Fréttablaðið - 14.09.2002, Side 22

Fréttablaðið - 14.09.2002, Side 22
22 14. september 2002 LAUGARDAGUR HRÓSIÐ FARIÐ í gallerí Sævars Karls íkjallara verslunar hans í Bankastræti. Þar sýnir Ólöf Björg málverk í bland við hljóð og lykt. Upp á efri hæðina aftur og mátið föt að vild. Sævar Karl aðstoðar en útlistanir hans flokk- ast undir fyrirlestra. Býður oft upp á kaffi með; jafnvel tapas- rétti og kampavín. Hafið með ykkur félaga með myndavél sem tekur myndir af mismunandi klæðnaði sem mátaður er. Farið síðan heim og skoðið myndirnar í tölvunni. Þetta er ágætt á gera á laugardegi. Á sunnudegi er ókeypis í allar kirkjur. Hægt að velja úr fjölda þeirra á höfuð- borgarsvæðinu. Athugið fyrst hvaða prestur messar á hverjum stað. Þeir bestu veita andagift og góður söngur fylgir oft. Mögu- leiki á ókeypis messukaffi á eftir. Skiljið bílinn eftir heima. Farið gangandi og skoðið hús á leiðinni; gardínur og skrautmuni í glugg- um. Bankið upp á ef þið sjáið eitt- hvað athyglisvert og spyrjist fyr- ir um tilurð og uppruna. Reiknið síðan út hversu mikið fé hefur sparast á þessu. Alþjóðadómari, bæjarfull- trúi og aðstoðarskólastjóri Leifur S. Garðarsson er 34 ára gamall. Hann er aðstoðarskólastjóri í Öldutúnsskóla, alþjóðlegur körfuboltadómari og bæjarfulltrúi í Hafnarfirði. Ég spilaði körfubolta sjálfur ogvarð meðal annars bikar- meistari með Haukum. Það vant- aði alltaf dómara og eftir að ég byrjaði að dæma slapp maður ekki út úr því aftur,“ segir Leifur S. Garðarsson, körfuboltadómari. Leifur byrjaði að dæma árið 1987 og varð alþjóðlegur dómari 1993. Dæmdi hann meðal annars tólf leiki erlendis á síðasta keppnis- tímabili. „Þetta er mjög gaman og félagsskapurinn er sérstaklega góður. Það er samstilltur og skemmtilegur hópur dómara hér á Íslandi.“ Leifur er jafnframt aðstoðar- skólastjóri í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði auk þess sem hann situr í bæjarstjórn fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Hann hefur þegar setið tvo bæjarstjórnar- fundi og segir mjög gaman að kynnast þessum nýja vettvangi. „Ég hef aðallega áhuga á því sem gerist í Hafnarfirði, vegi bæjar- ins og framtíð,“ segir Leifur að- spurður hvort hann hafi brenn- andi áhuga á stjórnmálum. Leifur, sem er kennari að mennt, stundar auk þess stjórnunarnám við Kennaraháskólann og er þar hálfnaður með tveggja ára nám. Hvernig gengur honum að samræma þetta allt saman? „Þeg- ar ég var yngri og í skóla var mað- ur á sama tíma í handbolta, fót- bolta og körfubolta. Þá varð mað- ur að skipuleggja sig og ég held ég hafi náð að gera það ágætlega.“ Aðspurður um áhugamál segir Leifur að þetta séu allt áhugamál hans. „Það er oft vinsælt að segja að fjölskyldan sé áhugamálið en ég lít ekki á hana þannig. Maður reynir bara að eyða tíma með henni eins og maður mögulega getur,“ segir Leifur að lokum. freyr@frettabladid.is PERSÓNAN Það eina sem gerist núna er aðárin hlaðast upp,“ segir Guðjón Þórðarson, knattspyrnuþjálfari hjá Start í Noregi, sem á 48 átta ára afmæli í dag. Þegar Fréttablað- ið náði tali af Guðjóni var hann að koma úr göngutúr sem endaði með ósköpum. „Ég ætlaði að stytta mér leið yfir fjöru en sökk ofan í ein- hverjar drullu enda 0,1 tonn að þyngd,“ segir Guðjón. Hann segist oft gera eitthvað sérstakt á afmælisdegi sínum en það fari allt eftir aðstæðum. Nú fagnar hann afmælinu á ferðalagi með Start sem leikur í norsku úr- valsdeildinni. Landsliðsþjálfarinn fyrrver- andi segist eiga marga eftirminni- lega afmælisdaga. „Ég spilaði einu sinni við Everton á afmælisdaginn minn, árið 1995. Þá var ég við stjórnvölinn hjá KR. Leikurinn var á Laugardalsvellinum og endaði 3- 2. Það var mjög eftirminnilegt. Svo á ég margar fallegar minningar frá æsku minni.“ Start kemur frá bænum Kristi- ansand sem er syðst í Noregi. Guð- jón segir bæinn afar fallegan og þar sé gott að vera. Í Kristiansand búa um hundrað þúsund manns. „Það er ekkert að því að vera hér. Nú er hitinn rúmlega tuttugu stig og sólin brennir á manni skallann.“ Start er sem stendur í neðsta sæti deildarinnar og telur Guðjón að liðið nái ekki að bjarga sér frá falli. Samningur hans rennur út eftir þetta tímabil. Hann segist ekki vita hvað taki við. Stefnan er þó sett á England þar sem hann bjó um tíma og þjálfaði lið Stoke City. Hann kom liðinu upp í fyrstu deild en samningur hans var ekki endur- nýjaður. „Ég fylgist vel með Stoke enda er sonur minn að spila með liðinu,“ segir Guðjón. Hann segir að ekki sé hægt að hrópa húrra fyrir ár- angri liðsins eins og staðan er nú. Aðspurður hvort hann hefði geta náð betri árangri sagði Guðjón. „Við skulum orða það þannig að ég hefði ekki getað gert verr.“ kristjan@frettabladid.is Guðjón Þórðarson, fyrrverandi þjálfari íslenska landsliðsins í knattspyrnu og enska liðsins Stoke City, er 48 ára í dag. Hann býr nú í Noregi þar sem hann þjálfar lið Start. Afmæli Á marga eftirminnilega afmælisdaga FÓLK Í FRÉTTUM LEIFUR S. GARÐARSSON Leifur, sem er uppalinn í Hafnarfirði, segist hafa mikinn áhuga á bæjarmálum. Hann er meðal annars í fjölskylduráði á vegum bæjarstjórnar. Hann segir Öldutúnsskóla vera skemmtilegan skóla og starfsliðið þar sé einstaklega gott. Fremur fámennt var á skrif-stofum Alþingis í gær. Starfsfólki var boðið í árlega haustferð og var farið gullna hringinn, Þingvellir, Gullfoss og Geysir skoðuð. Flestir starfs- menn skelltu sér með í ferðina og lágmarksviðbúnaður í þing- húsinu af þeim sökum. Samfylkingarfólk er farið aðleita að fólki til að stýra kosningabaráttu flokksins fyrir komandi þingkosningar. Nokkuð mun hafa verið þrýst á Ingvar Sverrisson, sem stýrði kosn- ingabaráttu Reykjavíkurlistans við góðan róm, að taka að sér að stýra baráttunni fyrir Samfylk- inguna. Enn mun þó ekkert ákveðið. Leikskáldafélag Íslands telurað sérstakt fagnaðarefni að innlendri samtímaleikritun sé gert hátt undir höfði í verkefna- vali Þjóðleikhússins. Öllu verra þykir félaginu hversu illa leik- listargagnrýnendurnir Jón Við- ar Jónsson og Sturla Sigurjóns- son hafa tekið stefnubreyting- unni. Jón Viðar ræddi verkefna- val stóru leikhúsanna af miklum eldmóð í tveimur þáttum Ís- lands í dag og fann íslenskum samtímaleikritum ýmislegt til foráttu og efaðist um að stefnu- breyting Þjóðleikhússins væri gæfuskref. Leikskáldafélagið telur þetta „tilfinningalega“ uppnám og neikvæð viðbrögð við boðaðri dagskrá Þjóðleik- hússins hafa gert þá vanhæfa til að fjalla opinberlega um nýja, innlenda leikritun á komandi vetri. MEÐ SÚRMJÓLKINNI Hvenær geturðu verið viss umað lögfræðingur segi sann- leikann? Þegar hann er með lokaðan munn. GUÐJÓN ÞÓRÐARSON Enska knattspyrnuliðið Tranmere Rovers bauð Guðjóni samning. Hann ákvað að ganga ekki til samninga en segir stefnuna þó setta á England. SAGA DAGSINS 14. SEPTEMBER TÍMAMÓT Flugvélin Geysir brotlenti áBárðarbungu á Vatnajökli, á leið frá Lúxemborg til Reykjavík- ur, árið 1950. Sex manna áhöfn komst lífs af. Flugvélin, sem var í eigu Loftleiða, fannst fjórum dögum síðar. Kristján Eldjárn lést árið 1982.Hann var þjóðminjavörður í rúma tvo áratugi og forseti Ís- lands frá 1968 til 1980. Vestfjarðagöng, milli Önundar-fjarðar, Súgandafjarðar og Ísafjarðar voru formlega opnuð árið 1996. Þau eru samtals níu kílómetra löng og kostuðu 4,3 milljarða króna. Theodore Roosevelt varð 26.forseti Bandaríkjanna árið 1901, tólf klukkustundum eftir dauða fyrirrennara síns, McK- inley, sem var skotinn af anar- kista 6. september. JARÐARFARIR 11.00 Ragnheiður Þorgeirsdóttir, Helgafelli, Helgafellssveit, verður jarðsungin frá Helgafellskirkju. 14.00 Guðmundur M. Ólafsson, Fjarð- arstræti 6, Ísafirði, verður jarð- sunginn frá Ísafjarðarkirkju. 14.00 Gísli Konráð Geirsson, Kálfastöð- um, Vestur-Landeyjum, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju. 14.00 Jón Hannesson, Húnabraut 22, Blönduósi, verður jarðsunginn frá Blönduóskirkju. 14.00 Sigurgeir Valmundsson, Borgar- sandi 1, Hellu, verður jarðsunginn frá Oddakirkju 15.00 Ólöf Guðmundsdóttir, áður hús- freyja á Ytri-Löngumýri, Austur- Húnavatnssýslu, verður jarðsett í heimagrafreit á Guðlaugsstöðum í Blöndudal. AFMÆLI Guðjón Þórðarson knattspyrnuþjálfari er 47 ára. ANDLÁT Guðbjörg Jónsdóttir, Hvammi, Húsavík, lést 12. september. Hjálmtýr E. Hjálmtýsson, Sólvallagötu 33, lést á Landakotsspítala 12. septem- ber. Ingólfur Bjarnason frá Vestmannaeyj- um, Þangbakka 8, Reykjavík, lést 12. september. Að gefnu tilefni skal tekið fram að Mörður Árnason vinnur ekki að gerð sjónvarps- þáttar um hvernig gera megi Ísland að fá- tækasta landi heims. Leiðrétting FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI Heimsendingar og sótt! O p n u n a r t í m i : 1 1 - 0 1 v i r k a d a g a o g 1 1 - 0 6 u m h e l g a r Grensásvegur 12 533 2200 Tilboð sótt 1. 12“ m/3 álegg og 1/2 litr. gos 990 kr,- 2. 16“ m/2 áleg. og 2 litr. gos 1.390 kr,- 2 fyrir 1 Pizza að eigin vali a) ostabrauðstangir eða b) hvítlauksbrauð 12“ og önnur pizza af sömu stæð FRÍTT (greitt er fyrir dýrari pizzuna) Tilboð sent 1. 12“ m/3 álegg og 1litr. gos 1.490 kr,- 2. 16“ m/3 álegg og ostabrauðstangir eða 2 litr. gos. 1.900 kr,- 3. 18“ m/3 áleg. og ostabrauðstangir eða 2 litr. gos 2.390 kr,-

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.