Fréttablaðið - 07.11.2002, Side 14
Tónlistarmaðurinn Nick Caveheldur tónleika hér á landi
mánudaginn 9. desember á
Broadway. Hann
kemur hingað
ásamt fiðlu-,
trommu- og
bassaleikara
hljómsveitar
sinnar The Bad
Seeds. Cave tók
nýverið upp nýja
plötu, „Noctur-
ama“, sem kemur út í febrúar.
Barði Jóhannsson, höfuðpaurhljómsveitarinnar Bang
Gang, hefur skrifað undir höf-
undarréttarsamning við EMI í
Frakklandi. Fyrirtækið mun því
hafa rétt á öllum höfundarverk-
um hans næstu fjögur árin og
mun á þeim tíma aðstoða hann
við að koma sér á framfæri innan
tónlistarbransans. Ný breiðskífa
er væntanleg frá Bang Gang
snemma á næsta ári auk þess
sem verið er að gera heimildar-
mynd um gerð plötunnar.
Kviðdómendur í máli leikkon-unnar Winonu Ryder komust
ekki að sameiginlegri niðurstöðu
á fyrsta degi um-
ræðna en héldu
áfram störfum
sínum í gær.
Winona hefur ver-
ið í dómshúsinu
allan tímann sem
kviðdómendur
hafa verið í burtu,
þrátt fyrir að
henni sé það ekki skylt.
Leikarinn Russell Croweminntist Richard Harris á sér-
stakri vöku með því að fara með
ljóð honum til
heiðurs. Það vakti
athygli að það var
sama ljóðið og
hann flutti þegar
hann tók við
Bafta-verðlaunun-
um. Þá brjálaðist
hann yfir því að
það hefði verið
klippt út úr sjónvarpsútsending-
unni frá verðlaununum. Að ljóða-
flutningi loknum lyfti hann upp
krús af Guinness og skálaði í
nafni vinar síns sem hann kynnt-
ist við tökur á „Gladiator“-mynd-
inni.
Leik- og söngkonan JenniferLopez hefur viðurkennt að hún
og leikarinn Ben
Affleck séu trúlof-
uð. Hún hefur
samþykkt að tala
um trúlofun sína
við sjónvarpskon-
una Diane Sawyer.
Orðrómur um að
parið ætli að
ganga í það heila-
ga á næsta Val-
entínusardegi
hefur verið á
kreiki í nokkrar
vikur.
14 7. nóvember 2002 FIMMTUDAGUR
KVIKMYNDIR Clint Eastwood er
fæddur 31. maí árið 1930 í San
Francisco. Hann er sonur járn-
iðnaðarmanns og hætti í mennta-
skóla snemma. Hann hóf að leika
í b-myndum en fékk hlutverk í
vinsælum sjónvarpsþætti,
„Rawhide“, árið 1959. Persóna
hans varð á meðal þeirra vin-
sælli og varð Eastwood þekkt
andlit fyrir vikið.
Hann gulltryggði svo vinsæld-
ir sínar árið 1964 þegar hann tók
að sér hlutverk í spagettívestran-
um „A Fistful of Dollars“. Mynd-
in leiddi að sér framhaldsmynd-
irnar „For a Few Dollars More“
(‘65) og „The Good, the Bad and
the Ugly“ (‘66), sem varð vin-
sælust þeirra allra. Eftir þær var
Eastwood orðinn að kvikmynda-
stjörnu um allan heim.
Í upphafi áttunda áratugarins
tók hann að sér hlutverk
grugguga lögregluforingjans
Dirty Harry. Myndin leiddi af
sér fjórar framhaldsmyndir og
kom sú síðasta, „The Dead Pool“,
út árið ‘88. Árið ‘86 var hann
kjörinn bæjarstjóri Carmel, sem
er smábær í Kaliforníu.
Fyrsta kvikmyndin sem hann
leikstýrði hét „Play Misty for
Me“ og kom hún út árið 1971.
Fyrstu leikstjóraverðlaunin fékk
hann 1988 á Golden Globe verð-
launahátíðinni fyrir kvikmynd-
ina „Bird“. Hann fékk Ósk-
arsverðlaunin fyrir leikstjórn
fyrir myndina „Unforgiven“ árið
1994 og fékk sú mynd einnig
verðlaun sem besta myndin. Síð-
an þá hefur hann leikstýrt sex
kvikmyndum með misjöfnum
árangri.
Nýjasta mynd hans, „Blood
Work“, er byggð á samnefndri
skáldsögu Michael Connelly. Í
henni leikur Eastwood fyrrum
alríkislögreglumanninn Terry
McCaleb, sem sagði starfi sínu
lausu eftir að hafa fengið hjarta-
áfall og neyðst til þess að gang-
ast undir hjartaígræðslu.
Maður sem vill að McCaleb
rannsaki dauða systur sinnar
ræður hann til starfa, en
McCaleb tengist henni að því
leyti að hjartað sem nú slær í
brjósti hans kom frá henni.
Þegar McCaleb kemst á
sporið áttar hann sig á því að
morðingi hennar er líklega
fjöldamorðingi sem hann eltist
við í mörg ár á meðan hann starf-
aði fyrir FBI.
biggi@frettabladid.is
BLOOD WORK
Kvikmyndin er spennutryllir og fær hjartað til þess að slá örar. Vonandi verður það þeim
gamla ekki um of.
Gamli refur
snýr aftur
Á morgun birtist gamli refurinn Clint Eastwood aftur á hvíta tjaldinu.
Í myndinni „Blood Work“ fer hann með aðalhlutverkið auk þess að
leikstýra sjálfur. Myndin er sýnd í Sambíóunum og Háskólabíó.
STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 3.50
MR. DEEDS kl. 3.50 og 6
ROAD TO PERD... kl. 5, 7.30 og 10
ROAD TO PERD... kl. 5.30, 8, 9 og 10.30
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 b.i. 16 ára
kl. 6FÁLKAR
MAÐUR EINS OG ÉG kl. 6
THE BOURNE IDENTITY kl. 8 Sýnd kl. 8 og 10
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 4 VIT429
YA YA SISTERHOOD 5.50, 8 og 10.15 VIT455 HAFIÐ kl. 3.40, 5.50 og 8
VIT
433
SIGNS kl. 8 VIT427
MAX KLEEBLE´S.. kl. 4 og 6 VIT441
BOURNE IDENTITY kl. 10.15 VIT427
INSOMNIA kl. 10.15 VIT444
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15 VIT 448
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15 VIT 461
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15 VIT 462
kl. 5.45, 8 og 10.10HAFIÐ
kl. 10.10PORNSTAR-RON JEREMY
KVIKMYNDIR
Alfred Hitchcock kynntigamla góða búrhnífinn til
sögunnar sem ákjósanlegt morð-
vopn í Psycho árið 1960. John
Carpenter fékk Michael Myers
hnífinn svo fyrst í hendur í Hall-
oween árið 1978 og hann hefur
brytjað niður barnfóstrur á tán-
ingsaldri nánast óslitið síðan. Og
nú er mál að linni.
Halloween-myndirnar eru
orðnar átta og þessi nýjasta
bætir engu við löngu útvatnaðan
bálkinn en nær nýjum hæðum í
lélegum leik og andleysi og þó
menn séu eitthvað að reyna að
hafa húmor fyrir sjálfum sér
hérna bjargar það engu eftir að
Scream tók þessa kvikmynda-
grein í gegn.
Það er samt alltaf eitthvað
heimilislegt við hann Michael
þar sem hann hengslast áfram í
samfestingnum sínum, pollró-
legur með hvítu grímuna sína,
við hallærislegan og huggulegan
skemmtaraundirleik
Carpenters. Gamli sjarminn og
smá spennukippur í lokin ná þó
ekki að bjarga myndinni. Mich-
ael er hrein illska og ódrepandi,
eins og allir vita, en myndirnar
um hann hafa vonandi sungið
sitt síðasta.
Þórarinn Þórarinsson
HALLOWEEN RESURRECTION:
Leikstjóri: Rick Rosenthal
Aðalhlutverk: Bianca Kajlich, Brad Loree,
Busta Rhymes og Jamie Lee Curtis
Ekki meir,
ekki meir
FRÉTTIR AF FÓLKI
DÓMAR Í
ERLENDUM MIÐLUM:
Internet Movie Database - 6.7 af 10
Rottentomatoes.com - 54% = Rotten
Ebert & Roeper - Tveir þumlar upp
Nicole Kidman segir að skiln-aður hennar við Tom Cruise
hafi verið henni að kenna. Hún
segir að hún hafi viljað einbeita
sér að leikferli
sínum sem Nicole
en ekki „eigin-
kona Tom
Cruise“. Hún seg-
ist aðeins rétt
byrjuð að átta sig
á því í dag hversu
hátt gjald hún
greiddi fyrir feril
sinn. Hún segir einnig að ef hún
ætti að velja í dag myndi hún
velja hlutverk húsmóðurinnar.
...og meira um Nicole Kidman því
hún er nú þegar orðuð við til-
nefningu til Óskarsverðlaunanna
fyrir leik sinn í myndinni „The
Hours“. Þar leikur hún rithöfund-
inn Virginiu Woolf. Með henni í
myndinni leika einnig Meryl
Streep og Julianne Moore.
ROBERT BLAKE
Leikarinn Robert Blake, sem sakaður um
að hafa orðið eiginkonu sinni að bana,
sést hér er hann fór fram á reynslulausn úr
gæsluvarðhaldi í síðasta mánuði. Hann
mun þurfa að bera vitni í fangelsinu, þar
sem hann dvelur, í næstu viku.
Nóvember – Desember
Jólahlaðborð
frá 29. nóvember
Skötuveisla
23. desember
Velkominn í jólahlaðborðið okkar
Einar Geirsson
Yfirmatreiðslumaður
Opnunartími
Hádegi mán. – föst. 12.00 – 14.00
Kvöld alla daga frá 18.00
tveir fiskar
( við Reykjavíkurhöfn )
Geirsgata 9 • 101 reykjavik
sími 511 - 3474
netfang restaurant@restaurant.is
heimasíða www.restaurant.is