Fréttablaðið - 23.01.2003, Síða 30
26 23. janúar 2003 FIMMTUDAGUR
HVAR?
Óvissuferð með
fjölskyldunni
Valgeir Guðjónsson segir sína meðfæddu hógværð ekki leyfa neitt til-
stand í tilefni dagsins. Fjölskyldan mun halda á vit óvissunnar og taka
út frosthörkur til sveita í dag.
51 ÁRS „Gert í tilefni dagsins?
Nei, það verður ekki gert neitt
umfram hefðbundin dagleg störf.
Hugsanlega eitthvað huggulegt
með kaffinu en það verður ekk-
ert megapartí,“ segir Valgeir
Guðjónsson, félagsráðgjafi og
tónlistarmaður, en hann er af-
mælisbarn dagsins.
„Bíddu, bíddu... Nú er ég að fá
upplýsingar frá konunni minni að
til standi að fara í óvissuferð sem
ég eðli málsins samkvæmt veit
fátt um. Fjölskyldan ætlar sem
sagt að skreppa út úr bænum og
taka út frosthörkur í sveitum
landsins. Stefnum í austurátt og
mun ferðin taka einhverja daga.“
Eiginkonan Ásta Kr. Ragnars-
dóttir er ætíð með eitthvað í
pokahorninu og Valgeir segist
ekki einn um þá skoðun að hann
sé vel kvæntur.
Í tengslum við væntanlegar
gjafir segist hann ekki vanhaga
um neitt en auðvitað vona af-
mælisbörn alltaf hið besta.
„Þegar ég horfi út um gluggann,
og að teknu tilliti til fyrirhug-
aðrar óvissuferðar, kæmi hlý
flík sér vel, peysa eða föður-
land.“
Nú um stundir starfar Val-
geir í félagi við konu sína við
fyrirtækið nema.is sem leggur
meðal annars fyrir sig áhuga-
sviðsgreiningar. „Nú er ég loks
að starfa við það sem ég mennt-
aði mig til á sínum tíma, félags-
ráðgjöfina. Þetta eru merkilegar
kannanir og Ásta hefur þróað
aðferð til að lesa úr þessum
prófum sem fólk tekur til dæmis
þegar það stendur frammi fyrir
stórum ákvörðunum.“
Eftirminnilegasta afmælis-
veisla Valgeirs er trúlega sú
síðasta en þá var haldin veisla í
heimahúsi. „Þá var mikið sung-
ið. Afmælisveislur fólks á
mínum aldri, sérstaklega vegna
stórafmæla, eru oft þvílík
stórvirki að þær þyrftu í um-
hverfismat. Ég gat ekki hugsað
mér slíkt tilstand, mín með-
fædda hógværð leyfir ekki
slíkt. Og svo sýnist mér oft sem
afmælisbörnunum sjálfum
þyki ekkert gaman í slíkum
veislum. Afmælisveislan í
fyrra stóð lengi við söng og
grín.“
Valgeir segir ágætt að eiga
afmæli í janúar. „Það hefur
lengi vel reddað manni að eiga
afmæli í þessum blúsaðasta
mánuði ársins, sem er sá
dimmasti og sá kaldasti.“
jakob@frettabladid.is
AFMÆLI
VEÐURFRÆÐINGUR Sigurður Þ.
Ragnarsson, umsjónarmaður
veðurfrétta á Stöð 2 og stunda-
kennari við Menntaskólann í
Kópavogi, hefur vakið athygli
fyrir glöggar veðurspár en hann
vinnur eftir langtímaspám
bandarísku Veðurstofunnar á
meðan flestir starfsfélaga hans
halda sig við þær evrópsku. „Ég
á mér draum um að ná 100 pró-
sent árangri í að spá fyrir um
veður framtíðarinnar,“ segir
Sigurður, sem er ættaður úr
Hafnarfirði í fleiri liði en tölu
tekur. „Hreinræktaður Gaflari,“
segir hann sjálfur.
Eiginkona Sigurðar er Hólm-
fríður Þórisdóttir íslenskufræð-
ingur og saman eiga þau þrjú
börn og einn hund. Börnin heita
Þórir Snær, Árni Þórður og
Bessi Þór. Hundurinn heitir Táta
Snæfríður.
„Í tómstundum mínum les ég
mikið og þá helst um náttúruvís-
indi og veðurfræði. En einnig er
ég mikill ferðagarpur og hef
unun af því að ferðast um há-
lendi Íslands og til framandi
landa. Ég er vel útbúinn því ég á
bæði fellihýsi og svo hef ég góð-
an aðgang að húsi á Spáni,“ seg-
ir Sigurður, sem er 35 ára og ætl-
ar ekki að láta deigan síga fyrr
en hann nær fullkomnun í veður-
spám sínum. „Ég er með full-
komnunaráráttu sem getur verið
erfitt að eiga við en hún gefur
manni einnig styrk til að halda
áfram og bæta sig í sífellu.
Þannig er það og þannig vil ég
hafa það,“ segir veðurfræðing-
urinn sem fer ekki alltaf troðnar
slóðir í spám sínum - en hittir þó
yfirleitt á rétta veðrið. ■
Sigurður Þ. Ragnarsson
spáir í veður með hjálp bandarísku
Veðurstofunnar. Hann er glöggur þegar
hann gáir til veðurs og reynir sífellt
að bæta sig.
Persónan
Vill vera 100 prósent
VALGEIR GUÐJÓNSSON
Segir ágætt að eiga afmæli í þessum blúsaðasta mánuði ársins.
JARÐARFARIR
13.30 Guðrún Sigurjónsdóttir, Ægisíðu
107, Reykjavík, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju.
ANDLÁT
Bogi Sigurjónsson, Leifsgötu 10,
Reykjavík, lést laugardaginn 4. janúar.
Útförin hefur farið fram.
Magnús Kristjánsson frá Norðtungu
lést mánudaginn 20. janúar.
Skarphéðinn Guðmundsson Sóleyjar-
hlíð 1, Hafnarfirði, lést 20. janúar.
Hjördís Leifsdóttir, Arnarheiði 22,
Hveragerði, varð bráðkvödd á heimili
sínu 19. janúar.
Ingvar Jónsson, Sæborg, Skagaströnd,
lést laugardaginn 18. janúar.
STÖÐUVEITINGAR
Dr. Mikael M. Karlsson prófessor hefur
verið ráðinn í stöðu deildarforseta nýrrar
félagsvísinda- og lagadeildar við Háskól-
ann á Akureyri.
Samgönguráðherra hefur skipað Jón
Rögnvaldsson í embætti vegamála-
stjóra frá og með 1. mars næstkomandi.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
SIGURÐUR Þ. RAGNARSSON
Ferðagarpur með fellihýsi og að-
gang að húsi á Spáni.
Hver er munurinn á gáfuðuljóskunni og snjómanninum
ógurlega? Snjómaðurinn ógurlegi
er örugglega til. ■
TÍMAMÓT
FRÉTTIR AF FÓLKI
30-17.
Adolf H. Berndsen.
Jack Nicholson.
1.
2.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
3.
Að gefnu tilefni skal tekið fram
að menn geta hent handboltum
úr snjóhúsum.
Leiðrétting
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Starfar sem
skíðaþjálfari
Ég er nýkominn heim frá Nor-egi og starfa nú sem skíða-
þjálfari, bæði fyrir austan og á
Ólafsfirði,“ segir Kristinn Björns-
son, fyrrverandi atvinnumaður á
skíðum.
Kristinn lagði atvinnuskíðin á
hilluna síðastliðið vor og vann við
smíðavinnu fram að jólum, þar til
hann tók við skíðaþjálfarastarf-
inu. Hann hóf atvinnumannaferil-
inn í kringum 1995 og segist sátt-
ur með árangurinn.
„Ég er mjög ánægður með ár-
angurinn. Hefði ekki getað hugs-
að mér það betra.“ ■
Ellert B. Schram, formaður ÍSÍog fyrrverandi þingmaður
Sjálfstæðisflokks,
ætlar að þiggja
sjötta sæti á lista
Samfylkingar í
Reykjavíkurkjör-
dæmi norður eftir
að forysta flokks-
ins bauð honum
það. Innanbúðar-
menn í Samfylk-
ingunni segja að það sé einkum
forsætisráðherra-
efni flokksins,
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, sem
sé áhugasöm um
að fá hann á lista.
Þannig sé sýnt að
Samfylkingin sé
orðinn breiður
flokkur sem rúmi jafnt vinstri-
menn og fyrrum þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins. Eiríkur Berg-
mann Einarsson stjórnmálafræð-
ingur mun hins vegar ekki vera
sáttur við niðurstöðu málsins og
sagði í gær að enginn hefði beðið
sig að víkja úr sæti. Eiríkur hlaut
ekki bindandi kosningu í sjötta
sætið.
Heiðingjar þeir íslenskir ergoðin fornu blóta eru þekktir
fyrir að áreita ekki fólk með trú
sinni og lífsskoðunum. Þeim mun
því vera nokkuð brugðið eftir að
það spurðist út að kristnifræði-
kennari barna ásatrúarmanna
hefði nálgast umræður um trúna
„varfærnislega“, eins og það er
orðað í fréttabréfi ásatrúar-
manna, og hafi tekið vandamálið
upp við skólastjórann. Ásatrúar-
menn taka það þó ekki nærri sér
ef kennarar vilja ekki ræða sið
þeirra en spyrja þó hvort við
verðum ekki „fátækari fyrir, ef
ekki má ræða menninguna í skól-
anum?“ Aukin áhugi unglinga á
fornum sið um þessar mundir er
ekki síst rakinn til mikilla vin-
sælda Hringadróttinssögu.
Annars er það helst að frétta afheiðingjum að þeir una glaðir
við sinn hag. Þeir hafa nýverið
kosið sér nýjan allsherjargoða,
Hilmar Örn Hilm-
arsson, og félags-
mönnum þeirra
fjölgaði um 10.6%
á síðasta ári, sam-
kvæmt tölum
Hagstofunnar. Fé-
lagar í Ásatrúar-
félaginu voru 628
um áramótin en voru 568 á sama
tíma árið áður. Ásatrúarmenn
segja þetta langmestu fjölgun í
„grónu trúfélagi á Íslandi“. Fjölg-
unin er heiðnum mönnum mikið
gleðiefni „þar sem hún átti sér
stað þrátt fyrir erfiðleika og
slæma fjölmiðlaumræðu sem fé-
lagið mátti þola síðastliðið sum-
ar“. Þá fylgir það sögunni að
hlutfall barna og ungs fólks fer
stækkandi og að vitað sé um tals-
verða fjölgun í félaginu frá því
talningin var gerð.