Fréttablaðið - 23.01.2003, Page 26
TÓNLIST Bubbi Morthens, Sigur
Rós og Leaves fá flestar tilnefn-
ingar til Íslensku tónlistarverð-
launanna sem afhent verða í
Borgarleikhúsinu í kvöld. Í ár
verða veitt verðlaun í fjórum
flokkum; fyrir sígilda og nú-
tímatónlist, jazz, popp og ýmiss
konar tónlist.
Bubbi Morthens er tilnefndur
til fjögurra verðlauna; plata árs-
ins, lag ársins, söngvari ársins og
sem flytjandi ársins.
Plata Sigur Rósar, ( ), er til-
nefnd sem plata ársins, lag númer
fjögur er tilnefnt sem lag ársins,
og hljómsveitin er tilnefnd sem
besti flytjandinn auk þess sem Jón
Þór Birgisson er tilnefndur sem
besti söngvarinn.
Arnar Guðjónsson úr Leaves
er einnig tilnefndur sem besti
söngvarinn. Breathe, breiðskífa
Leaves, er tilnefnd sem plata árs-
ins, lagið Catch er tilnefnt sem
lag ársins og sveitin sjálf er til-
nefnd sem besti flytjandinn.
Hátíðin í kvöld hefst klukkan
20.00. Þar koma fram Hamrahlíð-
arkórinn, Barokkhópurinn,
Tómas R. Einarsson, Ragnar
Bjarnason, Selma og Hansa,
Bubbi, Írafár, Leaves og Sálin
hans Jóns míns. Bein útsending
verður í Sjónvarpinu og á Rás 2.
Auk Íslensku tónlistarverðlaun-
anna velja Rás 2 og Mastercard
poppstjörnu ársins. ■
23. janúar 2003 FIMMTUDAGUR
Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is
TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 274 KR / STK.
Tilboðið gildir til 31. janúar 2002
BIC Atlantis penni
Verð 91 kr/stkk
NOVUS MASTER
gatar 25 blöð.
Verð 382 kr
NOVUS heftari
heftar 30 blöð.
Verð 674 kr Borðmotturnar frá Múlalundi
Nýsköpunarverðlaun forsetans:
Lirfuteljari skaraði fram úr
VERÐLAUN Oddgeiri Harðarsyni,
nemanda við Rafmagnsdeild
Tækniskóla Íslands, voru í gær
veitt Nýsköpunarverðlaun forseta
Íslands fyrir búnað til að telja og
greina mýflugulirfur en hingað til
hefur einungis verið hægt að meta
fjölda þeirra en hvorki tegund né
lífmassa. Búnaðurinn eykur þannig
afköst og dregur úr kostnaði, auk
þess sem hann stórbætir upplýs-
ingagildi gagna sem fást með hon-
um.
Aðdragandinn að verkefninu var
að Veiðimálastofnun leitaði til Vaka
DNG um samstarf við þróun á bún-
aði til talningar og greiningar á lirf-
unum, sem eru oftar en ekki undir-
staða lífkerfa sem eru rannsökuð.
Við lausn verkefnisins var hann-
aður búnaður, Nematocera, sem
byggir á tölvusjón og myndgrein-
ingartæki sem Vaki DNG hefur
mikla reynslu af en Sverrir Hákon-
arson, þróunarstjóri Vaka-DNG, var
leiðbeinandi Oddgeirs í verkefninu.
Tæknin sem búnaðurinn byggir á er
meðal annars notuð til að telja fiska
í fiskeldi og gesti í verslunarmið-
stöðinni Smáralind.
Rósa E.R. Helgadóttir, nemandi
við textíldeild Listaháskóla Íslands,
og Jenna Stefánsdóttir, læknadeild
Unviersitat degli Studi di Trieste á
Ítalíu, voru einnig tilnefndar til
verðlaunanna. Rósa fyrir efnis- og
töskuhönnun og Jenna fyrir rann-
sókn á áhrifum hjartaaðgerða á
ungbörnum á virkni T eitilfruma. ■
Íslensku tónlistarverðlaunin:
Bubbi með fjórar
tilnefningar
BUBBI MORTHENS
Fær fjórar tilnefningar á Íslensku tónlistarverðlaunum. Platan hans, Sól að morgni, hefur
verið geysivinsæl og selst eins og heitar lummur.
SÍGILD OG NÚTÍMATÓNLIST
Flytjandi ársins:
Caput
Hamrahlíðarkórinn og Þorgerður Ingólfs-
dóttir
Kammersveit Reykjavíkur
Kolbeinn Bjarnason
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hljómplata ársins
Baldr eftir Jón Leifs
Bon appétit - frönsk barokktónlist /
Barokkhópurinn (Fermata)
Guðný Guðmundsdóttir - einleiksverk
fyrir fiðlu (Polarfonia)
Kristinn Hallsson - safndiskur (Söngvinir
Kristins)
Tíminn og vatnið eftir Atla Heimi Sveins-
son (CPO)
Vorkvæði um Ísland / Hamrahlíðarkórinn
(Smekkleysa)
Tónverk ársins
Áskell Másson - Hyr
Haukur Tómasson - Langur skuggi
John Speight - Jólaóratorían Barn oss
fætt
Jón Nordal - Gríma
Þórður Magnússon -Strengjakvartett nr. 2
JAZZTÓNLIST
Tónverk ársins
Kúbanska eftir Tómas R. Einarsson
Meski eftir Davíð Þór Jónsson
Yggur eftir Jóel Pálsson
Weeping Rock eftir Skúla Sverrisson &
Eyvind Kang
Tónlistarflytjandi ársins
Jóel Pálsson
Davíð Þór Jónsson
Óskar Guðjónsson/ Skúli Sv.
Björn Thoroddsen
Tómas R. Einarsson
Hljómplata ársins
Fagra veröld - Sunna Gunnlaugsdóttir
Raddir þjóða - Sigurður Flosason og Pét-
ur Grétarsson
Rask - Davíð Þór Jónsson
Septett - Jóel Pálsson
Tyft - Hilmar jensson
ÝMIS TÓNLIST
Hljómplata ársins
Eftir þögn: Óskar Guðjónsson og Skúli
Sverrisson
Englabörn: Jóhann Jóhannsson
Guð og gamlar konur: Anna Pálína Árna-
dóttir
Raddir þjóðar: Sigurður Flosason og Pét-
ur Grétarsson
Söngvaskáld: Hörður Torfason
POPPTÓNLIST
Bjartasta vonin
Hera
Singapore Sling
Búdrýgindi
Santiago
Worm Is Green
Afkvæmi guðanna
Þórunn Antonía
Myndband ársins
Singapore Sling - Listen
Ensími - Brighter
Írafár - Allt sem ég sé
Í svörtum fötum - Dag sem dimma nátt
Land og Synir - If
Gus Gus - Dance you down
Flytjandi ársins
Apparat Organ Quartet
Bubbi
Ensími
Leaves
Múm
Sigur Rós
Söngvari ársins
Arnar Guðjónsson (Leaves)
Björn Jörundur Friðbjörnsson (Nýdönsk)
Bubbi
Egill Ólafsson (Stuðmenn)
Jón Þór Birgisson (Sigur Rós)
Páll Rósinkranz
Söngkona ársins
Birgitta Haukdal (Írafár)
Hera Hjartardóttir
Margrét Eir Hjartardóttir
Ragnhildur Gísladóttir (Stuðmenn)
Urður Hákonardóttir (Gus Gus)
Þórunn Antónía
Lag ársins
Leaves - Catch
Sigur Rós - Lag nr. 4
Írafár - Ég sjálf
Ske - Julietta 2
Sálin - Þú fullkomnar mig
Bubbi - Við Gróttu
Plata ársins
Bubbi Morthens - Sól að morgni
KK - Paradís
Leaves - Breathe
Móri - Móri
Sigur Rós - ( )
Ske - Life, Death, Happiness & Stuff
ODDGEIR HARÐARSON
Fékk í gær Nýsköpunarverðlaun forseta Ís-
lands. Þau voru fyrst veitt í ársbyrjun 1996
og hafa því verið átta sinnum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
22