Fréttablaðið - 23.01.2003, Síða 1
AFMÆLI
Óvissuferð
bls. 26
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 23. janúar 2003
Tónlist 16
Leikhús 16
Myndlist 16
Bíó 18
Íþróttir 14
Sjónvarp 20
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
VERÐLAUN Íslensku tónlistarverð-
launin verða afhent í Borgarleik-
húsinu í kvöld. Kynnar hátíðarinn-
ar verða Gísli Marteinn Baldursson
og Guðrún Gunnarsdóttir. Meðal
þeirra sem koma fram eru: Leaves,
Hamrahlíðarkórinn, Barrokhópur-
inn, Tómas R. Einarsson, Selma og
Hansa, Bubbi Morthens og Írafár.
Íslensku tónlistarverðlaunin hafa
nú verið afhent sjö sinnum en þau
voru afhent í fyrsta sinn í apríl-
mánuði 1994. Hátíðin verður í
beinni útsendingu í Sjónvarpinu.
Tónlistarverðlaun-
in afhent
KÖRFUBOLTI KR, efsta lið Intersport-
deildarinnar í körfubolta, mætir ÍR
á heimavelli klukkan 21. ÍR er í
harðri baráttu um sæti í úrslita-
keppninni.
Toppliðið
á heimavelli
KYNNING Alþjóðadagur Háskóla Ís-
lands hefst klukkan 12 í Háskóla-
bíói. Þar munu erlendir og íslenskir
nemar kynna námsmöguleika er-
lendis og fulltrúar frá LÍN, SÍNE,
Fulbright og fleiri aðilar kynna
þjónustu sína við námsmenn. Al-
þjóðlegt kvöld verður í Stúdenta-
kjallaranum klukkan 21.
Alþjóðadagur
Háskóla Íslands
EYJAGOS
Þrjátíu
ár liðin
FIMMTUDAGUR
19. tölublað – 3. árgangur
bls. 21
FÓLK
Trúir enn
á ástina
bls. 4
WASHINGTON, AP Íraskir ráðamenn
væru að kalla yfir sig „alvarlegar
afleiðingar“ ef þeir myndu nota
gjöreyðingarvopn gegn banda-
rískum hersveitum ef til stríðs
kemur, sagði George W. Bush
Bandaríkjaforseti þegar hann
fjallaði um Íraksdeiluna á fundi
þar sem hann var að kynna stefnu
sína í efnahagsmálum.
Bush sagðist kjósa að afvopna
Íraka með friðsamlegum hætti en
vera reiðubúinn að fara í stríð til
þess. „Skyldi þeirri leið vera
þröngvað upp á okkur verða af-
leiðingarnar alvarlegar. Það
verða alvarlegar afleiðingar fyrir
einræðisherrann í Írak. Og það
verða alvarlegar afleiðingar fyrir
hvern þann íraska herforingja
eða hermann sem notar vopn
gegn hermönnum okkar eða
óbreyttum borgurum.“
„Ef einhver íraskur herforingi
eða hermaður fær skipun frá
Saddam Hussein eða sonum hans
eða einhverjum af morðingjunum
sem halda um stjórnvölinn í ríkis-
stjórn þeirra væri ráðgjöf mín að
hlýða þeirri skipun ekki,“ sagði
Bush og bætti við að þeir sem það
gerðu yrðu meðhöndlaðir sem
stríðsglæpamenn og saksóttir
sem slíkir.
Meira á bls. 6
REYKJAVÍK Austlæg átt 13-18
m/s og sjókoma. Hægari og
slydduél síðdegis. Hiti í
kringum frostmark.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 15-20 Él 5
Akureyri 13-18 Snjókoma 14
Egilsstaðir 13-18 Snjókoma 14
Vestmannaeyjar 13-18 Snjókoma 2
➜
➜
➜
➜
-
-
-
-
GEORGE W. BUSH
Bush vinnur nú að því að afla stuðnings við innrás í Írak dugi aðrar leiðir ekki til að afvopna landið.
AP
/R
IC
K
B
O
W
M
ER
Bush varar Íraka við að beita gjöreyðingarvopnum:
Afleiðingarnar yrðu alvarlegar
FÓLK
bls. 21
Sér-
fræðingur
sniðgenginn
TÓNLIST
Endurvinna
Undra-
vegginn
bls. 11
SAMKEPPNISMÁL Samkeppnisstofn-
un hefur sent olíufélögunum þrem-
ur svokallaða frumathugun á mein-
tu ólöglegu samráði fyrirtækj-
anna. Í athuguninni er að
finna ávirðingar um tiltekin
brot á samkeppnislögum.
Guðmundur Sigurðsson,
forstöðumaður hjá Sam-
keppnisstofnun, segir að-
spurður um stöðu málsins
að ákveðið hafi verið á síð-
asta ári að skipta rannsókn
málsins í tvo hluta. Niður-
stöður fyrri hlutans hafi
verið sendar olíufélögunum
fyrir um tveimur vikum. Þau hafi
frest þar til seinni partinn í febrú-
ar til að skila inn athugasemdum
og andmælum. Öruggt má telja að
félögin sæki um lengri frest til
andsvara. Minna má á að trygging-
arfélögin fengu frest fram í sept-
ember í fyrra eftir að hafa fengið
sambærileg frumathugun í hendur
í janúar á því ári.
Að sögn Guðmundar er enn ekki
hægt að segja til um hvenær rann-
sókn á síðari hluta málsins lýkur
og fyrirtækin fái frumathug-
un í hendur varðandi þá
þætti málsins.
„Þegar stofnunin tekur
upp mál að eigin frumkvæði
og hefur farið yfir málsgögn
og aflað upplýsinga er venj-
an sú að taka saman greinar-
gerð og senda málsaðilum
svo þeir geti komið að at-
hugasemdum og andmælum.
Hvað olíumálið áhrærir
ákváðum við að skipta því upp í tvo
hluta vegna þess hversu það er
umfangsmikið og tekur til langs
tíma,“ segir Guðmundur.
Þrátt fyrir að Guðmundur seg-
ist ekki telja rétt að svara til um
það hvort niðurstaðan í fyrri hluta
rannsóknarinnar sé sú að olíufé-
lögin hafi viðhaft ólöglegt samráð
má draga þá ályktun að svo sé. Ella
hefði Samkeppnisstofnun ekki sent
félögunum athugasemdirnar.
Guðmundur segist heldur ekki
geta upplýst um þá tilteknu þætti
sem eru til umfjöllunar í niðurstöð-
unum sem sendar hafa verið út.
Eins og kunnugt er gekk Olíufé-
lagið hf. (Esso) til formlegs sam-
starfs við Samkeppnisstofnun
skömmu eftir húsleit hjá olíufélög-
unum í desember 2001. Tilgangur-
inn var að fá fram lækkun yfirvof-
andi sektar vegna brota á sam-
keppnislögum. Olís fylgdi síðar í
kjölfar Esso. Skeljungur hefur
hins vegar ekki tekið upp slíkt
formlegt samstarf við stofnunina
þó stjórnendur fyrirtækisins hafi
sagst fúsir til samstarfs.
Einar Benediktsson, forstjóri
Olís, og Geir Magnússon, forstjóri
Esso, segjast ekki vilja tjá sig um
málið á meðan það er í rannsókn.
gar@frettabladid.is
Rannsókn bendir
til brota olíufélaga
Samkeppnisstofnun skipti rannsókn sinni á meintu ólöglegu samráði
olíufélaganna í tvennt vegna stærðar málsins. Frumathugun hefur
verið send olíufélögunum. Þau hafa andmælafrest út febrúar.
„Hvað olíu-
málið áhrærir
ákváðum við
að skipta því
upp í tvo
hluta vegna
þess hversu
það er um-
fangsmikið.“
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
28%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
fimmtu-
dögum?
53%
72%
KÓREUMENN FUNDA
Norður-Kóreumenn og Suður-Kóreumenn
funda um samskipti þjóðanna. Kjarnorku-
mál eru meðal umræðuefna.
Norður-Kórea:
Ígildi stríðs-
yfirlýsingar
SÞ, AP Stjórnvöld í Norður-Kóreu
líta svo á að ef öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna samþykkir refsiað-
gerðir gegn landinu vegna kjarn-
orkuáætlunar þess jafngildi það
stríðsyfirlýsingu. Þetta segir
Maurice Strong, ráðgjafi Kofi
Annan, aðalritara Sameinuðu
þjóðanna, eftir að hafa rætt við
stjórnvöld í Pyongyang. Þar fékk
hann þau skilaboð að Sameinuðu
þjóðirnar ættu ekki að skipta sér
af deilunni um kjarnorkuvopn
Norður-Kóreumanna.
Bandarísk stjórnvöld hafa lagt
áherslu á að öryggisráðið taki
málið til umræðu. Norður-Kóreu-
menn aftaka það með öllu og segja
að deilan standi aðeins á milli sín
og Bandaríkjanna. ■
AP
/C
H
O
I J
AE
-K
U