Fréttablaðið - 14.09.2002, Page 9
9LAUGARDAGUR 14. september 2002
VERÐMÆTI
MIÐAÐ VIÐ TILBOÐ Í 25% HLUT
(í milljónum króna)
Kaldbakur 7.119
S-hópurinn 7.051
Samson 6.709
MIÐAÐ VIÐ 45% HLUT
Kaldbakur 12.815
S-hópurinn 12.692
Samson 12.076
ÚTFLUTNINGUR „Við höfum reynt að
hafa hægt um okkur.
Þetta vinnst á seigl-
unni,“ segir Einar
Oddur Kristjánsson
alþingismaður einn af
þremur eigendum
verksmiðju sem sett
hefur verið á lagginar
á Skagaströnd til að
framleiða bragðefni
úr fiski til nota í sjáv-
a r r é t t a r s ú p u r .
Útflutningur er þegar
hafinn til Bandaríkj-
anna en bragðefnin eru unnin úr
humri, rækju og þorski.
Afkastageta verksmiðj-
unnar er veruleg og
mun hún geta framleitt
hundruð tonna af bragð-
efninu á ári. Þar starfar
þó aðeins einn maður:
„Þetta er þykkt eins
og síróp og markaðssett
undir nafninu „stock -
base“. Það er mikil eft-
irspurn eftir náttúru-
legum bragðefnum og
okkar vara er algerlega
lífræn,“ segir Einar Oddur.
Meðeigendur Einars Odds eru
þeir Steinþór Haraldsson og Stef-
án Jónsson. Fyrirtæki sitt nefna
þeir Sero og undirbúningur fyrir
sölu og þróun bragðefnisins hefur
tekið langan tíma. Hafa danskir
vísindamenn verið þeim innan
handar og að mestu unnið að þró-
un bragðefnisins.
„Við erum byrjaðir að flytja út
til Bandaríkjanna. Þar í landi eru
menn sneggri að taka við sér en
annars staðar,“ segir Einar Odd-
ur.
Árásin á Skeljagranda:
Bræðurnir
áfram í haldi
LÖGREGLA Tveir bræður um tvítugt
voru í gær úrskurðaðir í áfram-
haldandi gæsluvarðhald vegna
gruns um alvarlega líkamsárás á
ungan mann við Skeljagranda 2.
ágúst. Lögreglan óskaði ekki eftir
áframhaldandi gæsluvarðhaldi
yfir föður bræðranna, sem er um
fimmtugt.
Upphaflega átti gæsluvarð-
haldið yfir feðgunum að renna út
18. september, en Hæstiréttur Ís-
lands stytti það um fimm daga á
mánudaginn. Í gær voru bræðurn-
ir síðan úrskurðaðir í gæsluvarð-
hald til 25. október, en faðir þeirra
gengur laus.
EINAR ODDUR
Þetta vinnst á seiglunni.
Alþingismaður hyggur á stórfelldan útflutning ásamt félögum sínum á Skagaströnd:
Bragðefni úr fiski í erlendar
sjávarréttarsúpur
EINKAVÆÐING Einkavæðing Lands-
banka Íslands tók óvænta stefnu
þegar Steingrímur Ari Ararson,
fulltrúi fjármálaráðherra í einka-
væðingarnefnd, sagði af sér vegna
óánægju með störf nefndarinnar.
Vangaveltur um að annarleg sjón-
armið réðu ákvörðun nefndarinn-
ar fengu byr undir báða vængi við
afsögnina.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins var sú verðhugmynd sem
Samson hf. setti fram 3,9 - 3,95
fyrir hlutinn. Það þýðir að miðað
við 25% hlut væru borgaðir 6,7
milljarðar króna. Samkvæmt
sömu heimildum hljóðaði verð-
hugmynd Kaldbaks upp á 4,16 fyr-
ir hlutinn sem er 400 milljón krón-
um hærra en hugmynd Samsonar.
Tilboð S-hópsins var á genginu
4,12. eða rétt rúmir sjö milljarðar
fyrir 25% hlut. Fram hefur komið
að Samson hefur áhuga á að kaupa
allt að 45% hlut í Landsbankanum.
Miðað við þann hlut er mismunur
hæstu og lægstu verðhugmyndar
rúmar 700 milljónir króna.
Björgólfur Thor Björgólfsson,
gagnrýndi það hversu menn ein-
blíndu á verðið og benti á að verð-
ið væri einungis einn þeirra fjög-
urra þátta sem horft væri til.
Hann gagnrýndi ógagnsætt ferli í
einkavæðingunni, ásamt því að
gagnrýna sölu á stórri eign eins og
Vátryggingafélagi Íslands út úr
bankanum í miðju söluferli.
Björgólfur hefur reynslu af þátt-
töku í einkavæðingu í Búlgaríu.
„Forsendurnar voru mjög skýrar
og við vissum að hverju við geng-
um,“ segir hann um þá reynslu.
Forsvarsmenn hinna hópanna
láta lítið uppi, en greinileg óá-
nægja er í þeirra hópi með hvern-
ig að tilkynningu var staðið.
Einkavæðingarnefnd sendi til-
kynningu um niðurstöðu sína til
tilboðsgjafa á sama formi og á
sama tíma og til fjölmiðla. Hóp-
arnir hafa ekki fengið neinn rök-
stuðning með ákvörðuninni.
Venjan við útboð af þessu tagi
er sú að annað hvort er keppt á
grunni verðs, eða svonefndrar
fegurðarsamkeppni. Í fegurðar-
samkeppni eru hugmyndir um
framtíðarsýn, fjármögnun og getu
og reynslu til að takast á við verk-
efnið skoðaðar. Að því loknu er
farið að ræða verðhugmyndir. Sér-
fræðingar eru á því að það að stey-
pa verðinu inn í fegurðarsam-
keppnina hafi verið mikil mistök.
Mistök sem hafi flækt ferlið og átt
þátt í að skapa þau vandamál og þá
tortryggni sem nú er komin upp.
Ein höfuðástæðan sem nefnd
hefur verið fyrir ákvörðun einka-
væðingarnefndar er sú að Samson
komi með erlent fé inn í hagkerfið.
Það sé því þjóðhagslega hag-
kvæmt að ganga til viðræðna við
þá. Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að Kaldbakur hafi verið
með bakhjarl í sænskum banka,
þannig að nýtt fé hefði einnig get-
að komið inn á markaðinn hefði
þeirra tilboði verið tekið. Sam-
kvæmt heimildunum mun hafa
verið eftir því gengið að formaður
einkavæðingarnefndar talaði
skýrt um það hversu stóran hluta
ríkið hefði í hyggju að selja. Svör-
in munu hafa verið loðin. Sænski
bankinn taldi ekki grundvöll fyrir
aðkomu nema að í boði væru að
lágmarki 35% Í bankanum. Um-
ræða um að allt að 45% verði seld
er því eins og köld vatnsgusa
framan í Kaldbaksmenn.
Steingrími Ara Arasyni blöskr-
aði vinnubrögð nefndarinnar. Við-
brögð hans hafa því vakið margar
spurningar sem hann mun eflaust
svara að einhverju leyti eftir að
Ríkisendurskoðun hefur farið yfir
málið. Fyrirfram er ekki búist við
miklum tíðindum frá Ríkisendur-
skoðun. Einkavæðingarnefnd er
með mat breska bankans HSBC
sem mælti með sölu til Samsonar.
Ríkisstjórnin ber pólitíska ábyrgð
á málinu. Flestir sem rætt hefur
verið við telja að Ríkisendurskoð-
un muni koma með almennar at-
hugasemdir um framkvæmd
einkavæðingar, en ólíklegt sé að
um stórkostlegar ákúrur verði að
ræða. Hins vegar bíða margir
spenntir eftir því hversu mikið af
efnislegri gagnrýni Steingríms
Ara komi upp á yfirborðið. Í henni
gæti verið töluvert pólitískt
sprengiefni. Afstaða hans vegur
þungt. Hann er fyrrverandi að-
stoðarmaður fjármálaráðherra og
nýtur virðingar fyrir samvisku-
semi og eindrægni innan Sjálf-
stæðisflokksins. Þegar slíkur mað-
ur stígur fram og segist aldrei
hafa kynnst öðrum eins vinnu-
brögðum á ellefu ára ferli í einka-
væðingarnefnd, hlýtur að vera
eftir því tekið.
haflidi@frettabladid.
Samson var ekki einn
með erlent fjármagn
Einn þáttur vandræða einkavæðingarnefndar var að blanda saman verðhugmyndum og áreið-
anleikaþáttum í fyrstu lotu. Kaldbakur var með hæsta boð og erlendan fjárfesti á bak við sig.
Bjóðendur fengu óljósar upplýsingar um hve mikinn hluta bankans átti að selja.
EINKAVÆÐINGARVANDRÆÐI
Söluferli Landsbanka Íslands dregur dilk á eftir sér. Nýtt fé inn á íslenskan fjármálamarkað var í boði frá fleirum en einum tilboðsgjafa.
Smáauglýsingadeild Fréttablaðsins Þverholti 9, 105 Reykjavík: Sími 515 7500 Veffang: frett.is
smáauglýsingar Nú er opið lengur
Um helgina svörum við
í 515 7500
frá kl. 13 til 17
Við erum
á frett.is
allan sólarhringinn
Við tökum á móti þér í Þverholti 9 alla virka daga frá kl. 8 til 19
Öflugur heimamarkaður
Skytta á þjóðveginum:
Skaut gæs út
um gluggann
LÖGREGLUMÁL Maður sem átti leið
um Vatnsskarð í Austur Húna-
vatnssýslu gerði sér lítið fyrir og
hóf að skjóta á gæsir út um glug-
ga bifreiðar sinnar í gær.
Maðurinn hitti eina gæs og
særði. Hann hafði þó ekki fyrir
því að sækja hana heldur lét hana
liggja þar sem hún féll. Fólk sem
átti leið um varð vitni að aðförum
mannsins og hafði samband við
lögreglu.
Lögreglan hafði upp á mannin-
um sem verður kærður fyrir at-
hæfið.