Fréttablaðið - 07.11.2002, Side 1

Fréttablaðið - 07.11.2002, Side 1
-það er kaffið! Taktu þátt í Gevalialeiknum. Klipptu út þrjú strikamerki og sendu með póstkorti sem þú færð í næstu verslun. Sér› flú draumafer› í kaffibollanum? bls. 14 FÓTBOLTI „Hlýt að hafa fallið í verði“ bls. 12 Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 7. nóvember 2002 Tónlist 16 Leikhús 16 Myndlist 16 Bíó 14 Íþróttir 10 Sjónvarp 20 KVÖLDIÐ Í KVÖLD KVIKMYNDIR Tvær sígildar þöglar myndir verða sýndar í Háskólabíói í dag við undirleik Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands í dag. Klukkan þrjú verður Gullæðið eftir Chaplin sýnd en klukkan hálfátta Metropolis eft- ir Fritz Lang. Þöglar við undirleik KVIKMYNDIR Gamli refur snýr aftur ÚTFLUTNINGUR Íslenskir dýralækn- ar sátu á dögunum námskeið þar sem meðal annars var fjallað um útfyllingu vegabréfa handa hest- um en slík vegabréf hafa nú verið færð í lög. Þykja þau skipta miklu í útflutningi á íslenskum reið- og graðhestum og tilgangurinn sá hinn sami og með vegabréfum mannfólksins; að viðkomandi sé sannanlega sá sem hann segist eða er sagður vera. Ekki er gert ráð fyrir ljósmyndum af hestunum í vegabréfunum því hross eru oft hvert öðru lík við fyrstu sýn. Því fengu dýralæknarnir til liðs við sig Norðmanninn Svein Bakke, sérfræðing í hestalækningum, sem lagt hefur sig eftir því að teikna hross og sérkenni þeirra í vegabréf. Kenndi Svein dýra- læknunum að teikna slíkar mynd- ir í vegabréfin og tókst kennslan með ágætum. Vegabréfum hrossa skal fram- vísað við útflutning og eru þá út- gefin í heimalandi hestsins. Vega- bréfunum á einnig að framvísa á hestamannamótum erlendis þar sem hross keppa innbyrðis og stefnan sú að gera vegabréfin að skilyrði fyrir þátttöku.  Dýralæknar á námskeiði: Teikna passamyndir af hestum UMHVERFISMAT Helgi Hjörvar, stjórnarmaður í Landsvirkjun, hef- ur óskað eftir skýringum forstjóra fyrirtækisins vegna ásakana fjög- urra vísindamanna sem segja að Lands- virkjun beiti þrýst- ingi til að fá fram umhverfismat sem auki líkur á því að heimilt verði að virkja við Norð- lingaöldu og þannig skerða friðland í Þjórsárverum. „Ég hef í dag rætt við ýmsa stjórnarmenn og í framhaldi þess óskað eftir því við forstjóra að unnin verði greinar- gerð um þessar ásakanir og lögð fyrir stjórnarfund,“ segir Helgi. Hann segir að ásakanir vísinda- mannanna Gísla Más Gíslasonar prófessors, Þóru Ellenar Þórhalls- dóttur, prófessors í grasafræði, Arnþórs Garðarssonar, prófessors í dýrafræði og Ragnhildar Sigurð- ardóttur, doktors í umhverfisfræð- um, sem fyrir hönd VSÓ vann að umhverfismatinu vegna Norð- lingaöldu, vera gríðarlega alvar- legar. Vísindamennirnir segja að lýsingarorðum og einkunnagjöf þeirra hafi verið breytt í mats- skýrslunni og að auki hafi mikil- vægum köflum verið sleppt til að fegra niðurstöður. Þetta kom fram í þættinum Ísland í bítið á Stöð 2. Helgi segir að stjórnarmönnum Landsvirkjunar hafi ekki verið sérstaklega kynntur þessi ágrein- ingur vísindamannanna og Lands- virkjunar. „En við höfum getað fylgst með honum í gegnum ferlið hjá Skipulagsstofnun. Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að starfsmenn fyrirtækisins hafi unn- ið að málum af fullum heilindum en þegar vísindamenn setja fram jafn alvarlegar ásakanir þá er nauðsynlegt að farið sé vandlega ofan í málið,“ segir Helgi. „Þetta er mál VSÓ og hefur ekk- ert verið á borðum Landsvirkjun- ar. Ég kannast ekki við að starfs- menn Landsvirkjunar hafi beitt Ragnhildi Sigurðardóttur óeðlileg- um þrýstingi. Hún þarf þess vegna að nefna nöfn þeirra starfsmanna sem þetta á við og þá er hægt að svara þessu. Enginn þeirra starfs- manna sem ég hef rætt við kannast við þetta,“ segir Friðrik Sophus- son, forstjóri Landsvirkjunar. Vísindamenn- irnir segja að lýsingarorðum og einkunnar- gjöf þeirra hafi verið breytt í mats- skýrslunni. BYLTINGARAFMÆLIS MINNST 85 ár eru í dag liðin frá því bolsévikar gerðu uppreisn í Rússlandi. Nokkur hundruð kommúnistar lögðu leið sína að leiði byltingarleiðtogans Leníns í Moskvu í gær. Að baki þeirra sést byggingin sem hýsir safn um sögu rússnesku þjóðarinnar. Stjórnarmaður krefst skýringa FUNDUR Íslam og Vesturlönd er heiti á málstofu sem fram fer í Hátíðar- sal Háskóla Íslands. Í henni verður fjallað um hvort umræðan um átökin fyrir botni Miðjarðarhafs og atburðina 11. september orðið til þess að auka skilning Vesturlanda- búa á trúarbragða- og menningar- heimi Islam eða aukið fordóma. Málstofan hefst klukkan 17. Áhrif prófkjöra FUNDUR Félag stjórnmálafræðinga boðar til fundar um prófkjör stjórn- málaflokka og hvaða áhrif þau hafi á flokksstarf þeirra. Fundurinn verður haldinn á Sólon Íslandus og hefst klukkan 20.30. Íslam og Vesturlönd FIMMTUDAGUR 221. tölublað – 2. árgangur Þrettán ára ólánspiltur: Svipuð mál koma upp árlega BÖRN Mál tengd drengnum sem tekinn var með 13 grömm af kannabisefnum við sjoppu á Blönduósi í fyrradag hafa ekki áður komið inn á borð Barna- verndarstofu. Bragi Guðbrands- son, forstjóri stofnunarinnar, segir að svipuð mál komi hins vegar upp einu sinni til tvisvar á ári. „Þetta er náttúrulega mjög al- varlegt þegar svona ungt barn er komið í þessa stöðu,“ segir Bragi. „Alltaf þegar svona kem- ur upp þarf að bregðast við og fara nákvæmlega yfir það hvort þetta sé toppur á einhverjum ís- jaka eða bara einstakt mál. Ég er búinn að fara yfir alla biðlista og umsóknir ásamt starfsmönnum mínum og ég get ekki séð að það sé einhver holskefla að verða í þessum málum. Það eru engar vísbendingar um að það sé eitt- hvað stórt að gerast. Auðvitað getur verið að það taki einhvern tíma fyrir ölduna að berast hing- að inn en eins og staðan er núna lítum við þannig á málið að það sé eitt af þeim fáu málum sem við fáum á hverju ári.“ Bragi segir margar ástæður geta legið að baki vanda barna sem lendi í álíka ógöngum og þessi 13 ára drengur hafi gert. nánar bls. 6 FORSTJÓRI BARNAVERNDARSTOFU Bragi Guðbrandsson segir margar ástæður geta legið að baki vanda barna. Fjármálaráðstefna NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 71,1% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í SEPTEMBER 2002. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 49 ára samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá september 2002 28% D V 80.000 eintök 70% fólks les blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuðborgar- svæðinu á fimmtu- dögum? 49% 76% Vísindamenn segja Landsvirkjun beita þrýstingi til að hagræða um- hverfismati við Þjórsárver. Stjórnarmaður kallar eftir greinargerð. HESTATEIKNINGAR Svein Bakke á ráðstefnu dýralæknanna. REYKJAVÍK Norðan 13-18 m/s með skúrum síðdegis. Hiti 1 til 5 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 13-18 Skúrir 4 Akureyri 10-15 Skúrir 3 Egilsstaðir 8-13 Skúrir 5 Vestmannaeyjar 10-15 Léttskýjað 3 ➜ ➜ ➜ ➜ AP /M YN D FUNDUR Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, setur árlega fjár- málaráðstefna sveitarfélaga kl. 13.30 í dag. Ráðstefnan stendur í tvo daga og er haldin á Radisson SAS Hótel Sögu. rt@frettabladid.is Sjá einnig bls. 8

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.