Fréttablaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 12
12 7. nóvember 2002 FIMMTUDAGURFÓTBOLTI
GIANLUCA SIGNORINI
Gianluca Signorini, fyrrverandi leikmaður
Parma og Genoa, lést í gær, 42 ára að aldri.
Banamein hans var MS-sjúkdómurinn.
Javier Saviola og Juan RomanRiquelme hafa verið kallaðir
inn í argentínska leikmannahóp-
inn fyrir vináttulandsleik gegn
Japan í næsta mánuði. Leikmenn-
irnir misstu báðir af heimsmeist-
arakeppninni í Japan og Suður-
Kóreu þar sem landsliðið beið af-
hroð eftir að hafa verið spáð
heimsmeistaratitlinum. Diego
Simeone hefur einnig verið kall-
aður í landsliðshópinn. Argent-
ínskir fjölmiðlar segja að nú sé
kominn tími hefndarinnar.
Brasilíski framherjinn Ron-aldo, sem leikur með Real
Madrid, segist
viss um að
markaflóðgáttirn-
ar muni brátt
bresta. Ronaldo
skoraði tvö mörk
í fyrsta leik sín-
um með liðinu en
hefur ekki fundið
netmöskvana síð-
an. „Ég veit að ég hef ekki skorað
mörk en ég mun gera það innan
skamms,“ segir framherjinn.
Hann segist hafa þurft að aðlag-
ast breyttum leikstíl. „Ég er allur
að koma til og nú þarf ég bara að
skora.“
FÓTBOLTI
ÍÞRÓTTIR Í DAG
16.45 RÚV
Handboltakvöld
18.00 Sýn
Sportið
18.30 Sýn
Heimsfótbolti með West Union
22.30 Sýn
Sportið
23.00 Sýn
HM 2002 (Brasilía - Tyrkland)
GOLF Þýski kylfingurinn Bernhard
Langer hefur áhuga á að taka við
fyrirliðabandi Evrópuúrvalsins í
Ryder-keppninni í golfi. „Þetta er
áskorun sem ég myndi taka og ég
held að ég sé góður kandídat í
starfið,“ sagði Langer í samtali
við þýska fjölmiðla.
Langer hefur tekið þátt í tíu
Ryder-Cup mótum og var í sigur-
liðinu í ár á Belfry-vellinum.
Hann fékk þrjá og hálfan vinning
af fjórum mögulegum. Langer og
Ian Woosnam frá Wales voru fyr-
irliðanum Sam Torrance innan
handar í keppninni í ár og eru þeir
taldir líklegastir til að hreppa
hnossið. Woosnam hefur einnig
lýst því yfir að hann hafi áhuga á
fyrirliðabandinu.
Bandaríkin og úrval kylfinga
úr Evrópu leika annað hvert ár
um bikarinn. Titilvörn Evrópu
verður á Oak Hill-vellinum í
Michigan í Bandaríkjunum eftir
tvö ár.
Bernhard Langer:
Vill taka við
fyrirliðabandinu
BERNHARD LANGER
Stóð sig frábærlega þegar Evrópa mætti Bandaríkjunum í Ryder-bikarnum í ár. Hann hlaut
þrjá og hálfan vinning af fjórum mögulegum.
HANDBOLTI HK mætir ÍR í átta liða
úrslitum SS-bikars karla en dreg-
ið var í gær. Afturelding fær
Gróttu/KR í heimsókn og verður
væntanlega um stórslag að ræða.
Breiðablik, sem spilar í utandeild-
inni, fær Fram í heimsókn og
Fylkismenn fá Valsara heim í Ár-
bæinn. Leikirnir fara fram þann
4. desember.
FH fær Fram í heimsókn í SS-
bikarkeppni kvenna. Valur mætir
Stjörnunni en Haukar fara norður
yfir heiðar og mæta sameinuðu
liði KA/Þórs. Sameinað lið Fylkis
og ÍR á erfiðan leik fyrir höndum
en það tekur á móti efsta liði
deildarinnar, ÍBV. Leikið verður
27. nóvember.
SS-bikarkeppnin í handbolta:
Afturelding fær
Gróttu/KR heim
SS-BIKAR
8 liða úrslit kvenna:
Fylkir/ÍR - ÍBV
KA/Þór - Haukar
Valur - Stjarnan
FH - Fram
8 liða úrslit karla:
Breiðablik - Fram
HK - ÍR
Fylkir - Valur
UMFA - Grótta/KR
HART BARIST
Sverrir Björnsson, leikmaður Aftureldingar,
tekur hér hart á Páli Þórólfssyni, leikmanni
Gróttu/KR, í leik liðanna fyrir skömmu.
FÓTBOLTI Skagamaðurinn ungi Jó-
hannes Karl Guðjónsson, knatt-
spyrnumaður hjá Real Betis á
Spáni, er ekki sáttur við hve lítið
hann hefur fengið að spreyta sig
með liðinu að undanförnu og er
farinn að hugsa sér
til hreyfings.
„Ég hef ekkert
fengið að spila á
þessu tímabili og sé
mig tilneyddan til
að leita á önnur mið
eins og málin eru
núna,“ segir Jó-
hannes Karl.
Skagamaðurinn
segist ætla að
þreifa fyrir sér á
leikmannamarkað-
inum í Evrópu þeg-
ar hann verður opn-
aðu að nýju í janúar.
Hann segist alltaf
hafa langað til að
spila á Englandi og
nú er komið upp
spennandi tilboð frá liði í efstu
deildinni þar sem og í Þýskalandi.
Jóhannes Karl vildi þó ekki gefa
upp hvaða lið það eru.
„Ég vona að Betis setji ekki of
háan verðmiða á mig,“ segir Jó-
hannes Karl, sem gerði sex ára
samning við Betis í fyrra. Í samn-
ingnum er ákvæði sem segir að
ef lið borgi 50 milljónir punda
fyrir hann sé honum frjálst að
fara. „Ég hugsa að það séu fá lið
sem vilja borga 50 milljónir
punda fyrir mig, að minnsta kosti
á þessari stundu“ segir Jóhannes
Karl hlæjandi og útskýrir að
spænsk lið setji yfirleitt slík
ákvæði í samninga. Aðspurður
hvaða verð hann telji að Betis
vilji fá sagði hann: „Ég hef ekk-
ert spilað þetta tímabil og lítið á
síðasta tímabili, þannig að ef það
er litið á mig sem hverja aðra
markaðsvöru hlýt ég að falla
mikið í verði. Ég myndi halda að
ein milljón punda, kringum 100
milljónir króna, sé sanngjarnt
verð.“
Kærasta Jóhannesar Karls, Jó-
fríður, á von á sér 19. mars. Jó-
hannes Karl segist ekki þurfa að
fara á foreldranámskeið, hann
hafi þetta allt í blóðinu. „Ég held
að við séum bæði fædd í þetta
hlutverk og þetta verður frábært.
Ég veit ekki hvernig þessi upplif-
un er en mér finnst þetta vera
einn megintilgangurinn í lífinu.
Mig hefur alltaf langað til að eign-
ast stóra fjölskyldu og stefnan er
sett á það, ef allt gengur vel.“
kristjan@frettabladid.is
„Hlýt að hafa fallið
mikið í verði“
Jóhannes Karl Guðjónsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er ekki sáttur við dvölina hjá
Real Betis. Hefur ekki fengið að spila einn leik á tímabilinu. Er farinn að hugsa sér til hreyfings.
Tilboð frá Þýskalandi og Englandi.
JÓHANNES KARL GUÐJÓNSSON
Finnst gott að búa á Spáni. Hann stundar golf af miklum krafti og er kominn með 15 í forgjöf. Birgir Leifur Hafþórsson, félagi hans af
Akranesi, dvaldi hjá honum um daginn og sýndi honum réttu pútttökin.
Jóhannes Karl
var keyptur til
Betis á síðasta
ári frá hol-
lenska liðinu
RKC Waalwijk
fyrir um 300
milljónir ís-
lenskra króna.
Hann kom við
sögu í tólf
leikjum hjá
liðinu á síð-
asta tímabili,
þar af var
hann átta
sinnum í byrj-
unarliðinu.
Ótrúleg úrslit í
knattspyrnu:
149-0 fyrir
meistarana
FÓTBOLTI AS Adema, nýkrýndir
meistarar í knattspyrnu á
Madagaskar, unnu stærsta knatt-
spyrnusigur sinn á ferlinum þeg-
ar þeir lögðu SOE að velli með
149 mörkum gegn engu. Leik-
menn Adema skoruðu þó fæst
mörkin sjálfir því andstæðing-
arnir ákváðu að mótmæla dómi
með því að skora í eigið mark.
Mótmælin upphófust þegar
þjálfari SOE, Ratsimandresy
Ratsarazaka, missti stjórn á
skapi sínu við dómara leiksins.
Leikmennirnir ákváðu að styðja
þjálfarann með því að skora í
eigið mark. Í hvert skipti sem
þeir hófu leikinn að nýju spörk-
uðu þeir boltanum aftur að eigin
marki. Leikmönnum Adema virt-
ist skemmt og gerðu lítið í því að
stöðva þá.
Útvarpsstöð á Madagaskar
telur að nýtt heimsmet hafi verið
sett með þessu.
SOE varð meistari á Madaga-
skar á síðasta ári en misstu af titl-
inum til Adema í síðustu viku.