Fréttablaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 22
22 7. nóvember 2002 FIMMTUDAGUR
HVAR?
Stefán Hrafn Hagalín gerði oftusla með skrifum sínum á
Kreml.is en þegar félagar hans
fóru að finna sér „girnileg sæti og
embætti innan Samfylkingarinn-
ar“ fóru skrif hans að valda þeim
hugarangri. „Ég ákvað á endanum
að hlífa þeim að svo stöddu við
sjálfum mér og yfirgaf Kreml.is.“
segir Stefán, sem starfar sem ráð-
gjafi hjá Teymi hf. og ritstýrir
fréttavefnum Véfréttin.is. „Það er
þó aldrei að vita nema mér leiðist
þetta sjálfskipaða hálfs árs frí frá
skrifum um þjóðmálin og taki að
hrekkja vinstrimenn og villuráf-
andi félagshyggjufólk með því að
birtast reglulega rífandi kjaft í
einhverjum miðlinum. „Vantar
ekki Bláu höndina skæðan mála-
liða?“
Beitir sér fyrir Blíðfinni
Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður, á afmæli í
dag. Hann verður á fundi með bókaútgefendum.
Þorvaldur Þorsteinsson, mynd-listarmaður og rithöfundur, er
42 ára í dag. Í tilefni dagsins ætlar
hann að gera tvennt, huga að út-
komu nýrrar bókar um Blíðfinn og
gera sig kláran fyrir kennslu í
Danmörku um helgina. „Þetta
verður ákaflega hversdagslegur
afmælisdagur en
ævintýralegur eins og allt sem við-
kemur Blíðfinni,“ segir Þorvaldur.
Þriðja bókin um Blíðfinn kem-
ur út um þessar mundir og segir
Þorvaldur að þessi nýju ævintýri
hans séu svo mikil að þau hafi
ekki komist fyrir í einni bók, þan-
nig að von sé á fleirum. „Hann
lendir í ólýsanlegum hremming-
um og það er mjög tvísýnt að
hann muni nokkurn tímann jafna
sig á því, eða nokkur yfirleitt
sem tengist honum.“
Þorvaldur hefur margt á
prjónunum. Hann vinnur að kvik-
myndahandritum sem byggð eru
á hans eigin bókum, tekur þátt í
ljósmyndasýningu í Gerðasafni í
Kópavogi og er á leið til Lundúna
þar sem hann verður viðstaddur
kynningu á leikritinu ...And
Björk Of Course í The Royal
Court. „Þetta er sitt lítið af hver-
ju en annars bý ég í Kaliforníu og
er að skrifa, kenna svolítið og
stússast í myndlistarsýningum.“
Þorvaldur hefur verið búsett-
ur í Bandaríkjunum í eitt ár og
lætur vel af dvölinni. Aðspurður
hvernig það sé að koma aftur í
kuldann á Íslandi sagði Þorvald-
ur: „Maður þarf að rifja upp
þessa speki eins og Á undan degi
kemur nótt og What goes up
must come down. Það er þetta
jafnvægi í lífinu sem maður
þarf að leita aftur í. Manni má
ekki líða of vel of lengi, allra síst
sem Íslendingi,“ segir hann
hlæjandi. „Það er grundvallarat-
riði að ná sér í smá skammdegis-
þunglyndi svo það sé tekið mark
á manni.“
Þorvaldur segir fertugsaf-
mælið það eftirminnilegasta. Þá
bauð kærastan hans, Helena
Jónsdóttir, honum í „dýrlega
meðferð“ eins og hann orðar það.
„Við héldum upp á það tvö sam-
an. Við eyddum deginum og nótt-
inni á einhverjum dularfullum
túristastöðum í Reykjavík sem
ég vissi ekki að ég ætti nokkurn
tímann eftir að fá að kynnast.
Þetta var innhverfasti afmælis-
dagur sem ég hef átt.“
kristjan@frettabladid.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Anna Heiða lauk doktorsprófi íbarnabókmenntum í ársbyrj-
un. Hún hefur verið ráðin til að sjá
um skrifstofu Alcoa á Íslandi og
verður því fyrsti starfsmaður þess
hérlendis. „Það skilur enginn í því
hvað doktor í barnabókmenntum
er að fara að gera í starfi hjá er-
lendu stórfyrirtæki en ég er afar
ánægð með að fyrirtæki á borð við
Alcoa kunni að meta menntun á
öðrum sviðum en viðskiptum.“
Anna Heiða byrjaði í lögfræði í
Háskólanum að loknu stúdents-
prófi frá MR 1976 og hugðist feta í
fótspor föður síns og tveggja
bræðra. „Ég var ung og fannst allt
eiga að vera skemmtilegt og námið
uppfyllti ekki þær kröfur.“ Hún
hætti en kláraði fyrsta árið í ensku
ári síðar, reyndi svo við viðskipta-
fræði en bókfærslan fældi hana
þaðan. Þá tóku við ýmis störf og
hún rak meðal annars Simma-
sjoppu í vesturbænum, lauk námi í
snyrtifræðum og rak snyrtivöru-
verslun á Laugaveginum. Árið
1994 ákvað hún að hella sér aftur
út í nám, kláraði ensku við HÍ og
hélt áfram í doktorsnám.
Anna Heiða er gift Hilmari Æv-
ari Hilmarssyni og þau eiga tvö
börn, Sigríði Ástu, 19 ára og Hilm-
ar Ævar 14 ára.
Á námsárunum skrifaði hún
sína fyrstu skáldsögu, Galdrastaf-
ir og græn augu, sem segir frá
tímaflakki drengs til ársins 1713.
Þá hefur hún þýtt ævintýraþríleik-
inn sem hófst með Gyllta áttavit-
anum. Hún mikill aðdáandi Harrys
Potter og heldur úti heimasíðu um
kappann. Barnabókmenntirnar eru
helsta áhugamál Önnu Heiðu en
hún hefur einnig verið viðloðandi
hestamennsku og fékk á sínum
tíma mótorhjóladellu. „Á háskóla-
árunum fékk ég gífurlegan áhuga
á mótorhjólum og þeyttist um
meðal annars á Hondu XL350,
Kawasaki 900 og Hondu CB900. Ég
var í þessu á sama tíma og um-
hverfisráðherrann en hef látið
hjólin eiga sig um árabil.“
Anna Heiða Pálsdóttir, bókmenntafræðingur
og rithöfundur, hefur tekið við starfi skrif-
stofustjóra Alcoa á Íslandi. Hún segir smæð
landsins koma í veg fyrir að hægt sé að hafa
fulla vinnu af því að sinna afmörkuðum við-
fangsefnum á borð við barnabókmenntir.
Stöðuveiting
Barnabækur, mótorhjól og álver
JARÐARFARIR
13.30 Jóhannes B. Sveinbjörnsson,
Sæviðarsundi 25, Reykjavík, verð-
ur jarðsunginn frá Áskirkju.
13.30 Gunnar Guðmundsson, Köldu-
kinn 23, Hafnarfirði, verður jarð-
sunginn frá Hafnarfjarðarkirkju.
15.00 Einar Ásmundsson, Dynsölum
14, Kópavogi, verður jarðsunginn
frá Hallgrímskirkju.
AFMÆLI
Eiður Guðnason sendiherra er 63 ára.
Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfundur og
myndlistarmaður, er 42 ára.
ANDLÁT
Ragnheiður Esther Einarsdóttir, hár-
greiðslumeistari, lést 5. nóvember.
TÍMAMÓT
ÞORVALDUR ÞORSTEINSSON
Þorvaldur ætlaði að bjóða til veislu á fertugsafmæli en gerði það ekki. Taldi sér trú um að tímaskorti væri um að kenna. „Djúpt inni
var ég svo hræddur um að enginn kæmi,“ segir Þorvaldur.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Baráttuaðferðir þátttakenda íprófkjöri Samfylkingarinnar
í Reykjavík eru
jafn mismunandi
og frambjóðend-
urnir eru margir.
Áreiðanlegt er
þó að húmorinn
er hvergi meiri
en hjá Guðrúnu
Ögmundsdóttur,
sem notar slagorðið: Hennar rödd
er ómissandi. Þar er að sjálf-
sögðu vísað til þeirra málefna
sem Guðrún hefur lagt lið gegn-
um árin en líka til raddar þing-
mannsins, sem á engan sinn líka.
Veitingahúsið Vídalín seldieinhver ógurleg býsn af
áfengi þegar stuðningsmenn
skoska landsliðsins í knattspyrnu
máluðu bæinn köflóttan á dögun-
um. Staðurinn vakti athygli
pilsvargana á sér meðal annars
með skrautlegum dreifimiðum.
Einn þeirra sýndi ægilega skessu
á evuklæðum sem sögð var „eig-
inkonan í Skotlandi“ og var stillt
upp andspænis fögru fljóði sem
átti hins vegar að vera „kærast-
an á Íslandi“. Miðinn þótti það
grófur að prentsmiðjan sem
vann hann gaf hönnuðinum gula
spjaldið. Eftirmálarnir gætu þó
orðið fleiri þar sem dreifimiðinn
rataði inn á Jafnréttisstofu og
stangist hann á við jafnréttislög
má jafnvel búast við að lögfræð-
ingur Jafnréttisstofu lyfti rauða
spjaldinu.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík,sem eru á leið í prófkjörið í
næsta mánuði, eru sumir hverjir
farnir að opna
kosningaskrif-
stofur. Eitthvað
virðast menn
sækja í Ármúl-
ann, sérstaklega
eitt ákveðið hús
þar sem þeir
hafa komið sér
fyrir í sitt hvorum endanum Guð-
mundur Hallvarðsson og Birgir
Ármannsson.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að
Kristinn Björnsson forstjóri hafði
ekki samráð við Olís og Esso þeg-
ar hann ákvað að selja hlutabréf
sín í Skeljungi.
Leiðrétting
Taktu lottó í áskrift á lotto.is eða næsta sölustað
• Þínar tölur eru alltaf í pottinum
• Frír útdráttur fjórum sinnum á ári
– gildir um Lottó, Víkingalottó og Jóker
• Þú styrkir gott málefni
Maður sat á bar og horfði á ann-an sem var með lítinn hest í
fanginu. Næsta kvöld var þessi sami
maður enn með hrossið og hinn
maðurinn spurði hann hvernig stæði
á þessu. Maðurinn svaraði að ef
hann vildi sjá það yrði hann að koma
með honum heim. Þegar þangað var
komið tók maðurinn með hrossið
upp gamlan lampa og byrjaði að
nudda hann þangað til andi kom
upp úr honum. Andinn sagði þá við
hinn manninn að hann fengi eina
ósk. Maðurinn hugsaði sig um en
sagði loks: „Ég óska þess að vasar
mínir verði fullir af peningum,“ og
samstundis fylltust vasarnir. Þegar
að var gáð reyndust þeir fullir af
teningum.
„Ég vildi peninga, ekki teninga,“
sagði hann. Þá sagði sá með hrossið:
„Heldurðu virkilega að ég hafi beð-
ið um 30 cm langt trippi?
ANNA HEIÐA PÁLSDÓTTIR
„Ég á góða vini sem eru umhverfisverndar-
sinnar og sé ekki fram á að það slettist upp
á vinskapinn þótt ég sé farin að vinna hjá
Alcoa. Aðhald umhverfissinna er af hinu
góða en við verðum að átta okkur á að
einhver framþróun verður að eiga sér stað.“
AFMÆLI
Guðný Hrund Karlsdóttir.
Hamragarðar.
10 til 12 milljarðar króna.
1.
2.
3.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
Jón Baldvin Hannibalsson kem-ur við sögu í prófkjöri Sam-
fylkingar í Reykjavík þó með
öðrum hætti sé en sumir vonuð-
ust til fyrr á þessu ári. Einhverj-
ir hafa fengið stuðningsyfirlýs-
ingu frá honum en Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir ákvað að
fara aðra leið. Hún fékk Erling
Gíslason leikara til að lesa upp
úr ævisögu Kolbrúnar Bergþórs-
dóttur um krataforingjann gamla
á samkomu sinni fyrir eldri
borgara.
Íkvöld heldur Jakob Frímannbaráttuveislu og óhætt er að
segja að í henni endurspeglist
tengsl hans við
tónlistar- og
menningarheim-
inn. Nær öruggt
má telja að eng-
inn annar fram-
bjóðandi tefli
fram jafn mörg-
um skemmtiat-
riðum í sínum
veislum. Stjórar samkomunnar
eru Stuðmennirnir Egill Ólafsson
og Ragnhildur Gísladóttir en með-
al þeirra sem
fram koma eru
Bubbi Morthens,
Björgvin Hall-
dórsson, Eyjólfur
Kristjánsson,
Maus, Ske, Stef-
án Hilmarsson,
Helgi Björnsson
og Þórunn Antón-
ía. Veislan verður á Nasa og opnar
húsið klukkan níu.
FRÉTTIR AF FÓLKI
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT