Fréttablaðið - 29.01.2003, Page 8

Fréttablaðið - 29.01.2003, Page 8
8 29. janúar 2003 MIÐVIKUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. BRÉF TIL BLAÐSINS LÖGREGLUFRÉTTIR SAMGÖNGUR Nefnd sem samgöngu- ráðherra skipaði til að fjalla um samgöngur yfir Breiðafjörð legg- ur til að Vegagerðin kanni strax grundvöll fyrir mögulegri endur- skoðun á núverandi samningi hennar og Sæferða hf. um rekstur Breiðafjarðarferjunnar Baldurs, með það að markmiði að rekstar- aðilinn leggi til hentugra skip og leigi Vegagerðinni. Reynist það vera mögulegt er lagt til að hafnar verði samningaviðræður við Sæ- ferðir hf. og látið reyna á hvort viðunandi niðurstaða náist að teknu tilliti til kostnaðar, bættrar þjónustu og líklegs söluverðmætis Baldurs. Náist ekki viðunandi nið- urstaða fyrir ríkissjóð leggur nefndin til að núverandi Baldur verði rekinn áfram með svipuðum hætti og gert er í dag. Nefndin tel- ur að miðað við þær áætlanir í vegagerð sem nú liggja fyrir sé óhjákvæmilegt að reka bílferju á heilsársgrundvelli yfir Breiða- fjörð næstu 5 til 7 árin. Nefndin telur að þegar rekstri bílferju yfir Breiðafjörð allt árið verður hætt verði áfram rekstrargrundvöllur fyrir ferju í 3-4 mánuði á ári, jafn- vel án rekstrarstyrks, sem þjóni ferðamönnum á leið yfir fjörðinn eða til og frá Flatey. Í ljósi mikilvægis ferjunnar fyrir atvinnulíf og íbúa á sunnan- verðum Vestfjörðum leggur nefndin til að í tilraunaskyni verði ferðum í vetraráætlun Baldurs fjölgað um tvær í viku frá og með 1. febrúar næstkomandi uns sum- aráætlun tekur gildi 1. júní. ■ Ferjusiglingar yfir Breiðafjörð: Vilja nýtt skip í stað Baldurs Umræðan um afstöðu fólks tilKárahnjúkavirkjunar og ál- vers Alcoa í Reyðarfirði hefur á margan hátt verið kostuleg. Það er ljóst að mjög margir þeirra sem beita sér gegn þessum fram- kvæmdum láta tilfinningar ráða ferðinni í stað málefnalegra raka. Þetta kom skýrt í ljós um daginn þegar borgarstjórnin í Reykjavík fjallaði um hvort veita ætti Lands- virkjun ábyrgð fyrir hluta af lán- um vegna framkvæmda við Kára- hnjúkavirkjun. Af því tilefni birt- ust ýmsir andstæðingar málsins í viðtölum fjölmiðla og viðhöfðu málflutning sem ekki er til þess fallinn að halda uppi málefnalegri umræðu og gefur ekki tilefni til að ætla að viðkomandi þekki til mála- vaxta. Áróðurinn gegn málinu birt- ist víða og í mismunandi myndum. Áberandi er hve spilað er á skóla- nema, þar sem þeir eru æstir upp gegn málinu en án málefnalegra raka. Í viðtölum við nema sem hafa lent í slíkri umræðu kemur berlega fram hvað margir þeirra hafa mótað afstöðu gegn málinu án málefnalegra raka, heldur hefur verið spilað inn á tilfinningalegar nótur og málavextir afskræmdir. Það var einnig áberandi þegar Ís- lensku tónlistarverðlaunin voru af- hent, að sumir þeirra sem fengu það verkefni að opna umslögin og tilkynna um verðlaunahafa, og ein- hverjir verðlaunahafar, notuðu tækifærið til að reka áróður gegn málinu, að sumu leyti með ótrúleg- um yfirlýsingum sem ekki fá stað- ist. Loks má nefna að í DV kom fram í viðtali við einn þeirra sem hefur barist einarðlega fyrir mál- inu, að hann hafi orðið fyrir hótun- um vegna þess og dæmi eru um að andstæðingar málsins hafi hrækt á fylgjendur málsins á almannafæri. Út frá öllu þessu vakna ýmsar spurningar um það hvers konar þjóðfélagi við búum í og hvernig einstaklingar leyfa sér að haga sér og koma fram í málum sem þess- um. Nú er alls ekki gert lítið úr rök- studdum sjónarmiðum sem fram hafa komið gegn þessu máli og að sjálfsögðu eiga slík sjónarmið full- an rétt á sér og þau ber að virða. Hitt er annað þegar fólk lætur til- finningar hlaupa með sig í gönur og þegar andstæðingar málsins spila á tilfinningar fólks með ómál- efnalegum áróðri, vísvitandi van- þekkingu eða afskræmdum stað- reyndum. Ekki er hægt að virða slík vinnubrögð né bera virðingu fyrir afstöðu sem á því byggist. Með byggingu álvers Alcoa og virkjun við Kárahnjúka er verið að nýta eina af helstu auðlindum okk- ar, sem felst í orku fallvatna. Með þessu erum við að auka atvinnu í landinu, auka útflutningstekjur og skapa okkur meiri fjármuni til að byggja upp og reka það þjóðfélag sem við viljum búa í. Með þessu er verið að skapa styrkari grundvöll velferðarkerfisins, skapa auknar forsendur til þess að menningarlíf blómstri í landinu og skjóta styrk- ari stoðum undir efnahagskerfi þjóðarinnar. Þannig getum við aukið möguleika á að fjármagna ennþá öflugra menntakerfi en ver- ið hefur, boðið upp á aukna fram- þróun í heilbrigðisþjónustu og fengið aukna fjármuni til upp- byggingar og rekstrar samgöngu- kerfisins, svo eitthvað sé nefnt. Margir andstæðingar málsins halda því fram að við eigum að nota þá peninga sem fara í þessa uppbyggingu í eitthvað annað, en það er uppáhaldssetning Vinstri grænna að í stað þess að fylgja stefnumiðum stjórnarflokkanna í einstökum málum þá eigi frekar að gera eitthvað annað. Málið er hins vegar þannig vaxið að uppbygging álversins er fjármögnuð af eigend- um þess og koma þeir fjármunir erlendis frá. Uppbygging Kára- hnjúkavirkjunar er fjármögnuð af Landsvirkjun með lánsfjármagni, sem verður greitt til baka með tekjum af orkusölu til álversins. Þannig er einfaldlega ekki um það að ræða að allt þetta fjármagn megi nýta til einhvers annars. Þetta geta margir andstæðingar málsins alls ekki skilið, eða vilja ekki skilja það. Það liggur fyrir að í kjölfar þessara framkvæmda og með starfsemi virkjunar og álvers mun hagvöxtur aukast og það sem mikilvægast er, að kaupmáttur launa mun aukast. Það skiptir launafólk hvað mestu máli. Það ber því að fagna þeim fram- kvæmdum sem nú eru í sjónmáli og munu auka hagsæld þjóðarinn- ar til framtíðar. ■ alþingismaður skrifar um Kárahnjúkavirkj- un. MAGNÚS STEFÁNSSON Um daginn og veginn DAVÍÐ ODDSSON Segir undirbúningi vegna skipunar Evrópu- stefnunefndar lokið. Segir nefndina fyrst og fremst umræðuvettvang en hún eigi ekki að móta sameiginlega stefnu allra flokka til Evrópumála, það geri hver flokkur fyrir sig. Skipun þverpólitískrar Evrópustefnunefndar: Undirbún- ingi lokið ALÞINGI „Ég hef látið vinna plögg sem gætu skýrt starfsgrundvöll slíkrar nefndar. Ég hafði hugsað mér í þessari viku að senda forystu- mönnum flokkanna þær hugmyndir, tel að það sé eðlilegra að gera það fyrst til að fá viðhorf þeirra áður en ég leita eftir tilnefningum,“ sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra í svari við fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs um hvað liði skipan þverpólitískrar Evrópustefnunefndar. Forsætisráðherra sagði að slík nefnd ætti fyrst og fremst að skapa vettvang þar sem flokkar gætu náð saman um tiltekna meginþætti í Evrópuumræðunni, ekki endilega um stefnu til Evrópumála. Steingrímur J. vísaði til þess að forsætisráðherra hefði í áramóta- grein sinni reifað skipan slíkrar nefndar og fagnaði því að undirbún- ingur væri nú vel á veg kominn. Þá sagði Steingrímur að samræming- argildi slíkrar nefndar væri tölu- vert, því nokkuð hefði borið á því að einstök ráðuneyti pöntuðu skýrslur eða létu gera skoðanakannanir um Evrópumál, engu væri líkara en vinstri höndin vissi ekki hvað sú hægri aðhefðist. ■ Hæstiréttur Bandaríkjanna: Barbie tap- ar dómsmáli WASHINGTON, AP Danska hljómsveit- in Aqua mátti syngja um dúkkuna vinsælu hana Barbie að hún væri lauslát ljóska eða „blonde bimbo“ eins og það hét í lagi hljómsveitar- innar „Barbie Girl“ frá 1997. Hæstiréttur Bandaríkjanna hef- ur vísað frá áfrýjun Mattel-fyrir- tækisins sem framleiðir Barbie- dúkkurnar. Fyrirtækið hafði krafist þess að útgefanda lagsins yrði refs- að fyrir að notfæra sér Barbie-vöru- merkið til að blekkja litlar stúlkur, en lagið hafði verið auglýst í barna- tímum og reynt að selja það í dóta- búðum. ■ STYKKISHÓLMUR Nefnd samgönguráðherra leggur til að ný ferja verði fengin í stað Baldurs til Breiða- fjarðarsiglinga. Enn fremur leggur nefndin til að frá og með næstu mánaðamótum verði ferðum Baldurs milli Stykkishólms og Brjánslækjar fjölgað um tvær í viku uns sumaráætlun tekur gildi í júní. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Átök um hagsæld og framþróun DRAKÚLA ELTIR TÚRISTANA Skemmtigarður, byggður á sög- unni um Drakúla greifa, verður ekki reistur í Transylvaníu held- ur nær höfuðborg Rúmeníu, Búkarest. Það er gert til að draga að fleiri ferðamenn og þar með meiri gjaldeyristekjur. EVRÓPA Breyttir jeppar Lesandi skrifar: Til umhugsunar fyrir jeppabíl-stjóra: Breyttum jeppum aka strákar og stelpur, sem virðast kunna sitt fag. Slyddujeppum fara strákar og stelpur, sem mættu bæta sitt aksturslag. HÚSVÍKINGAR Í ÓFÆRÐ Húsvík- ingar óskuðu fimmtán sinnum eftir aðstoð lögreglu í síðustu viku vegna ófærðar. Í einu tilfell lenti bíll utan vegar. LÖGREGLA Í SÚRMETI Haldin voru þorrablót á Tjörnesi, í Bárð- ardal og Mývatnssveit um helg- ina. Fóru skemmtanirnar vel fram og einu afskipti lögreglumanna á Húsavík voru að grynnka á súr- metinu í trogum skemmtanagesta.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.