Fréttablaðið - 03.01.2003, Blaðsíða 23
23FÖSTUDAGUR 3. janúar 2003
GRAFARHOLT
útboð á byggingarrétti fyrir fjölbýlishús, raðhús og parhús
Auglýst er eftir kauptilboðum í byggingarrétt á eftirtöldum lóðum í Grafarholti:
• Fjórar lóðir fyrir fjölbýlishús (12 – 52 íbúðir pr. lóð)
• Níu lóðir fyrir raðhús (3 – 5 íbúðir pr. lóð)
• Fimm lóðir fyrir parhús (tvær íbúðir pr. lóð).
Byggingarrétturinn er boðinn út til einstaklinga og fyrirtækja. Hæstbjóðandi þarf að vera
reiðubúinn að leggja fram upplýsingar um fjármál sín og áætlun um fjármögnun fram-
kvæmda við viðkomandi húsbyggingu áður en afstaða verður tekin til tilboðs hans.
Kauptilboðum skal skila til skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð, fyrir klukkan
16:00 þriðjudaginn 7. janúar 2003. Tilboðin verða opnuð í Skúlatúni 2, 5. hæð, sama dag
klukkan 16:10 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Kauptilboðum skal skila í lokuðum umslögum, merktum „Grafarholt - kauptilboð”.
Tilboðseyðublöð, útboðsreglur og skipulagsskilmálar fást á skrifstofu borgarverkfræðings,
Skúlatúni 2, 3. hæð. Einnig er hægt að nálgast tilboðseyðublað og útboðsreglur og nánari
upplýsingar um lóðirnar á heimasíðu borgarverkfræðings (www.rvk.is/bv) undir mála-
flokknum „Lóðir”. Brýnt er fyrir bjóðendum að kynna sér gögnin rækilega.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 563 2310.
Borgarverkfræðingurinn í Reykjavík
Reykjavíkurborg • Umhverfis- og tæknisvið
Skrifstofa borgarverkfræðings
Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is
TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 274 KR / STK.
Tilboðið gildir til 31. janúar 2002
BIC Atlantis penni
Verð 91 kr/stkk
NOVUS MASTER
gatar 25 blöð.
Verð 382 kr
NOVUS heftari
heftar 30 blöð.
Verð 674 kr Borðmotturnar frá Múlalundi
VINSÆLL Á VELDISSTÓLI
Sænski konungurinn tekur á móti forseta Afganistan. Konungsfjölskyldan er vinsæl meðal
almennings, en meirihluti þingmanna er hlynntari lýðveldi en konungdæmi.
Meirihluti þing-
manna á móti
konungdæmi
Könnun meðal sænskra þingmanna leiðir í ljós
að meirihluti vill lýðveldi. Frumvarp um að
leggja konungdæmið niður lagt fram í vor.
SVÍÞJÓÐ Sænska konungsfjölskyld-
an er vinsæl meðal almennings
þar í landi. Fjórir af sjö stjórn-
málaflokkum á sænska þinginu
eru opinberlega fylgjandi kon-
ungsríki.
Karl Gústaf er þó ekki öruggur
um krúnuna. Þrátt fyrir opinber-
an stuðning leiðir könnun Svenska
Dagbladet í ljós að meirihluti
þingmanna er fylgjandi hug-
myndum um að Svíþjóð verði lýð-
veldi. 163 þingmenn eru fylgjandi
konungsveldinu, en 167 eru
hlynntir lýðveldishugmyndum.
Konungsveldið á vísari stuðn-
ing meðal borgaraflokkanna en
flokkanna vinstra megin við
miðju. Hefð er fyrir andstöðu við
konungsveldið í vinstri flokknum
og flokki umhverfisverndarsinna.
Fylgi lýðveldishugmynda hefur
verið að vaxa fiskur um hrygg
innan sænska jafnaðarmanna-
flokksins. „Mér finnst ekki rétt að
menn erfi titla og valdastöður,“
segir Mikael Damberg, formaður
ungra jafnaðarmanna og þing-
maður. Hann er ekki einn um
þessa skoðun innan flokksins. 102
af 143 þingmönnum flokksins eru
samkvæmt könnuninni fylgjandi
því að Svíþjóð sé lýðveldi. Aðeins
29 flokksmanna eru fylgjandi
konungsveldinu.
Þrátt fyrir stuðninginn við lýð-
veldishugmyndir eru flestir á því
að konungsríkið muni halda velli
enn um sinn. Ástæðan er sú að
fjölskyldan er afar vinsæl meðal
almennings. Ár eftir ár eru kon-
ungur og drottning Svíþjóðar
meðal vinsælasta fólks landsins.
„Viðhald konungsdæmis hvílir
á hræðslunni við að fara gegn því
sem er vinsælt,“ segir Birgitta
Ohlsson, formaður sænskra lýð-
veldissinna. Hún segir það fyrst
og fremst jafnaðarmenn sem ekki
þori að láta reyna á slíkar spurn-
ingar.
Frumvarp um að leggja
konungdæmið niður verður lagt
fram í vor. Þrátt fyrir að meiri-
hluti sé fyrir slíku frumvarpi er
ekki búist við að það verði sam-
þykkt þegar á hólminn er komið.
Flestir eru á því að konungsveldið
verði ekki lagt niður í bráð. Alla
vega ekki meðan Karl Gústaf
ríkir. Hins vegar eru þeir margir
sem telja að líklegt sé að menn
noti tækifærið og leggi það niður
áður en til þess kemur að Viktoría
krónprinsessa taki við konungs-
valdinu. ■
JANE FONDA MÓTMÆLIR
Sean Penn hefur vakið athygli undanfarið
fyrir heimsókn sína til Írak. Hann er þó frá-
leitt brautryðjandi í afskiptum kvikmynda-
stjarna af viðkvæmum alþjóðamálum. Hér
má til dæmis sjá Jane Fonda umkringda
hermönnum og fréttamönnum árið 1972 í
Hanoi. Leikkonan tyllti sér á loftvarnar-
byssu og kyrjaði söng gegn stríðinu.
Sjónvarpsþátturinn Jackass lögsóttur:
Herra Jack Ass ósáttur
SJÓNVARP Bandarískur maður sem
lét breyta nafni sínu í Jack Ass
árið 1997 hefur lagt inn kæru á
hendur framleiðenda sjónvarps-
þáttarins Jackass. Maðurinn held-
ur því fram að þátturinn hafi
svert nafn hans með allsþekktum
fíflalátum sínum.
Herra Ass, sem var upphaflega
skírður Bob Craft, breytti nafni
sínu til þess að vekja fólk til um-
hugsunar um afleiðingar ölvun-
araksturs. Hann breytti nafni sínu
eftir að bróðir hans og vinur lét-
ust í bílsslysi.
Maðurinn segir að eftir þáttinn
taki fólk hann ekki lengur alvar-
lega og krefst hann 7 milljóna
dollara í skaðabætur.
Jackass-þættirnir hafa verið
sýndir á MTV-sjónvarpsstöðinni í
tvö ár og kvikmynd var gerð eftir
þeim á síðasta ári. Í þáttunum,
sem nú er hætt að framleiða, fóru
Johnny Knoxville og félagar hans
með ýmis fíflalæti sem fólki er
ráðlagt að apa ekki eftir. ■
JACKASS
Kvikmyndin fór rakleiðis á topp bandaríska
bíóaðsóknarlistans á útgáfuviku sinni. Hún
verður frumsýnd hér á landi í lok janúar.
Hef til sölu fasteignina Reykjavíkurveg 74
í Hafnarfirði sem er 1000 fm að stærð og
er á 2 hæðum auk kjallara að hluta.
Meðfylgjandi er stækkunarmöguleiki upp á
1.300 fm til viðbótar. Samtals er um 2.300
fm að ræða eftir stækkun.
Teikningar og tölvumynd af eigninni liggja
fyrir og fylgja með.
Tilvalið sem hótel eða hótelíbúðir, verslun-
ar- og skrifstofuhúsnæði o.fl. Stendur við
fjölfarna götu.
Uppl í s. 544-2440 eða 893-5007.
Til sölu.