg-
ar þeir Guðmundur Steingríms-
son, Eiríkur Þórleifsson og Frank
Þórir Hall hófu að leika saman
lög eftir höfunda á borð við Fell-
ini á kaffihúsum bæjarins. Í dag
hafa svo, auk Hrannars, þau Una
Sveinbjarnardóttir og Kjartan
Guðnason bæst í hópinn.
Á plötunni fær sveitin gesta-
söngvara í heimsókn. Þar ber
fyrst að nefna manninn með
silkiröddina Daníel Ágúst Har-
aldsson. Sveitin er afar alþjóðleg
í söngvaravali og eru kvenradd-
irnar tvær ættaðar frá Frakk-
landi og Japan.
„Ein þeirra er vinkona Guð-
mundar sem hann kynntist í
London og heitir Juri Hasimoto.
Hún er myndlistakona og hafði
enga trú á því að hún gæti sung-
ið. Þeir heyrðu hana svo syngja
í einhverju partíi og fannst það
mjög skemmtilegt. Þeir plötuðu
hana til þess að syngja tvö lög
inn á mini-disk og það eru upp-
tökurnar sem við svo notuðum.
Hin heitir Julie Coadou og er
frönsk myndlistakona sem býr
hérna. Hún hafði heldur aldrei
sungið neitt. Við viljum söng-
konur sem aldrei hafa sungið
áður,“ segir Hrannar að lokum.
biggi@frettabladid.is
THE SWEETEST THING kl. 8
MINORITY REPORT kl. 5, 8 og 11
LITLA LIRFAN kl. 2, 2.30, 3, 3.30 og 4
STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 2, 4 og 6
Sýnd kl. 2.30, 5.15, 8, 10.40 og 1.15
Sýnd kl. 2, 4.45, 7.30, 10.10 og 12.45
Sýnd kl. 5, 8 og 11
kl. 3.50, 5.50, 8 og 10.15 SIGNS
kl. 2, 4, 6 og 8 MAÐUR EINS OG ÉG
2 og 4LILO OG STITCH m/ens. tali
kl. 2VILLTI FOLINN m/ísl. tali
THE SUM OF ALL FEARS kl. 10
24 HOUR PARTY PEOPLE 5.45, 8 og 10.20
LILO OG STITCH m/ísl. tali 2 og 3.50
Sýnd kl. 4, 6, 8.15 og 10.30
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30
MAÐUR EINS OG ÉG 8 og 10.10 VIT422LILO OG STITCH kl. 2, 4 og 6 VIT430
VILLTI FOLINN kl. 2 VIT410FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl. tali kl. 2 VIT430
LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 2 og 4 VIT429
SIGNS kl. 5.50, 8 og 10.10 VIT427
24 HOUR PARY PEOPLE kl. 10.10 VIT431
PLUTO NASH kl. 2, 4, 6 og 8 VIT432
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 VIT 433
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8, 10.10 VIT 435
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 VIT 437
Hvað er að Ske?
Kaffihúsahljómsveitin Skárr’en Ekkert hefur aðallega einbeitt sér að
leikhústónlist síðustu ár. Nú er breyting á og hún birtist nú lands-
mönnum í poppaðri búning en áður, sem Ske. Fyrsta breiðskífan
„Life, Death, Happiness & Stuff“ er komin út.
SKE
Hrannar segir það skiljanlega erfitt fyrir sveitina að leika á tónleikum þar sem liðsmenn búi í mismunandi löndum. Ske verður þó
með á Airwaves hátíðinni í október.
RAGE
Hljómsveitin Rage Against the Machine sló
í gegn með laginu „Killing in the Name.“
Chris Cornell og með-
limir Rage Against the
Machine í samstarf:
Audioslave
taka upp nýja
breiðskífu
TÓNLIST Chris Cornell, fyrrver-
andi söngvari hljómsveitarinnar
Soundgarden hefur stofnað nýja
hljómsveit ásamt fyrrverandi
meðlimum Rage Against the
Machine. Strákarnir kalla sig
Audioslave og eru þeir nú önnum
kafnir við upptökur á fyrstu
breiðskífu sinni sem kemur út
snemma á næsta ári. Cornell
byrjaði að djamma með Tom
Morello og félögum í Rage í febr-
úar á síðasta ári, fjórum mánuð-
um eftir að söngvarinn Zach de la
Rocha yfirgaf sveitina. Þá var
stofnuð ný hljómsveit undir nafn-
inu Civilian. Upptökur á nýju
efni sveitarinnar hófust í maí í
fyrra með Rick Rubin sem upp-
tökustjóra. Í mars á þessu ári,
nokkrum dögum eftir að Civilian
hafði samþykkt að spila á Ozzfest
tónlistarhátíðinni, hætti Cornell í
sveitinni vegna ósættis á milli
umboðsmanna hans og Rage-liða.
Í kjölfarið var hætt við útgáfu
nýrrar breiðskífu sveitarinnar
þrátt fyrir að nokkrum lögum
hafi síðar meir verið lekið á Net-
ið.
Allir aðilar hafa nú náð sáttum
og hefur ný heimasíða Audiosla-
ve, audioslavemusic.com, verið
sett á laggirnar. Einu upplýsing-
arnar sem þar má finna eru þær
að sveitin er starfandi í Los Ang-
eles og Seattle.
Útgáfutónleikar hljómsveitar-innar Leaves verða haldnir á
Nasa næsta fimmtudag, 19. sept-
ember. Frumraun
sveitarinnar,
„Breath“, hefur
verið tekið vel og
skaust platan
beint í þriðja sæti
Tónlistans á
fyrstu viku sinni.
Nóg er að gerast
hjá sveitinni á
næstunni og er búið að staðfesta
tónleikaferðalag um Bretland og
Evrópu sem hefst í október.
Joel Silver, framleiðandi TheMatrix og Lethal Weapon
myndanna, mun stýra nýjum
raunveruleikasjónvarpsþætti
sem tekinn verður til sýningar í
Bandaríkjunum. Í þáttunum verð-
ur leitað að nýjum hasarhetjum
til að leika í kvikmyndinni Hit
Me. Tólf þátttakendur eru skráð-
ir til leiks en leitað var um öll
Bandaríkin að hetjunum. Sigur-
vegarinn fær að búa í Hollywood
þar sem hann fær kennslu í leik-
list og bardagaatriðum.
Leikkonan Elizabeth Hurleymun stýra íshokkýliði skipað
stórstjörnum gegn liði fyrrver-
andi atvinnu-
manna í greininni.
Hurley verður þó
ekki ein við
stjórnvölin því
Dennis Leary og
Steven Tyler úr
Aerosmith verða
henni til hjálpar.
Meðal leikmanna
verða Tim Robbins og Rick Mor-
anis. George Wendt, sem lék
Norm í Staupasteini, stýrir hinu
liðinu. Leikurinn verður háður
29. þess mánaðar.
Bono, söngvari írsku hljóm-sveitarinnar U2, er búinn að
hljóðrita tökulagið That’s Life,
sem Frank
Sinatra gerði vin-
sælt, fyrir kvik-
myndina The
Good Thief. Aðrir
listamenn hafa
lagt sitt af mörk-
unum fyrir tón-
list við kvik-
myndina, svo sem
Leonard Cohen sem flytur lagið
A Thousand Kisses Deep. Bono
er með mörg járn í eldinum því
hann var að gefa út bókina The
aWake, til styrktar baráttunni
gegn alnæmi í Afríku.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI