Fréttablaðið - 14.09.2002, Qupperneq 23
23LAUGARDAGUR 14. september 2002
Upprifjun á 11. sept.:
Búnir að fá
nóg
SJÓNVARP Áhorf í Bandaríkjunum á
sérstaka dagskrárliði tengda
hryðjuverkaárásunum 11. sept-
ember var ekki meira en gengur
og gerist um aðra fréttaþætti, að
því er fram kemur í könnunum.
Dagskrá frá minningarathöfnum
og upprifjun atburðanna löðuðu
ekki að áhorfendur.
Ekki var vitað hvort þeir forðuð-
ust að endurupplifa atburði með
því að horfa á þætti þeim tengdar.
Sama var uppi á teningnum í Bret-
landi, þar sem áhorf á fréttaþætti
BBC1 um hryðjuverkaárásirnar
var rétt í meðallagi.
Frumsýnd 13. september
2 fyrir 1
á Jarlinum
Alla daga milli 15:00 - 17:00
TILBOÐ 1
Hamborgari,
franskar og sósa
kr. 590,-
Þú kaupir tilboð 1 og
færð annað tilboð 1 frítt
milli 15-17 alla daga.
TILBOÐ 2.
Klúbbsamloku,
franskar og sósu
kr. 610,-
Þú kaupir tilboð 2 og
færð annað tilboð 2 frítt
milli 15-17 alla daga.
*Spennandi hádegistilboð alla daga.
Tilboð gildir til 01.10.02
Ath! Höfum opnað bílalúgu á Esso stöðinni.
Gríptu tilboðið með þér.
Essó Ártúnshöfða - Smáralind
KVIKMYNDIR Belgíski kvikmynda-
leikstjórinn Rob Van Eyck not-
færði sér þann 11. september á
frekar ósmekklegan hátt þegar
hann auglýsti eftir skeggjuðum
löndum sínum í hlutverk Osama
bin Ladens í nýrri kvikmynd.
Hann viðurkennir fúslega að dag-
setningin hafi orðið fyrir valinu
til þess eins að fá fjölmiðlaum-
fjöllun. Hvað meinta smekkleysu
varðar segir hann hryðjuverkin
11. september vissulega sorgleg
fyrir Bandaríkjamenn en það
breyti engu um það að fólk deyi
daglega af völdum hryðjuverka.
Mynd hans um bin Laden á víst
að vera svört kómedía þar sem
bin Laden leitar hælis í Belgíu
áður en hann fær embætti hjá
ESB.
BELGÍSKUR BIN LADEN
Rob Van Eyck með leikara í gervi bin Ladens. Fékk mikla athygli með því að auglýsa eftir
leikurum í umdeilt hlutverkið þann 11. september.
Belgískur leikstjóri:
Gerir grá-
glettna
mynd um
bin Laden
HVAÐ ER TÍTT LAGSI?
Á árlegri skúlptúrasýningu sem haldin er í
Bandaríkjunum mátti sjá ýmsar tegundir af
listaverkum. Einn frumlegur listamaður
gerði risastóra kanínu sem margir þekkja
sem Kalla eða Bugs Bunny.
Rock and Roll Hall of Fame safnið:
The Clash og Costello tilnefnd
TÓNLIST Bresku listamennirnir The
Clash, Elvis Costello, The Police
og Steve Winwood hafa í fyrsta
sinn verið tilnefndir til inngöngu í
Rock and Roll Hall of Fame safn-
ið. Sigurvegarinn verður útnefnd-
ur í desember á þessu ári. Lista-
menn fá aðeins tilnefningu ef 25
ár eru liðin frá því þeir gáfu út
fyrstu breiðskífu sína.
Sex Pistols eru tilnefndir í ár
eins og árið á undan. Möguleikar
þeirra verða að teljast miklir þar
sem tvö bandarísk bönd úr pönk-
senunni, The Ramones og Talking
Heads, voru heiðruð í fyrra.
Fleiri sveitir hafa þó verið til-
nefndar í nokkur ár án þess að
hljóta viðurkenningu. Þar má
nefna hinn breska Ozzy Osbourne,
sænsku diskódívurnar í Abba,
Chic og þýsku sveitina Kraftwerk.
Meðal annarra sem eru tilnefndir
má nefna AC/DC, Dells, Righteous
Brothers og Patti Smith Group.
THE CLASH ON BROADWAY
Íslandsvinirnir í The Clash hafa verið tilnefndir til inngöngu í Rock and Roll Hall of Fame
safnið.
Davíð eftir Michelangelo:
Fær fyrsta baðið
í 129 ár
ENDURREISN Hin fræga höggmynd
Michelangelos af Davíð hefur
fengið að safna óhreinindum bak
við eyrun síðustu 129 árin og nú
þykir mál til komið að þvo
drengnum. Sérfræðingar á
Galleria dell’Accademia safninu í
Flórens hefjast handa á mánudag
og munu eyða næstu sjö mánuð-
um í að þrífa styttuna.
Þetta er í fyrsta skipti sem
þessi fimm metra háa stytta hefur
verið þvegin síðan hún kom í safn-
ið árið 1873, en þá var henni kom-
ið fyrir innandyra til að vernda
hana fyrir veðrun og mengun.
Talið er að þvotturinn muni kosta
150.000 evrur og safngestum mun
gefast kostur á að fylgjast með
vinnunni.
Davíð, sem vann sér það til
frægðar að fella risann Golíat í
þekktri Biblíusögu, var höggvinn
í marmara á árunum 1501 til 1504
og festi Michelangelo, sem þá var
aðeins 29 ára gamall, í sessi sem
fremsti höggmyndasmiður síns
tíma.