Fréttablaðið - 29.01.2003, Page 14

Fréttablaðið - 29.01.2003, Page 14
14 29. janúar 2003 MIÐVIKUDAGUR BANGER SISTERS kl. 5.30, 8 og 10.15 TRANSPORTER b.i. 14 ára kl. 8 JAMES BOND b.i. 12 ára kl. 5 og 10Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15 - bi 16 ára Kl. 4 og 8 b.i. 12 ára Sýnd í lúxus kl. 5.30 og 9.30 kl. 5.50 og 10.10HAFIÐ kl. 6.10HLEMMUR kl. 8GRILL POINT Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.05 Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15 GULLPLÁNETAN m/ísl.tali kl. 4 VIT498 HARRY POTTER m/ísl.tali kl. 5 VIT 493 HARRY POTTER kl. 8 VIT468 THE HOT CHICK 4, 6, 8 og 10 VIT JUWANNA MANN 4, 6, 8 og 10 VIT kl. 6 , 8 og 10STELLA Í FRAMBOÐI Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i.14.ára Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 b.i.16.ára Sýnd í lúxus kl. 6, 8 og 10 FRÉTTIR AF FÓLKI Ástralska söngkonan KylieMinogue ætlar að hefja sölu á nýrri nærfatalínu í Bretlandi. Nær- fötin, sem eru ýmist úr satíni, með blúndum eða netsokkamynstri, hafa fengið nöfn á borð við Diva, Vamp og Fever, sem eru titlar síð- ustu platna hennar. Fatnaðurinn verð- ur tekinn til sölu í Selfridge-stór- markaðakeðjunni í næstu viku og kostar á bilinu 10-50 pund, eða frá tæpum 1.500 krónum til 7 þúsunda. Minogue hóf að hanna og selja sinn eigin nærfatnað í Ástralíu fyrir tveimur árum. Nýtt Leo-æði hefur gripið um sigí Bretlandi eftir frumsýningu myndarinnar „Catch Me If You Can“ með Leonardo DiCaprio í aðalhlut- verki. Um þrjú þús- und táningsstúlkur fjölmenntu fyrir utan kvikmynda- húsið þar sem myndin var frum- sýnd til að berja goðið augum. Stúlk- urnar hrópuðu nafn hans ákaft og tók hann um 20 mínútur að komast inn í kvikmyndahúsið. Leo fékk ágætar viðtökur þegar hann mætti til frumsýningar Gangs of New York fyrr í mánuðinum. Þær voru þó litl- ar í samanburði við þær móttökur sem hann fékk um helgina, sem min- ntu á frumsýningu „Titanic“. Lögreglan í Vancouver er á hött-unum eftir 50 manns sem tóku þátt í uppþoti á tónleikum Guns ’n’ Roses í lok síðasta árs. Tónleikarn- ir áttu að vera þeir fyrstu í Amer- íkuferðalagi sveitarinnar en for- sprakki hennar, Axl Rose, lét ekki sjá sig á svæðinu. Í kjölfarið kom til uppþota á tónleikasvæðinu og þurfti óeirðalögreglan að skerast í leikinn. Lögreglan hefur birt myndir og myndbönd af fólki sem hún vill ná tali af. SEX IS COMEDY kl. 10.15 HARRY - UN AMI... kl. 8 FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ KVIKMYNDIR Lesendur kvikmynda- tímaritsins Total Film telja að enski leikarinn Jude Law sé best til þess fallinn að taka við hlut- verki Írans Pierce Brosnan sem næsti James Bond. Hinn þrítugi Law fékk rúm- lega fjórðung atkvæða í kosning- unni. Rétt á eftir honum varð skoski leikarinn Ewan McGregor og hinn enski Christian Bale. Matt Fueller, ritstjóri tímarits- ins, telur að Law hafi örlítið for- skot á hina keppendurna. „Mér finnst Jude Law hafa þessa yfir- stéttarfágun sem fólk tengir oft- ast við James Bond.“ Hann sagði hins vegar að hugmyndin um Ewan McGregor í hlutverkinu væri ekki svo galin enda er hann af sama bergi brot- inn og Skot- inn Sean C o n n e r y, sem margir telja að sé besti Bond-leikarinn til þessa. Þess má geta að Hugh Grant fékk einungis tvö prósent at- kvæða í kosn- ingunni. P i e r c e Brosnan hefur ákveðið að leika í fimmtu myndinni um Bond en óvíst er hvort hann taki að sér fleiri hlutverk í seríunni. ■ LAW Jude Law fór meðal annars með hlutverk í myndunum „The Talented Mr. Ripley“ og „Artificial Intelligence“. ROBERT DOWNEY JR. Var í sárum eftir að Calista Flockhart lét hann gossa en var fljótur að jafna sig þeg- ar hann sá Christinu Aguilera. Robert Downey Jr: Bauð Aguilera á stefnumót FÓLK Robert Downey Jr. virðist hafa jafnað sig á skilnaðinum við Calistu Flockhart, úr Ally McBeal-þáttun- um, og hefur nú boðið poppdívunni Christinu Aguilera á stefnumót. Aguilera var upp með sér til að byrja með en þegar hún hafði feng- ið hátt í 40 skeyti frá leikaranum var henni ofboðið, þakkaði pent fyrir sig og afþakkaði. Talsmaður söngkonunnar segir að hún hafi fengið nóg og sent honum skeyti til baka þar sem hún útskýrði fyrir Downey að hann væri of gamall. Aguilera er 22 ára en Robert Dow- ney 37. ■ SJÁLFSMYND Góð sjálfs- mynd er sögð lykillinn að lífshamingjunni enda eru þeir sem eru óá- nægðir með sjálfa sig oft meðal annars þjak- aðir af þunglyndi og kvíða. Sjálfsmynd fólks mótast ekki síst á ung- lingsárunum og því er unglingum mikilvægt að vera meðvitaðir um grundvallarþætti í fari sínu og huga að því hvernig þeir vilja vera og hvaða áhrif hug- myndir þeirra um sjálfa sig hafa fyrir stöðu þeirra í lífinu. Þau við- mið og mælikvarðar sem krakkarnir kynnast í fjölmiðlum; kvikmynd- um, sjónvarpi, auglýs- ingum og glanstímarit- um, eru oft í litlum tengslum við raunveru- leikann og það getur verið varasamt að grundvalla sjálfsmat sitt á sýndarveruleika afþreyingariðnaðarins. EGÓ átakinu er ætl- að að vekja ungt fólk til umhugs- unar um sjálft sig, fá það til að gefa mikilvægi sjálfs- myndar innar gaum og læra að vega og meta þau skilaboð sem fjölmiðlarnir senda þeim. Ásta Sigríður Krist- jánsdóttir, framkvæmdastjóri verkefnisins, segir hugmyndina alls ekki vera að ráðast gegn tísk- unni, tónlistarmyndböndum og kvikmyndaiðnaðinum heldur að hjálpa krökkunum að hugsa sjálf- stætt og velja fyrir sig. „Við erum miklu frekar að reyna að segja krökkun- um að þau þurfi ekki að vera eins og allar þessar tilbúnu ímyndir og eigi fyrst og fremst að taka ákvarðanir á eigin for- sendum. Vilji stelpa fara í brjóstastækkun ætti hún að gera það af því að hún vill það sjálf, en ekki fyr- ir kærastann sinn eða af því að vinkonur hennar hafa látið stækka á sér brjóstin. Við reynum líka að höfða til stráka en það sem snýr að þeim er ef til vill ekki jafn áberandi og myndrænt en það má til dæmis benda þeim á að þeir þurfi ekki að fá sér tattú, fara daglega í ljós eða taka stera til að vera sterkir ef eina ástæðan er utanaðkomandi þrýsting- ur. Meðal þess sem við bendum krökkunum á er að ef þau eru óánægð með útlit sitt ættu þau að byrja á því að huga að sjálfsmyndinni og sjá svo til hvort þau séu jafn óá- nægð eftir það.“ ÍTR hefur komið að verkefn- inu og stóð fyrir einu prufunám- skeiði fyrir jól. Ásta segir krakk- ana sem tóku þátt í því hafa verið mjög ánægða og í framhaldinu hefur ÍTR ákveðið að vera með fleiri námskeið sem leiðbeinend- ur í félagsmiðstöðvum munu hafa umsjón með. ■ Undan oki glans- myndarinnar Landlæknisembættið, Rauði krossinn, Heilsugæslan, Jafningjafræðslan og Geðrækt standa að EGO átakinu. Verkefnið hefur farið vel af stað og nú stefnir ÍTR á námskeiðahald í tengslum við það. ÁSTA SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR „Það er rétt að vekja athygli á því að maður þarf ekkert að vera nið- urbrotin manneskja til að hafa gagn af svona námskeiði. Það er öll- um hollt að vinna í sjálfsmynd sinni og efla sjálfstraustið.“ Jude Law: Næsti James Bond? FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.