Fréttablaðið - 23.01.2003, Side 6
6 23. janúar 2003 FIMMTUDAGURVEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 26
1.
2.
3.
Íslenska landsliðið sigraði
Grænland í öðrum leik sínum á
Heimsmeistaramótinu í hand-
knattleik í Portúgal. Hver voru
úrslitin?
Nýr þingmaður hefur tekið sæti
á Alþingi í stað Vilhjálms Egils-
sonar. Hvað heitir hann?
Hver hlaut Golden Globe-verð-
launin sem besti karlleikari í
dramatískri kvikmynd?
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 79.34 -0.09%
Sterlingspund 127.8 0.25%
Dönsk króna 11.42 0.39%
Evra 84.9 0.37%
Gengisvístala krónu 123,73 -0,13%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 260
Velta 6.306 milljónir
ICEX-15 1.342 -0,08%
Mestu viðskipti
Íslandsbanki hf. 503.858.043
Baugur Group hf. 294.725.302
Kaupþing banki hf. 256.793.248
Mesta hækkun
Grandi hf. 3,33%
Íslenskir aðalverktakar hf. 2,99%
Samherji hf. 1,54%
Mesta lækkun
Marel hf. -2,78%
Kögun hf. -1,89%
Búnaðarbanki Íslands hf. -1,44%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8362,3 -1,0%
Nasdaq*: 1367,3 0,2%
FTSE: 3678,0 -1,6%
DAX: 2774,9 -3,3%
Nikkei: 8611,0 -1,1%
S&P*: 882,4 -0,6%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
tt logo 210TAK
tt logo 1688DYR
tt logo 645BIO
Til a› fá tákn e›a tón í símann sendir›u SMS,
dæmi: tt logo 961BIO í 1848.
tt logo 4616GLE
tt logo 6775AST
tt logo 6753AST
tt logo 782TAG
tt logo 20322ANN
tákn skammval
IN MY PLACE
Coldplay
ÉG SJÁLF
Írafár
Á N†JUM STA‹
Sálin hans Jóns míns
tt ton 119POP
tt ton 75ISL
tt ton 76ISL
tónn skammval
N‡justu
tónar og tákn
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
•
8
3
5
2
/ sia
.is
tt logo 105TEI
tt logo 1639KRU
LIFE IS LIFE
Hermes House Band & DJ Ötzi
DILEMMA
Nelly ásamt Kelly Rowland
THERE’S A STAR
Ash
JUST LIKE A PILL
Pink
tt ton 117POP
tt ton 118POP
tt ton 112POP
tt ton 114POP
fiessir tónar og tákn eru eingöngu fyrir Nokia-síma. Hver sending kostar 59 kr.
Kíktu á vit.is til a› sjá fleiri
tóna og tákn.
Ná›u flér strax í heitustu táknin og svölustu tónana í GSM-símann flinn.
Í hverri viku bætast vi› n‡ tákn og n‡ir tónar.
CALL ME
Moroder tt ton 5DIS
IN THE SUMMERTIME
Mungo Jerry tt ton 120POP
THE TIDE IS HIGH
Atomic Kitten tt ton 116POP
Tæp 75 prósent
kjósa um málefni
Um fjórðungur landsmanna leggur frekar áherslu á menn en málefni
þegar komið er að kjörborðinu. Konur kjósa frekar menn en karlar. Sam-
fylking fengi hreinan meirihluta á þingi ef aðeins væri kosið um menn.
ÁLVER Iðnaðarráðherra lagði í gær
fram á Alþingi frumvarp sem heim-
ilar undrritun samninga við Fjarða-
ál sf. og stofnendur þess, Alcoa á Ís-
landi ehf. og Reyðarál ehf., um að
reisa og reka álverksmiðju og tengd
mannvirki á Íslandi. Í greinargerð
með frumvarpinu segir að í fyrsta
lagi sé veitt heimild til að semja við
Fjarðaál um að reisa og reka 322
þúsund tonna álverksmiðju. Félagið
og eigendur þess munu starfa sam-
kvæmt ákvæðum íslenskra laga. Þá
er ríkisstjórninni heimilað að trygg-
ja efndir af hálfu Fjarðabyggðar og
hafnarsjóðs Fjarðabyggðar. Í frum-
varpinu eru einnig ákvæði um
skattlagningu vegna reksturs ál-
versins, sem verður í meginatriðum
í samræmi við íslensk skattalög en
með nokkrum sérákvæðum. Loks er
kveðið á um lögsögu íslenskra dóm-
stóla og stöðu gerðardóms auk þess
sem íslensk lög ráða um túlkun og
skýringu samninga. Frumvarpið er
sambærilegt lögum um álbræðslu á
Grundartanga.
Í umsögn fjárlagaskrifstofu fjár-
málaráðuneytisins segir meðal ann-
ars að áætlað sé að á framkvæmda-
tíma verði landsframleiðsla um 3%
hærri en annars og megi því gera
ráð fyrir að gripið verði til aðgerða
í ríkisfjármálum til mótvægis og þá
einkum að opinberum framkvæmd-
um verði frestað.
Samkvæmt samgönguáætlun er
kostnaður við fyrirhugaða stóriðju-
höfn í Reyðarfirði áætlaður 1.113
miljónir króna. Þar af er styrkhæf-
ur hluti 1.081 milljón og hlutur rík-
issjóðs í kostnaðinum 661 miljón. ■
KÖNNUN Næstum tveir þriðju
landsmanna segja að málefni ráði
mestu um það hvaða flokk þeir
ætla að kjósa í alþingiskosningun-
um í vor samkvæmt niðurstöðum
könnunar Fréttablaðsins.
Af þeim sem tóku afstöðu
sögðu 26,7% menn vega þyngra
en málefni, en 73,3% sögðu mál-
efni vega þyngra. Könnunin sýnir
að konur hafa meiri tilhneigingu
til að kjósa menn frekar en mál-
efni. Um 29% þeirra sögðu menn
vega þyngra, en tæplega 25%
karla voru sömu skoðunar. Ekki
var marktækur munur á áhersl-
um fólks eftir búsetu, þ.e. milli
landsbyggðar og þéttbýlis.
Stuðningsmenn Samfylkingar-
innar og Framsóknarflokksins
virðast frekar leggja áherslu á
menn en stuðningsmenn hinna
flokkanna. Um 33 til 35% þeirra
segja að menn komi til með að
ráða meiru en málefni þegar þeir
kjósa í vor. Um 20% stuðnings-
manna Sjálfstæðisflokksins eru
sömu skoðunar. Athygli vekur að
aðeins 12% stuðningsmanna
Vinstri grænna segja að menn
ráði meiru en málefni og 14%
stuðningsmanna Frjálslynda
flokksins. Þessi niðurstaða gefur
ákveðna vísbendingu en varast
ber að oftúlka hana.
Könnunin sýnir enn fremur að
ef einungis væri kosið um menn
fengi Samfylkingin hreinan
meirihluta á þingi, en ef aðeins
væri kosið um málefni væri Sjálf-
stæðisflokkurinn stærstur.
Í könnun Fréttablaðsins sögð-
ust rúmlega 13% aðspurðra vera
óákveðnin eða neituðu að svara
spurningunni, en spurt var: Hvort
vegur þyngra í ákvörðun þinni
um hvaða lista þú kýst í vor;
menn eða málefni? Alls voru 600
manns spurðir og skiptust þeir
jafnt milli kynja og hlutfallslega
á milli kjördæma eftir áætluðum
fjölda kjósenda í alþingiskosning-
unum í vor.
trausti@frettabladid.is
FLUGLEIÐAÞOTA
Fyrir einu ári voru 75 farþegar og 7 manna
áhöfn Flugleiðaþotu innan við 100 metra
frá að lenda í stórslysi. Rannsóknarnefnd
flugslysa í Noregi segir mistök flugmann-
anna hafa leitt til óvænts steypiflugs eftir
að hætt hafði verið við aðflug.
Steypiflug Flugleiðaþotu:
Mistök ollu
næstum
stórslysi
FLUG Skýrsla norsku flugslysa-
nefndarinnar um steypiflug Flug-
leiðaþotu við Gardermoen-flug-
völl í Noregi verður gerð opinber
í dag. Í gær var eitt ár liðið frá at-
burðinum.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins eru orsakirnar raktar til
mannlegra mistaka, líkt og kom
fram í frumskýrslu Norðmann-
anna í mars í fyrra. Þar sagði að
flugmönnunum hefði láðst að
breyta flughæð í sjálfstýringu
þegar hætt var við aðflug að flug-
vellinum í kjölfar flökts á tölvu-
skjá.
Þotan hækkaði flugið upp í
3735 fet. Sjálfstýringin leitaðist
aftur á móti við að halda þotunni í
áðurnefndum 2500 fetum og dró
því úr afli hreyflanna niður á
hægagang. Að lokum steyptist
vélin til jarðar þar til flugmönn-
um tókst að rétta hana af tæpum
100 metrum yfir jörðu. Um borð
voru 75 farþegar og 7 manna
áhöfn.
Flugstjórinn og aðstoðarflug-
maður hans voru sendir í leyfi eft-
ir að rannsókn hófst. Þeir höfðu
áður báðir staðist hæfnispróf sem
þeir voru látnir gangast undir.
Þeir hófu störf að nýju eftir end-
urþjálfun og um fjögurra mánaða
hlé. Flugstjórinn var þó lækkaður
í stöðu aðstoðarflugmanns. ■
Kóreudeilan:
Líklega á
borð örygg-
isráðsins
WASHINGTON, AP Búist er við því að
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin
beini deilunni um kjarnorku-
vopnaáætlun Norður-Kóreu til
öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna. Líklegt þykir að af því
verði þegar í vikunni.
Bandaríkjamenn munu fagna
því. „Þetta er ekki spurning um
hvort málið fari til öryggisráðs-
ins heldur hvenær,“ sagði John
Bolton, sem fer með öryggis- og
afvopnunarmál í bandarísku
stjórninni.
Hins vegar er búist við því að
norður-kóresk stjórnvöld líti á
það öðrum augum enda telja þau
deiluna einungis standa milli sín
og Bandaríkjanna. ■
REYÐARFJÖRÐUR
Lagafrumvarp sem heimilar undirritun samninga um byggingu og rekstur álvers Alcoa er
nú komið fram og verður rætt á næstu dögum.
Frumvarp um álver Alcoa í Reyðarfirði:
Lagt fram
á Alþingi
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
Athygli vekur að aðeins 12% stuðningsmanna Vinstri grænna segja að menn ráði meiru en málefni. Stuðningsmenn Samfylkingarinnar
og Framsóknarflokksins virðast frekar leggja áherslu á menn. Þessi niðurstaða gefur ákveðna vísbendingu en varast ber að oftúlka hana.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T