Fréttablaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 4
4 7. nóvember 2002 FIMMTUDAGUR VIÐSKIPTI SVEITARSTJÓRNARMÁL Félagsmála- ráðuneytið mun í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga skoða hvort tilefni sé til laga- breytinga þannig að kveðið verði skýrt á um hvaða heimildir sveit- arstjórnir hafa við meðferð fjár- muna. Ráðuneytið telur ríka ástæðu til að gera allt sem unnt er til að koma í veg fyrir að sveitar- félög rati í fjárhagsvanda líkt og Raufarhafnarhreppur gerði með röngum fjárfestingum. Samkvæmt ákvæðum stjórnar- skrár ráða sveitarfélög sjálf mál- efnum sínum eftir því sem lög ákveða. Ríkisvaldinu er því ekki heimilt að grípa inn í stjórnun sveitarfélags nema til þess sé lagaheimild. Í sveitarstjórnarlög- um er ekki að finna ákvæði sem takmarka heimildir sveitar- stjórna til að velja leiðir til ávöxt- unar fjármuna sveitarfélagsins. Félagsmálaráðuneytinu var því ekki unnt að ganga lengra en gert var í málefnum Raufarhafnar- hrepps, það er að minna kjörna sveitarstjórnarmenn á skyldur þeirra til að gæta hagsmuna íbúa sveitarfélagsins og sneiða eftir megni hjá áhættusömum fjárfest- ingum. Félagsmálaráðuneytið væntir þess að mál Raufarhafnarhrepps verði sveitarstjórnarmönnum og öllum þeim sem fara með opin- bert fé víti til varnaðar.  Gripið til aðgerða í kjölfar Raufarhafnarmáls: Reynt að hindra rangar fjárfestingar PÁLL PÉTURSSON Félagsmálaráðuneytið mun endurskoða lög vegna ófaranna á Raufarhöfn. SVEITARSTJÓRNIR „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál. Við höfum lagt okkur fram við að upplýsa Félagsmálaráðuneytið um stöð- una og enn fremur lagt fram okkar tillögur til úrbóta. Við bíð- um þess nú að eftirlitsnefnd taki afstöðu til þeirra,“ sagði Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri á Raufarhöfn. Hún segir aðstoð nauðsyn- lega til að koma bæjarfélaginu út úr vítahring yfirdráttar og fjármagnskostnaðar. Langtíma- lán upp á tugi milljóna króna sé einn lykilþáttur í því, auk niður- skurðar í rekstri bæjarfélags- ins. „Við þurfum að losa yfir- dráttinn en hann er verulegur. Þá er ljóst að við þurfum að laga til í rekstrinum. Við höfum ekk- ert að selja nema verðlítil hluta- bréf og félagslegt húsnæði,“ sagði Guðný Hrund Karlsdóttir. Menn velta fyrir sér ástæð- um þess að Raufarhöfn, sem fyrir örfáum árum var í hópi ríkustu sveitarfélaga landsins, er nú á heljarþröminni. Halla- rekstur upp á tugi milljóna króna mörg síðustu ár skýrir það að hluta, sem og fólksfækk- un. Rangar fjárfestingar í hluta- bréfum hafa hins vegar valdið hreppnum mestum búsifjum. „Það var farið full glannalega með peningana. Mikið var sett í áhættufjárfestingar sem töpuð- ust,“ sagði Guðný. Fyrir þremur árum seldi hreppurinn hlut sinn í sjávarút- vegsfyrirtækinu Jökli á Raufar- höfn. Útgerðarfélag Akureyr- inga og Burðarás keyptu Jökul fyrir 580 milljónir króna. Þrjú hundruð milljóna króna lán sveitarsjóðs var greitt upp. Hluti þess sem eftir stóð var notaður til framkvæmda og at- vinnuuppbyggingar. Fé var lagt í tvö tölvu- og fjarvinnslufyrir- tæki, Íslenska miðlun og Netver, sem bæði urðu gjaldþrota. Þar töpuðust 30 milljónir króna. Það sem eftir stóð af pening- um sem fengust við söluna á Jökli var sett í fjárvörslu hjá Ís- lenskum verðbréfum. Fyrrver- andi sveitarstjóri sagði þeim samningi upp og hófust í kjöl- farið umfangsmikil hlutafjár- kaup hreppsins. Til dæmis var keypt í DeCODE fyrir 20 millj- ónir, 10 milljónir fóru í Íslands- síma, tæpar 12 milljónir í Oz og 30 milljónir í erlenda hluta- bréfasjóði. Allt verðlítið eða verðlaust í dag, gróðinn af Jökli horfinn og hreppurinn í kreppu. „Líklega keyptu menn í góðri trú. Ég held að þetta ætti að verða öðrum víti til varnaðar og ég vænti þess að heimildir sveit- arstjórna til slíkra fjárfestinga verði endurskoðaðar,“ sagði Guðný Hrund Karlsdóttir. the@frettabladid.is Hreppur í kreppu vegna glannaskapar í fjárfestingum Rangar fjárfestingar í kjölfar sölunnar á útgerðarfyrirtæki Raufarhafnarhrepps koma nú fram með fullum þunga. Rúmlega 200 milljóna króna hagnaður hreppsins vegna sölunnar uppurinn á rúm- um þremur árum. Helstu eignir hreppsins verðlítil hlutabréf og illseljanlegt félagslegt húsnæði. GUÐNÝ HRUND KARLSDÓTTIR Segir að full glannalega hafi verið farið með fjármuni bæjarfélagsins. Ekkert vinnist með því að benda á sökudólg. Vandræði Raufarhafnar verði öðrum þó vonandi víti til varnaðar. HLUTABRÉFAKAUP RAUFARHAFNARHREPPS Sjóður/fyrirtæki: Kaupár: Upphæð: Eign í dag: Virði: 1. * DeCODE 1999 20,0 M.kr. 10,0 M.kr 1,500 M.kr. 2. Oz 2000 11,9 M.kr. 11,9 M.kr. 0,012 M.kr. 3. Íslandssími 2000 10,0 M.kr. 10,0 M.kr. 0,750 M.kr. 4. Arthur Treacher´s 2000 1,1 M.kr. 1,1 M.kr. 0,000 M.kr. 6. Aberdeen Global 2000 10,0 M.kr. 10,0 M.kr. 2,200 M.kr. 7. ** Íslensk miðlun 8. ** Netver 9. *** Erlendir sjóðir 1999 20,0 M.kr. 0,0 M.kr. * Bréf upp á 10 milljónir seld með tæplega 12 milljóna hagnaði. ** Fyrirtæki úrskurðað gjaldþrota - fjárfesting töpuð *** Bréfin í erlendu sjóðunum seld á innan við hálfvirði eða 10 milljónir króna HÚSBYGGJENDUR Kristinn Björns- son, forstjóri Skeljungs, hefur selt hlut að verðmæti 49 milljónir í Skeljungi. Nokkur barátta hefur verið um hlutabréf í fyrirtækinu að undanförnu. Kristinn segir söl- una nú ekki tengjast þeim hrær- ingum. „Það vill nú bara svo skringilega til að við hjónin erum að byggja í fyrsta skiptið á æv- inni,“ segir Kristinn. Hann segir að hlutabréfaeignin í Skeljungi hafi orðið til á löngum tíma og þetta sé þeirra sjóður að grípa til við húsbygginguna. Kristinn og eiginkona hans, Sólveig Péturs- dóttir dómsmálaráðherra, hafa keypt húseignina Fjólugötu 1 og ráðist í gagngerar endurbætur. Slíkt tekur í pyngjuna. Skeljungur hefur nýverið birt uppgjör. Kristinn er innherji í fé- laginu og sem slíkur eru mögu- leikar til sölu afmarkaðir við ákveðin tímabil. Næsta tækifæri hans til að selja er eftir aðalfund í febrúar. Kapphlaup um bréfin hafa valdið hækkun á þeim. Krist- inn segir það í sjálfu sér ekki hafa ráðið tímasetningunni, heldur út- gjöldin sem fylgja húsbygging- unni. Hann hafi fullan hug á að kaupa aftur bréf í Skeljungi þegar svigrúm gefst.  Forstjóri Skeljungs: Losar bréf í húsbyggingu GAGNGERAR ENDURBÆTUR Það er dýrt að ráðast í húsbyggingu og end- urbætur. Kristinn Björnsson, forstjóri Skelj- ungs, seldi bréf í fyrirtækinu til að fjármagna endurbætur á húseigninni Fjólugötu 1. TILFÆRSLA Í BAUGI Bónusfeðgar, þeir Jóhannes Jónsson og Jón Ás- geir Jóhannesson, seldu í gær hlutabréf í Baugi fyrir um 120 milljónir króna. Kaupandi var fjárfestingarfélagið Gaumur sem er í eigu fjölskyldunnar. Gaumur og tengdir aðilar eiga þriðjung í Baugi. SAMRUNI SAMÞYKKTUR Hlut- hafar Hlutabréfasjóðsins Auð- lindar hf. samþykktu á hluthafa- fundi með öllum greiddum at- kvæðum að sameinast Kaupþingi banka hf. Samkomulagið felur í sér að hluthafar Auðlindar hf. fái 0,1923 hluti í Kaupþingi banka hf. fyrir hvern hlut þeirra í Auðlind hf. BRAKIÐ Að minnsta kosti 17 manns fórust í slys- inu. Mikil þoka var yfir flugvellinum þegar flugvélin ætlaði að lenda. Flugslys í Lúxemborg: 17 manns fórust LÚXEMBORG, AP Að minnsta kosti 17 manns fórust og fimm slösuðust alvarlega þegar tveggja hreyfla flugvél brotlenti skammt frá al- þjóðaflugvellinum í Lúxemborg. Mikil þoka var á svæðinu þegar atvikið átti sér stað. Flugturnin- um í Lúxemborg bárust engar vís- bendingar um að vélin væri í vandræðum. Brotlenti hún fimm mínútum fyrir áætlaðan lending- artíma. Vélin var að koma frá Berlín í Þýskalandi og voru flestir hinna látnu Þjóðverjar.  AP/M YN D Flugráð: Umboð á ný SAMGÖNGUR Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur skipað nýtt flugráð í stað þess sem missti umboð sitt í júní síðastliðnum þar sem Alþingi framlengdi ekki um- boð þess og ráðherra hafði ekki fengið heimild til að skipa menn í stað þeirra sem Alþingi kaus áður. Alþingi samþykkti í síðustu viku lög sem tryggðu að ráðherra gæti skipað nýtt flugráð. Hilmar Bald- ursson er áfram formaður flugráðs, en aðrir í flugráði eru Óli Jón Gunn- arsson, Gunnar Hilmarsson, Erna Hauksdóttir, Jón Karl Ólafsson og Jens Bjarnason. Tveir aðalmenn í flugráði hverfa úr því, Karvel Pálmason og Árni Johnsen.  KJÖRKASSINN Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is Hefurðu áhyggjur af fjölgun gjaldþrota? Spurning dagsins í dag: Fylgist þú með bókaflóðinu? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 28,1%Nei Já GJALDÞROT ÁHYGGJUEFNI Ríflega 70% hafa áhyggjur af fjölgun gjaldþrota á Íslandi. 71,9%

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.