Fréttablaðið - 02.10.2002, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 02.10.2002, Blaðsíða 14
14 2. október 2002 MIÐVIKUDAGUR THE SWEETEST THING kl. 8 LITLA LIRFAN - Stuttmynd 4 og 5 PÉTUR OG KÖTTURINN 2 kl. 4 og 6 STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 4 og 6 K 19 kl. 8 og 10 Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.40 Sýnd kl. 4.45, 7.30 og 10 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 kl. 8SIGNS kl. 6 MAÐUR EINS OG ÉG THE BOURNE IDENTITY 5.30, 8 og 10.30 Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 HAFIÐ kl. 5.45 og 8 VIT433LILO OG STITCH kl. 4 og 6 VIT 430 LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 4 VIT429 SIGNS kl. 8 og 10.10 VIT427 HAFIÐ kl. 5.50, 8 og 10.10 VIT433 MAX KLEEBLE´S... 4, 6, 8 og 10.10 VIT441 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 VIT 435Sýnd kl. 5.45, 8.15 og 10.10 VIT 427Sýnd kl. 10.10 VIT 436 FRÉTTIR AF FÓLKI TÓNLIST Hún kallar sig „Ind- versku prinsessuna“ og hér á Ís- landi er hún eina konan sem get- ur gengið undir því nafni. Hún er þeim hæfileikum gædd að geta skorið sig úr hvaða hópi sem er. Fyrir vikið lendir hún á milli tannanna á fólki en heldur ótrauð áfram þó að hún þurfi stundum að ganga á móti slúðri og tískustraumum. Leoncie gaf nýverið út breið- skífuna „Sexy Loverboy“. Þar syngur hún um sinn raunveru- leika, ástina, manninn sinn, Keflavík og kímnigáfuna. Þetta gerir hún á fimm tungumálum. Ekki bara íslensku, heldur ein- nig dönsku, ensku, hindi og konkani sem er tungumál ættað frá Goa. Eitt lag plötunnar virð- ist fanga meiri athygli tónleika- gesta en annað. Það heitir „Súlu- dans-Trans“ og fjallar um kyn- lífsiðnaðinn á Íslandi. Leoncie hefur greinilega áhyggjur af þjóð sinni því henni finnst við vera komin langt yfir strikið í þessum efnum. „Þegar ég fer utan sé ég hvergi boðið upp á klefa með einkadönsum,“ segir Leoncie með alvarlegum tón. „Þessi geð- veiki er aðeins hér á Íslandi. Áður en ég skrifaði textann fór ég á einn svona stað, þannig klædd að enginn þekkti mig. Karlmennirnir sem komu að máli við mig sögðu að þeir hefðu sagt eiginkonunum sínum að þeir hefðu skroppið út í pizzu. Mér finnst það ekki rétt að giftir menn hagi sér svona.“ Lokalag plötunnar er ind- verski þjóðsöngurinn en Leoncie hefur ákveðið að flytja til Ind- lands bráðlega. „Það er ekkert að gerast í tónlistinni hérna. Ég ætla ekki að koma aftur nema bara í heimsókn. Ég þarf að vera í Bollywood og það er á Indlandi. Markaðurinn þar er risastór. Ég ætla að hrista upp í Indverjum þangað til að ég er komin með leið á því að spila á tónleikum,“ segir hún og hlær dátt. Á dögunum var Leoncie boðið að gerast hljómborðsleikari rokksveitarinnar Ensími. „Ég átti að mæta í Ríkissjónvarpið fyrir upptökur á þættinum „Mósaík“. Þegar ég kom þangað var mér sagt að ég ætti að þykjast spila með laginu, sem ég hafði aldrei heyrt, því hljómsveitin ætlaði að varasyngja lagið. Ég er alvöru hljóðfæraleikari og ég læt ekki sjá mig í sjónvarpinu að þykjast spila eitthvað sem ég hef aldrei heyrt. Ég vil spila lifandi, „I’m a shaker and a mover“,“ segir hún að lokum og hlær. biggi@frettabladid.is kl. 10.10 FILMUNDUR BATTLE ROYALE Kynlífsmarkaðurinn kominn yfir strikið Indverska prinsessan Leoncie er þjóðinni kunn. Hún gaf nýlega út breiðskífuna „Sexy Loverboy“ þar sem hún syngur á fimm tungu- málum. Og hvað var hún að bralla með hljómsveitinni Ensími? Hljómsveitin Coldplay helduraðra tónleika sína hér á landi þann 19. desember næstkomandi í Laugardalshöll- inni. Hljómsveitin hélt síðast tón- leika á Íslandi í ágúst á síðasta ári fyrir fullu húsi áhorfenda. Næsta smáskífa sveitar- innar af breið- skífunni „A Rush of Blood to the Head“ heitir „The Scientist“ og kemur út þann 11. nóvember. Tvö ný lög verður að finna á skífunni; „1.36“ og „I Ran Away.“ Leikaranum Anthony Hopkinshefur verið boðið að leika föð- ur Súperman í nýrri kvikmynd sem gera á um of- urmennið. Leik- stjóri myndarinn- ar verður Brett Ratner, sem leik- stýrði Hopkins í „Red Dragon,“ þriðju myndinnni um mannætuna Hannibal Lecter. Tökur á myndinni eiga að hefjast næsta vor. Söngkonan Ms Dynamite, semnýverið hlaut Mercury-tónlist- arverðlaunin, hefur tekið upp dúett með Robbie Williams. Lag- ið, sem heitir „Feel,“ verður að finna á nýjustu plötu hans, „Escapology,“ sem kemur út þann 18. nóvember. Robbie er nýbúinn að taka upp tónlistarmyndband fyrir lagið. Leikkonan Daryl Hannah leikur þar konuna sem Robbie er ástfanginn af. Tónlistarmaðurinn Beck er núá tónleikaferðalagi með hljómsveitinni Flaming Lips í Bandaríkjunum. Beck er afar ánægður með félaga sína í hljóm- sveitinni, sem spilar undir hjá honum á ferðalaginu. „Þeir spila tónlist sem er tilfinningarík og einlæg,“ sagði Beck í nýlegu við- tali. Tónlistin hefur samt sem áður ekki tapað leikgleðinni og kímnigáfunni.“ Eftir að hafa æft með Flaming Lips í vikutíma fyr- TÓNLIST Safnplata frá hljómsveit- inni Nirvana er væntanleg í búð- ir þann 11. nóvember. Platan heit- ir einfaldlega „Nirvana“ og á henni verður meðal annars að finna lagið „You Know You’re Right,“ sem er síðasta lagið sem Kurt Cobain, söngvari sveitar- innar, tók upp með félögum sín- um áður en hann stytti sér aldur árið 1994. Laginu var lekið á Netið fyrir skömmu eftir að hafa safnað ryki í heil átta ár vegna deilu Courtn- ey Love, ekkju Cobain, og fyrrum liðsmanna Nirvana, um útgáfu á efni með hljómsveitinni. Þau hafa nú loks náð sáttum. „Við höf- um náð sáttum í lagadeilum okk- ar. Við erum ánægð með að deil- urnar hafa verið leystar á góðu nótunum og við getum nú haldið áfram okkar striki,“ sagði í sam- eiginlegri yfirlýsingu. Með safn- plötunni fylgir kynningarmynd- band fyrir lagið „You Know You’re Right.“ Þar má sjá myndir af hljómsveitinni sem aldrei áður hafa komið fyrir augu almenn- ings. Talið er að fleiri útgáfur með Nirvana-efni séu væntanlegar á næstu árum. Fyrirhuguð er út- gáfa á stóru Nirvana-boxi árið 2004 en í millitíðinni er væntan- leg plata með lögum sem sjaldan hafa heyrst með sveitinni. Tilkynnt var um útgáfu safn- pötunnar sama dag og Courney Love náði sáttum í lagadeilu við útgáfufyrirtækið Universal Music sem gaf út efni með hljóm- sveit hennar, Hole. Tengist það mál því að hægt var að gefa út nýtt efni með Nirvana. Love er nú laus allra mála hjá Universal og vinnur um þessar mundir að sólóplötu.  Deilum lokið um útgáfu á efni með Nirvana: Safnplata væntanleg í nóvember AP /M YN D LOVE LEONCIE „Ég ákvað bara að gera eitthvað sem myndi gera mig hamingjusama.,“ segir Leoncie um nýju plötu sína „Sexy Loverboy“. „Ef ég næ því að verða hamingjusöm þá geri ég aðra hamingjusama. Ég veit alveg nákvæmlega hvað ég vil.“ FRANK N FURTHER Leikarinn Tim Curry þykir óborganlegur í upprunalegu útgáfunni. Hvernig myndi Marilyn Manson standa sig í hlutverkinu? Rocky Horror Picture Show endurgerð: Fer Marilyn Manson með aðal- hlutverkið? KVIKMYNDIR Nú stendur til að end- urgera söngleikjamyndina The Rocky Horror Picture Show fyrir sjónvarp. Myndin þótti svolítið á skjön þegar hún kom fyrst út árið 1975 en hefur orðið ódauðleg í gegnum hópdýrkun um heim allan. Umsjónarmaður verkefnisins, Lou Adler, var einnig framleið- andi upprunalegu myndarinnar sem skartaði Tim Curry og Susan Sarandon í aðalhlutverkum. Ver- ið er að ráða í aðalhlutverkin og vonast framleiðandinn til þess að myndin verðir tilbúin til sýning- ar fyrir hrekkjavöku á næsta ári. Leikstjóri myndarinnar verð- ur Stephan Elliott sem er líklega frægastur fyrir mynd sína „Pricilla, Queen of the Desert“. Um tónlistina sér Marius De Vries en sá hélt einnig um tón- listarhluta söngleikjastórvirkis- ins „Moulin Rouge“. Endurgerðin mun hafa verið á teikniborðinu nokkuð lengi en Adler segir að stærsta ástæða þess að ekki hafi verið ráðist í verkefnið fyrr er að ekki hafi tekist að finna réttan einstakling í hlutverk hins magnaða Frank N Further. Óstaðfestar fregnir herma að söngvarinn Marilyn Manson sé búinn að taka að sér hlutverkið. 

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.