Fréttablaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 8
8 7. nóvember 2002 FIMMTUDAGUR VEGAGERÐ „Tilboð í þennan áfanga miðað við steypta akbraut mátti vera 10,6 milljónum króna hærra en tilboð í malbikaða braut og telj- ast þá tilboðin jafnhagstæð. Þetta er byggt á hagkvæmnismati á við- haldskostnaði hvors efnis um sig sem tók til 30 ára. Það kom nokkuð á óvart hve munurinn var lítill á steypunni og malbikinu,“ sagði Jó- hann Bergmann, deildarstjóri framkvæmdakaupa Vegagerðar- innar í Reykjanesumdæmi. Tilboð í 1. áfanga breikkunar 7,6 kílómetra kafla Reykjanes- brautar, frá Hvassahrauni að Strandarheiði, voru opnuð í vik- unni og voru þau um 40% lægri en kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. Lægsta tilboð í verkið miðað við malbik hljóðar upp á 616 milljónir króna en miðað við steypu var lægsta tilboð 673 milljónir. Munur- inn er 57 milljónir króna eða ríf- lega fimmfalt meiri en talið er hag- kvæmt út frá viðhaldi og fleiru. Það bendir því flest til þess að mal- bik verði lagt á Reykjanesbraut. „Sú ákvörðun liggur fyrir innan fárra daga. Við erum að fara yfir tilboðin í augnablikinu og göngum trúlega til samninga í næstu viku,“ sagði Jóhann Bergmann. Breikkun Reykjanesbrautar: Malbik mun hag- kvæmara en steypa YFIRLITSKORT Hver steyptur kílómetri þessa fyrsta áfanga breikkunar Reykjanesbrautar mátti aðeins vera 1,4 milljónum króna dýrari en malbik- aður kílómetri. Munurinn reyndist fimm sinnum meiri. Blönduósbær rak oddvita minnihlutans: Íhugar að flytja burt DEILUR Ágúst Þór Bragason, odd- viti minnihluta sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Blönduósbæjar, íhugar að flytja burt úr bænum og hætta í bæjarstjórn eftir að hon- um var fyrirvaralaust sagt upp störfum sem umhverfis- og íþróttafulltrúa bæjarins á fimmtudaginn. Uppsögnin er til komin vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga hjá bænum. Ágúst Þór segir að meirihlutinn, H-listi vinstri manna og óháðra og Á-listi bæjar- málafélagsins Hnjúka, hafi unnið einn að breytingunum. Málið sé greinilega pólitískt í eðli sínu og hann sé að skoða sinn gang ásamt fjölskyldu sinni. Á bæjarstjórnarfundi í fyrradag var nýtt skipurit samþykkt.  DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyr- ir að hafa ekið of hratt miðað við að- stæður á Nesjavallavegi með þeim afleiðingum að þrír farþegar í bíl hans létust eftir harðan árekstur. Ökumaðurinn, sem er 26 ára gamall, var einnig sviptur ökurétt- indum í fjögur ár. Fimm E-töflur og tæp tvö grömm af hassi fundust á manninum eftir slysið. Fyrr á þessu ári var maðurinn dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir skjalafals og fjár- svik. Atburðurinn varð 26. október í fyrra. Ökumaðurinn og vinafólk hans var á leið til Nesjavalla á tveimur bílum. Hann tók fram úr bíl vinar síns. Í beygju við gatna- mótin við Hafravatnsveg missti hann stjórn á bílnum og lenti þar austan við í hörðum árekstri við annan bíl. Tvær stúlkur, 22 og 26 ára gamlar, farþegar í bíl hans, lét- ust nær samstundis. Þriðji farþeg- inn, 34 ára karlmaður, lést tveimur vikum síðar. Ökumennirnir voru fluttir á slysadeild. Það var mat prófessors sem dómurinn leitaði álits hjá að bíll mannsins hefði verið á tæplega 140 kílómetra hraða á klukkustund þeg- ar hann missti stjórn á bílnum, en um 70 kílómetrar þegar árekstur- inn varð. Áður hafði bílinn snúist á veginum.  Banaslysið á Nesjavallavegi í fyrrahaust: Fangelsisvist fyrir banvænan ofsaakstur HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR „Akstur ákærða umrætt sinn var mjög víta- verður,“ segir í dómi yfir ökumanninnum sem missti stjórn á bíl sínum með þeim afleiðingum að þrír farþegar hans létust. UMHVERFISMÁL „Líf mitt núna snýst um það eitt að verja heiður minn sem vísindamanns með aðstoð lögfræðinga,“ segir doktor Ragn- heiður Sigurðar- dóttir, sem stendur í málaferlum við VSÓ-verkfræði - stofu í framhaldi af deilum hennar við fyrirtækið um á r e i ð a n l e i k a skýrslu um um- hverfismat vegna Norðlingaöldu. L a n d s v i r k j u n vill virkja á svæðinu og lögum samkvæmt lét stofnunin fara fram umhverfismat. Til þess var ráðinn „óháður aðili“ eða VSÓ. Verkfræðistofan gerði samning við fyrirtækið Umhverfisrann- sóknir ehf. sem er í eigu dr. Ragn- hildar, til að vinna ýmsa kafla skýrslunnar. Ragnhildur segir að henni hafi smám saman skilist að henni væri ekki ætlað að skrifa skýrsluna á þann hlutlausa hátt sem heiður hennar sem vísindamanns krefð- ist. Landsvirkjun hafi beitt þrýst- ingi í því skyni að fegra niðurstöð- ur í umhverfismatinu með það fyrir augum að ná fram samþykki þess að virkja á þessum slóðum þar sem framkvæmdir munu hafa áhrif á friðlýst svæði Þjórsár- vera. Samstarf Ragnhildar og VSÓ fór í uppnám eftir að verk- fræðistofan sendi Skipulagsstofn- un skýrslu um umhverfismat þar sem sleppt var hluta af texta Ragnhildar og einkunnargjöf hennar um áhrif virkjunar á ýmsa þætti vistkerfisins hafði verið breytt. „Skýrslan er áróðursrit sem hefur lítið með vísindalegar nið- urstöður að gera. Ég hefði aldrei trúað því að svona vinnubrögð viðgengjust á Íslandi. Þetta minn- ir sumpart á það sem gerðist hjá risafyrirtækinu Enron í Banda- ríkjunum,“ segir Ragnhildur sem gaf út sína eigin skýrslu um áhrif sem yrðu af virkjanaframkvæmd- um á svæðinu. Í tölvupóstbréfum sem hún sýndi Fréttablaðinu lýsa starfs- menn VSÓ því að Landsvirkjunar- menn hafi ekki fellt sig við ein- staka hluta matsskýrslunnar um Norðlingaölduveitu. Eftirfarandi mátti lesa úr tölvupósti sem Stef- án Gunnar Thors, deildarstjóri VSÓ og tengiliður verkfræðistof- unnar við Landsvirkjun, sendi Ragnhildi: „...Landsvirkjun vildi ekki senda drögin til Skipulagsstofn- unar þar sem hún var ekki sam- mála einkunnagjöf okkar...“ Jón Kristjánsson, settur um- hverfisráðherra, mun í næstu viku úrskurða um það hvort heim- ilt sé að virkja við Þjórsárver. rt@frettabladid.is Tölvupóstur staðfestir þrýsting Doktor í umhverfisvísindum fenginn til að vinna að umhverfismati vegna Norðlingaöldu. Hafnaði lokaskýrslu Landsvirkjunar og skrifaði sína eigin. „...Landsvirkj- un vildi ekki senda drögin til Skipulags- stofnunar þar sem hún var ekki sammála einkunnagjöf okkar...“ DOKTOR RAGNHILDUR SIGURÐARDÓTTIR Lýsir umhverfismati vegna Norðlingaöldu sem blekkingum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI FRÁ F-REITNUM Á VATNSENDA Illa gengur að ná sátt um nýtt deiliskipulag á þessum stað við Elliðavatn. Íbúar Vatnsenda: Segja samráð skorta SVEITARSTJÓRN Skipulagsnefnd Kópavogs frestaði í fyrrakvöld af- greiðslu nýrrar tillögu um deiliskipulag á svokölluðum F-reit við Vatnsenda. Deiliskipulagið sem hefur verið auglýst undanfarið gerir ráð fyrir sjö þriggja hæða blokkum á reitnum. Eitt einbýlishús er þar fyrir á leigulóð í syðri enda reitsins. Gert er ráð fyrir því að húsið víki. Fjölskyldan sem býr í húsinu hefur mótmælt áform- unum. Einnig hafa borist athuga- semdir frá íbúa á svæðinu sem á sínum tíma stóð að gerð svokall- aðs Elliðahvammsvegar. Færa á veginn fjær vatninu, til suðurs, og gerir þessi íbúi athugasemd við það. Þá hafa íbúasamtökin Sveit í borg sent inn athugasemd sem meðal annars lýtur að því að ekki skuli hafa verið haft samráð við samtökin í samræmi við fyrri samþykkt skipulagsnefndar Kópavogs. Að sögn Gunnsteins Sigurðs- sonar, formanns skipulagsnefnd- arinnar, verður málið aftur tekið fyrir á næsta fundi nefndarinnar að hálfum mánuði liðnum. Þangað til verður farið yfir lögfræðileg álitaefni í málinu.  FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI ORÐRÉTT ÉG, UM MIG, FRÁ STEFÁNI JÓNI Það er mjög furðulegt að einn maður í Sam- fylkingunni megi ekki hafa skoðanir á því hvernig stilla eigi upp á lista eða kjósa, og að það sé Stefán Jón Hafstein, formaður framkvæmdastjórnar. Stefán Jón Hafstein um gagnrýni Guðmundar Oddssonar á sig. Morgunblaðið, 6. nóvember. TÍMANNA TÁKN Mín persónulega skoðun er að deCODE sé sennilega eina félagið sem vit er í að fjárfesta í í dag. Reynir Þorsteinsson, sveitarstjóri Raufarhafnarhrepps. DV, 19. janúar 2000. SEGÐU SÍS Mér dettur ekki í hug að þetta fólk styðji Saddam. En fjöldamorðing- inn í Bagdad brosir út að eyrum. Óli Tynes mótmælir mótmælendum. Morgunblaðið, 6. nóvember.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.