Fréttablaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 10
10 7. nóvember 2002 FIMMTUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Íhvert sinn sem ungmenni fremuródæðisverk í Svíþjóð rjúka þar- lendir út í vídeósjoppu og fletta upp á listanum yfir þær myndir sem ung- lingurinn leigði undanfarna mán- uði. Og viti menn: Meðal þeirra eru nokkrar myndir með grófu ofbeldi. Þar með er söku- dólgurinn fundinn. Rót ódæðisverksins liggur hjá amerísk- um vitundariðnaði. Ekki í sænsku samfélagi. Og allra síst hjá vandræðaunglingnum eða fjölskyldu hans. Svíar skera sig ekki mjög úr öðr- um þjóðum hvað þetta varðar. Allir hópar á öllum tímum hafa leitað að brenglun sinni utan hópsins. For- eldrar missa tök á uppeldi barna vegna ásóknar unglingamenningar, fíkniefna, óæskilegra vina, rapps eða þungarokks – hvaðeina annars en slælegrar frammistöðu í for- eldrahlutverkinu. Það er allt að því sammannlegt að leita sakar annars staðar en hjá sjálfum sér; utandyra, utanbæjar, utanlands. Þegar íslenskir stjórnmálamenn ræða fíkniefnavandann leggja þeir oftast mesta áherslu á að það þurfi að verja landið með aukinni toll- gæslu. Fíkniefnavandinn er hins vegar innanríkismál. Aukin toll- gæsla getur neytt innflytjendur fíkniefna til að vanda betur til verka en mun ekki slá á neyslu fíkniefna. Til þess er hún orðin of almenn á Ís- landi. Reyndar er fíkniefnaneysla far- aldur á Vesturlöndum. Það er eitt- hvað í þessum samfélögum sem fær ógrynni fólks til að taka þá ákvörðun að sóa lífi sínu fremur en að lifa því. Og eitthvað sem veldur því að samfélagið finnur ekki lausn á þessum vanda. Viðbrögðin beinast að verslun með fíkniefni þótt vandinn liggi hjá neytandan- um og í ákvörðun hans. Það er al- kunn staðreynd að líf fíkniefna- neytandans endar með jarðnesku helvíti og því eðlilegt að spyrja hvers kyns samfélag það er sem fólk yfirgefur fyrir slík bítti. Forvarnir og meðferðaúrræði eru varnarleikir sem ef til vill geta haldið þessum faraldri niðri en ólíklega stöðvað hann og jafnvel haft þveröfug áhrif. Það má ekki verða svo að þegar unglingur leið- ist út í fíkniefnaneyslu skili for- eldrarnir honum til ríkisins til meðferðar. Það fyrirkomulag sljóvgar foreldra og dregur enn úr ábyrgð þeirra. Sú hugmynd má ekki festa hér rætur að foreldrar beri ábyrgð á börnum sínum svo framarlega sem þau séu í lagi. Ef ekki, þá tekur ríkið við.  „Það er allt að því sammann- legt að leita sakar annars staðar en hjá sjálfum sér; ut- andyra, utan- bæjar, utan- lands.“ Foreldrar eiga góð börn – ríkið þau vondu skrifar um unglinga- og foreldravanda- málið í tilefni af handtöku 13 ára drengs með fíkniefni. Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON BORGARMÁL Um 37% landsmanna og 50% íbúa höfuðborgarsvæðis- ins tóku þátt í sjöundu Menning- arnótt Reykjavíkur þann 17. ágúst, sem er um 30% aukning frá síðasta ári samkvæmt könnun Gallups. Í skýrslu verkefnis- stjórnar Menningarnætur kemur fram að 80 til 90 þúsund manns hafi safnast saman í miðborginni um kvöldið þegar flugeldasýning- in fór fram á Hafnarbakkanum. Hátt í tvö hundruð viðburðir voru á dagskrá Menningarnætur, sem hófst á hádegi um leið og Reykjavíkurmaraþon. Fjölbreytt dagskrá var allan daginn og fór hún meðal annars fram í verslun- um, veitingahúsum, bönkum, gall- eríum, kirkjum, menningar- og listasöfnum og á götum og torgum borgarinnar. Stjórn Menningarnætur fór yfir framkvæmd hátíðarinnar eft- ir að henni lauk og hyggst hún taka ýmislegt til endurskoðunar. Í framtíðinni á að reyna að sam- þætta betur Menningarnótt og Reykjavíkurmaraþon, meðal ann- ars með tilliti til kynningarmála. Stefnt er að öflugra samstarfi milli stjórnenda Menningarnætur, lögreglu og slökkviliðs. Til skoð- unar er að skipa sérstaka aðgerð- arstjórn sem í ættu sæti fulltrúar frá slökkviliði, lögreglu og heilsu- gæslu, en hún gæti brugðist við óvæntum atburðum. Þá hafa kom- ið ábendingar um að breyta nafni hátíðarinnar, þar sem megindag- skrá lýkur fyrir miðnætti. Verkefnisstjórnin fékk 3,4 milljóna króna framlag úr borgar- sjóði, en auk þess aflaði hún 3,8 milljóna króna í formi styrkja og frjálsra framlaga. Samtals hafði verkefnisstjórnin því 7,2 milljónir króna til ráðstöfunar. Endanlegt uppgjör liggur ekki fyrir en í skýrslunni, sem var lögð fram í borgarráði í síðustu viku, segir að ekkert bendi til annars en að fjár- hagsáætlun standist. trausti@frettabladid.is MENNINGARNÓTT REYKJAVÍK Hátt í tvö hundruð viðburðir voru á dagskrá Menningarnætur, sem hófst á hádegi um leið og Reykjavíkurmaraþon. Í framtíðinni á að reyna að samþætta betur viðburðina tvo, með- al annars með tilliti til kynningarmála. Stóraukin aðsókn á Menningarnótt Um 50% íbúa höfuðborgarsvæðisins tóku þátt í Menningarnótt í ágúst. Það eru um 30% fleiri en í fyrra. Um 80 til 90 þúsund manns voru í miðborginni á flugeldasýningunni. Til greina kemur að breyta nafni hátíðarinnar. Endanlegt uppgjör liggur ekki fyrir. STJÓRNSÝSLA Sérstök ný Rannsókn- arnefnd flugslysa hefur verið skipuð til að rannsaka flugslysið sem varð í Skerjafirði sumarið 2000. Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra skipar nefndina í kjölfar alvarlegra niðurstaðna breskra flugslysasérfræðinga sem rannsökuðu slysið fyrir til- stuðlan aðstandenda fórnarlamba slyssins. Sigurður Líndal, fyrrverandi lagaprófessor, er formaður nefnd- arinnar. Honum til fulltingis eru Kjartan Norðdahl, flugstjóri og lögfræðingur, Birger Andreas Bull, ráðgjafi frá Noregi, Søren Flensted, eftirlitsmaður frá Dan- mörku, og Ronald L. Schleede, ráðgjafi frá Bandaríkjunum. Nefndin sem samgönguráð- herra hefur nú skipað er svokölluð ad hoc Rannsóknarnefnd flug- slysa. Það þýðir að nefndin starfar á sama grunni og eftir sömu lögum og Rannsóknarnefnd flugslysa. Sex manns fórust af völdum Skerjafjarðarslyssins. Aðstand- endur fórnarlambanna hafa þegar höfðað skaðabótamál í Bandaríkj- unum á hendur flugrekstraraðil- anum, Ísleifi Ottesen, sem þar er búsettur.  Samgönguráðherra skipar nýja Rannsóknarnefnd flugslysa: Skerjafjarðarslysið skoðað frá grunni                             !  !     !"##     " !  !# ! $ % & "'(!)% & * ! ! +,- !..'.//. $% & ' ( 0 123 4 ! )   !  4 !  ) %'* & + , #  #&

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.