Fréttablaðið - 23.01.2003, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 23.01.2003, Blaðsíða 22
18 23. janúar 2003 FIMMTUDAGUR JAMES BOND b.i. 12 ára kl. 5 og 8 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 b.i. 14 ára Kl. 4, 6, 8 og 10 b.i. 12 ára Sýnd í lúxus kl. 5.30 og 9.30 kl. 5.50HAFIÐ kl. 8 og 10.15GRILL POINT Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15 Sýnd kl. 6, 8 og 10 GULLPLÁNETAN m/ísl.tali kl. 3.45 VIT498 HARRY POTTER m/ísl.tali kl. 5 VIT 493 HARRY POTTER kl. 6 VIT468 GHOSTSHIP kl. 10 VIT487 THE HOT CHICK kl. 4, 8 og 10 VIT ANALYZE THAT kl. 4, 6, 8 og 10 VIT kl. 6.10 HLEMMUR Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15 b.i.14.ára Sýnd í lúxus kl. 5.40, 8 og 10.15 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 FRÉTTIR AF FÓLKI KVIKMYNDIR Einhver kann að spyrja sig hvað MTV og Paramount gangi til með að standa straum af fram- leiðslu bíómyndar sem gengur út á að sýna fíflaleg uppátæki hóps furðufugla sem leggja sig alla fram um að ganga fram af almenningi og blásaklausum vegfarendum. Svarið þeirra er einfaldlega: af hverju ekki? Þeir benda svo á að það hafi oft verið framleiddar vitlausari bíó- myndir fyrir meiri peninga og með háleitari markmið sem aldrei nást. Jackass er nefnilega ekki að reyna að ráða í neinar lífsgátur eða brjóta mál til mergjar, heldur einfaldlega að skemmta fólki og í mesta lagi brjóta nokkur bein í leiðinni. Aðstandendur Jackass, bæði fyrir framan og aftan myndavél- arnar, eru annálaðir vitleysingar og eins og í sjónvarpsþáttunum, sem ættu að vera áhorfendum SkjásEins vel kunnugir, þvælast þeir um og láta sér detta í hug hin ólíklegustu glapræði sem er fyrst og fremst ætlað að ganga fram af fólki. Leikstjóri myndarinnar, Jeff Tremaine, segir myndina ólíka þátt- unum að því leyti að hér reyni Jack- ass-gengið að gera eitthvað meira og ganga lengra en hollvinir þess eiga að venjast, og fannst þó mörg- um þegar full langt gengið. „Það má segja að þetta sé þroskasaga níu ungra manna sem þvælast um heiminn í leit að ást og vináttu.“ Markmið leikstjórans eru því greinilega öllu háleitari en efni og innihald myndarinnar gefur til kynna en líklega verður hver að dæma fyrir sig hvort Johnny Knox- ville geti talist Werter ungi 21. ald- arinnar. Þeir sem kunna að meta uppá- tæki hans og félaga hans ættu þó að fá heilmikið fyrir 800 kallinn sinn þar sem hér er meira um nekt, blóð og annan líkamlegan óhugnað. Það hefur verið haft á orði að Jackass sé hrein og klár vísbending um að heimsendir sé í nánd og siðmenn- ingin sé komin að fótum fram. Við slíkar aðstæður er líklega fátt ann- að hægt að gera en hanga í trjá- greinum á nærbrókinni einni fata og hræða fólk með því að sleppa krókódíl lausum inn í stofu. Hvað sem öllum vangaveltum um vitrænt innihald og þess hátt- ar líður er það nokkuð ljóst að fíflagangurinn borgar sig og fell- ur fjöldanum vel í geð en myndin kostaði 5 milljónir dollara í fram- leiðslu og hefur halað inn 70 millj- ónir í Bandaríkjunum. thorarinn@frettabladid.is Níu apakettir í innkaupakerru Sambíóin frumsýna á morgun Jackass: The Movie. Myndin byggir á sam- nefndum sjónvarpsþáttum á MTV þar sem yfirklikkhausinn Johnny Knoxville og félagar vinna sjálfum sér margvíslegan skaða, áhorfendum til mikillar gleði. Norman Cook, sem er beturþekktur undir nafninu Fatboy Slim, hefur beðið breska frétta- menn um að láta sig og eiginkonu sína, Zoe Ball, í friði. Hjónin, sem hafa átt í erfiðleik- um með samband sitt, ákváðu nýlega að slíta samvistum um óákveðinn tíma. Breskir blaðaljósmyndarar hafa gert hjón- unum lífið leitt undanfarna daga með því að umkringja hús þeirra. Rapparinn Bobby Brown, eigin-maður söngkonunnar Whitney Houston, hefur verið lagður inn á sjúkrahús í Atl- anta í Bandaríkj- unum. Ekki er vit- að hvað amar að kappanum en veikindin munu ekki vera alvarleg. Brown, sem er 33 ára, var í fyrradag dæmdur í átta daga fangelsi fyrir að aka undir áhrifum áfengis árið 1996. Tim Wheeler, söngvari hljóm-sveitarinnar Ash, ætlar að stíga á svið með hljómsveitinni The Flaming Lips á tónleikum hennar í Lundúnum í næstu viku. Strákarnir í The Flaming Lips virðast vera afar vinsælir á meðal kollega sinna því stutt er síðan Badly Drawn Boy lék með þeim á tónleikum, auk þess sem Gruff Rhys úr hljómsveitinni Super Furry Animals spilaði þrjú lög með þeim á tónleikum tveimur dögum síðar. Damon Albarn, söngvari hljóm-sveitarinnar Blur, tók þátt í mót- mælum fyrir utan þinghús Bret- lands í gær. Mótmælti hann þátttöku Bretlands í hugsanlegu stríði gegn Írak. „Enginn efast um illvirki Saddam Hussein,“ sagði Albarn. „En Bretlandi stafar engin ógn af þess- um einræðisherra frá Írak og hér er enginn stuðningur fyrir stríði. Ég var alinn upp við þá hugsun að stríð sé aldrei rétta svarið.“ LA VILLE EST TRANQUILLE kl. 5.40 SEX IS COMEDY kl. 8 LA RÉPETITION kl. 10 FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ JACKASS Vitleysingarnir úr sam- nefndum sjónvarpsþátt- um leggja land undir fót, skoða heiminn og reyna að þroskast eitt- hvað á milli þess sem þeir limlesta sig á ólík- legasta hátt. DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM Internet Movie Database - 6.1 / 10 Rottentomatoes.com - 49% = Rotten BBC - 4 stjörnur af 5 Los Angeles Times - 4 stjörnur AÐRAR FRUMSÝNINGAR HELGARINNAR Half Past Dead Once Upon a Time in the Midlands The Banger Sisters KVIKMYNDIR Leikstjórinn Martin Scorsese hefur verið tilnefndur til bandarísku leikstjóraverðlaun- anna af kollegum sínum. Nýjasta kvikmynd hans, „Gangs of New York,“ hefur hlotið góða dóma eft- ir að hún var frumsýnd. Scorsese hefur þegar hlotið Golden Globe- verðlaunin fyrir myndina. Aðrir tilnefndir eru Roman Pol- anski fyrir „The Pianist“, Stephen Daldry fyrir „The Hours“, Peter Jackson fyrir „Lord of the Rings“ og Rob Marshall fyrir „Chicago“. Verðlaunin verða afhent þann 1. mars. Í 55 ára sögu leikstjóraverð- launanna hefur sigurvegarinn í öll skipti nema fimm hlotið Ósk- arsverðlaunin. ■ SCORSESE Martin Scorsese fékk Golden Globe-verð- launin fyrir myndina „Gangs of New York“. Bandarísku leikstjóraverðlaunin: Scorsese á meðal tilnefndra BURT REYNOLDS OG CLINT EASTWOOD Eins og skopteiknarinn Al Hirschfeld sá þá fyrir sér árið 1984 en kempurnar léku þá saman í grínspennumyndinni City Heat. Hirschfeld lést fyrr í vikunni á hundraðasta aldursári. Irreversible: Umdeild mynd KVIKMYNDIR Hin umdeilda franska kvikmynd Irreversible verður frum- sýnd í Reykjavík í lok janúar. Mynd- in hefur víða vakið hörð viðbrögð, ekki síst fyrir langa og hrottafengna nauðgunarsenu. Breska kvikmynda- tímaritið Empire fer lofsamlegum orðum um myndina í nýlegum dómi og gefur henni fimm stjörnur. Blaðið segir myndina vissulega ógeðfellda en leggur áherslu á að of- beldið þjóni raunverulegum tilgangi fyrir frásögnina og í því sé ekki ver- ið að upphefja ofbeldi og eyðilegg- ingu manneskjunnar, heldur þvert á móti verið að syrgja það fallega sem ekki verður bætt. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.