Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.01.2003, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 29.01.2003, Qupperneq 1
ÍRAK Ísland hafi frumkvæði bls. 6 Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Miðvikudagurinn 29. janúar 2003 Tónlist 12 Leikhús 12 Myndlist 12 Bíó 14 Íþróttir 10 Sjónvarp 16 KVÖLDIÐ Í KVÖLD HANDBOLTI Íslendingar mæta Pól- verjum í fyrsta leik í milliriðli heimsmeistarakeppninnar í hand- bolta í dag. Leikurinn verður sýnd- ur beint í Sjónvarpinu og hefst út- sending klukkan 18.00. Ísland - Pólland NÁMSKEIÐ Námskeiðaröð fyrir al- menning um rímur og rapp hefst í Þjóðarbókhlöðu í dag. Á vaðið ríða rímna- og rappsnillingarnir Stein- dór Andersson og Jón Magnús Arn- arsson. Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði mun tengja saman þessar tvær hefðir og benda á ýmsa snertifleti. Námskeiðið er haldið í fyrirlestrarsal Þjóðarbók- hlöðu frá kl. 20 til 22. Rímur og rapp ALÞINGI Upplýsingaskylda stjórna hlutafélaga um starfslokasamninga og fleiri sambærilega samninga verður rædd utan dagskrár á Al- þingi í dag. Málshefjandi er Lúðvík Bergvinsson, Samfylkingunni, en Valgerður Sverrisdóttir viðskipta- ráðherra verður til andsvara. Um- ræðan hefst klukkan 15:30. Starfslokasamningar HLJÓMSVEIT Tónskóli Sigursveins, undir stjórn Guðna Franzsonar, heldur tónleika í tónlistarhúsinu Ými við Skógarhlíð. Á efnisskrá er eingöngu 20. aldar tónlist, verk eft- ir fræg tónskáld og endað á tíma- mótaverkinu „In C“. IN C SJÁLFSMYND Undan oki glansmyndar MIÐVIKUDAGUR 24. tölublað – 3. árgangur bls. 22 DÓMARI Dregur taum sannleikans bls. 14 MÓTMÆLI Fjöldi var samankominn á Austurvelli á hádegi í gær til að mótmæla framkvæmdum vegna Kárahnjúkavirkjunar. Mótmælin fóru friðsamlega fram þrátt fyrir að einn maður hafi verið handtek- inn af lögreglu. Hann kastaði snjóbolta í átt að Alþingishúsinu. Meðal mótmælenda heyrðist óánægjukliður þegar maðurinn var leiddur inn í lögreglubíl. Nokkrir viðstaddra hófu þá að kasta snjóboltum í Alþingishúsið án þess að lögregla aðhefðist frekar. Við byrjun stöðunnar tóku mót- mælendur vettlinga úr hrúgu sem búið var að mynda og lögðu fyrir framan Alþingishúsið. Þetta var gert til að leggja áherslu á að allir sem vettlingi geta valdið mótmæli framkvæmdunum. Að því búnu las Arnar Jónsson leikari upp orð- sendingu sem barst að austan frá Félagi um verndun hálendis Aust- urlands. Mótmælendur hrópuðu í lokin ýmis slagorð og í einu þeirra voru þingmenn sakaðir um nátt- úruleysi. Þá var hrópuð krafa um þjóðaratkvæðagreiðslu. ■ REYKJAVÍK Norðlæg átt, 3-8 m/s, léttskýjað og frost 2 til 10 stig. VEÐRIÐ Í DAG VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 3-8 Léttskýjað 5 Akureyri 3-8 Él 9 Egilsstaðir 5-10 Él 10 Vestmannaeyjar 3-8 Léttskýjað 6 ➜ ➜ ➜ ➜ - - - - FRÁ AUSTURVELLI Talið er að hátt í þrjú hundruð manns hafi verið samankomin á Austurvelli í gær til að mótmæla framkvæmdum vegna Kárahnjúkavirkjunar. Tugur lögreglumanna var mættur og röðuðu þeir sér fyrir framan Alþingishúsið meðan á mótmælum stóð. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Fjöldi mótmælti Kárahnjúkavirkjun: Einn handtekinn FERÐ bls. 11 Tryggingar í Njálu ÍÞRÓTTIR Yfirgefur Börsunga bls. 18 EGON RICHARD HEINZ HUBNER Þjóðverjinn sem flutti tæplega hálft annað kíló af kókaíni til landsins fékk tveggja ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þjóðverji: Dæmdur í tveggja ára fangelsi DÓMSMÁL Þjóðverjinn Egon Ric- hard Heinz Hubner sem flutti 1482 grömm af kókaíni til Íslands var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í tveggja ára fang- elsi. Þriggja mánaða gæsluvarð- haldsvist Hubners kemur til frá- dráttar fangelsisdómnum. Kókaínið fannst við leit á Hubner þegar hann kom til lands- ins síðla í október í fyrra. Hann hafði límt efnið við fótleggi sína. Hubner sagðist svo frá að maður sem hann hitti á bar í Hamborg hefði fengið hann til verksins gegn greiðslu sem svarar til um 425 þúsund króna. Hann hafi slegið til þar sem hann hafi verið atvinnulaus og í fjárhagsvand- ræðum. Hubner sagðist hafa hitt manninn aftur ásamt viðskiptafé- laga hans. Annar þeirra kom á heimili hans og gekk frá efninu fyrir flutninginn. Við komuna til landsins hafi hann átt að taka flugrútuna til Reykjavíkur. Þar hafi einhver, sem hann vissi ekki hver var, átt að taka við efninu. Að því er kemur fram í dómi héraðsdóms á Hubner sér ekki sakaferil. Hann er 58 ára. ■ HEILBRIGÐISMÁL Lyfjaverð er hærra hér á landi en eðlilegt getur talist, miðað við hin Norðurlöndin, full- yrðir Jóhannes Gunnarsson, lækn- ingaforstjóri Land- spítala - háskóla- sjúkrahúss. Hann segir að á næstunni muni verða kannað hvort ekki verði hægt að skipta beint við sjúkrahús á Norðurlöndunum og freista þess að lækka lyfjakostnað spítalans. „Við höfum býsna góðar upplýs- ingar um verð á lyfjum annars staðar og það hefur komið til tals hvort ekki væri gerlegt að spítalinn tengdist tilboðum spítala á Norður- löndum og lækkaði þar með lyfja- kostnað, sem hefur verið um það bil 20% af heildarrekstrarkostnaði spítalans. Verðmyndun lyfja er flókið mál en ekki verður horft framhjá því að fákeppni ríkir á lyfjamarkaði, enda hafa fyrirtæki sem fást við innflutning og dreif- ingu lyfja sameinast, bæði hér á landi og erlendis. Við höfum kann- að verð á lyfjum á milli okkar og sjúkrahúsa á Norðurlöndunum og það munar í sumum tilfellum mjög miklu,“ segir Jóhannes. Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri Félags stórkaup- manna, segir það alls ekki rétt að lyfjaverð hafi hækkað að undan- förnu. „Þvert á móti getum við sýnt fram á að lyf hafa lækkað á síðasta ári. Það getur hins vegar verið að lyfjakostnaður spítalans hafi hækkað en það hefur ekkert með lyfjaverð að gera.“ Andrés segir bundið í lögum að til að flytja inn lyf þurfi bæði inn- flutnings- og heildsöluleyfi. Hingað til hafi spítalanum þótt gott að geta stólað á lyfjafyrirtækin þegar flytja þarf inn óskráð lyf. Þá hafi verið leitað að hagstæðustu kaup- unum og mikill tími og vinna lögð í það. „Það má heldur ekki gleymast að það er hægt að nefna mýmörg dæmi um lyf sem eru ódýrari hér en á hinum Norðurlöndunum. Langstærstur hluti lyfja er hins vegar á mjög svipuðu verði. Það er ekki sanngjarnt af stjórnendum spítalans að nefna einhver einstök dæmi um lyfjamun aðeins vegna þess að það er þeim í hag.“ Andrés neitar því alfarið að skortur sé á samkeppni á lyfja- markaði. „Það eru um það bil 130 framleiðendur sem hafa markaðs- leyfi á Íslandi um að framleiða 3000 lyfjategundir. Á milli þeirra er mikil samkeppni.“ bergljot@frettabladid.is NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 49 ára samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá október 2002 29% D V 80.000 eintök 70% fólks les blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuðborgar- svæðinu á miðviku- dögum? 55% 81% Leita ódýrari lyfja erlendis Lækningaforstjóri Landspítala segir lyfjaverð hærra hér en á öðrum Norðurlöndum. Kannað verður hvort hagstæðara sé að kaupa lyf beint þaðan. Lyfjaheildsalar segja stærstan hluta lyfja á svipuðu verði og þar. „Við höfum kannað verð á lyfjum á milli okkar og sjúkrahúsa á Norðurlönd- unum og það munar í sum- um tilfellum mjög miklu.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.