Fréttablaðið - 02.10.2002, Síða 2

Fréttablaðið - 02.10.2002, Síða 2
2 2. október 2002 MIÐVIKUDAGUR Verðbólguspár birtar: Bensín og föt hækka EFNAHAGSMÁL Fjármálafyrirtækin gera ráð fyrir að vísitala neyslu- verðs hækki um 0,2-0,5% í þess- um mánuði. Landbankinn spáir mestu verðbólgunni, en Íslands- banki þeirri minnstu. Miðað við lægstu spánna verður verðbólga síðustu tólf mánaða 2,6% sem er lítillega yfir verðbólgumarkmið- um Seðlabankans sem er 2,5%. Miðað við spá Landbankans er verðbólgan 2,9%. Landsbankinn gerir ráð fyrir að bensínlítrinn hækki um eina til tvær krónur og að hækkun verði á húsnæðis- og fatalið vísitölu neysluverðs.  Sjóslysanefnd: Rækjuskipið er ráðgáta SJÓSLYS Jón Ingólfsson, fram- kvæmdastjóri Rannsóknarnefnd- ar sjóslysa, segir það ráðgátu hvernig það bar að rækjubátur- inn Aron ÞH frá Húsavík sökk norður af Grímsey árla dags á mánudag. Aron var á veiðum þegar at- burðurinn varð. Skipverjarnir fimm bera að sjór hafi bæði ver- ið kominn í vélarrúm og lest skipsins áður en þeir yfirgáfu það og fóru um borð í annan bát sem kom til aðstoðar. Aron var 211 brúttótonn. „Það er mjög undarlegt hvern- ig þetta gerðist í blíðuveðri. En þetta kann að eiga sér sínar skýr- ingar þegar menn fara að rýna í málið,“ segir Jón.  Þjóðmenningarhús: 17 milljónir til að gæta handrita FJÁRLÖG Á fjárlögum er gert ráð fyrir 17,3 milljóna króna fjár- framlagi til Þjóðmenningarhúss vegna handritasýningar á vegum Stofnunar Árna Magnússonar. Fjárveitingin er ætluð til að tryg- gja öryggi merkustu handrita þjóðarinnar. Öryggisúttekt sem unnin var vegna sýningarinnar leiddi í ljós að talin er þörf á viðveru gæslu- manna í húsinu allan sólarhring- inn. Að auki verður ráðist í örygg- isendurbætur á húsinu. Sýningin á að standa í nokkur ár.  Hlutafé Orcahópsins: Bankinn búinn með fyrsta skammtinn VIÐSKIPTI Íslandbanki hefur lokið sölu á 708 milljón króna að nafn- verði í bankanum sem bankinn eignaðist við útgöngu Jóns Ás- geirs Jóhannessonar og Þorsteins Más Baldvinssonar. Fagfjárfest- ar hafa keypt bréfin og er því lokið fyrsta áfanga í sölu bréfa í bankanum. Samkvæmt samningi mun bankinn kaupa bréf að nafnvirði 1.470 milljónir í janúar og er í framhaldinu stefnt að sölu þeirra í samræmi við yfirlýsingar bank- ans um dreifða eignaraðild. Þeg- ar hefur verið gengið frá samn- ingum á sölu helmings þeirrar fjárhæðar. Vegna sterkrar eigin- fjárstöðu bankans eru uppi áætl- anir um að færa niður hlutafé í bankanum. Ákvörðun um það verður tekin þegar ársuppgjör liggur fyrir.  KEYPT OG SELT Eimskipafélagið jók hlut sinn í Skeljungi um leið og Skeljungur keypti bréf í Flug- leiðum af Eimskipafélaginu. Innibyrðis kaup Eimskipa og Skeljungs: Bræðra- böndin treyst VIÐSKIPTI Burðarás, dótturfélag Eimskipafélagsins hefur minnkað hlut sinn í Flugleiðum úr 31,4% Í rúm 28%. Kaupandi var Skeljung- ur. Gengið í viðskiptunum var 4,67, en lokagengi bréfa Flugleiða var 4,1 á markaði í gær. Verðmæti viðskiptanna var rúmar 760 millj- ónir króna. Á sama tíma keypti Eimskipafélagið hlut fyrir rúmar 350 milljónir króna í Skeljungi af fyrirtækinu sjálfu. Bræðralag er á milli þessara fyrirtækja og hafa þessar breyt- ingar því ekki áhrif á valdahlut- föllin í fyrirtækjunum, nema hugsanlega til styrkingar núver- andi yfirráða. Kaupþing hefur verið duglegt að kaupa í fyrirtækinu á árinu og á nú rúm 20% í fyrirtækinu. Gaumur, eignarhaldsfélag Bónus- fjölskyldunnar keypti á dögunum um 10% hlut í Flugleiðum. Við- skiptin kunna því að tengjast því að fyrirtækin vilji tryggja betur stöðu sína í fyrirtækjunum gegn sókn nýrra aðila. Íslandsbanki gerði á dögunum samanburð á ol- íufélögunum þar sem mælt var með því að fjárfestar seldu bréf í Skeljungi, keyptu í Olís, en hlut- laus afstaða var til bréfa Kers.  ALÞINGI Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands gerði frjálsan markað og lýðræðislegt samfélag að umtalsefni við setningu Al- þingis og sagði að þau væru sam- nefnari þeirrar skipunar sem flestir telji besta form sem völ sé á. Hins vegar kunni atburðarásin á markaðstorgi að leiða til slíkrar samþjöppunar auðs og eigna að veruleg áhrif hafi á það lýðræðis- lega vald sem byggja beri á jöfn- un rétti allra einstaklinga. „Sé fjármagni veitt ótæpilega inn í íslenska hversdagsveröld kann að verða mikið flóð, þjóðfé- lagið verður ólgusjór þar sem hefðbundnar hömlur fara á flot og völd og áhrif verða af öðrum toga en samstaða var um áður fyrr.“ Ólafur Ragnar sagði að skilin milli markaðar og stjórnmála væru sjaldan eins skýr í veruleika og í kenningunni. Hann sagði að Íslendingar gengju nú í gegnum breytinga- skeið sem að hluta væri knúið áfram með ákvörðunum Alþingis en sækti einnig efnivið í hið opna alþjóðlega hagkerfi sem við yrð- um í vaxandi mæli hluti af. Hér hefði ríkt samstaða um samfé- lagsgerð sem á vissan hátt hefði verið grundvöllur að sjálfstæðis- vitund Íslendinga. Hann spurði hvort samfélagsgerðin væri að breytast, hvort veruleikinn, sem okkur birtist, væri í samræmi við anda laganna sem veittu hinum nýju leikreglum formlegt gildi. „Slíkum spurningum er á eng- an hátt auðvelt að svara, en þær munu brenna á hverjum þeim sem býður sig fram sem fulltrúi fólks- ins. Alþingi er kjarninn í lýðræð- isskipan Íslendinga og hér á að ríkja hinn eindregni vilji sem end- urspeglar þjóðarhug,“ sagði for- seti Íslands. ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Sagði að skilin milli markaðar og stjórnmála væru sjaldan eins skýr í veruleika og í kenningunni. Forseti Íslands við setningu Alþingis: Ótæpilegt fjármagn gætt leitt til ólgusjávar STJÓRNMÁL Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra sat einn eftir í um tuttugu mínútur hjá forsætisráð- herra eftir að ríkisstjórnarfundi lauk í gær. Sturla hefur enn ekki tjáð sig opinberlega um þungorða skýrslu bresku flugslysasérfræð- inganna Bernie Forwards og Franks Talyors um Skerjafjarðar- slysið. Sturla fékk skýrsluna í hendur í fyrradag. Það sama gerði Davíð Oddsson forsætisráðherra. Flestir ráðherrar ríkisstjórnarinnar stöldruðu við í nokkurn tíma í stjórnarráðinu eftir að formlegum fundi stjórnarinnar lauk um klukk- an ellefu í gærmorgun. Allir utan samgönguráðherra og forsætisráð- herra höfðu þeir þó yfirgefið bygg- inguna um tólfleytið. Sturla dvaldi einn hjá Davíð í um tuttugu mínút- ur. Sturla var fámáll þegar hann loks kom út. Hann vildi ekki segja til um hvort hann hefði rætt málið við forsætisráðherra. „Við tölum ekki um það sem fer á milli okkar,“ sagði hann aðeins. Aðspurður um viðbrögð sín við innihaldi bresku skýrslunnar sagði Sturla: „Ég mun alveg á næstunni gefa út yfirlýs- ingu vegna skýrslunnar þannig að það er ekki neitt um hana að segja núna.“ Samgönguráðherra sagðist hafa lesið skýrsluna. Hann vildi ekki segja til um það hvaða atriði það eru í skýrslunni sem valda því að skoða þarf málið lengur áður en hann tjáir sig um það. „Það verður á næstu dögum sem tekin verður afstaða til þess sem þarna er á ferð- inni,“ ítrekaði hann. Í skýrslu Bretanna eru mjög al- varlegar ásakanir á hendur stofn- unum sem heyra undir samgöngu- ráðuneyti Sturlu. Flugmálastjórn er sögð hafa gefið út lofthæfiskírteini fyrir farþegaflugvél sem ekki var hæf til flugs. Rannsóknarnefnd flugslysa er sökuð um óvönduð vinnubrögð sem líklega hafi leitt til rangrar niðurstöðu og einnig til þess að ekki er hægt að sannreyna lengur aðra líklega tilgátu um or- sök slyssins. Stofnanirnar hafi síð- an unnið saman að því að breiða yfir málið. Ættingjar fórnarlamba úr slys- inu hafa meðal annars krafist þess að stjórnvöld hlutist til um nýja rannsókn á Skerjafjarðarmálinu í heild. Sturla vildi ekki svara til um viðbrögð sín við kröfum aðstand- endanna. „Það sem ættingjarnir setja fram er nánast samhljóma til- lögum bresku sérfræðinganna þan- nig að við förum yfir það allt saman í einu,“ sagði samgönguráðherra. gar@frettabladid.is STURLA BÖÐVARSSON Samgönguráðherra dvaldist hjá forsætisráðherra eftir að ríkisstjórnarfundi lauk í gær. Hann vildi ekki segja til um hvort þeir hafi rætt nýja skýrslu breskra flugslysasérfræðinga um Skerjafjarðarslysið. Á myndinni sést Sturla Böðvarsson koma af fundinum Sturla sat eftir hjá forsætisráðherra Sturla Böðvarsson samgönguráðherra er enn þögull um skýrslu breskra sérfræðinga um Skerjafjarðarslysið. Sturla sat eftir hjá forsætisráðherra þeg- ar ríkisstjórnarfundi lauk í gær. Hann vildi ekki svara því hvort þeir hefðu rætt hina þungorðu skýrslu sem þeir báðir fengu í hendur í fyrradag. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI ALÞINGI Alþingi var sett í 128. sinn í gær. Halldór Blöndal var endur- kjörinn forseti þingsins, 45 sögðu já, 15 greiddu ekki atkvæði. Hall- dór rakti framkvæmdir við nýjan þjónustuskála Alþingis sem tekinn var í notkun á dögunum og sagði að þar fengist langþráð úrbót í hús- næðismálum Alþingis. „Í næsta áfanga er óhjákvæmi- legt að ráðast í umfangsmiklar endurbætur og viðhald á Alþingis- húsinu til þess að það skemmist ekki og er unnið að áætlun um þá framkvæmd,“ sagði forseti Al- þingis. Hann sagði að margvíslegar aðr- ar endurbætur lægju fyrir á fast- eignum Alþingis, sem væru þó ekki eins aðkallandi. Þær miða meðal annars að því að færa salarkynni til upprunalegs horfs. Jafnframt liggur fyrir að koma fyrir lyftu milli annarr- ar og þriðju hæðar gamla Alþingis- hússins til þess að fatlaðir geti komist á áheyrendapalla. Kostnað- ur vegna þessa liggur ekki fyrir. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er kostnaður við viðhaldsverkefni áætlaður 49 milljónir króna, hækk- ar um 25 milljónir frá gildandi fjár- lögum. Þá er áformað að 30 millj- ónir fari í utanhússviðhald Alþing- ishúss. Þingið verður óvenjustutt í vet- ur vegna alþingiskosninga næsta vor. Þinglausnir eru áætlaðar um miðjan mars, um það bil átta vik- um fyrir kjördag sem verður 10. maí.  HALLDÓR BLÖNDAL Boðar umfangs- miklar endurbæt- ur á Alþingishús- inu, innan sem utan. Alþingishúsið við Austurvöll: Nauðsynlegt að ráðast í um- fangsmiklar endurbætur MÓTMÆLI VIÐ SETNINGU ALÞINGIS Samkvæmt venju gengu forseti Íslands, biskup, þingmenn og ráðherrar, ásamt gestum til Alþingishússins að lokinni guðs- þjónustu. Á meðan mótmælti hópur fólks á Austurvelli, stóriðjuáformum ríkisstjórn- arinnar.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.