Fréttablaðið - 08.11.2002, Page 6
FJÁRMÁL Peningaleg staða Hafnar-
fjarðar er verst af sveitarfélögun-
um á höfuðborgarsvæðinu. Hún
var neikvæð um 446 þúsund krón-
ur á hvern íbúa eða 199% af skatt-
tekjum í árslok 2001. Skuldir á
hvern íbúa hækka um 173 þúsund
krónur ef einkaframkvæmda-
samningar eru færðir til skulda
og verða 619 þúsund krónur.
Þetta kemur fram í skýrslu um
samanburð á fjárhagsstöðu sveit-
arfélaga á höfuðborgarsvæðinu
sem lögð var fram í bæjarráði
Hafnarfjarðar í gær. Fjárhags-
staða eftirtalinna sveitarfélaga
var könnuð: Hafnarfjarðar,
Reykjavíkur, Kópavogs, Garða-
bæjar, Mosfellsbæjar og Reykja-
nesbæjar.
Í skýrslunni kemur fram að
skuldafærsla einkaframkvæmda-
samninga hjá Hafnarfjarðarbæ
hefði þau áhrif að sveitarfélagið
fengi falleinkunn hjá eftirlits-
nefnd um fjármál sveitarfélaga í
árslok 2001 og 2002. Núvirði þess-
ara samninga á verðlagi í október
2002 er 3,5 til 4,1 milljarðar króna
samanborið við 3,1 milljarð króna
í ársreikningi 2001 á sama verð-
lagi. Árleg leigugreiðsla vegna
einkaframkvæmdasamninganna
er um 315 milljónir króna.
Samanburðarsveitarfélögin
hafa ekki fjármagnað fram-
kvæmdir sínar með einkafram-
kvæmdasamningum á sama hátt
og Hafnarfjarðarbær, heldur með
afgangi frá rekstri og lántökum.
Við gerð fjárhagsáætlunar
Hafnarfjarðarbæjar fyrir kom-
andi ár, sem nú stendur yfir, er
stefnt að allt að 300 milljóna
króna sparnaði í rekstri bæjarins.
Þá munu frekari hagræðing og
sparnaður verða höfð að leiðar-
ljósi við gerð næstu langtímafjár-
hagsáætlunar bæjarins.
trausti@frettabladid.is
6 8. nóvember 2002 FÖSTUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 86.98 -0.22%
Sterlingspund 136.19 0.23%
Dönsk króna 11.74 0.42%
Evra 87.21 0.38%
Gengisvístala krónu 130,38 0,23%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 265
Velta 7.153 milljónir
ICEX-15 1.308 -0,64%
MESTU VIÐSKIPTI
Hraðfrystih-Gunnvör hf. 195.899.000
Skeljungur hf. 64.727.570
Pharmaco hf. 63.224.936
MESTA HÆKKUN
Baugur Group hf. 4,17%
Kögun hf. 2,22%
Opin kerfi hf. 1,10%
MESTA LÆKKUN
Frumherji hf. -6,15%
Skýrr hf. -5,45%
Vátryggingafélag Íslands hf. -2,95%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8625,1 -1,70%
Nsdaq*: 1383,3 -2,50%
FTSE: 4083,4 -0,50%
DAX: 3376,7 0,80%
Nikkei: 8920,4 -0,40%
S&P*: 909,5 -1,60%
VEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 30
1.
2.
3.
Landsvirkjun og áreiðanleiki um-
hverfismats vegna Þjórsárvera hafa
verið mikið í umræðunni. Hver er
stjórnarformaður Landsvirkjunar?
Yngri bróðir George W. Bush
Bandaríkjaforseta var endurkjörinn
sem ríkisstjóri. Hvar er hann ríkis-
stjóri?
Spenna vegna prófkjöra fer vax-
andi. Í Fréttablaðinu í gær var sagt
frá kjörkassa, í prófkjöri Sjálfstæð-
ismanna í Norðvesturkjördæmi,
sem var úti í bæ. Hvar var þetta?
ALÞINGI Það eru engin vandkvæði
sem koma í veg fyrir að hægt sé
að innleiða tilskipun Evrópu-
sambandsins um innri markað
raforku, sagði Valgerður Sverr-
isdóttir iðnaðarráðherra í fyrir-
spurnartíma á Alþingi. Ef þing-
menn héldu að svo væri þá væri
ástæðan sú að þeir hefðu ekki
kynnt sér málið nógu vel.
Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri-grænna,
gagnrýndi að íslensk stjórnvöld
hefðu ekki beitt sér fyrir því að
Ísland fengi undanþágu frá til-
skipun sem tæki ekkert mið af
íslenskum aðstæðum. Meðan
nokkrar undanþáguþjóðir hefðu
barist af krafti fyrir því að fá
undanþágu hefðu íslensk stjórn-
völd hlustað auðmjúk á skýring-
ar fulltrúa ESB og ekkert gert í
málinu.
Valgerður sagði að Orku-
stofnun hefði komist að þeirri
niðurstöðu að engin vandkvæði
væru á því að taka upp tilskip-
unina. Því væri ekki forsenda
fyrir tilskipun. Kosturinn væri
að gegnsærra kerfi tæki við af
því gamla. „Hver veit í dag
hvernig raforkuverð verður til?
Það veit ekki nokkur maður.“
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Frumvarp um gildistöku tilskipunarinnar
hefur ekki litið dagsins ljós. Ráðherra von-
ast til að leggja það fljótlega fram.
Breytt raforkukerfi horfir til framfara,
segir iðnaðarráðherra:
Vankunnátta ræður
andstöðu manna
BORGARMÁL Borgarlögmaður hefur
lagt til við borgaryfirvöld að vín-
veitingaleyfi veitingastaðarins
Sirkus á Klapparstíg verði ekki
endurnýjað. Lögreglan hefur
þrettán sinnum gert athugasemdir
við rekstur staðarins frá því í maí í
fyrra. Borgarráð fékk málið til
umfjöllunar í fyrradag en frestaði
afgreiðslu þess.
Lögreglan gerði sjö sinnum at-
hugasemdir við að fjöldi gesta
væri yfir leyfilegu hámarki. Í fjór-
um tilvikum voru unglingar undir
18 ára aldri á staðnum eftir kl. 20
og í tveimur tilvikum fóru áfengis-
veitingar fram eftir að heimiluð-
um veitingatíma áfengis var lokið.
Í júní var vínveitingaleyfi um-
sækjanda endurnýjað til 1. sept-
ember með því skilyrði að forráða-
menn staðarins bættu úr þeim
ágöllum sem verið höfðu á rekstr-
inum. Á þessum þremur mánuðum
voru reglur hins vegar brotnar
þrisvar sinnum.
SIRKUS
Borgarlögmaður leggur til að vínveitingaleyfi verði ekki veitt.
Veitingastaðurinn Sirkus:
Ekkert
leyfi?
Reykjanesbær:
Stytta af
Hljómum felld
UMHVERFISMÁL Meirihluti sjálf-
stæðismanna í bæjarstjórn
Reykjanesbæjar hefur fellt til-
lögu framsóknarmanna um að
reist verði stytta af hljómsveit-
inni Hljómum í bænum. Hug-
myndin var að reisa styttu á áber-
andi stað og heiðra þannig nokkra
af bestu sonum Keflavíkur.
Þrátt fyrir slakar undirtektir
eru framsóknarmenn ekki á því
að gefast upp og reifa nú hug-
myndir þess efnis að meitla andlit
félaganna í Hljómum í Keflavík-
urbergið þannig að þau blasi við
gestum og gangandi þegar bergið
er lýst upp. Verður tekist á um þá
tillögu síðar í bæjarstjórninni.
RUNÓLFUR ÁGÚSTSSON
Hagmunir skólans ráða - ekki ráðherrans.
Málstofa á Bifröst:
Skyldumæt-
ing hjá
Sturlu
STJÓRNMÁL Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra var gestur á mál-
stofu í Viðskipaháskólanum í Bif-
röst í gær. Fylgdi Sturla þar í fót-
spor annarra frambjóðenda í próf-
kjöri sjálfstæðismanna í norðvest-
urkjördæmi sem heimsótt hafa
nemendur í Bifröst og haldið með
þeim fundi. Málstofan með ráð-
herranum var þó frábrugðin fund-
um hinna því þar var skyldumæt-
ing nemenda:
„Við erum með átta málstofur á
hverju misseri og er nemendum
gert skylt að mæta á fimm þeirra,“
segir Runólfur Ágústsson, rektor
Viðskipaháskólans. „Við höfum
leitast við að fá menn sem standa í
sviðsljósi hvers tíma til að mæta á
þessar málstofur og það á við um
Sturlu. Við viljum fá svona menn,“
segir hann.
Runólfur ítrekar að það séu
hagsmunir skólans sem ráði því
hverjir mæti í málstofuna en ekki
hagsmunir ráðherrans, sem nú
stendur í prófkjörsbaráttu.
Hafnfirðingar
skulda mest
Hver Hafnfirðingur skuldar 446 þúsund krónur en 619 þúsund þegar
samningar vegna einkaframkvæmda eru færðir til skuldar. Bærinn
fengi falleinkunn hjá eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga.
Stefnt að 300 milljóna króna sparnaði.
Hagkaup:
Vaskinn af
barnafötum
FATNAÐUR Barnaföt í Hagkaup
verða seld í dag og á morgun
eins og þau beri ekki virðis-
aukskatt. Fyrirtækið segist
fagna þingsályktunartillögu
Páls Magnússonar þingmanns
um afnám virðisaukaskatts af
barnafötum. Víða erlendis er
lægri eða enginn virðisauka-
skattur lagður á barnafatnað og
hafa verslanir í þeim löndum
því samkeppnisforskot á ís-
lenskar verslanir.
„Að sjálfsögðu fær ríkissjóð-
ur sinn virðisaukaskatt af þess-
ari sölu. Verðlækkunin er alfar-
ið á kostnað Hagkaupa,“ segir
Finnur Árnason hjá Hagkaup-
um.
HAFNARFJARÐARBÆR
Í skýrslu sem var lögð fram í bæjarráði í gær, kemur fram að skuldafærsla einkafram-
kvæmdasamninga hjá Hafnarfjarðarbæ hefði þau áhrif að sveitarfélagið fengi falleinkunn
hjá eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga í árslok 2001 og 2002.
PENINGALEG STAÐA MEÐ LÍFEYRISSKULDBINDINGUM
OG AÐ TEKNU TILLITI TIL GENGISBREYTINGA 30. JÚNÍ 2002
Í þús. króna á íbúa Hlutfall af skatttekjum
Hafnarfjörður -446 -199%
Kópavogur -232 -103%
Reykjanesbær -395 -177%
Garðabær -176 -73%
Mosfellsbær -388 -183%
Reykjavík -214 -91%
Heimild: Skýrsla PricewaterhouseCoopers/IBM Business Consulting Services um
Mat á fjárhagsstöðu og framkvæmdagetu Hafnarfjarðarbæjar.