Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.09.2002, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 14.09.2002, Qupperneq 12
12 14. september 2002 LAUGARDAGURFÓTBOLTI ÁFRAM FÍLABEINSSTRÖNDIN Maður gengur hér um á knattspyrnuvellin- um og hvetur aðdáendur fyrir leik Fíla- beinsstrandarinnar og Suður-Afríku. Mað- urinn var málaður í litum þjóðfána Fíla- beinsstrandarinnar. ÍÞRÓTTIR UM HELGINA HANDBOLTI Haukar munu fara með sigur af hólmi í 1. deild karla í handbolta ef spá forráðamanna, þjálfara og fyrirliða gengur eftir. Haukar fengu 304 stig. Val er spáð öðru sæti, með 298 stig, og Gróttu/KR því þriðja. Athygli vek- ur að Íslandsmeisturum KA er spáð áttunda sætinu með 193 stig, en liðið hefur misst marga leik- menn frá því á síðasta tímabili. Selfoss og Víkingum er spáð neðs- tu sætum deildarinnar. Íslandsmótið hefst í dag með fimm leikjum. Stjarnan tekur á móti FH, HK á móti Þór, KA fær Selfoss í heimsókn, Valur fær ÍR og í Víkinni mætast Víkingur og Afturelding. Allir leikirnir hefjast klukkan 16.30. Á morgun taka Haukar á móti ÍBV að Ásvöllum og Grótta/KR fær Fram í heimsókn. ÍBV er spáð sigri í 1. deild kvenna en Eyjastúlkur fengu 157 stig, sex stigum meira en Haukar. Víkingi er spáð þriðja sætinu, Stjörnunni því fjórða og Val því fimmta. Sameinað lið Fylkis/ÍR er spáð botnsætinu ásamt Fram. Í fyrstu umferð kvennaboltans mætast Valur og FH, ÍBV og KA/Þór, Víkingur og Stjarnan, Grótta/KR og Fylkir/ÍR.  Spá fyrir 1. deildina í handbolta: Haukum og ÍBV spáð sigri SPÁ FORRÁÐAMANNA, ÞJÁLFARA OG FYRIRLIÐA Karlar: Haukar 304 stig Valur 298 stig Grótta/KR 246 stig ÍR 237 stig HK 215 stig FH 206 stig Þór 202 stig KA 193 stig Afturelding 193 stig Fram 177 stig ÍBV 121 stig Stjarnan 101 stig Víkingur 60 stig Selfoss 58 stig SPÁ FORRÁÐAMANNA, ÞJÁLFARA OG FYRIRLIÐA Konur: ÍBV 157 stig Haukar 151 stig Víkingur 129 stig Stjarnan 128 stig Valur 107 stig FH 76 stig Grótta/KR 72 stig KA/Þór 52 stig Fram 30 stig Fylkir/ÍR 30 stig Laugardagur 10.30 Sýn Leeds - Man. Utd. 10.50 RÚV Formúla 1 14.00 Stjörnuvöllur 1. deild karla (Stjarnan - Valur) 14.00 Valbjarnarvöllur 1. deild karla (Þróttur R. - Breiðablik) 14.30 Valsheimili Valur - FH 14.30 Vestmannaeyjar ÍBV - Þór Ak. 14.30 Víkingsheimili Víkingur - Stjarnan 16.30 Seltjarnarnes Grótta/KR - Fylkir/ÍR 16.30 Ásgarður Stjarnan - FH 16.30 Digranes HK - Þór 16.30 Valsheimili Valur - ÍR 16.30 Víkin Víkingur - UMFA 01.00 Sýn Hnefaleikar-Oscar de la Hoya Sunnudagur 11.30 RÚV Formúla 1 13.40 Sýn Símadeildin (Fylkir - KR) 14.00 Fylkisvöllur Símadeild karla (Fylkir - KR) 14.00 Keflavíkurvöllur Símadeild karla (Keflavík - KA) 14.00 Laugardalsvöllur Símadeild karla (Fram - FH) 14.00 Akureyrarvöllur Símadeild karla (Þór A. - Grindavík) 14.00 Hásteinsvöllur Símadeild karla (ÍBV - ÍA) 17.00 Ásvellir Haukar - ÍBV 20.00 Seltjarnarnes Grótta/KR - Fram Fylkismenn geta á morgun tryggt sér Íslandsmeistaratitil karla í knattspyrnu í fyrsta sinn í sögu félagsins. Liðið mætir þá marg- földum Íslandsmeisturum KR á heimavelli sínum í Árbænum klukkan 14.00 og er búist við hörkuleik. Um er að ræða næst síð- ustu umferðina í deildinni. Með sigri er titillinn í höfn hjá Fylki en vinni KR geta þeir klárað mótið með sigri í lokaumferðinni á móti botnliði Þórs á heimavelli sínum í Frostaskjóli. Tvísýnn úrslitaleikur í Símadeildinni Bubbi Morthens: Vonar að KR taki titilinn Ég held og ég vona aðKR-ingar taki titilinn. Styrkur KR í sumar hafa verið útileikirnir og þeir eru með bestu útkomu liða úr útileikjum. KR-liðið er líka með bestu tölfræðina yfir mikilvægustu mörk- in,“ segir Bubbi Morthens, tónlistarmaður og KR-ing- ur með meiru. „Fylkir hef- ur ekki náð jafn langt í deildinni á undanförnum árum og nú. Þeir hafa yfir- leitt dalað fyrr, taugarnar hafa bilað. Ég held að þetta geti jafnvel orðið of mikil pressa og þeir sprin- gi á limminu.“ Aðspurður hvaða lið Bubbi telur að falli niður í 1. deild sagði hann. „Ég vil ekki einu sinni tjá mig um það.“  Ólafur Þórðarson, Kominn tími á að klára mótið Ég vona að Fylkir vinnimótið enda er þetta gamla liðið mitt,“ segir Ólafur Þórðarson, þjálfari Íslandsmeistara Skaga- manna. „Fylkis liðið hefur verið að spila ágætlega og þó það hafi ekki verið að spila stöðugan leik í sumar þá hefur það verið stöðug- ast allra liða.“ Ólafur býst við hörkuleik hjá KR og Fylki á sunnudaginn. „Fylk- ismenn hafa ekki verið að spila vel upp á síðkastið en þeir eru kannski á uppleið nú eftir góðan sigur í bik- arnum. Það er kominn tími á að þeir klári mótið. Þeir eru búnir að klúðra því tvö síðustu ár og vita nú hvað þarf til að klára þetta.“ Ólafur telur að Þórsarar eigi eftir að falla niður í fyrstu deild. „Það er samt erfitt að segja til um hvaða lið fari niður með þeim.“  Sigurður G.: Tími Fylkis- manna kominn Ég er Valsari en á tværdætur í Fylki þannig að ég held líka með Fylki,“ segir Sigurður G. Guðjóns- son, forstjóri Norðurljósa. Sigurður á heima við hlið- ina á Fylkisvellinum og hefur farið á alla heima- leiki þeirra í sumar. Auk þess hefur hann farið á fimm leiki með Val. „Ég held að leikurinn fari 2:0 fyrir Fylki,“ segir Sigurð- ur aðspurður um lokatölur leiksins við KR. „Nú er tími þeirra kominn.“ En hvaða lið falla? „Ætli ég verði ekki að segja að Fram falli núna, það er kominn tími á það. Þeir sluppu fyrir horn í fyrra og þá féllu mínir menn óverðskuldað. Mér sýnist á öllu að Þórsararnir fylgi þeim,“ segir Sigurður.  Lúkas Kostic: Taugarnar skipta miklu Það skiptir öllu máli hvortliðin hafi sterkar taug- ar,“ segir Lúkas Kostic, þjálfari Víkings. „Fylkir er að berjast um fyrsta titil í sögu félagsins og það á eftir að hafa mikil áhrif á liðið. Fylkis-liðið er búið að spila mjög vel í sumar og verð- skuldar að vinna titilinn. Ég held að KR-ingar hafi meiri taugar í þennan leik og flestir leikmenn liðsins hafa spilað svona úrslitaleiki áður. Þetta verður mikið taugastríð. Það hefur sýnt sig að taugarnar geta ráðið úrslitum frekar en eitthvað annað.“ Lúkas telur að Þór muni falla en erfitt sé að spá fyrir um hverjir fylgi þeim eftir. „Ég veit ekki hvaða áhrif bikarleikurinn hefur á Fram kannski þjappar það þeim saman. Annars þori ég ekki að spá hverjir falla.“  Dagur B.: Allir í gríðar- lega fínu formi Við Fylkismenn tökumþetta 3:1,“ segir Dagur B. Eggertsson, læknir og borgarfulltrúi, aðspurður um úrslit í leik Fylkis og KR. „Ég kíkti á strákana á æfingu á þriðjudaginn og mér sýndist þeir allir vera í gríðarlega fínu formi. Þetta er minn gamli árgangur úr Árbænum. Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að spila með máttastólpunum í lið- inu í yngri flokkunum og urðum við meðal annars Ís- landsmeistarar í 4.flokki. Í mínum huga eru þeir að ljúka því verki.“ Er tími Fylkismanna kominn? „Tvímælalaust. Það sem ég er svo stoltur af varðandi liðið er að það endurspeglar svo mikla tryggð þeirra sem hafa alist upp hjá félaginu við sitt gamla félag,“ segir Dagur.  Skákeinvígi Hreyfils: Efnilegir skákmenn mætast SKÁK Stefán Kristjánsson og Tom- as Oral, frá Tékklandi, mætast í Hreyfilseinvíginu 2002 sem hefst í dag. Stefán er einn efnilegasti skákmaður landsins, með 2428 Elo-stig, og er þegar orðinn Al- þjóðlegur meistari. Tomas Oral, með 2549 Elo-stig, varð Evrópu- meistari 14 ára og yngri og fékk nafnbótin stórmeistari áður en hann náði tvítugsaldrinum. Hann hefur meðal annars lagt Gary Kasaparov að velli. Skákfélagið Hrókurinn stendur fyrir mótinu sem fram fer í Þjóðarbókhlöðunni og er til heiðurs Taflfélagi Hreyf- ils. 

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.