Fréttablaðið - 07.11.2002, Side 16
7. nóvember 2002 FIMMTUDAGUR
20.30 Félag stjórnmálafræðinga boðar
til fundar um prófkjör stjórn-
málaflokka og hvaða áhrif þau
hafi á flokksstarf þeirra. Fundur-
inn verður á Sólon Íslandus.
BÓKAKVÖLD
20.00 Ævisögum verða gerð góð skil á
Súfistanum bókakaffi í Bókabúð
Máls og menningar, Laugavegi 18.
Þar munu Anna Kristine Magnús-
dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir,
Halla Kjartansdóttir og Guðrún
Egilsson lesa úr bókum sínum.
20.30 Rússneskt bókmennta- og menn-
ingarkvöld verður í Deiglunni, Ak-
ureyri. Aðgangseyrir er 500 kr.
TÓNLEIKAR
15.00 Gullæðið sýnd í Háskólabíói við
undirleik Sinfónuhljómsveitar Ís-
lands.
19.30 Metropolis sýnd í Háskólabíói
við undirleik Sinfónuhljómsveitar
Íslands.
20.00 Sensei, Ég og Whole orange
spila á Fimmtudagsforleik Hins
hússins. Aðgangur ókeypis.
21.00 Menningar- og safnanefnd Garða-
bæjar heldur tónleika á Garða-
torgi. Björn Thoroddsen, bæjar-
listamaður Garðabæjar, spilar
ásamt Gunnari Hrafnssyni og
Dan Cassidy.
21.00 Balzamerhljómsveitin Bardukha
heldur ferna 20 mínútna langa
örtónleika á öldurhúsinu Café
Victor í Hafnarstræti. Miðaverð
fimmtíu krónur.
22.00 Dúettinn Súkkat spilar á 22. Að-
gangseyrir er kr. 800.
LEIKSÝNINGAR
20.00 Veislan sýnd á Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins. Örfá sæti laus.
20.00 Kryddlegin Hjörtu eru sýnd á
Stóra sviði Borgarleikhússins.
20.00 Jón og Hólmfríður er sýnt á Nýja
sviði Borgarleikhússins.
20.00 Skýfall er sýnt í Nemendaleikhús-
inu.
21.00 Sellófon er sýnt í Hafnarfjarðar-
leikhúsinu. Uppselt.
FIMMTUDAGURINN
7. NÓVEMBER
KVIKMYNDIR Kvikmyndin
Metropolis eftir Fritz Lang er
einn af gullmolum kvikmynda-
sögunnar. Íslenskum kvik-
myndaáhugamönnum gefst nú
tækifæri til að sjá myndina í
upprunalegri mynd með atriðum
sem ekki hafa sést áður. Kvik-
myndasafn Íslands hefur fengið
myndina til landsins og Sinfóníu-
hljómsveitin mun leika undir
sýningu hennar í kvöld klukkan
19.30. Kvikmyndin Gullæðið eft-
ir Charlie Chaplin verður svo
sýnd með undirleik klukkan 15 á
laugardaginn.
Myndin var frumsýnd árið
1927 og er einhver dýrasta kvik-
mynd sem var gerð á þessu tíma-
bili. Í henni koma fram hug-
myndir um ofurmenni og þræla
sem eru byggðar á heimspeki-
kerfi Nietzsches, sem átti vax-
andi fylgi að fagna í Þýskalandi
með tilkomu nasismans. Lang
ætlaði myndinni þó aldrei að
hlaða undir kenningar nasista en
hún féll Hitler þó engu að síður
svo vel í geð að hann bauð honum
stöðu forstöðumanns allrar kvik-
myndaframleiðslu þriðja ríkis-
ins. Lang afþakkaði og flúði til
Bandaríkjanna.
Metropolis var gerð upp sér-
staklega fyrir frumsýningu
Berlínarhátíðarinnar 2001. Film-
an var pússuð og myndskeið end-
urunnin með stafrænni tækni.
Tónlistin við myndina var endur-
gerð fyrir þessa útgáfu þar sem
upprunalega tónlistin náði ekki
utan um myndina í fullri lengd.
Oddný Sen stjórnar verkefn-
inu en Kvikmyndasafnið tók
fyrst upp á því árið 1995 að sýna
sígildar þöglar myndir með und-
irleik tónlistarmanna, en Hreyfi-
myndafélagið stóð fyrir slíkri
sýningu ári áður. „Hugmyndin
var að gera þetta að árlegri hefð
en þetta eru erfið og kostnaðar-
söm verkefni og landið er lítið og
fjármagn því takmarkað. Við
sýndum gamalt eintak af
Metropolis 1995 í tilefni af 100
ára afmæli kvikmyndanna og
fengum tvo píanóleikara til að
sjá um undirleikinn. Annar þeir-
ra er Frank Strobel, sem hefur
sérhæft sig í undirleik við kvik-
myndir, og hann kemur til lands-
ins núna og stjórnar hljómsveit-
inni.“
Oddný segir þessa útgáfu af
Metropolis vera hvalreka en eft-
ir frumsýninguna í janúar 1927
voru 30 mínútur klipptar úr
myndinni vegna þess að hún þótti
of löng. „Hún hefur því aldrei
verið sýnd hérlendis í þeirri út-
gáfu sem leikstjórinn skilaði af
sér og ég á von á því að áhorfend-
ur skilji söguna betur nú.“
thorarinn@frettabladid.is
Sinfónían leikur undir
endurnýjuðu meistaraverki
Kvikmyndin Metropolis, sem var frumsýnd árið 1927, verður sýnd í
fyrsta skipti á Íslandi í upprunalegri mynd í kvöld. Sinfóníuhljómsveit
Íslands leikur undir þessu þögla meistaraverki þannig að stemningin í
Háskólabíói verður væntanlega mögnuð.
METROPOLIS
Féll Hitler svo vel í geð að hann bauð leikstjóranum Fritz Lang að verða forstöðumaður
allrar kvikmyndaframleiðslu þriðja ríkisins. Hann afþakkaði og flúði til Bandaríkjanna.
Fresh Matte nýja farðann
frá Maybelline?
Hann er mattur
og endist allan daginn!
MAYBE SHE’S BORN WITH IT. MAYBE IT’S MAYBELLINE.®
Hefur þú prófað.....
ODDNÝ SEN
„Ég sá Intolerance sem D.W. Griffith
gerði árið 1916 með undirleik þegar ég
var við nám í París 1984. Þetta er
heillöng mynd, eitthvað í kringum
þrír tímar, og það var fullkomlega
ógleymanlegt að sitja undir sýningunni.
Þetta er engu líkt enda er maður hvorki
á tónleikum né bíósýningu. Þetta er
einhvers konar þriðja vídd.“
BÆKUR Bókmenntaverðlaun Hall-
dórs Laxness verða afhent í dag. Sá
sem hlýtur verðlaunin að þessu
sinni hefur áður hlotið margvísleg-
an heiður fyrir skrif sín á löngum
ferli og hefur meðal annars verið
tilnefndur til Íslensku bókmennta-
verðlaunanna en samkvæmt upp-
lýsingum frá Vöku-Helgafelli sýnir
hann nú á sér nýja hlið. Verðlaunin
verða afhent í Þjóðmenningarhús-
inu og þá kemur í ljós um hvern er
að ræða þegar höfundurinn tekur
við fyrsta eintaki bókarinnar og
500.000 króna verðlaunafé.
Tæplega tuttugu handrit bárust
í keppnina en fyrr á þessu ári var
auglýst eftir handriti að skáldsögu
eða smásagnasafni til að keppa um
verðlaunin sem ætlað er að efla ís-
lenskan sagnaskáldskap og stuðla
þannig að endurnýjun íslenskrar
frásagnarlistar. Skúli Björn Gunn-
arsson hlaut fyrstur Bókmennta-
verðlaun Halldórs Laxness árið
1996 fyrir smásagnasafnið Lífs-
klukkan tifar og í fyrra fékk Bjarni
Bjarnason verðlaunin fyrir skáld-
söguna Mannætukonan og maður
hennar.
Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness:
Falla þekktum
höfundi í skaut
Sólar saga eftir SigurbjörguÞrastardóttur kemur út hjá
JPV útgáfu í vikunni. Bókin, sem
hlaut Bókmennta-
verðlaun Tómasar
Guðmundssonar
fyrir fáeinum dög-
um, segir frá
ungri íslenskri
konu sem verður
fyrir hrottafeng-
inni árás í feg-
urstu borg Ítalíu.
Hún einsetur sér að ná áttum og
sáttum í stað þess að flýja heim í
faðm ástvina. Einsemd sinni, ang-
ist og sorg miðlar hún til lesand-
ans í gegnum myndrænan texta
Sigurbjargar en þeir sem þekkja
ljóðabækur hennar, Blálogaland
og Hnattflug, ættu að kannast vel
við stíleinkenni höfundarins.
NÝJAR BÆKUR
Miðasalan er opin kl. 13-18 alla virka daga og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu
opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is www.borgarleikhus.is
STÓRA SVIÐ
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
5. sýn Blá kort - fö 8/11 kl. 20
Fi 14/11 kl. 20, su 17/11 kl. 20, fö 22/11 kl. 20
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Su 10/11 kl. 14
Su 17/11 kl. 14
Lau 23/11 kl. 20 ATH: Kvöldsýning
Su 24/11 kl. 14
KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel
Í kvöld kl. 20
Fö 15/11 kl. 20
Lau 30/11 kl. 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Lau 9. nóv kl. 20 - 60. sýning - AUKASÝNING
Lau 16. nóv kl. 20 - AUKASÝNING
Fim 21. nóv kl. 20 - AUKASÝNING
Fö 29. nóv kl. 20 - AUKASÝNING
NÝJA SVIÐ
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum e. Gabor Rassov
Í kvöld kl. 20
Lau 9/11 kl. 20
AND BJÖRK, OF COURSE e. Þorvald Þorsteinsson
Fö 15. nóv kl. 20 - AUKASÝNING ALLRA SÍÐASTA SINN
15:15 TÓNLEIKAR
Lau 9/11 Ólafur Kjartan Sigurðsson. Ferðalög
ÞRIÐJA HÆÐIN
HERPINGUR eftir Auði Haralds
HINN FULLKOMNI MAÐUR eftir Mikael Torfason
í samstarfi við DRAUMASMIÐJUNA
Í kvöld kl. 20
fö 8/11 kl. 20
LITLA SVIÐ
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
FORSÝNING lau 9/11 kl. 17
FORSÝNING su 17/11 kl. 16:30
FRUMSÝNING mi 20/11 kl. 20
Ath. breyttan sýningartíma
MIÐASALA 568 8000