Fréttablaðið - 23.01.2003, Page 8

Fréttablaðið - 23.01.2003, Page 8
8 23. janúar 2003 FIMMTUDAGUR NORÐURLÖND Gjafakot Strandgötu 29, Hafnarfirði Útsala - Útsala 40% afsláttur af öllum vörum um óákveðinn tíma Sími: 555 6770 Ríkislögreglustjóri hefur enga vitneskju um samninga fyrirtækja úti í bæ: Rólegur yfir Baugi FJÁRHAGSSKAÐI „Lögreglan hef- ur ekki vitneskju um samn- inga sem fyrirtæki úti í bæ eru að gera á hverjum tíma. Því er ekki við okkur að sakast í þessu sambandi,“ seg- ir Haraldur Johannessen rík- islögreglustjóri um fullyrð- ingar forstjóra Baugs um að fyrirtæki hans hafi orðið af 30 milljörðum króna vegna hús- leitar sem lögreglan gerði í húsakynnum fyrirtækisins á sama tíma og samningavið- ræður um kaup þess á versl- unarkeðjunni Arcadia voru á við- kvæmu stigi. „Ég er mjög rólegur yfir vinnulagi embættis ríkislög- reglustjóra yfirleitt. Við höfum alltaf breytt samkvæmt þeim lögum sem í gildi eru í landinu á hverjum tíma,“ segir ríkislögreglustjór- inn. Haraldur Jo- hannessen segir að umræddar lög- regluaðgerðir gegn Baugi hafi verið nauðsynlegar á sín- um tíma. Lögreglan hafi óskað eftir heimild hjá dómstólum til húsleitar og hún hafi verið veitt: „Allar niður- stöður dómstóla, bæði héraðs- dóms og Hæstaréttar, byggja á því að fullt tilefni hafi verið fyr- ir aðgerðum embættisins. Ef dómstólar hafa komist að röng- um niðurstöðum í máli þessu þá mun það teljast til tíðinda. Ég á ekki von á slíkum málalokum“, segir Haraldur. Forsvarsmenn Baugs íhuga nú rétt sinn til skaðabóta frá yfir- völdum vegna lögregluaðgerð- anna, sem þeir telja hafa skaðað hluthafa fyrirtækisins um 30 milljarða króna eins og fyrr sagði. Það nemur 15 ára hagnaði af Kárahnjúkavirkjun eins og hann er reiknaður í dag. ■ Þjóðverjar styðja ekki ályktun öryggisráðs SÞ um innrás í Írak; Vafi um samþykki öryggisráðsins ÍRAKSDEILAN Vafi leikur á því hvort öryggisráð Sameinuðu þjóðanna muni samþykkja ályktun sem gefur heimild til innrásar í Írak. Frakkar, Þjóðverjar og Rússar lýsa efasemd- um um nauðsyn þess að fara í stríð. Fréttastofan Interfax greindi frá því að rússnesk hermálayfirvöld hefðu fengið upplýsingar þess efnis að innrás yrði gerð seint í næsta mánuði. Þá verður afstaðin hajj- trúarhátíð múslíma, sem hefst 9. febrúar. Ekki búast við því að Þýskaland samþykki ályktun sem gefur stríði lögmæti,“ sagði Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, þegar hann ávarpaði fund jafnaðarmanna í Saxlandi. Schröder hefur reynt að feta einstigi milli samstarfs við Bandaríkin og mikillar andstöðu við stríð í Þýskalandi. Ummæli hans nú eru þau skýrustu um að Þýskaland muni ekki styðja stríð og hugsan- lega greiða atkvæði gegn því. Frakkar og Þjóðverjar standa þétt saman að því að vinna að lausn Íraksdeilunnar án þess að til stríðs komi. Frakkar hafa neitunarvald sem eitt af fimm fastaríkjum í ráð- inu og hafa látið að því liggja að þeir kunni að beita því. Ef af því verður yrðu Bretar og Bandaríkjamenn annað hvort að finna aðra leið en innrás til að ná markmiðum sínum í Írak eða gera innrás í óþökk Sam- einuðu þjóðanna. „Fyrir okkur er stríð alltaf sönnun mistaka og versta lausnin, svo allt verður gert til að forðast það,“ sagði Jacques Chirac Frakklandsforseti. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði þingmönnum í gær að ef ljóst væri að Írakar væru að brjóta gegn samþykktum Samein- uðu þjóðanna myndu Bretar styðja ákvörðun um innrás þó það væri andstaða við slíkt innan öryggis- ráðsins. ■ VERKFALLSVAKTIN STAÐIN Meðan slökkviliðsmenn eru í verkfalli hlaupa 19.000 hermenn í skarðið í neyðar- tilfellum. Þingmaður móðgar slökkviliðsmenn: Samansafn fávita BRETLAND „Þið eruð samansafn fá- vita og eruð landi ykkar til skammar,“ sagði Bernard Jenkin, þingmaður Íhaldsflokksins sem fer með varnarmál í skuggaráðu- neyti flokksins, í útvarpsviðtali um slökkviliðsmenn sem fóru í verkfall til að knýja á um launa- hækkanir. Orð hans hafa vakið mikla reiði meðal slökkviliðsmanna, sem hafa krafist afsökunar hans eða afsagnar ella. Jenkin dró örlítið í land í tilkynningu sem hann sendi frá sér í kjölfarið og sagði slökkviliðsmenn almennt frábært fólk en að forystumenn þeirra væru fávitar þar sem verkfallið hefði hindrandi áhrif á uppbygg- ingu fyrir átök við Persaflóa. ■ AP /R IC H AR D L EW IS HARALDUR JOHANNESSEN Ekki við okkur að sakast. SKRIÐDREKI Í LJÓSUM LOGUM Eyðilagður íraskur skriðdreki sést hér brenna nærri olíulindum í Kúvæt í mars 1991. Rússneska fréttastofan Interfax segir innrás eiga að hefjast síðla í febrúar. AP /D AV ID L O N G ST R EA TH HERMENN BÓLUSETTIR Heil- brigðisþjónusta danska hersins hefur hafist handa við að bólu- setja hermenn gegn miltisbrandi. Þetta er liður í átaki sem herinn hefur hrundið af stað til þess að undirbúa menn sína fyrir hugsan- lega þátttöku í stríði gegn Írak.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.