Fréttablaðið - 29.01.2003, Side 6
6 29. janúar 2003 MIÐVIKUDAGURVEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 22
1.
2.
3.
Eitt dýr fremur öðrum vekur
mikla athygli í Húsdýragarðin-
um. Er það svo að aðsóknar-
met var slegið í desembermán-
uði vegna tilkomu þess. Hvaða
dýr er þetta?
Bandarískur auðkýfingur, sem
efnast hefur á því að hanna og
selja tölvubúnað, tilkynnti 16
milljarða króna framlag til
rannsókna á ýmsum sjúkdóm-
um. Hver er þetta?
Hvaða verslunarmaður hefur
um langt skeið rekið gallerí í
fataverslun sinni?
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 78.54 0.24%
Sterlingspund 128.39 0.07%
Dönsk króna 11.41 -0.40%
Evra 84.86 -0.42%
Gengisvístala krónu 123,39 -0,08%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 291
Velta 4.345 milljónir,
ICEX-15 1.345 -0,07%
Mestu viðskipti
Vinnslustöðin hf. 2.575.559.844
Íslandsbanki hf. 144.950.204
Landsbanki Íslands hf. 81.593.503
Mesta hækkun
Vinnslustöðin hf. 3,53%
Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf. 2,56%
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 1,92%
Mesta lækkun
Íslenskir aðalverktakar hf. -4,35%
Samherji hf. -2,02%
Grandi hf. -1,64%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8047,4 0,7%
Nasdaq*: 1330,7 0,4%
FTSE: 3490,0 0,3%
DAX: 2642,7 0,0%
Nikkei: 8525,4 -1,0%
S&P*: 851,3 0,5%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Staða sjávarútvegs:
Erlend fjárfesting styrkti greinina
SJÁVARÚTVEGUR Olíuverð er helsta
ógnin við afkomu sjávarútvegsfyr-
irtækja. Í nýrri greiningu á sjávar-
útvegi segir Kaupþing að rekstrar-
umhverfi greinarinnar sé að öðru
leyti þokkalegt. Styrking krónunnar
hefur þó neikvæð áhrif á framlegð
sjávarútvegsfyrirtækja en á hinn
bóginn vinnur sterk króna á móti
hækkandi olíuverði.
Greiningardeild Kaupþings telur
útrás og fiskeldi helstu möguleika
greinarinnar til vaxtar. Sameining-
ar hafa verið áberandi í sjávarút-
vegi að undanförnu. Stærstu fyrir-
tæki landsins eru komin upp að
mörkum heimildar til kvótaeignar.
Kaupþing telur spurningu um
hækkun kvótaþaksins ekki spurn-
ingu um hvort heldur hvenær því
verði lyft. Þá telur Kaupþing að
heimild til erlendrar fjárfestingar í
greininni myndi efla íslensku sjáv-
arútvegsfyrirtækin.
Hlutabréf sjávarútvegsfyrir-
tækja hafa hækkað í Kauphöllinni
síðustu misseri. Kauptækifærum
fer því fækkandi. Kaupþing telur
Granda og Samherja vænlegustu
kostina í greininni. Þau félög hafi
setið eftir við hækkanir fyrirtækja í
greininni. ■
Kærum vegna kynferðisbrota fjölgar stöðugt:
Ámóta margir dómar
KYNFERÐISBROT Kærum vegna
kynferðisbrota fjölgar jafnt og
þétt. Á fimm árum hefur fjöldi
mála á ári aukist úr 96 í 171 eða
um 78%. Þetta kemur meðal
annars fram í svari dómsmála-
ráðherra við fyrirspurn Sigríðar
Ingvarsdóttur, Sjálfstæðis-
flokki. Þingmaðurinn spurði um
fjölda kæra síðustu 10 ár en
upplýsingar eru ekki fyrirliggj-
andi. Samkvæmt upplýsingum
lögregluembætta landsins voru
96 kynferðisbrot kærð til lög-
reglu árið 1998. Þeim fjölgaði í
119 árið eftir, árið 2000 voru
kærð 149 slík mál og árið 2001
voru 175 kynferðisbrot kærð til
lögreglu á landinu öllu. Sam-
kvæmt bráðabirgðatölum frá
embætti ríkislögreglustjóra
voru kynferðisbrotin 171 í
fyrra. Algengast er að kært sé
fyrir nauðgun eða brot gegn
194. grein almennra hegningar-
laga. Þá færist í vöxt að kært sé
fyrir kynferðisbrot gegn börn-
um 14 til 16 ára en rúmlega
fimmtungur kæra er vegna kyn-
ferðisbrota gegn börnum.
Samkvæmt svari dómsmálaráð-
herra hefur fjöldi verið svipaður
öll árin. 24 kynferðisbrotadómar
féllu árið 1998, 22 dómar árið 1999,
24 dómar árið 2000, 36 dómar árið
2001 og 18 dómar í fyrra.
Dómsmálaráðherra segir í
svarinu að ekki hafi verið talið
ráðlegt að þyngja lágmarksrefs-
ingu fyrir kynferðisbrot í því
skyni að þyngja refsingar við
þeim brotum. Þá segir ráðherra að
núgildandi ákvæði um fyrningu í
almennum hegningarlögum veiti
þolendum kynferðisbrota næga
réttarvernd. ■
Ísland hafi
frumkvæði
Deilt var um hugsanlegar aðgerðir Bandaríkjamanna gegn Írak á Alþingi
og samskipti Íslands við Bandaríkin vegna þess. VG vilja að Ísland sendi
Bandaríkjunum skýr skilaboð um afstöðu og hlutleysi ef til átaka kemur.
ÍRAK „Íslensk stjórnvöld eiga að
hafa frumkvæði að því að hafa
samband við Bandaríkjastjórn og
koma þeirri afstöðu Íslendinga á
framfæri að allra leiða skuli leitað
til að afstýra innrás í Írak. Og í
öðru lagi, komi til
hernaðaraðgerða
gegn Írak á næstu
mánuðum, þá skuli
Ísland tilkynna að
ekki verði heimil-
uð afnot af aðstöðu
á íslensku yfir-
ráðasvæði,“ sagði
Ögmundur Jónas-
son, Vinstri hreyf-
ingunni - grænu
framboði. Hann
spurði utanríkis-
ráðherra hvort bandarísk stjórn-
völd hefðu haft samband við ís-
lensk stjórnvöld um hugsanlegar
hernaðaraðgerðir í Írak eða Ís-
lendingar við Bandaríkjamenn til
að koma sjónarmiðum sínum á
framfæri. Ráðherra kvað svo ekki
vera. Fyrir lægi að íslensk stjórn-
völd teldu nauðsynlegt að betra
ráðrúm gæfist fyrir vopnaeftir-
litsmenn til að athafna sig í Írak.
„Auðvitað vonast allir til þess,
þá ekki síst Íslendingar, að það
verði hægt að komast hjá átökum
á þessu svæði,“ sagði Halldór og
bætti við að þrír kostir væru í
stöðunni. Óbreytt ástand, sem
væri versti kosturinn, að ríkis-
stjórnin í Írak undir forystu Sadd-
ams Husseins hrökklaðist frá
völdum með einhverjum hætti,
sem hlyti að vera besta niðurstað-
an, og loks að til átaka kæmi á
svæðinu. Tími væri kominn til að
hörmungunum í Írak linnti og það
gerðist vart nema með utanað-
komandi þrýstingi.
Fyrirspyrjandi krafðist
skýrra og afdráttarlausra svara
frá ráðherra um stefnu íslenskra
stjórnvalda og sagði að ekki
væru allir sammála um hvort Ör-
yggisráðið hefði gefið skilyrðis-
lausa heimild til innrásar ef í ljós
kæmi að Íraksforseti hefði brot-
ið gegn samþykktum ráðsins.
„Ég tel að það sé alveg ljóst að
ef í ljós kemur að Saddam býr
yfir gereyðingarvopnum og vill
ekki afvopnast þá stendur al-
þjóðasamfélagið frammi fyrir
því að grípa til sinna ráða. En
það er alveg ljóst af okkar hálfu
að við teljum algjörlega nauð-
synlegt að þetta mál komi til um-
fjöllunar öryggisráðsins á nýjan
leik. Það hlýtur að vera krafa
okkar Íslendinga, eins og ann-
arra, að Saddam afvopnist. Það
er krafa Sameinuðu þjóðanna. En
ef það kemur í ljós að hann býr
ekki yfir gereyðingarvopnum, þá
er málið væntanlega leyst,“
sagði Halldór.
the@frettabladid.is
Varaþingmaður
tekur sæti:
Vigdís á þing
ALÞINGI Vigdís Hauksdóttir vara-
þingmaður tók í gær sæti á Al-
þingi í fjarveru Ólafs Arnar
Haraldssonar. Ólafur Örn situr
nú fyrsta fund Evrópuráðsþings-
ins í Strassborg á árinu.
Á fundinum verða ræddar
skýrslur málefnanefnda Evrópu-
ráðsþingsins, meðal annars um
framlag Evrópuráðsins til fram-
tíðarráðstefnu Evrópusam-
bandsins, stöðu mála í Tsjetsjen-
íu, aðbúnað flóttafólks í suðaust-
urhluta Evrópu, tjáningarfrelsi í
fjölmiðlum og menningarsam-
vinnu Evrópu og ríkja norðan-
verðrar Afríku.
Auk Ólafs Arnar sitja Lára
Margrét Ragnarsdóttir, formað-
ur Íslandsdeildar Evrópuráðs-
þingsins, og Kristján L. Möller
alþingismaður fundinn fyrir Ís-
lands hönd. ■
Ku Klux Klan:
Foringi
sakaður
um morð
NORÐUR-KARÓLÍNA, AP Foringi Ku
Klux Klan-hóps í Norður-Kar-
ólínuríki í Bandaríkjunum hefur
verið ákærður fyrir morð ásamt
eiginkonu annars leiðtoga hóps-
ins og tveggja annarra manna.
Fólkið er sakað um að hafa myrt
óþekktan mann fyrir tveimur
árum, en lík hans fannst í árs-
byrjun. Eiginmaður konunnar
hefur einnig verið handtekinn en
ekki ákærður.
Lögreglumenn telja að maður-
inn hafi verið myrtur vegna þess
að hann hafði vitneskju um fyrir-
hugaðar sprengjuárásir hópsins
á opinberar byggingar. ■
Þriggja ára drengur:
Hlekkjaður
við rúmið
CHICAGO, AP Lögreglumenn sem leit-
uðu að fíkniefnum og vopnum á
heimili í Chicago í Bandaríkjunum
fundu þriggja ára dreng hlekkjaðan
við rúm. Keðja var vafin um háls
drengsins og fest með hengilási.
„Ef hann hefði dottið fram af
rúminu hefði hann getað kafnað,“
sagði Oscar Arteaga, einn lögreglu-
mannanna. Fósturmóðir drengsins
sagði að hann hefði verið bundinn
með þessum hætti vegna þess að
hann stæli sér mat, að því er lög-
reglumenn greindu frá. Drengurinn
og fjögur önnur börn allt að ellefu
ára gömul voru tekin úr vörslu kon-
unnar. ■
Keflavíkurflugvöllur:
Þrjú kíló
af hassi
FÍKNIEFNI Þrjú kíló af hassi fundust
við leit á 36 ára gömlum íslenskum
karlmanni sem var að koma frá
Kaupmannahöfn á sunnudags-
kvöld. Fíkniefnadeild tollgæslunn-
ar á Keflavíkurflugvelli stöðvaði
manninn en fann engin fíkniefni í
farangri hans. Við nánari skoðun
kom í ljós að hann hafði límt hass-
ið á líkamann. Í framhaldi af því
var hann handtekinn og yfirheyrð-
ur af fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík á mánudag.
Samkvæmt upplýsingum frá
SÁÁ gæti götuverðmæti efnanna
verið á bilinu 6 til 7 milljónir
króna. ■
Vatíkanið:
Bannfærði
kvenpresta
VATÍKANIÐ, AP Vatíkanið mun ekki
aflétta bannfæringu sinni á sjö
kvenprestum. Konurnar voru
bannfærðar eftir að þær voru
vígðar til prests á síðasta ári og
neituðu í kjölfarið að afneita
prestsheiti sínu.
Í yfirlýsingu Vatíkansins þar
sem bannfæringin er staðfest
þrátt fyrir andmæli kvennanna
segir að þetta sé gert til að vernda
samfélag og einingu kirkjunnar.
Konurnar voru vígðar af Argent-
ínumanninum Romulo Braschi
sem kallar sig erkibiskup en
Vatíkanið segir hann hafa klofið
kirkjuna. ■
OLÍAN ÓGNAR
Hækkandi olíuverð vegna yfirvofandi
stríðsátaka er einn helsti óvissuþátturinn í
afkomu sjávarútvegsins á næstunni.
ÖGMUNDUR JÓNASSON
Vill senda Bandaríkjamönnum skýr skilaboð vegna
hugsanlegar hernaðaraðgerða gegn Írak.
„Það hlýtur að
vera krafa
okkar Íslend-
inga, eins og
annarra, að
Saddam af-
vopnist. Það
er krafa Sam-
einuðu þjóð-
anna.“
HÉRAÐSDÓMUR
Rúmlega 700 kærur hafa verið lagðar fram
hjá lögreglu síðastliðin fimm ár vegna kyn-
ferðisbrota. Dómum hefur ekki fjölgað í
takt við fjölgun kæra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
KYNFERÐISBROT:
KÆRUR OG DÓMAR
Kærur Dómar
1998 96 24
1999 119 22
2000 149 24
2001 175 36
2002* 171 18
Samtals 710 124
* Bráðabirgðatölur fyrir 2002
EKKI HVAÐA STARF SEM ER
Vatíkanið, yfirvald kaþólsku kirkjunnar, vill
ekki sjá kvenpresta og telur þá stangast á
við trúna.
AP
M
YN
D
/A
RT
U
RO
M
AR
I/
VA
TÍ
K
AN
IÐ