Fréttablaðið - 08.11.2002, Síða 28
28 8. nóvember 2002 FÖSTUDAGUR
31 ÁRS Haraldur Örn Ólafsson, fjall-
göngugarpur og pólfari, heldur upp
á 31 árs afmælið sitt í dag. „Þetta er
nú ekkert stórafmæli þannig að ég
ætla ekki að gera mikið úr þessu.
Ég reikna með að fara út að borða
og hafa það notalegt.“
Haraldur, sem er menntaður
lögfræðingur, segist ekki hafa ver-
ið mikið í lögfræðistörfum síðan
hann kom heim eftir að hafa klifið
hæstu tinda hverrar heimsálfu.
Þess í stað hefur hann varið tölu-
verðum tíma í ýmislegt sem tengist
leiðöngrum hans. Meðal annars
hefur hann heimsótt íslenska
grunnskóla og sagt unga fólkinu frá
ferðunum.
Haraldur segist hafa gengið og
klifrað töluvert hér innanlands
undanfarið. Er hann uppfullur af
hugmyndum um næstu verkefni sín
á sviði fjallgöngunnar. „Ég hef
verið með það á prjónunum að fara
til Nýju Gíneu og klífa þar tind sem
heitir Carstensz-píramídi. Þeim
tindi hefur nú verið lokað, meðal
annars vegna hryðjuverkanna á
Balí. Síðan er ýmislegt á dag-
skránni en ekkert stórkostlegt enda
er það nú ekki alltaf aðalatriðið,“
segir Haraldur. Meðal annars er
verið að leggja drög að skíðaferð
yfir landið. „Maður lætur sig alltaf
dreyma um að gera eitthvað
skemmtilegt, fara kannski til
Grænlands og svo langar mig líka
til Nýja Sjálands að klífa fjall þar.
Það er margt í spilunum en ekkert
ákveðið.“
Haraldur segist síður en svo
hugsa um að leggja árar í bát í fjall-
göngunni. „Ég er í þessu af áhuga
og af því að mér finnst þetta
skemmtilegt. Það verða kannski
ekki eins stórir leiðangrar farnir á
næstunni. Við reynum bara að gera
eitthvað sem er auðveldara og mjög
skemmtilegt.“
Haraldur Örn Ólafsson pólfari á 31 árs af-
mæli í dag. Hann er að leggja drög að
skíðaferð yfir landið og langar að klífa tind
í Indónesíu.
Afmæli
Margt í spilunum hjá Haraldi
OD
DI
H
F
I9
96
3 Nóatúni 4 • 105 Reykjavík
Sími 520 3000
www.sminor.is
Ljós í miklu
úrvali fyrir
heimilið.
HARALDUR ÖRN ÓLAFSSON
Mikið hefur verið að gera hjá Haraldi eftir
að hann kom aftur til Íslands. Til stendur að
sýna þrjár heimildarmyndir sem gerðar voru
fyrir Ríkissjónvarpið um leiðangra hans. FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
D
EB
1
92
72
11
/2
00
2
BÓKMENNTIR Ari Trausti Guð-
mundsson jarðfræðingur hlaut í
gær Bókmenntaverðlaun Hall-
dórs Laxness fyrir smásagnasafn-
ið Vegalínur. Hann er landskunn-
ur fyrir bækur sínar um íslenska
náttúru en hefur ekki áður sent
frá sér skáldverk. Í umsögn dóm-
nefndar um verðlaunabókina seg-
ir meðal annars að hún „geymi
einstaklega lifandi og myndrænar
sögur, skemmtilega upp byggðar
og ritaðar af leikni og augljósri
þekkingu á framandi löndum og
menningarheimum.“
Allar sögurnar í safninu fjalla
um ferðalanga sem finna á fjar-
lægum slóðum eitthvað sem gerir
það að verkum að þeir snúa aftur
breyttir menn. Ari Trausti sagðist
hafa komist að því af eigin raun
að ferðalög breyttu fólki og að sig
langi að segja sögur og pakka
hugsunum inn í skáldskap.
Bókin er nokkuð sérstæð að
því leyti að hún er skreytt ljós-
myndum eftir Ara Trausta, Ragn-
ar Th. Sigurðsson og Guðmund
Hannesson. Ari Trausti sagðist
vera afar ánægður með útlit bók-
arinnar. Hún væri falleg og hann
vonaði að innihaldið stæði undir
umbúðunum.
Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness:
Ari Trausti kemur á
óvart með smásögum
BÓKMENNTAVERÐLAUN
HALLDÓRS LAXNESS
1996 Skúli Björn Gunnarsson
Lífsklukkan tifar
1997 Eyvindur P. Eiríksson
Landið handan fjarskans
1998 Sindri Freysson
Augun í bænum
1999
Ekkert handrit þótti nógu gott
2000 Gyrðir Elíasson
Gula húsið
2001 Bjarni Bjarnason
Mannætukonan og maður hennar
2002 Ari Trausti Guðmundsson
Vegalínur
ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON
Hefur hingað til verið jarðfastur í skrifum sínum en sagðist í þakkarræðu sinni vilja skipta
um bókmenntagrein og snúa sér að skáldskapnum. Hann lét þess getið að íslensk nátt-
úra væri skáld í sjálfri sér og langvarandi samvistir sínar við hana hefðu mikið með þessa
ákvörðun að gera.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI