Fréttablaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 2
2 7. nóvember 2002 FIMMTUDAGUR STJÓRNMÁL Kathleen Kennedy Townsend, dóttir Robert Kenn- edy, tapaði í ríkisstjórakosning- um sem háðar voru í Maryland í Bandaríkjunum. Tapaði hún fyr- ir repúblikananum Robert Er- lich. Er ósigurinn mikið áfall fyrir demókrata því þeir hafa undantekningalítið verið við völd í fylkinu. Elizabeth Dole, eiginkona Bob Dole sem sóttist eftir útnefningu árið 2000 sem for- setaframbjóðandi repúblikana, vann aftur á móti sæti í öldunga- deild með sigri í Norður- Karólínuríki.  Kosningarnar í Bandaríkjunum: Kennedy tapaði FAÐMLAG Edward Kennedy, öldungardeildarþing- maður, faðmar Kathleen Kennedy Towns- end, frænku sína, fyrir kosningarnar. AP /M YN D SIGRÍÐUR ANNA ÞÓRÐARDÓTTIR Bandaríkjaforseti hefur styrkt sig mjög í sessi. Kosningarnar á þriðjudag staðfesta það. Bandarísku kosningarnar: Bush hefur styrkt sig STJÓRNMÁL „Þetta sýnir vel hvað Bandaríkjaforseti hefur styrkt sig, að því leyti finnst mér þetta mjög athyglisvert,“ segir Sigríður Anna Þórðardóttir, formaður ut- anríkismálanefndar Alþingis. „Það er tvímælalaust gríðarlega mikill styrkur fyrir hann að hafa meirihluta í báðum deildum.“ Sigríður Anna segir sérstak- lega mikilvægt fyrir Bandaríkja- forseta að hafa stuðning á Banda- ríkjaþingi nú þegar hann sé að beita sér á vettvangi Sameinuðu þjóðanna gagnvart Írak og alþjóð- legri hryðjuverkastarfsemi.  STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Fyrir valdajafnvægið innanlands í Banda- ríkjunum hefði verið betra að demókratar héldu þinginu. Bandarísku kosningarnar: Minna að- hald að stríðsplönum STJÓRNMÁL „Ég hef áhyggjur af því að þetta þýði ennþá minna að- hald að stríðsæsingastefnu Bush í utanríkismálum,“ segir Stein- grímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna. „Það er kannski helst hrollur í manni gagnvart því að þetta sé ávísun á að Bush fái enn frjálsari hendur með stríðs- plön sín.“ „Það er þrátt fyrir allt það lítill grundvallar pólitískur munur á þessum flokkum að ég get ekki sagt að ég geri óskaplega mikinn greinarmun á þeim,“ segir Stein- grímur en telur þó neikvætt að repúblikanar nái undirtökum á öll- um vígstöðvum í stjórnkerfinu.  WASHINGTON, AP Repúblikanar unnu mikilvægan sigur í þing- og ríkis- stjórnarkosningunum sem haldn- ar voru í fyrradag í Bandaríkjun- um. Náðu þeir meirihlutanum í bandarísku öld- ungadeildinni auk þess sem þeir bættu við meiri- hluta sinn í full- trúadeild Banda- ríkjaþings. Þegar ný full- trúadeild Banda- ríkjaþings verður kynnt til sögunnar í janúar á næsta ári verður það í fyrsta sinn í 50 ár sem repúblikan- ar ráða á öllum vígstöðvum, þ.e. í Hvíta húsinu, á þinginu og í öld- ungadeildinni. Úrslit kosninganna eru mikill sigur fyrir George W. Bush Bandaríkjaforseta. Mun hann eiga auðveldara með að koma málum sínum í gegn í náinni framtíð, þar á meðal frumvarpi um skatta- lækkanir í landinu og frumvarpi um að styrkja heimavarnarráðu- neyti landsins. Auk þess fær hann öflugra fylgi en áður í baráttunni gegn hryðjuverkum. Þess má geta að Bush er aðeins þriðji forsetinn í sögu Bandaríkjanna sem tekst að bæta við fylgi sitt á miðju kjör- tímabili. Öðrum sem hefur tekist það eru Franklin Roosevelt árið 1934 og Bill Clinton árið 1998. Eftir kosningarnar eiga Repúblikanar nú 51 sæti af 100 gulltryggð í öldungadeildinni. Enn átti eftir að telja atkvæði í gær í Louisiana og í Suður-Dakóta, þar sem atkvæði repúblikana og demókrata voru nánast jöfn. Alls var kosið um 34 sæti í öldunga- deildinni í kosningunum. Jeb Bush, yngri bróðir George W. Bush Bandaríkjaforseta, hélt ríkisstjórastöðu sinni í Flórída auðveldlega. Demókratar höfðu vonast til þess að sigra hann, bæði vegna mistakanna sem urðu í at- kvæðagreiðslu í ríkinu við for- setakosningarnar fyrir tveimur árum og til þess að leggja grunn- inn að sigri á eldri bróðurnum í næstu forsetakosningum. Það gekk ekki eftir og með góðri hjálp frá stóra bróður var sigurinn í höfn. Demókratar viðurkenndu ósig- ur sinn í gær og sögðu Bandaríkja- forseta vera manninn á bak við sigur repúblikana. Kosningabar- átta repúblikana hafi snúist um stríðið gegn hryðjuverkum og hugsanlegar hernaðaraðgerðir gegn Írak. Fyrir vikið hefði lítið farið fyrir umræðu demókrata um vandræði í efnahagsmálum lands- ins.  Repúblikanar ráða öllu Repúblikanaflokkurinn vann sigur í þing- og ríkistjórnarkosningunum í Bandaríkjunum. Úrslitin eru talin mikill sigur fyrir George W. Bush Bandaríkjaforseta. FEÐGAR FAÐMAST Jeb Bush, til hægri, faðmar föður sinn George Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, eft- ir að úrslitin í kosningunum voru orðin kunn. Bush er að- eins þriðji for- setinn í sögu Bandaríkjanna sem tekst að bæta við fylgi sitt á miðju kjörtímabili. AP /M YN D Prófkjör á Skaga: Kjörkassi í bæjarferð STJÓRNMÁL Vilhjálmur Egilsson, frambjóðandi í prófkjöri sjálf- stæðismanna í Norðvesturkjör- dæmi, hefur gert athugasemdir við framkvæmd utankjörstaðaat- kvæðagreiðslu í prófkjörinu á Akranesi. Þar fóru menn með kjörkassann út í bæ og söfnuðu at- kvæðum. Var kjörkassinn um tíma staðsettur í fyrirtæki í bæn- um þar sem starfsmenn greiddu atkvæði. „Ég hef engan kært en gert at- hugasemdir og vil fá að vita hvort þetta sé leyfilegt. Ef þetta má á Akranesi á að leyfa þetta alls stað- ar,“ segir Vilhjálmur Egilsson og tekur fram að þarna séu sóma- menn á ferð sem engum vilji illt. „Ég vil aðeins að öll mörkin séu jafn stór,“ segir hann. Töluverður mannfjöldi greiddi atkvæði utankjörfundar á meðan kjörkassinn var í bæjarferð og er málið nú í skoðun þeirra sem ábyrgð bera á prófkjörinu.  Ekið á stúlku: Talin í lífs- hættu eftir umferðarslys UMFERÐARSLYS Stúlka á unglings- aldri slasaðist alvarlega í um- ferðarslysi í Mosfellsbæ í gær- kvöld. Keyrt var á stúlkuna þar sem hún var á gangi á eða við Vesturlandsveg. Lögregla vildi ekkert segja um tildrög slyssins þegar blaðið var að fara í prentun í gærkvöldi. Vakthafandi læknir á Land- spítalanum í Fossvogi sagði að stúlkan væri mjög alvarlega slös- uð og talin í lífshættu. Um níu- leytið var verið að fara með hana í aðgerð. Henni var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun.  DÓMSMÁL „Þetta snýst um atvinnu- frelsi og framkvæmdavenju,“ sagði Ólafur Björnsson lögmaður. Hann hefur fyrir hönd mjólkur- framleiðenda stefnt ríkinu til að fá ógiltan úrskurð landbúnaðar- ráðuneytisins þess efnis að greiðslumark fyrir mjólk skuli einungis renna til framleiðenda sjálfra, ekki megi flytja það milli manna. Alls hafa um 20 bændur, á Suð- urlandi, í Borgarfirði og úr Dölun- um leitað aðstoðar lögmanns vegna þessa og telja þetta skerða atvinnufrelsi. Bændurnir benda á að þeir hafi um árabil samið sín á milli um viðskipti með mjólk. Bændur sem ekki hafa fullnýtt mjólkurkvóta sinn hafa fengið aðra til að framleiða hann fyrir sig. Eigandi kvótans hefur fengið greiðslumarkið en framleiðand- inn álíka upphæð frá mjólkursam- laginu. Landbúnaðarráðuneytið hefur úrskurðað að slíkt sé ólög- legt og hefur bakfært beingreiðsl- ur vegna slíkra viðskipta fyrir verðlagsárið 2001. „Það verður flutt eitt prófmál en þetta varðar talsverða hags- muni fjölmargra bænda. Ráðu- neytið túlkar búvörulögin með þeim hætti að beingreiðsla til bænda sé styrkur til raunveru- legra framleiðenda. Við erum ekki sammála því,“ sagði Ólafur Björnsson.  Bændum bannað að versla með mjólk sín á milli: Telja stjórnvöld skerða atvinnufrelsi KÝR Á BEIT Mjólkurbændur vilja geta átt viðskipti með mjólk sín á milli. Seðlabankinn lækkar vexti: Níunda lækkunin á árinu PENINGAMÁL Seðlabankinn mun lækka vexti í næstu endurhverfu viðskiptum sínum um 0,5%. Stýri- vextir verða því 6,3%. Vaxtaá- kvörðunin var tekin á fundi banka- stjórnar í gær. Vextir Seðlabank- ans hafa því lækkað um 3,8% á þessu ári í níu vaxtalækkunum. Vaxtalækkunin nú kom ekki á óvart, því flestar fjármálastofnan- ir höfðu gert ráð fyrir henni í spám sínum. Vextir hafa lækkað um rúm 5% frá því þeir voru hæstir.  Guðlaugur Þór Þórðarson situr í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í stjórn Orkuveitunnar lýstu vantrausti á Alfreð Þorsteins- son stjórnarformann á síðasta stjórnarfundi. Það hafa allir sína kosti. En það er einlæg skoðun mín að hagsmunum Reykvíkinga væri betur borgið ef hann stýrði ekki Orku- veitu Reykjavíkur. SPURNING DAGSINS Er Alfreð alveg ómögulegur?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.