Fréttablaðið - 02.10.2002, Side 9
9MIÐVIKUDAGUR 2. október 2002
Mjódd • Dalbraut • Austurströnd • Dalshraun • Selfoss ±• fiorlákshöfn
Mjódd • Dalbraut • Austurströnd • Dalshraun • Selfoss ±• fiorlákshöfn
Opi› allan sólarhringinn
um helgar á Dalbraut,
bæ›i sent og sótt.
TILBO‹ 4 SENT
Stór pizza me› allt a› 5 áleggs-
tegundum, stór sk. brau›stangir og sósa.
kr. 1.990
TILBO‹ 2 SENT
Stór pizza me› 2 áleggstegundum, 2 lítrar
Coke, stór sk. brau›stangir og sósa
kr. 2.100
TILBO‹ 1 SENT
Mi› pizza me› 2 áleggstegundum, 1 líter
Coke, stór sk. brau›stangir og sósa
kr. 1.750
TILBO‹ 3 SÓTT 2 fyrir 1
* greitt er fyrir d‡rari pizzuna
Pizza a› eigin vali og stór sk. brau›stangir
OG ÖNNUR af sömu stær› fylgir me› án
aukagjalds ef sótt er*
FJÖLMIÐILL Morgunblaðið hefur að
undanförnu dreift blaðinu ókeyp-
is til ákveðins hóps fólks sem ekki
eru áskrifendur fyrir. Viðkomandi
er sent bréf þar sem blaðið er boð-
ið ókeypis án skuldbindinga í
október. Að sögn Jakobs Þor-
steinssonar sölustjóra hjá blaðinu
er ákveðið úrtak fólks valið í þess-
ari herferð. Hann vill ekki gefa
upp hvernig þessi hópur er valinn
en segir það að gefnum ákveðnum
forsendum sem þeir vilji halda
fyrir sig. Aðspurður um hvort
þeir dyggir áskrifendur af blað-
inu til fjölda ára geti fengið blaðið
frítt í október, svarar hann því
neitandi. „Við gerum hins vegar
ýmislegt fyrir það fólk. Meðal
annars bjóðum við þeim í bíó eða
þeir fá góð tilboð um ákveðna
vöru og þjónustu.“
Jakob segir útilokað að þeir
áskrifendur sem fyrir eru geti
sagt áskriftinni upp og fengið
blaðið frítt í einn mánuð. „Við
myndum vita af því enda stendur
kynningaráskriftin eingöngu
þeim til boða sem við sendum bréf
þess efnis.“ Hann vill ekki viður-
kenna að þessi áskriftarherferð
nú sé í neinum tengslum við vænt-
anlega fjölmiðlakönnun Gallup en
hún mun fara fram í október.
Morgunblaðið í áskriftarherferð:
Frítt í október
MORGUNBLAÐIÐ
Fjölda fólks er boðið blaðið frítt. Kostaboðið nær ekki til þeirra sem eru áskrifendur.
17-20 ára ökumenn:
Oftast sviptir
ökuskírteini
LÖGREGLUMÁL Langflestir þeirra
sem sviptir voru ökuréttindum
vegna fjölda umferðarpunkta árið
2001 voru ökumenn á aldrinum 17
til 20 ára, eða 80 talsins. Einungis
fimm ökumenn 25 ára og eldri
voru sviptir ökuréttindum. Þetta
kemur fram í nýútkominni árs-
skýrslu Ríkislögreglustjóra.
Alls fengu 15.139 ökumenn um-
ferðapunkta og þar af voru 89
sviptir ökuréttindum vegna mar-
gra umferðapunkta. Konur eru
rúmur fimmtungur þeirra sem
fengu umferðapunkta á síðasta
ári. Af þeim sem sviptir voru öku-
rétti voru einungis 2,3% konur.
Holgóma hundurinn
Breki:
Á leið
í aðgerð
HUNDAHALD „Við erum að bíða eftir
að heyra frá lýtalækninum. Það
fer að styttast í aðgerðina,“ segir
Margrét Oddný, eigandi holgóma
hunds sem bíður lýtaaðgerðar og
sagt var frá hér í Fréttablaðinu
fyrir skemmstu. Margrét Oddný
og eiginmaður hennar, Stefán
Hreiðarsson barnalæknir, tóku
hundinn, sem heitir Breki, í fóstur
skömmu eftir fæðingu en þá hafði
fyrri eigandi þurft að vaka yfir
honum og gefa sérstaka fæðu-
blöndu á tveggja tíma fresti vegna
fæðingargallans. Beðið er eftir því
að Breki verði sjö kíló svo hann
þoli svæfingu sem fylgir lýtaað-
gerðinni þegar holgómurinn verð-
ur lagfærður.
Ólafur Einarsson lýtalæknir
mun gera aðgerðina enda hefur
hann reynslu af slíku. Gerði vel-
heppnaða aðgerð á holgóma hundi
í Mosfellsbæ og kynnti árangurinn
á læknaráðstefnu skömmu síðar.
Vakti aðgerðin athygli og farnast
þeim hundi vel. Það sama er að
segja um Breka nema hvað að þeg-
ar hann rekur út úr sér tunguna á
hún það til að koma út um nefið.
Bush hafnar drögum að
þingsályktun um Írak:
Vill hafa
frjálsar
hendur
WASHINGTON, AP Bandaríkjastjórn
og Bandaríkjaþing deila enn um
orðalag ályktunar þar sem þingið
veitti George W. Bush forseta
heimild til þess að beita hervaldi
gegn Írak.
Bush hafnaði í gær drögum
öldungadeildar þingsins að álykt-
uninni. Hann taldi orðalagið ekki
veita nógu ákveðna heimild til að-
gerða.
Þeir Joseph Biden, formaður
utanríkisnefndar öldungadeildar-
innar, og Richard Lugar, sem á
sæti í nefndinni, dreifðu í gær til-
lögu að ályktun, sem þeir vonuð-
ust til að gæti orðið málamiðlun
milli þingsins og forsetans. Í til-
lögunni er veitt heimild til þess að
ráðast eingöngu á Írak í staðinn
fyrir að rætt sé almennt um
heimshlutann. Einnig er tekið
skýrt fram að ástæða hernaðarað-
gerða væri sú ein að eyðileggja
gereyðingarvopn í Írak.
BREKI
Að verða sjö kíló og tilbúinn í aðgerð.