Fréttablaðið - 23.01.2003, Síða 4
4 23. janúar 2003 FIMMTUDAGUR
INNLENT
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Spilarðu í happdrætti,
spilakössum, lottói eða
getraunum?
Spurning dagsins í dag:
Ætlarðu að fara á þorrablót?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
47%Nei
53%
RÍFLEGA HELM-
INGUR SPILAR
Rúmlega 50%
gesta á frett.is
segjast spila í
happdrætti, spila-
kössum, lottói eða
getraunum.
Já
GOS Í VESTMANNAEYJUM „Mér er efst
í huga sú staðreynd að bæjarbúar
sluppu heilir á húfi þessa örlaga-
ríku nótt,“ segir Ragnar Sigur-
jónsson, ráðsmaður í Viðey, sem
fyrir þrjátíu árum upplifði upphaf
eldgossins í Vestmannaeyjum.
Ragnar var þá nýlega orðinn faðir
og bjó ásamt fyrrverandi eigin-
konu sinni hjá foreldrum hennar á
Búastaðabraut. Hann segist hafa
vaknað upp rétt fyrir klukkan tvö
við það að rúmið lék á reiðiskjálfi.
„Eftir að við áttuðum okkur á
hvað var á seyði drifum við okkur
fótgangandi niður á höfn. Ég
hreinlega trúði þessu ekki. Eldgos
var byrjað og það nánast á lóðinni.
Við skildum allt eftir. Fyrrverandi
tengdamóðir mín lét duga að
kasta kápu utan yfir náttfötin. Við
trúðum því að við færum rétt út
fyrir hafnarmynnið þar sem við
myndum bíða af okkur gosið. Að
því loknu færu allir til síns
heima.“
Ragnar var áhafnarmeðlimur á
loðnubát árið 1973. Hann segir
undirbúninginn fyrir vertíðina
hafa verið í fullum gangi þegar
eldgosið hófst. Tilviljun hafi ráðið
að báturinn var gangfær þar sem
viðgerð fór fram deginum áður.
Ragnar segir einnig veðrið hafa
leikið við Eyjamenn þessa nótt.
Óveður hafi geisað sólarhring
áður. Hvort skrifa megi allt á til-
viljanir segist Ragnar ekki vera
öruggur um.
Ragnar fiskaði allan tímann
meðan gosið stóð yfir. „Það var
ljós punktur í tilverunni þegar
loðnubræðslan fór í gang. Hjólin
voru farin að snúast upp á nýtt.
Jaxlarnir í gúanóinu hreinlega
neituðu að gefast upp. Þeir ætluðu
að bræða sína loðnu, burtséð frá
einhverju eldgosi,“ segir Ragnar,
fullur aðdáunar enn þann dag í
dag.
Ragnar sneri aftur til Eyja
ásamt fjölskyldu sinni sem þá var.
Annað kom ekki til greina af hans
hálfu. ■
RAGNAR SIGURJÓNSSON
Ragnar var með í því þegar fyrstu björg-
unaraðgerðir fóru fram í austustu húsun-
um. Segist hann hafa átt þátt í að pakka
niður búslóðum úr tveimur húsum. Í öðru
þeirra segir hann sér hafa orðið um og ó.
„Það var allt vaðandi í kristal og hekl-
uðum dúkum á stólörmunum. Það verður
að segjast mér til hróss að það brotnaði
ekki einn hlutur í öllu hamaganginum.“
Ragnar Sigurjónsson:
Jaxlarnir neituðu að gefast upp
Niðurskurði mótmælt:
Læknarnir
gengu út
ÞÝSKALAND, AP Meira en 5.000
þýskir læknar lokuðu læknisstof-
um sínum um nokkurra klukku-
tíma skeið til að mótmæla fyrir-
huguðum niðurskurði stjórnvalda
á fjárveitingum til heilbrigðis-
kerfisins. Læknarnir segja niður-
skurðinn leiða til verri þjónustu
fyrir almenning.
Stjórnvöld hafa fryst upphæð
greiðslna til lækna og lagt til frek-
ari niðurskurð í heilbrigðiskerf-
inu. Stefnt er að því að draga úr
lyfjakostnaði.
Þýskir heilbrigðisstarfsmenn
efndu einnig til mótmæla gegn
stefnu stjórnvalda í heilbrigðis-
málum í nóvember. ■
LAUNAVÍSITALA HÆKKAR Hag-
stofan hefur reiknað út launavísi-
tölu miðað við meðallaun í des-
ember 2002. Vísitalan er 228,7
stig og hækkar um 0,3% frá
fyrra mánuði. Samsvarandi
launavísitala sem gildir við út-
reikning greiðslumarks fast-
eignaveðlána er 5002 stig í febrú-
ar 2003.
BYGGINGARVÍSITALA HÆKKAR
Hagstofan hefur reiknað vísitölu
byggingarkostnaðar eftir verð-
lagi um miðjan janúar. Vísitalan
er 285,0 stig (júní 1987=100) og
hækkar um 2,52% frá fyrra mán-
uði. Vísitalan gildir fyrir febrúar.
Samsvarandi vísitala miðuð við
eldri grunn (desember 1982=100)
er 912 stig. Síðastliðna tólf mán-
uði hefur vísitala byggingar-
kostnaðar hækkað um 2,7%.
Hækkun hennar nú skýrist að
mestu af hækkun launa.
HAFNAR BAR Á HORNI Bygging-
arfulltrúinn í Reykjavík hefur
hafnað beiðni um að fá að inn-
rétta veitingahús og bar á ann-
arri hæð hússins á horni Skóla-
vörðustígs og Laugavegar. Hins
vegar hefur verið tekið jákvætt í
að innréttað verði kaffihús þar í
grenndinni á jarðhæðinni á
Smiðjustíg 4.
Saga úr Eyjum:
Bogi, það er
komið gos
GOS Í VESTMANNAEYJUM Það voru
ekki allir með á nótunum nóttina
sem eldgosið hófst í Vestmanna-
eyjum. Kaupmaðurinn Bogi í
Eyjabúð var kunnur fyrir að fátt
kæmi honum úr jafnvægi. Eftir að
árangurslausar tilraunir höfðu
verið gerðar til að vekja Boga
með síma ákváðu björgunarsveit-
armenn að fara til hans. Bönkuðu
þeir upp á hjá honum og sögðu:
„Bogi, það er komið gos.“ Bogi
svaraði með stóískri ró: „Já, látið
það bara á tröppurnar.“ ■
GOS Í VESTMANNAEYJUM Margrét
Jónasdóttir sagnfræðingur man
ekki eftir eldgosinu í Vestmanna-
eyjum. Hún var aðeins þriggja
ára gömul. Í dag, þrjátíu árum síð-
ar, þekkir hún hins vegar söguna
vel, afleiðingar þess og fólkið sem
tengdist því. Þennan fróðleik öðl-
aðist hún við gerð þáttanna „Ég
lifi“ sem Stöð 2 sýnir um þessar
mundir.
„Það kom mér á óvart við
gerð þáttanna hvernig fólk
ræddi um lífsreynslu sína eins
og gerst hefði í gær. Í fyrstu
virtist sem þessi reynsla hefði
ekki haft djúpstæð áhrif. Síðan
brutust tilfinningarnar allt í
einu fram í miðju viðtali og engu
líkara en eitt minningarbrot
dygði til.“ Þá kemur henni sífellt
á óvart, sama hversu oft hún
horfir á þættina, hversu rólegir
og yfirvegaðir bæjarbúar voru
hina afdrifaríku nótt. „Eftir að
hafa skoðað myndir frá gosinu í
Eyjum velti ég fyrir mér hvern-
ig í ósköpunum forráðamönnum
bæjarins og bæjarbúum hafi
dottið í hug að gosið gengi yfir á
einni nóttu og það væri nóg að
liggja í bátunum aðeins utan við
eyjuna og bíða. Þvílíkt brjál-
æði,“ segir hún og hlær.
Margrét segist hafa velt fyrir
sér áður en vinna hófst við þætt-
ina hvað fengi fólk til að búa á
virkri eldstöð. Eftir að hafa rætt
við bæjarbúa og kafað ofan í við-
fangsefnið sé hún farin að skilja
taugarnar sem bæjarbúar bera
til eyjarinnar. ■
Margrét Jónasdóttir:
Bæjarbúar yfirvegaðir við upphaf gossins
GOSIÐ Í EYJUM „Það er byrjað svolít-
ið austur á Eyju,“ var sagt á yfir-
vegaðan hátt þegar ungur blaða-
maður á Morgunblaðinu svaraði í
símann á kaldri vetrarnóttu 23. jan-
úar árið 1973. Blaðamaðurinn ungi
var Árni Johnsen og röddin í síman-
um var móðir hans að láta vita að
gos væri byrjað í Vestmannaeyjum.
Á innan við klukkutíma frá því
hringingin barst var Árni kominn
út í Eyjar. Áður hafði hann hringt í
yfirmann sinn, Styrmi Gunnarsson,
ritstjóra Morgunblaðsins, og sagt
honum frá gosinu. Lauk hann sím-
talinu með því að segja honum að
hann færi farinn út í Eyjar. „Ég
frétti það síðar að Styrmir hefði
hringt í Björn Jóhannsson, þáver-
andi fréttastjóra, og spurt hvort ég
væri byrjaður að drekka,“ segir
Árni og hlær.
Árni átti eftir að ílengjast í Vest-
mannaeyjum þá fimm mánuði sem
gosið stóð yfir. Daginn sem hann
kom út segist hann hafa hlaupið
upp á Helgafell til að kanna umfang
gossins. „Ég hafði búið í Surtsey tíu
árum áður og er líklega eini Íslend-
ingurinn sem vitað er um sem hef-
ur upplifað að horfa á jörðina rifna
og gos hefjast. Mér létti aðeins þeg-
ar ég sá hvernig goslínan lá úti í
Eyjum. Ég sá strax að gosið var
komið í mótaðan farveg.“
Tók bara hangilærið
Nóttina sem gosið hófst segir
Árni eftirminnilegast æðruleysi
fólksins. „Það var ekkert fát, held-
ur var gengið hæglátlega niður á
höfn. Undarleg stemning ríkti
meðal fólksins og uppákomurnar
voru margar æði sérkennilegar.“
Árni segir frá því að hinum kunna
tónlistarmanni Didda fiðlu hafi
einungis dottið í hug að hafa með
sér hangikjötslæri og að maður
einn hefði athugað að taka með sér
bankabókina en gleymt í staðinn
eiginkonunni. „Svo var það kona
skipstjórans sem var ekki í rónni
fyrr en báti eiginmannsins, sem
var fullur af fólki, var snúið við til
að sækja ákveðinn hlut. Þegar hún
sneri til baka kom í ljós að konan
hafði sótt ballkjólinn sinn. Þetta
þótti henni ráðlegast ef hún skyldi
bregða sér á ball í Reykjavík.“
Eldfjallið og gúanóið
Árna eru minnisstæðar and-
stæðurnar sem ríktu þegar gosið
var. Sérstaklega eldfjallið og gú-
anóið undir stjórn Viktors Helga-
sonar. „Það var jákvætt og spenn-
andi að stíga inn í bræðsluna eftir
að hafa daglangt atast í gosinu og
finna gúanólyktina og hjartsláttinn
sem þar ríkti. Ekki síst með það í
huga að einungis kílómeter var á
milli eldgígsins og gúanósins og
finna hvernig stromparnir á báðum
stöðum titruðu. Fyrir mér var þetta
lýsandi dæmi um stemninguna sem
ríkti í Vestmannaeyjum og barátt-
una sem fylgdi síðan í kjölfarið.“
Fjárhagslegt tjón fyrir
marga
Árni segir gosið hafa reynt mik-
ið á fólk. Fámenni hefði verið í Eyj-
um fyrstu dagana og óvissa ríkt
meðal brottfluttra. „Stórfelldustu
mistökin að mínu mati var að banna
fólki að koma til Eyja og huga að
eigum sínum. Þetta var brjálæði.
Það var ekki fyrr en hlutirnir voru
komnir í ákveðinn farveg og íbúar
buðu yfirvaldinu birginn að fólki
var hleypt í land. Langeðlilegast
hefði verið fyrir þá sem réðu að
ráða allt þetta fólk til hreinsunar-
starfa í sínum heimabæ í stað þess
að hleypa því út og suður og fram-
kvæma hluti sem sköpuðu bæði
ótta og tortryggni.“
„Gosið kostaði átta milljarða
gamalla króna en einungis tveir
milljarðar skiluðu sér til Vest-
mannaeyja.“ Hann segir marga
Eyjamenn hafa orðið innlyksa
vegna lélegra bóta og því ekki átt
afturkvæmt. „Þetta fólk missti góð
hús og fékk lélegar bætur. Það stóð
í mörgum á miðjum aldri að rífa sig
upp og byrja upp á nýtt.“
Íbúar í Vestmannaeyjum voru
5.300 talsins þegar gosið hófst.
1.700 manns sneru ekki aftur. Af
tólf hundruð húsum fóru um fjögur
hundruð undir hraun. „Mannlífið í
Eyjum hefur lítið breyst í áranna
rás. Enn ríkir öflugt félagsstarf
með tugi félaga starfandi. Enn má
finna hvunndagsklíkurnar. Enn er
ríkjandi þessi Eyjahúmor og prakk-
araskapur.“
Árna er efst í huga baráttuvilji
Eyjamanna á þessum þrjátíu ára
tímamótum. „Það er ekki einfalt að
upplifa eldgos í eigin byggð. Það
skilja þeir sem voru á staðnum. Yf-
irvegunin og æðruleysið sem ríkti
nóttina sem gaus sýndi í hnotskurn
hve harðsækið fólk býr á Íslandi.“
kolbrun@frettabladid.is
ÁRNI JOHNSEN
Árna er efst í huga baráttuvilji Eyjamanna á þessum þrjátíu ára tímamótum. „Það er ekki
einfalt að upplifa eldgos í eigin byggð. Það skilja þeir sem voru á staðnum. Yfirvegunin og
æðruleysið sem ríkti nóttina sem gaus sýndi í hnotskurn hve harðsækið fólk býr á Íslandi.“
Það er byrjað svolítið
austur á Eyju
Árni Johnsen rifjar upp eldgosið í Vestmannaeyjum. Þrjátíu ár eru í dag liðin frá upphafi þess.
HRAUNIÐ KÆLT
Menn unnu baki brotnu í baráttu sinni við
náttúruöflin.
LJ
Ó
SM
YN
D
/P
ÁL
L
ST
EI
N
G
RÍ
M
SS
O
N
SÉÐ YFIR HEIMAEY
Gosið tók fimm mánuði. Á þeim tíma fóru
um fjögur hundruð hús undir hraun af
þeim tólf hundruð sem fyrir voru.
LJ
Ó
SM
YN
D
/P
ÁL
L
ST
EI
N
G
RÍ
M
SS
O
N
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M