Fréttablaðið - 03.01.2003, Blaðsíða 24
24 3. janúar 2003 FÖSTUDAGUR
TÍSKA „Það eru ótrúlega miklar
tískusveiflur í tattóinu. Tribal-
tattó og ýmis svört mynstur tröll-
riðu hér öllu. En nú eru menn að
hverfa aftur til fortíðar, meira
svona breiðar línur og skærir lit-
ir. Myndirnar stækka og meira
um að menn komi í nokkur skipti
til að takast megi að fullgera
myndirnar. Maður situr lengur
yfir hverjum og einum,“ segir
Svanur Jónsson tattómaður, en
hann rekur tattóstofu við Hverf-
isgötu í Reykjavík.
Svanur kvartar ekki og segist
lifa ágætlega af þessum starfa.
En við örlitla umhugsun kemst
hann reyndar að þeirri niðurstöðu
að líklega hafi verið meiri upp-
gangur í tattói eða húðflúri á Ís-
landi. „Ég hef starfrækt stofuna í
þrjú ár en var þar áður í Svíþjóð
og get því ekki vitnað um hver
staðan var á Íslandi fyrir þann
tíma. En á þessum tíma hefur
stofunum fækkað um einar
þrjár.“ Einn þeirra sem hefur
horfið af sjónarsviðinu er læri-
meistari Svans, sjálfur Helgi
tattoo, en hann er fluttur til
Hollands og starfar á lítilli tattó-
stofu rétt utan við Amsterdam.
Að sögn Svans eru aðeins þrír
starfandi húðflúrgerðarmenn í
Reykjavík og liðin tíð að fólk detti
inn og velji sér eitthvað úr möpp-
um. „Það er búið að fólk fái sér
tattó bara til að vera með tattó.
Nú eru þetta meira svona per-
sónulegar yfirlýsingar.“
Næstu upplýsingar Svans
koma gersamlega flatt upp á
blaðamann. Nokkuð er um að fólk
um sextugsaldur komi til hans og
láti húðflúra sig. „Það er ýmislegt
sem það lætur á sig. Þetta eru
kannski menn sem höfðu verið í
siglingum og eru að láta gamlan
draum rætast. Konur þeirra jafn-
vel gefið þeim gjafabréf. Einn var
til dæmis að fá sér keltneskt vík-
ingamynstur. Þá er ekki óalgengt
að menn láti tattóvera á sig nafn
látins maka, þannig að það er allt
í þessu. Svo hefur færst í vöxt að
fólk láti húðflúra á sig trúlofunar-
hringi. Þetta er heljarinnar
flóra,“ segir Svanur.
Húðflúr á sér langa sögu og í
raun veit enginn uppruna þess en
vinsældir þess hafa gengið í
s v e i f l u m .
Poppgoð hafa
mikil áhrif,
Janis Joplin
var með húð-
flúrað arm-
band og
m a r g i r
fylgdu í kjöl-
farið. Á
diskótímabilinu datt húðflúr úr
tísku en kom aftur með pönkinu.
Björk er tvímælalaust mikill
áhrifavaldur sem og þeir Skíta-
móralsdrengir.
Það eru til margir brandarar
um tattó. Sumir sem í dag teljast
virðulegir eldri borgarar, og
sigldu á sínum yngri árum, þurfa
að búa við undarlegan svip barna-
barnanna í sundi. Dæmi eru um
að finna megi nakinn kvenmann
eða jafnvel sjálfan Andrés önd
einhvers staðar á líkama gamla
mannsins - eitthvað sem flúrað
var á hörundið í bríaríi í erlendri
höfn. Það er hægara sagt en gert
að láta fjarlægja óæskileg húð-
flúr. Slíkt
k o s t a r
f l ó k n a
leysigeisla-
aðgerð sem
getur skilið
eftir sig ljót
ör. Svanur
segir slíka
aðgerð afar
sársaukafulla og biður menn að
hugsa vel sinn gang áður en þeir
fái sér húðflúr. „Ég bið menn oft
að koma aftur seinna ef þeir vilja
fá sér eitthvað sem mér líst ekk-
ert á sjálfum. Og ef viðkomandi
virðist ekki fullkomlega ábyrgur
gerða sinna þá vísa ég honum frá.
Þá er stranglega bannað að tattó-
vera menn séu þeir undir áhrif-
um.“
jakob@frettabladid.is
Tattóstofum fækkar - tískan í lægð:
Tribal-tattó, víkinga-
mynstur og Andrés önd
SVANUR JÓNSSON HÚÐFLÚRGERÐARMAÐUR:
Segir nokkuð um að fólk á sextugsaldri komi til að láta tattóvera sig.
Þrátt fyrir háan aldur er BBKing á stöðugum ferðalögum
með hljómsveit sinni. Blúsarinn
er giftur ungri konu og afbrýði-
samur. Eitt sinn þegar hann er á
hljómleikaferðalegi grípur hún
til þess ráðs, svona til að gleðja
gamla manninn og sýna honum
hollustu, að láta tattóvera upp-
hafsstafi manns síns á sitthvora
rasskinnina. Þegar BB kemur
þreyttur heim eftir erfiðan túr
sýnir hún honum tattóið og þá
spyr gamli blúshundurinn for-
viða og fúll: Hver er þessi BoB?
Örstutt saga um
misheppnaða tattóveringu
1
METSÖLULISTI
2
3
4
5
6
7
8
9
10
MEST SELDU SKÁLDVERKIN
ÁRIÐ 2002
RÖDDIN
Arnaldur Indriðason
GRAFARÞÖGN
Arnaldur Indriðason
DAUÐARÓSIR
Arnaldur Indriðason
MÝRIN
Arnaldur Indriðason
DON KÍKÓTI
Miguel de Cervantes
LOVESTAR
Andri Snær Magnason
HOBITTINN
J.R.R. Tolkien
BRIDGET JONES Á BARMI...
Helen Fielding
STOLIÐ FRÁ HÖFUNDI...
Davíð Oddsson
HRINGADROTTINSSAGA
J.R.R. Tolkien
1
METSÖLULISTI
2
3
4
5
6
7
8
9
10
MEST SELDU BÆKURNAR
ÁRIÐ 2002 - AÐALLISTINN
LEGGÐU RÆKT VIÐ SJÁLFAN ÞIG
Anna Valdimarsdóttir
RÖDDIN
Arnaldur Indriðason
TILHUGALÍF
Kolbrún Bergþórsdóttir
SONJA - LÍF OG LEYNDARD...
Reynir Traustason
GRAFARÞÖGN
Arnaldur Indriðason
DAUÐARÓSIR
Arnaldur Indriðason
MÝRIN
Arnaldur Indriðason
GEITUNGURINN 1
Árni Árnason, Halldór Baldurs.
ÍSLENSKA VEGAHANDBÓKIN
Bókaútgáfan Stöng
HÁLENDISHANDBÓKIN
Páll Ásgeir Ásgeirsson
Metsölulisti Pennans:
Kilja efst
BÆKUR Penninn Eymundsson hefur
sent frá sér lista yfir mest seldu
bækurnar í verslunum sínum árið
2002. Listarnir bera þess merki að
þeir ná yfir heilt ár og eru því óhjá-
kvæmilega nokkuð frábrugðnir
þeim listum sem voru að birtast
rétt fyrir jól. Það vekur sjálfsagt
mesta athygli að mest selda bók
ársins er Leggðu rækt við sjálfan
þig eftir Önnu Valdimarsdóttur,
endurútgefin í kilju. Hún seldist vel
allt árið og var í efsta sæti vin-
sældalistans um langt skeið. Ald-
ursforseti listans er þó óumdeilan-
lega riddarinn sturlaði Don Kíkóti
sem kom sterkur inn á lokasprettin-
um og endaði í 5. sæti.
Óvenju margar eldri bækur röð-
uðu sér einnig inn á barnabókalist-
ann en aðeins tvær bækur á þeim
lista eru gefnar út á þessu ári;
Artemis Fowl og Líló og Stitch.
Styrkur eldri bóka á listunum
ræðst sjálfsagt að miklu leyti af því
að oft er um kiljur að ræða en
þannig er Arnaldur Indriðason til
dæmis með fjórar eldri bækur sín-
ar í kiljuformi á aðallistanum og
því góðar líkur á að Röddin verði
ofarlega á lista ársins 2003 í kilju. ■
HVAÐA BÓK ERT ÞÚ AÐ LESA?
Hugleikur Dagsson myndasögumaður.
Ég er að lesa skáldsöguna The Amazing
Adventures of Kavalier and Clay sem segir
frá tveimur gyðingum í New York árið 1938
sem skapa myndasögupersónuna Escapist,
sem er einhvers konar nasistabani og lætur
til sín taka í seinni heimsstyrjöldinni. Hún
byrjar vel og er líkleg til að snerta strengi í
hjarta nördsins.
KVIKMYNDIR Nú hafa framleiðendur
kvikmyndarinnar „Seven“ ákveðið
að gera framhaldsmynd. Upphaf-
lega myndin skaut leikstjóranum
David Fincher upp á stjörnuhimin-
inn árið 1995 en ekki er vitað hvort
hann verði viðloðandi framhalds-
myndina.
Það sem er vitað er að leikar-
inn Brad Pitt mun ekki endurtaka
hlutverk sitt sem lögreglumaður-
inn David Mills. Morgan Freeman
mun þó snúa aftur sem lögreglu-
maðurinn William Somerset.
Annar fjöldamorðingi gerir
vart um sig og Somerset er settur
í málið. Það gerir lögreglumann-
inum svo erfiðara fyrir að morð-
inginn virðist vera skyggn og því
ávallt einu skrefi á undan lögregl-
unni. Persóna Brad Pitt var skrif-
uð út þannig að hann hafi gefið
sig andlega eftir atburði síðustu
myndar og endað á geðsjúkra-
húsi. ■
Tíðindi frá Hollywood:
Framhaldsmynd Seven í vinnslu
DAVID FINCHER
Hér sést leikstjórinn David Fincher við tökur á mynd sinni „Fight Club“. Ekki er talið líklegt
að hann leikstýri framhaldsmynd „Seven“. Hann hefur verið orðaður við að leikstýra næst
Súperman-myndinni „Man of Steel“.
Bókaútgáfan Bjartur:
Teflir fram
öflugu liði
BÆKUR Bókaútgáfan Bjartur er með
35 titla á útgáfuáætlun sinni fyrir
árið 2003 og mun tefla fram
nokkrum góðkunningjum sínum.
Þannig eru rithöfundarnir Huldar
Breiðfjörð og Bragi Ólafsson báðir
með nýjar skáldsögur í smíðum. Þá
er Jón Kalman Stefánsson að leggja
lokahönd á nýja skáldsögu og aðdá-
endur hins vinsæla Blíðfinns mega
eiga von á að Þorvaldur Þorsteins-
son ljúki við seinni hluta ferðasögu
hans til Targíu á árinu.
Einnig er von á tveimur nýjum
bókaflokkum frá Bjarti, svörtu
línunni svokölluðu og flokknum
Neon-Klassík. ■