Fréttablaðið - 29.01.2003, Síða 4

Fréttablaðið - 29.01.2003, Síða 4
UPPGJÖR Hagnaður Íslandsbanka eftir skatta var 3,4 milljarðar á síðasta ári. Afkoman er í sam- ræmi við helstu spár fjármálafyr- irtækja. Hagnaðaraukningin milli áranna 2001 og 2002 er 8,5%. Hagnaður bankans fyrir skatta var tæpir 4,2 milljarðar króna og jókst um tæp 13%. Arðsemi eigin fjár bankans var 18,2%, sem for- stjórar bankans segja vel yfir lang- tímamarkmiðum bankans. Um leið og til- kynnt var um af- komu bankans voru einnig kynnt- ar breytingar á yfirstjórn bank- ans. Valur Valsson, annar for- stjóra bankans, lætur af störfum 15. mars næstkomandi að eigin ósk. Valur segist mjög sáttur við árangur bankans á undanförnum árum „Ég get því staðið upp með mjög góðri samvisku.“ Valur á 30 ára starfsafmæli í næsta mánuði og hefur í 20 ár stjórnað banka- starfsemi Íslandsbanka og fyrir- rennara hans. „Þetta er býsna langur tími í svona starfi. Á þess- um tímamótum fannst mér kom- inn tími til að standa upp og af- henda öðrum ábyrgðina.“ Hann segir stöðu bankans einnig spila inn í ákvörðunina. Bankinn hafi aldrei staðið jafn vel. Hann segir bankann í góðum höndum. „Ég hef verið í starfi sem hefur stjórnað tíma mínum að mestu leyti og nú finnst mér rétt að ég taki völdin. Ég hyggst nota tímann til að njóta lífsins.“ Eftir skipulagsbreytingarnar verður Bjarni Ármannsson einn forstjóri bankans. Honum til halds og trausts er nýr aðstoðar- forstjóri, Björn Björnsson. Í ljósi góðrar afkomu hefur stjórn bankans ákveðið að greiða starfsmönnum kaupauka að upp- hæð 98 þúsund krónur. Bankaráð- ið mun leggja til við aðalfund að hlutafé bankans verði fært niður um 400 milljónir króna. Þá verður einnig lagt til að 45% af hagnaði bankans verði greidd út sem arð- ur til hluthafa. Er það 17% af nafnvirði hlutafjár eftir niður- færslu þess. Forsvarsmenn bank- ans telja hilla undir bjartari tíma í íslensku efnahagslífi og að bank- inn sé einstaklega vel í stakk bú- inn til að nýta sér viðskiptatæki- færi í framtíðinni. haflidi@frettabladid.is 4 29. janúar 2003 MIÐVIKUDAGURKJÖRKASSINN Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is Á Frjálslyndi flokkurinn eftir að ná manni inn á þing? Spurning dagsins í dag: Ertu ánægð(ur) með Íslendingabók? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 3% 66,2%Nei 30,8% UTAN ÞINGS Meirihluti telur að Frjálslyndi flokkur- inn nái ekki manni á þing í komandi kosning- um. Veit ekki Já DÓMSMÁL Lögmaður Péturs Þórs Gunnarssonar lagði í gær fram í Héraðsdómi Reykjavíkur rökstuðn- ing fyrir áður boðaðri frávísunar- kröfu í málinu gegn Pétri og Jónasi Freydal Þorsteinssyni. Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglu- stjóra, gerði strax kröfu um að frá- vísunarkröfu verjandans yrði hafn- að. Dómarinn veitti saksóknaranum frest til föstudags í næstu viku til að rökstyðja sína kröfu. Þrátt fyrir að málið gegni Pétri Þór hafi verið þingfest er því sama ekki að heilsa varðandi Jónas Frey- dal. Hann er kvæntur starfsmanni íslensku utanríkisþjónustunnar og er þess vegna búsettur í Ottawa í Kanada. Verjandi Jónasar sagði hann reiðubúinn að koma til landsins í tvær til þrjár vikur. Á þeim tíma væri æskilegt að málið gegn Jónasi yrði þingfest og það flutt í beinu framhaldi. Dómari og saksóknari töldu þessa tilhögun ekki óeðlilega miðað við aðstæður Jónasar. ■ Málverkafölsunarmáli frestað fram í næstu viku: Ríkislögreglustjóri krefst höfnunar frávísunarkröfu PÉTUR ÞÓR GUNNARSSON Pétur Þór Gunnarsson mætti einn sak- borninga við fyrirtöku málsins gegn sér og Jónasi Freydal Þorsteinssyni í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Jónas býr í Kanada en hefur sagst munu verða viðstaddur aðal- meðferð málsins. Svindluðu á prófi: Símboðar gáfu svörin BANGKOK, AP Lögreglan í Tælandi handtók 58 háskólanema fyrir að svindla á prófi með því að fela sím- boða í nærfötum sínum. Að sögn lögreglunnar var titringi símboð- anna ætlað að gefa til kynna rétt svör við krossaspurningum. Ef tækið titraði einu sinni þýddi það að svar eitt var rétt, ef það titraði tvisvar var svar tvö rétt og svo framvegis. Fjórir kennarar voru einnig handteknir og ásakaðir um að hafa aðstoðað nemendurna en verði svindlararnir ákærðir og fundnir sekir eiga þeir yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi auk sektar. ■ GÆTU ENDURSKOÐAÐ AFSTÖÐ- UNA Vladímír Pútín Rússlands- forseti segir Rússa munu endurskoða afstöðu sína til þess að leysa beri Íraks- deiluna með frið- samlegum hætti ef stjórnvöld í Bagdad þvælast fyrir vopna- eftirlitsmönnum Sameinuðu þjóð- anna. EFNISLEG BROT Írakar hafa gerst sekir um efnisleg brot gegn samþykktum Sam- einuðu þjóðanna segir Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands. „Líkurn- ar á því að hægt sé að leysa þetta með friðsamlegum hættu eru minni en þær voru,“ sagði Straw í viðtali við BBC. DEILIÐ UPPLÝSINGUM Domin- ique de Villepin, utanríkisráð- herra Frakklands, hefur skorað á að- ildarríki öryggis- ráðs Sameinuðu þjóðanna að deila upplýsingum sem geta brugðið ljósi á vopnaeign Íraks með vopnaeftirlitsmönnum. Slíkt gæti flýtt starfi vopnaeftirlits- ins. RÁÐUMST EKKI Á AÐRA Tariq Aziz, varaforsætisráðherra Írak, segir að Írakar muni ekki ráðast gegn öðrum ríkjum verði þeir fyrir árás. Hann varaði Banda- ríkjamenn þó við því að innrás myndi leiða til mikils mannfalls í innrásarhernum. Á FERÐ OG FLUGI Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, heldur til Spánar á fimmtu- dag til viðræðna um Íraksdeiluna við Jose Maria Aznar starfsbróður sinn, degi áður en hann heldur til Washing- ton til viðræðna við George W. Bush. FLEIRI HRYÐJUVERK? Franski dómarinn Jean-Louis Bruguiere segist óttast að tal um innrás í Írak geri það að verkum að múslímskum hryðjuverkahreyf- ingum reynist auðveldara en ella að afla sér nýrra liðsmanna. Því sé hætt við aukningu hryðju- verka af þeim sökum. ÓLÍKAR ÁHERSLUR Það bar nokk- uð í milli í málflutningi Hans Blix og Muhamed AlBaradei þeg- ar þeir fluttu skýrslur sínar um vopnaeftirlitið í Írak. Í kjölfarið hafa menn tekið eftir því að dei- landi aðilar innan öryggisráðsins vitna sífellt til orða annars en hins ekki. Bandaríkjamenn leggja áherslu á orð Blix sem var gagn- rýninn á Íraka en Frakkar rifja upp orð AlBaradeis sem sagði engar sannanir fyrir kjarnorku- vopnaeign Íraka. ÍRAKSDEILAN Ísing á götum: Þrettán árekstrar UMFERÐ Þrettán umferðaróhöpp áttu sér stað á stuttum tíma á höfuð- borgarsvæðinu í gærdag. Upp úr hádegi frysti snögglega þannig að ísing myndaðist á vegum. Í Reykja- vík var tilkynnt um átta árekstra vítt og breitt um bæinn. Þá varð harður árekstur í Setbergshverfinu í Hafnarfirði þegar fólksbíll og strætisvagn skullu saman. Ökumað- ur fólksbílsins kvartaði undan verk í hálsi. Í Kópavogi urðu árekstrar fjórir. Engin meiðsl urðu á fólki en eignatjón varð töluvert. ■ Í KAPPHLAUPI VIÐ TÍMANN Slökkviliðsmenn láta ekki deigan síga í baráttu sinni við eldhafið. Slökkviliðsmaður: Grunaður um íkveikju CANBERRA Ákæra hefur verið gefin út á hendur áströlskum slökkviliðs- manni fyrir íkveikjur í skóglendi norður af borginni Melbourne í Viktoríuríki. Hinn grunaði er átján ára og vann hann sem sjálfboðaliði við slökkvistörf á svæðinu. Hann var handtekinn í byrjun vikunnar og hefur nú verið ákærður fyrir að hafa tendrað skógarelda á tólf mis- munandi stöðum á síðastliðnum sex vikum. Ef ákærurnar reynast á rök- um reistar á maðurinn sök á bruna tuga ef ekki hundraða ferkílómetra af skóglendi. Á meðan réttað er yfir kollega þeirra heyja þúsundir slökkviliðs- manna erfitt kapphlaup við tímann því samkvæmt veðurspá næstu daga mun lofthitinn hækka og vind- hraði aukast með þeim afleiðingum að skógareldar sem verið hafa í rén- un undanfarnar vikur eflast og taka að breiðast út að nýju. ■ Innbrotsþjófur: Fangelsi í átján mánuði DÓMSMÁL Afkastamikill innbrots- þjófur hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir fjölda inn- brota í fyrra. Maðurinn, sem er 23 ára, braust meðal annars inn í Læknagarð í Vatnsmýri og Háskóla Íslands og stal þaðan margvíslegum verðmæt- um að andvirði nærri 2,5 milljóna króna. Maðurinn braust einnig inn á einkaheimili, bíla, leikskóla og hár- greiðslustofu. Á þessum stöðum stal hann fé og alls konar hlutum sem samtals voru að andvirði vel á aðra milljón króna. Með brotunum rauf maðurinn skilorð eldri refsidóma. ■ AFKOMA OG BREYTINGAR Íslandsbanki tilkynnti breytingar á yfirstjórn sinni um leið og afkoma ársins var kynnt. Val- ur Valsson hættir eftir þrjátíu ára starf í bankageiranum. „Ég hef verið í starfi sem hef- ur stjórnað tíma mínum að mestu leyti og nú finnst mér rétt að ég taki völdin.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Góð afkoma og Valur hættir Íslandsbanki skilaði góðri afkomu á síðasta ári. Hagnaðurinn var 3,4 milljarðar. Valur Valsson, annar forstjóra bankans, lætur af störfum að eigin ósk. Bjarni Ármannsson verður einn forstjóri bankans.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.