Fréttablaðið - 23.01.2003, Qupperneq 10
MEXÍKÓ, AP Snarpur jarðskjálfti
skók Mexíkó með þeim afleiðing-
um að 21 maður fórst og raf-
magnslaust varð víða í vestur-
hluta landsins. Skelfing greip um
sig meðal almennings og í
nokkrum stórborgum streymdi
fólk felmtri slegið út á götur.
Skjálftinn sem reið yfir síðast-
liðið þriðjudagskvöld mældist 7.6
á Richter og átti upptök sín í
Colima-héraði, um það bil 500
kílómetra vestur af Mexíkóborg.
Umtalsverðir skemmdir urðu á
byggingum en það hefur meðal
annars verið rakið til þess hversu
grunnt í jörðu upptökin lágu.
Flest dauðsföllin urðu þegar
hrundi úr skrifstofubyggingum
og íbúðarhúsum í grennd við mið-
bæ Colima-borgar en þar þurfti
fólk einnig að dúsa tímunum
saman í lyftum sem stöðvuðust
þegar skjálftinn reið yfir.
Erfitt hefur verið að ná síma-
sambandi við Colima-borg vegna
álags. Þó er ljóst að fjölmargir
misstu heimili sín þar, sem og í
nærliggjandi borgum, og hafa
læknar veitt fólki áfallahjálp.
Íbúar Mexíkóborgar fundu
einnig vel fyrir skjálftanum og
þar streymdi fólk óttaslegið út á
götur. ■
Hvað eru lágmarkstekjur?Lágmarkstekjur eru þeir
fjármunir sem fólk þarf að hafa
til að geta lifað mannsæmandi
lífi. Hafa til nauðþurfta og nokk-
uð umfram það. Slíkar kröfur
verður að gera í nútíma velferð-
arþjóðfélagi eða þjóðfélagi sem
vill kalla sig velferðarþjóðfélag.
Einhverja viðmiðun þarf því að
setja um það hvaða fjármuni
fólk þurfi að hafa handa á milli
mánaðarlega.
Ég tel ekki óeðlilegt að miða
við að einstaklingur þurfi að
hafa til ráðstöfunar um 150.000
kr. á mánuði. Slíkar tekjur ættu
þá að vera undanþegnar skatti.
Það mundi þýða að tekjur
150.000 kr. á mánuði væru skatt-
frjálsar.
Í mínum huga er það sjálf-
sagt réttlætismál. Með þeim
hætti ynnist margt. Skattkerfið
yrði einfaldara, undanskot und-
an tekjuskatti mundi minnka og
skólafólki og öryrkjum og
öldruðum yrði auðveldað að
taka að sér hlutastörf sjálfum
sér til hagsbóta og þjóðfélaginu
til gagns.
Stjórnmálamaðurinn sem
heyrir talað um eitthvað þessu
líkt spyr: „Hvað kostar þetta
ríkissjóð?“ Vegna þess að
stjórnmálamanninum er tamast
að hugsa fyrst um hagsmuni rík-
issjóðs og síðan um hagsmuni
einstaklinganna.
Einu sinni var stjórnmála-
flokkur sem hét Sjálfstæðis-
flokkurinn og barðist gegn ríkis-
bákninu og vildi auk heldur
draga úr skattbyrði einstakling-
anna og auka atvinnufrelsi
þeirra.
Þessi stjórnmálaflokkur er
ennþá til en í stað þess að hann
berjist nú gegn útþenslu ríkis-
báknsins þá er hann ötull við að
þenja það út. Á sama tíma og
verið er að selja ríkisfyrirtæki
sem gefa arð er söluandvirðið
notað að hluta til að auka báknið.
En það dugar ekki til, skattbyrði
almennings er þyngd og svo er
komið eftir allt of langa valda-
setu Davíðs Oddssonar og Sjálf-
stæðisflokks hans að báknið hef-
ur aldrei verið stærra, skatt-
byrði einstaklinga hefur aldrei
verið þyngri og takmarkanir á
atvinnufrelsi einstaklinganna
hafa aldrei verið víðtækari en
nú er. Er hægt að halda því fram
að Sjálfstæðisflokkurinn sé í
gíslingu sósíalista?
Í sjálfu sér er ekki við öðru
að búast þegar saman standa að
ríkisstjórn Davíð Oddsson og
Halldór Ásgrímsson, sem telja
eðlilegt að leysa öll mál, m.a.
þau sem eru skattborgurunum
óviðkomandi, á kostnað þeirra.
Halldór Ásgrímsson hefur þanið
utanríkisþjónustuna út yfir öll
eðlileg mörk. Á sama tíma og
eðlilegt hefði verið að fækka
sendiráðum landsins vegna
breytinga sem orðið hafa í heim-
inum hefur þeim verið fjölgað
um helming.
Davíð Oddsson heimilar að
báknið bólgni út og er sjálfur öt-
ull við að hlaða nýjum pinklum á
skattgreiðendur, t.d. með því að
koma vinum sínum fyrir eða
leysa framboðsraunir Sjálf-
stæðisflokksins á kostnað ríkis-
ins og hlúa að velferðarkerfi
sérhagsmunahópanna sem
styðja Davíð Oddsson.
Ég taldi lengi að Sjálfstæðis-
flokkurinn væri eina viðspyrn-
an gegn útþenslu ríkisbáknsins,
flokkur sem mundi helst gæta
hagsmuna skattborgaranna, en
nú er ljóst að svo er ekki. Því
miður sé ég ekki að annar
stjórnmálaflokkur hafi það á
stefnuskrá sinni að vinna að
þessu mikilvægasta hagsmuna-
máli alls almennings, ekki síst
ungs fólks, lágtekjufólks, ör-
yrkja og aldraðra svo nokkrir
hópar séu nefndir.
Þegar stjórnmálamaðurinn
spyr hvað það kosti ríkið að
tekjur fólks að 150.000 kr. séu
skattfrjálsar, þá er spurt með
röngum hætti. Rétta viðmiðunin
er: hvað þarf einstaklingur að
hafa að lágmarki í ráðstöfunar-
tekjur til að geta lifað þokka-
legu lífi? Þegar sú viðmiðun er
fengin þá er rétt að þær tekjur
séu friðhelgar þannig að ríkis-
valdið gangi ekki á rétt öryrkja,
lágtekjufólks og aldraðra, svo
og ungs fólks sem er að reyna að
komast til bjargálna.
Ríkisbáknið má aldrei vaxa
svo mikið að hagsmunir einstak-
linganna líði fyrir hagsmuni rík-
isins. Það eru einföld eðlileg
mannréttindi að lágmarkstekjur
séu skattfrjálsar. Samfélagið á
að vera fyrir fólkið en má ekki
þenjast út með þeim hætti að
það vinni gegn hagsmunum
þess. ■
10 23. janúar 2003 FIMMTUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Imba sól á
Granda
Kjósandi skrifar:
Það var mikið þref og gól
Þórólfur verður að standa
burt tók Imba borgarstól
og brá sér vestur á Granda
Býst hún nú við betri stól
býður sig fram á Granda
eflaust getur Imba sól
Össur leyst úr vanda
Imba ætlar inn á þing
ýmsan að leysa vanda
snýst hún því sem stendur í hring
og strunsar vestur á Granda.
Ígrófum dráttum má skipta öllufólki í þrjá hópa: Þá sem berj-
ast, þá sem barma sér og þá sem
bugast. Það er ekki svo að sama
fólkið sé alla ævi í sama hópnum.
Einn getur barist án árangurs
svo lengi að hann fari að barma
sér og bugist svo á endanum.
Þess eru einnig dæmi að bugaðir
menn taki á sig rögg og fari að
berjast. Það er fátíðara. Algeng-
ast er að fólk renni á milli flokka
aðra leiðina; hætti að berjast og
fari að barma sér og bugist á end-
anum.
Í gömlum bókum – og ekki síð-
ur leikritum – eru sagðar sögur
af mönnum sem börðust svo lengi
við óviðráðanleg hlutverk að þeir
buguðust skyndilega. Í leikritum
gerist það með langri einræðu
sem kastar ljósi hins bugaða á
ævi baráttumannsins. Svona
bækur og leikrit eru enn skrifuð
þótt þau eigi síður við í dag. Fyr-
ir fáeinum áratugum þótti það
ekki góð lífsstefna að barma sér.
Menn báru sárindi sín í hljóði.
Seinni hluta síðustu aldar var
hins vegar farið að hvetja fólk til
barlóms. Það var talið bera vott
um heilsteyptan karakter að
barma sér undan uppeldi sínu og
foreldrum. Starfsstéttir börmuðu
sér undan kjörum sínum og
skorti á virðingu samborgaranna.
Atvinnurekendur börmuðu sér
undan utanaðkomandi áhrifum á
reksturinn – eins og það stæði
þeim til boða að reka fyrirtæki í
gerilsneyddu og lofttæmdu um-
hverfi. Af þessum sökum er orð-
ið fátítt að baráttumenn bugist
skyndilega. Nær alltaf barma
þeir sér í nokkur ár áður en þeir
bugast.
Lífsbarátta mannsins er
alltaf jafn hörð. Hann er þeirrar
náttúru að vilja meira. Og það er
jafn erfitt fyrir þann sem
eitthvað á að öðlast meira og
þann sem á minna. Báðir vilja
bæta stöðuna sína hlutfallslega
jafn mikið. Enginn sættir sig við
að lifa í draumaheimi ömmu
sinnar. Okkar draumaheimur er
kjör og lífsgæði barnabarna
okkar. Þegar þau komast til vits
og ára vilja þau síðan eitthvað
annað og meira. Þar sem
markmiðið skreppur svona frá
okkur eru sjaldnast beinar
forsendur til að berjast, barma
sér eða bugast. Við höfum það
nokkuð í hendi okkar hvað við
veljum og hvað hentar okkur.
Stundum veljum við það sem
hentar karakter okkar en stund-
um það sem helst hangir í loft-
inu. Og það er líklega þess
vegna sem fleiri barma sér nú
en fyrir nokkrum áratugum. Það
er einhvern veginn stemningin í
samfélaginu. ■
Að berjast, barma sér eða bugast
skrifar út frá svokallaðri aulasál-
fræði um baráttu, barlóm og
uppgjöf.
Mín skoðun
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
hrl. skrifar um
skattkerfi Íslend-
inga.
JÓN
MAGNÚSSON
Um daginn
og veginn
SKELFINGU LOSTNIR
Íbúar Mexíkóborgar streymdu út á götur þegar jarðskjálftinn reið yfir en lögreglan ók um
borgina til þess að róa mannfjöldann og ganga úr skugga um að allir væru óskaddaðir.
Snarpur jarðskjálfti í Mexíkó:
Óttaslegið fólk
streymdi út á götur
FYRRUM ÞINGMENN MYRTIR
Tveir fyrrum þingmenn frá
Makedóníu fundust skotnir til
bana í húsi í sunnanverðri
Búlgaríu. Nokkrir dagar virðast
liðnir síðan þeir voru myrtir en
ekkert hefur verið gefið upp um
mögulega ástæðu. Mennirnir áttu
saman marmaraverksmiðju í
Búlgaríu.
FLÓTTAMAÐUR HANDSAMAÐUR
Franska lögreglan handsamaði
dæmdan brennuvarg eftir að hann
flúði úr fangelsi. Maðurinn var
dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að
hafa kveikt í húsnæði vinnuveit-
anda síns. Hann ætlaði að slökkva
eldinn og uppskera þakklæti vinnu-
veitandans. Þess í stað brann húsið
til grunna og vinnuveitandinn lést.
EVRÓPA
Ríkið fyrst, svo fólkið
Gleymum
ekki smá-
fuglum
Margrét skrifar:
Þegar veturinn hefur veriðjafn mildur og raun ber vitni
hafa smáfuglarnir vinir okkar
nóg að bíta og brenna. Um leið
og vetrarhörkur byrja kreppir
að hjá þeim.
Þá er mikilvægt að leggja
þeim eitthvað til. Fuglakorn
fæst í flestum búðum, en einnig
er gott að gefa litlu skinnunum
feitmeti. Ég set oft tólgarmola
með þegar ég gef þeim korn.
Fitan er nauðsynleg til að halda
á þeim hita.
Ég er ansi hrædd um að þeg-
ar veturinn er svona mildur þá
gleymi menn þessum vinum
okkar. Ég vil hvetja fólk til að
vera vakandi og gefa fuglunum.
Það er mikil fjárfesting í gleði
hjartans.
Verðlaunin láta ekki á sér
standa í fögrum fuglasöng.
Thymematernity
Verslun fyrir barnshafandi konur
Hlíðasmára 17, s. 575-4500
Sendum í póstkröfu um allt land.
Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 11-18
Laugardaga frá kl. 11-16
Útsalan í fullum gangi
Mikið úrval – Enn meiri verðlækkun