Fréttablaðið - 14.09.2002, Síða 11
11LAUGARDAGUR 14. september 2002
ÍSLENSK ERFÐAGREINING Baldur
Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í
fjármálaráðuneytinu, vann lög-
fræðistörf fyrir Kára Stefánsson
og Íslenska erfðagreiningu áður
en hann tók við starfi ráðuneytis-
stjóra. Nú situr hann í ráðuneyt-
inu og hefur ríkisábyrgð til
handa fyrirtækinu og fyrrum
samstarfsfélaga til meðferðar.
Telur Baldur það á engan hátt
óviðeigandi. Hjá slíku verði
aldrei komist í litlu landi:
„Ég vann fyrir Íslenska erfða-
greiningu sem sjálfstætt starf-
andi lögmaður áður en ég skipti
um starf fyrir tveimur árum og
gerðist ráðuneytisstjóri,“ segi
Baldur og leggur áherslu á að
hann komi ekkert að ákvörðunar-
töku varðandi ríkisábyrgð til fyr-
irtækisins: „Það var alþingi sem
samþykkti heimild til ríkisá-
byrgðar og svo er það fjármála-
ráðherrans að ákveða hvort hún
verður veitt. Ég kem ekki í neinu
að ákvörðunartöku í því máli,“
segir Baldur og bætir því við að
erfitt sé að komast fram hjá
tengslum manna í opinberum
störfum hér á landi. Gamlir
skólafélagar og aðrir kunningjar
frá árum áður komi einatt við
sögu á ýmsan hátt þegar mál séu
til meðferðar og svo sé einnig í
sambandi við tengsl hans við Ís-
lenska erfðagreiningu.
„Störf mín fyrir Íslenska
erfðagreiningu, áður en ég hóf
störf hér í fjármálaráðuneytinu,
fólust meðal annars í því að koma
hugmyndum fyrirtækisins á
framfæri við heilbrigðisráðu-
neytið,“ segir Baldur og á þar við
12 ára einkaleyfi fyrirtækisins til
að notfæra sér gagnagrunn á
heilbrigðissviði sem veitt var af
heilbrigðisráðherra. „Ég tel
stöðu mála alls ekki óheppilega
fyrir mig því ég er ekki á oddin-
um í þessu máli og tek engar
ákvarðanir,“ segir ráðuneytis-
stjórinn.
Ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis fjallar um ríkisábyrgð Íslenskrar erfðagreiningar:
Vann fyrir Kára áður fyrr Ferðamálaráð og Ferðamálasam-tök Íslands gangast fyrir opn-um fundi um ferðamál í sal Þróun-
arseturs Vestfjarða á Ísafirði á
mánudaginn.
Airbus A340-500 þota var viðprófanir í lendingum í hliðar-
vindi á Keflavíkurflugvelli í fyrra-
dag. Þotan mun vera langdrægasta
farþegaþota í heimi.
Hjólreiðaklúbbur d-vaktarNorðuráls stóð fyrir hjólreiða-
keppni í sumar sem fékk nafnið
Tour de Norðurál, eftir keppninni
frægu í Frakklandi. Alls voru níu
mót haldin í sumar þar sem hjólað
var frá Grundartanga til Akraness
ýmist norðan eða sunnanmegin við
Akrafjall. skessuhorn.is
INNLENT
INNLENT
ÍSLENSK ERFÐAGREINING
Ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins
vann áður fyrir fyrirtækið.
Sænskum jafnaðarmönn-
um ekki skemmt:
„Pólitískt
skemmd-
arverk“
STOKKHÓLMUR, AP Jafnaðarflokkur-
inn í Svíþjóð segir að unnið hafi
verið „pólitískt skemmdarverk“ á
flokknum rétt fyrir kosningarnar.
Svo virðist sem einhverjir and-
stæðingar flokksins hafi notað
kennitölur rúmlega 80 flokksmeð-
lima, þar á meðal tveggja ráð-
herra í minnihlutastjórn flokks-
ins, til þess að sækja um ýmis
konar styrki frá hinu opinbera.
Sótt var um á Internetinu.
Einnig höfðu verið sendar inn
umsóknir fyrir suma flokksmenn
um skilnað, nafnbreytingar og
flutning úr landi. Þá höfðu nöfn
sumra verið notuð til að bóka flug-
ferðir og hótelherbergi.
Lögreglan á Ísafirði:
Fundu 200
sveppi og
amfetamín
LÖGREGLUMÁL Tvö hundruð sveppir
og lítilræði af amfetamíni fundust
við leit í bíl um tvöleytið í fyrra-
dag sem var á leið til Ísafjarðar
frá Reykjavík. Lögreglan á Ísa-
firði stöðvaði ökumanninn í
Hestafirði en grunur hafði vaknað
að maðurinn, sem hefur sögu
tengda fíkniefnamisferli, hefði
fíkniefni í fórum sínum og hafi
stundað dreifingu á efnum á norð-
anverðum Vestfjörðum.
Maðurinn, sem er rúmlega
þrítugur og búsettur á Ísafirði,
neitaði lögreglu að leita í bíl sín-
um. Lagði Lögreglustjórinn á Ísa-
firði því fram kröfu um leitar-
heimild sem Héraðsdómur Vest-
fjarðar heimilaði samdægurs.
Við leitina fundust fyrrgreind
fíkniefni. Manninum var sleppt
að lokinni yfirheyrslu og telst
málið upplýst.
Síldarvertíðin:
Slæmar
söluhorfur
SJÁVARÚTVEGUR Söluhorfur fyrir
síld eru frekar slæmar að sögn
Hermanns Stefánssonar, fram-
leiðslustjóra hjá Skinney Þinga-
nesi á Höfn í Hornafirði. Hann
sagði að árið í fyrra hefði verið
mjög gott og sú verðhækkun sem
þá hefði orðið truflaði kannski söl-
una núna.
Hermann sagði að ef til vill
hafi verðið verið of hátt í fyrra og
hinn almenni neytandi ekki ráðið
við það. Það sem búið væri að
framleiða fram að þessu hefði
selst á mikið lægra verði en í
fyrra. Hann sagði að verðið hefði
lækkað um 30% í erlendri mynt
og þegar búið væri að taka þróun
íslensku krónunnar inn í reikning-
inn væri lækkunin enn meiri.
Hermann sagði ómögulegt að
spá fyrir um veiðihorfur. Veiðin
hefði ekki gengið neitt sérstak-
lega vel í fyrra en menn vonuðu
bara það besta í ár.
KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR
Bætist í hóp þeirra sem gefa kost á sér í
prófkjöri Samfylkingar í suðvesturkjör-
dæmi.
Katrín Júlíusdóttir fer í
framboð:
Stefni á
annað til
þriðja sæti
FRAMBOÐ „Þetta er mikil hvatning
og góð. Ég er þakklát fyrir hana.
Ég hef legið yfir þessu í nokkurn
tíma. Þetta ýtti mér yfir brúna. Ég
ætla að verða við þessari hvatn-
ingu Ungra jafnaðarmanna í
Hafnarfirði,“ segir Katrín Júlíus-
dóttir, varaformaður fram-
kvæmdastjórnar Samfylkingar og
fyrrum formaður Ungra jafnaðar-
manna, sem gefur kost á sér í
prófkjöri Samfylkingarinnar í
suðvesturkjördæmi.
„Ég sækist eftir öruggu sæti.
Ég vil verða fulltrúi þessarar nýju
kynslóðar og set markið á annað
til þriðja sæti,“ segir Katrín.
„Þetta er heilmikið skref að taka.
En ég er tilbúin í þennan slag og
vil gjarnan berjast fyrir málstað
unga fólksins. Vera rödd þess inni
á Alþingi.“
TÓNLIST Stuðmenn hafa sent frá
sér nýja ljósmynd í tilefni af tón-
leikum sem sveitin heldur í Þjóð-
leikhúsinu 1. október næstkom-
andi. Á ljósmyndinni gætir mik-
illa indverskra áhrifa enda hefur
Jakob Frímann Magnússon tölu-
vert dvalið í Indlandi í viðskipta-
erindum og hyggst framleiða
Stuðmannakvikmynd sem gerist
bæði á Íslandi og Indlandi:
„Sum okkar eru vissulega und-
ir indverskum áhrifum enda allt
gamlir hippar,“ segir Jakob Frí-
mann. „Einu sinni hippi, alltaf
hippi,“ bætir hann við.
Tónleikar Stuðmanna í Þjóð-
leikhúsinu um mánaðamótin telj-
ast til tíðinda í reykvísku tónlist-
arlífi enda hafa Stuðmenn ekki
fyrr komið þar fram. Með hljóm-
sveitinni munu koma fram Borg-
ardætur, Guðrún Gunnarsdóttir
og blásarar úr Jagúar. Miðasala
hefst í Þjóðleikhúsinu á mánudag-
inn.
STUÐMENN Í NÝJU LJÓSI
Klæða sig upp á indversku og koma fram í
Þjóðleikhúsinu.
Stuðmenn í Þjóðleikhúsinu 1. október:
Indversk áhrif
HEILBRIGÐISMÁL Ríkisendurskoðun
segir núverandi fyrirkomulag rík-
isins við kaup á sérfræðiþjónustu
lækna ómarkvisst. Aukin hag-
kvæmni fengist með því að gera
kaupin markvissari.
Í nýrri skýrslu Ríkisendur-
skoðunar um samninga Trygging-
arstofnunar vegna sérfræðilækna
kemur fram að
kostnaður stofnun-
arinnar vegna
kaupa á þjónustu
læknanna jókst um
133% á árunum
1997 til 2001. 42%
hækkunarinnar er
vegna kaupa á
meiri þjónustu,
24% vegna hækk-
unar á sjálfu verði
þjónustunnar og
32% vegna þess að
sjúklingar hafa greitt minna sjálf-
ir af heildarkostnaðinum.
Ríkisendurskoðun segir að eft-
irlit með samningum við sér-
fræðilækna hafi bæði kostnaðar-
lega og faglega verið ófullnægj-
andi á árunum 1998 til 2001.
Tryggingarstofnun er hvött til að
efla eftirlitið. Á árinu 2001 greid-
di stofnunin rúman 1,5 milljarð
fyrir þjónustu klínískra sérfræði-
lækna.
Að sögn Ríkisendurskoðunar
eru lög um heilbrigðisþjónustu
ekki í samræmi við veruleikann. Í
lögum sé gert ráð fyrir að sér-
fræðiþjónusta sé veitt af læknum
sem starfa á sjúkrahúsum eða
heilsugæslustöðvum. Alkunna sé
þó að þar sé þjónustan almennt
ekki í boði. Hún sé veitt á einka-
stofum læknanna út í bæ sem séu
nú í raun orðin ein þriggja megin-
stoða heilbrigðisþjónustunnar.
Ríkisendurskoðun segir engar
hömlur á því að læknar sem star-
fa á sjúkrahúsum séu með einka-
stofu út í bæ. Afleiðingin sé að
sjálfstætt starfandi stofulæknar
séu samtímis í allt að 75% sjúkra-
hússtarfi og í umfangsmiklum
stofurekstri sem dæmi séu um að
svari til allt að 2,7 stöðugilda.
Ríkisendurskoðun telur að kanna
beri hvort ekki beri að setja
læknunum hömlur að þessu leyti,
eins og tíðkist til dæmis í Dan-
mörku
Ríkisendurskoðun segir að
þrátt fyrir að meginregla heil-
brigðisráðuneytisins sé sú að
samskipti sjúklings og læknis
hefjist á heilsugæslustöð eða
sjúkrahúsin hafi frjáls aðgangur
að sérfræðilæknum leitt til þess
að samskiptin hefjist oft á stofum
þeirra. Ráðuneytið verði að taka
skýra afstöðu í hvernig hún vilji
hátta þessu og fylgja því eftir.
gar@frettabladid.is
JÓN KRISTJÁNSSON
Heilbrigðisráðuneytið er hvatt til að setja
reglur í samræmi við veruleikann og fylgja
þeim eftir.
Sérfræðikostnaður
þenst eftirlitslítið út
Ríkisendurskoðun segir eftirlit með opinberum kaupum á þjónustu sér-
fræðilækna vera ófullnægjandi. Kostnaður Tryggingarstofnunar vegna
þátttöku á sérfræðikostnaðinum óx um 133% á fjórum árum. Engar
hömlur er á einkarekstri sjúkrahúslækna.
Afleiðingin sé
að sjálfstætt
starfandi
stofulæknar
séu samtímis í
allt að 75%
sjúkrahússtarfi
og í umfangs-
miklum stofu-
rekstri.
TRYGGINGARSTOFNUN
Ríkisendurskoðun segir að eftirlit með samningum við sérfræðilækna hafi bæði kostnað-
arlega og faglega verið ófullnægjandi. Tryggingarstofnun er hvött til að efla eftirlitið.
Gjaldþrotabeiðnum hefurfjölgað hjá Héraðsdómi Vest-
fjarða á síðustu tveimur árum.
Það sem af er þessu ári hafa ver-
ið lagðar inn hjá dómnum 32 slík-
ar beiðnir, en sé reiknað með
jöfnu streymi má gera ráð fyrir
því að við árslok 2002 verði þær
orðnar 45. Árið 2001 voru gjald-
þrotabeiðnirnar 40 en árið 2000
voru þær 33.
Bæjarráð Vesturbyggðar hefurmælt með því að bæjarstjórn
friðlýsi bæjarfélagið fyrir kjarn-
orkuvopnum. Þetta var samþykkt
á fundi bæjarráðs í gær og kem-
ur samþykktin í kjölfar erindis
frá Samtökum herstöðvaandstæð-
inga.