Fréttablaðið - 23.01.2003, Side 11
BRUSSEL, AP Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins vill að geim-
ferðarannsóknir aðildarríkjanna
falli hér eftir undir lögsögu sam-
bandsins. Ólíklegt þykir þó að til-
laga Philippe Busquin, sem fer með
vísindi og rannsóknir í fram-
kvæmdastjórninni, muni eiga
miklu fylgi að fagna meðal ríkis-
stjórna aðildarríkjanna.
Busquin sagði rannsóknir í
geimferðum skila sér í tækniþróun
sem væri hægt að nýta á margvís-
legum sviðum og að þetta væri eitt
tækifæranna til að gera Evrópu-
sambandið að samkeppnishæfasta
markaðssvæði heims við lok ára-
tugarins.
Ríkisstjórnir Evrópuríkja hafa
deilt um hvernig skipta skuli verk-
efnum Geimrannsóknastofnunar
Evrópu á milli aðildarríkja. Þar er
mikilla hagsmuna að gæta enda
mikið fé sem fer í rannsóknirnar og
vilja allir fá sína sneið af kökunni.
Tillögur til að ná sáttum milli
ríkisstjórna sem standa að Geim-
rannsóknastofnuninni gera ráð fyr-
ir að Þjóðverjar, Frakkar, Bretar og
Ítalir fái jafn stóran hluta verkefn-
anna. Þjóðverjar eru þó ósáttir við
að deila forystu með Ítölum og
Spánverjar við að fá of lítið í sinn
hlut. ■
11FIMMTUDAGUR 23. janúar 2003
Skrá›u flig núna!
Hvernig vilt flú vera í símaskránni?
Vertu í gó›u sambandi og skrá›u
litprentun í rau›u, grænu e›a bláu
1.550 kr.Lína í lit
feitletrun 540 kr.
netfangi› flitt 540 kr.
Vertu áberandi og fá›u
Sker›u flig úr og fá›u
Skráning í
Símaskrá 2003
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
¥
N
M
0
8
0
5
4
/
s
ia
.i
s
Hringdu í Símaskrá, 550 7050
Sendu tölvupóst á simaskra@siminn.is
Far›u inn á fiínar sí›ur á siminn.is
Allir geta skrá› sig
– líka vi›skiptavinir annarra fjarskiptafyrirtækja.
GENF, AP Sendiherra Líbíu var kos-
inn forseti Mannréttindanefndar
Sameinuðu þjóðanna þrátt fyrir
efasemdir Bandaríkjanna og
fleiri vestrænna ríkja. Líbía hefur
legið undir ámæli fyrir að brjóta á
rétti almennra borgara í landinu
og veita hryðjuverkasamtökum
stuðning.
Afríkuríkin sem aðild eiga að
mannréttindanefndinni tilnefndu
líbíska sendiherrann en Bandarík-
in kröfðust þess að haldin yrði
leynileg atkvæðagreiðsla um mál-
ið. En þó Evrópuþjóðir og Banda-
ríkin hefðu lýst yfir óánægju með
tilnefningu Líbíumannsins sátu
þær flestar hjá fremur en að
greiða atkvæði gegn skipun hans í
embættið. ■
Mannréttindanefnd SÞ:
Líbískur forseti
veldur deilum
LÖGREGLAN Haraldur Árnason,
rannsóknarlögreglumaður og
rithandarsérfræðingur á eftir-
launum, telur að embætti ríkis-
lögreglustjóra sniðgangi sig og
vilji ekki nýta sér
s é r f r æ ð i þ e k k -
ingu hans í að
rýna í fölsuð skjöl
og falsaðar undir-
skriftir. Haraldur
starfar nú sjálf-
stætt hjá öryggis-
þ j ó n u s t u f y r i r -
tækinu Meton og
er aldrei kallaður
til þegar greina þarf undir-
skriftir í sakamálum. Ríkislög-
reglustjóri kýs að senda slíkar
undirskriftir alla leið til Sví-
þjóðar:
„Ég starfaði við þetta í 15 ár
og tel mig hafa sérþekkingu sem
liggur ekki á lausu hér innan-
lands. Samt er ekki leitað til mín
og undirskriftir sem orka tví-
mælis sendar til Svíþjóðar með
tilheyrandi kostnaði,“ segir
Haraldur, sem skrifað hefur rík-
islögreglustjóranum bréf vegna
þessa svo og dómsmálaráðu-
neytinu. „Ég hef engin svör
fengið. Ég tel að þarna sé verið
að fara illa með fé almennings,“
segir hann.
Haraldur treystir sér ekki til
að slá á kostnað við að senda rit-
handarsýnishorn til rannsóknar
í Svíþjóð. Hann er hins vegar
klár á að það sé margfalt dýrara
en hjá sér. Í dómsmálum séu rit-
handarsérfræðingar alltaf kall-
aðir til og gert að mæta í dóms-
sal. Ef um Svía sé að ræða þá
verði að borga undir þá flugfar
hingað til lands og halda þeim
uppi á hóteli með fullu fæði og
dagpeningum: „Það sér hver
maður að þetta er ekki skynsam-
legt,“ segir Haraldur.
Í ársskýrslu ríkislögreglu-
stjórans frá því í fyrra er gerð
grein fyrir umræddum viðskipt-
um við Svía varðandi rithand-
arrýni. Þar segir meðal annars:
„Sú breyting varð á miðju síð-
asta ári, að starfsmaður sem
vann við skjalarannsóknir, lét af
störfum hjá embættinu. Að vel
athugðu máli var af ýmsum
ástæðum ákveðið að fara ekki út
í að þjálfa sérstakan starfsmann
í undirskriftarrannsókn skjala.
Þar kom m.a. til að slík þjálfun
er mjög kostnaðarsöm og beiðn-
um um skjalarannsóknir til rík-
islögreglustjórans hefur fækk-
að mjög á undanförnum árum.
Til að annast undirskriftarann-
sóknir fyrir lögregluna var
samið við Statens kriminal-
tekniska Laboratorium í Linköp-
ing í Svíþjóð... Það er mikill
fengur í því að geta leitað þang-
að eftir aðstoð og úrlausn þegar
rannsaka þarf skjöl sem þykja
fölsuð.“
eir@frettabladid.is
HARALDUR ÁRNASON
Með 15 ára reynslu í að rýna í falsaðar
undirskriftir en fær ekkert að gera. Ríkis-
lögreglustjórinn vill frekar skipta við Svía.
„Ég hef engin
svör fengið. Ég
tel að þarna
sé verið að
fara illa með
fé almenn-
ings,“
Framkvæmdastjórn ESB
Vill taka að sér
geimrannsóknir
ENNÞÁ LANGSTÆRSTIR
Bandarísk stjórnvöld verja sexfalt meira fé til geimrannsókna heldur en ríkin sem standa
að Geimrannsóknastofnun Evrópu.
Rithandarsérfræð-
ingur sniðgenginn
Rannsóknarlögreglumaður á eftirlaunum sár.
Ríkislögreglustjórinn vill heldur skipta við
tæknideild sænsku lögreglunnar í Linköping.
RINGULREIÐ Í RAFMAGNSLEYSI
Mikil ringulreið greip um sig í
Zagreb, höfuðborg Króatíu, þegar
rafmagnið fór af í nokkrar
klukkustundir. Umferðarljós
virkuðu ekki, rafmagnslestir
stoppuðu og slökkviliðsmenn
þurftu að bjarga 50 manns sem
voru fastir í lyftum.
LEST OG AUKIN VIÐSKIPTI Stjórn-
völd í Eistlandi, Lettlandi og Lit-
háen vilja byggja hraðskreiða
lest til að tengja löndin betur við
Mið- og Austur-Evrópu. Þannig
vilja þau auka samskipti og við-
skipti. Löndin verða að öllum lík-
um aðilar að ESB á næsta ári.
EVRÓPA
www.casema.is
Harðviðarhús, einbýlishús, sumarhús, klæðn-
ingarefni, pallaefni og bílskúrar.
Sími: 564-5200 og 865-7990
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T